Morgunblaðið - 15.12.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
19
Via dolorosa
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Sr. Rögnvaldur Finnbogason:
Jerúsalem
Borg hinna talandi steina
Fjölvaútgáfan, Reykjavík 1990,
208 bls.
Dagana 20. til 31. maí síðastlið-
inn dvaldist síra Rögnvaldur Finn-
bogason í Palestínu í boði Kirkju-
ráðs Miðausturlanda (MECC). Bók-
in sem hér birtist er að meginuppi-
stöðu dagbókarbrot frá þessu ferða-
lagi. Á undan dagbókinni fer þó
alllangur inngangur (bls. 26.). Þar
dregur höfundur upp í stærstu lín-
um upphaf, hugmyndafræði og þró-
un síonismans, flutning gyðinga til
Landsins helga ofan á þjóð sem þar
var fyrir, Palestínuaraba. Hin rysj-
óttu samskipti þessara tveggja
„þjóða“ eru nokkuð rakin. Þá víkur
höfundur að sínum eigin viðhorfum.
Þau einkenndust framan af af sam-
úð með gyðingum og skilningi á
aðstöðu þeirra. Síðar tóku þau við-
horf smátt og smátt að raskast og
grunsemdir að vakna um að þörf
væri að líta einnig á hina hliðina.
Þá tekur höfundur og réttilega fram
að nauðsyn sé að greina vel á milli
ísraelsstjórnar annars vegar og
Ísraelsríkis hins végar og bendir á
að þessu tvennu sé oft blandað sam-
an til mikils tjóns. Höfundur skýrir
frá því að hann hafi lengi fýst að
taka sér ferð á hendur til Palestínu
til að sjá og skoða með eigin augum
hvað þar var í raun og veru að
gerast. Sú ósk rættist þó ekki fyrr
en á síðastliðnu vori og þá var
tíminn skammur til skoðunar eins
og áður var getið.
Af „dagbókarbrotunum" að
dæma virðist þó þessi stutta við-
dvöl hafa orðið höfundi dijúg til
fróðleiks. Hann átti tal við marga
málsmetandi menn úr hópi araba,
heimsótti stofnanir og skoðaði sig
víða um. Þessi skoðunarferð virðist
hafa staðfest þann grun hans að í
Palestínu væri mikill harmleikur að
gerast. Palestínuarabar væru kúg-
aðir og sviptir mannréttindum,
drepnir og hraktir af fasískri ógnar-
stjórn. Verður ekki annað sagt en
að frásögn síra Rögnvaldar sé áhrif-
amikil og átakanleg. Hygg ég að
hún láti fáa ósnortna sem lesa.
son blaðamaður safnaði íslenska
efninu.“
■ ÖRN OG ÖRLYGUR haía gef-
ið út bókina Áran - Orkublik
mannsins, form, litir og áhrif
eftir Birgit Stephensen í þýðingu
Estherar Vagnsdóttur. Ulfar
Ragnarsson læknir veitti fræðilega
ráðgjöf við þýðinguna. í kynningu
útgefanda segir m.a.: „Sérhverri
manneskju fylgir ára, orkublik. í
orkublikinu birtast allir okkar per-
sónulegu eðlisþættir og innri eigin-
leikar, orkublikið birtir okkar innri
mann. Að geta lesið úr orkubliki
annarrar persónu opnar því skilning
á eðli hennar og eiginleikum og
veitir um leið einstakt tækifæri til
að koma til hjálpar þar sem þörf
er á. Bókin sýnir hvernig hægt er
að læra að skynja orkublikið og um
leið að þroska eigið innsæi og
treysta leiðsögn þess. Höfundur
tengir liti orkubliksins við orku
plánetanna eins og þær koma fyrir
innan stjörnuspekinnar og varpa
þannig ljósi á sambandið milli
stjörnuspeki, orkubliks og lita. í
bókinni eru nokkrar litmyndir af
árunni, orkublikinu og túlkanir á
því með hliðsjón af myndunum.“
■ ÖRNOGÖRLYGUR hafagef-
‘ ið út barnabók sem nefnist Hrossin
í Skorradal og er eftir færeyska
höfundinn Ólav Michelsen og
myndskreytt af Erik Hjort Niel-
sen. Hjörtur Pálsson íslenskaði.
Sagan gerist í Færeyjum og Bret-
landi. Höfundur lýsir örlögum rauðs
fola sem er handsamaður og fluttur
til Skotlands eftir að hafa notið
frelsis í fjallasal með öðrum stóð-
hestum sem hann fór fyrir heima í
Færeyjum.
■ BÓKAFOR-
LAG Odds
Björnssonar
hefur sent frá
sér bókina Síð-
ustu fréttir eftir
Arthur Hailey.
í kynningu út-
gefanda segir
m.a.: „Síðustu
fréttir segja frá
hinni þrungnu
spennu, sem liggur í loftinu á frétta-
stofu CBA-sjónvarpsstöðvarinnar.
Tveir reyndustu fréttamennirnir,
sem báðir voru í Víetnam ungir
menn, eru þar í sviðsljósinu. Skelfi-
legur atburður í lífi fjölskyldu ann-
ars þeirra færir sögusviðið vítt um
heim þar sem skæruliðaforingi frá
Kolumbíu setur á miskunnarlausan
hátt svip á atburðarrásina. Þetta
er ósvikin spennubók eftir höfund
bókanna Hótel, Bankahneykslið,
Hinsta sjúkdómsgreiningin, Gullna
farið (Airport), Skammhlaup og
Sterk lyf.“ Prentun og bókband:
Prentverk Odds Björnssonar sf.
■ KOMIN ER ÚT Uppfinninga-
bók frá Erni og Örlygi. í kynningu
útgefanda segir m.a.: „Hin nýja
Uppfinningabók er erlend að stofni
til og skiptist efni hennar eftir eðli
uppfinninganna. íslenskar uppfinn-
ingar eru í sérstökum bókarauka.
Hér er á ferðinni bók með safaríkum
texta og miklum fjölda ljósmynda,
og mörgum þeirra í lit, sem segir
sögu uppfinninga og uppfinninga-
manna sem með einum eða öðrum
hætti hafa breytt veraldarsögunni
með uppfinningum sínum. Björn
Jónsson skólastjóri þýddi erlenda
hluta bókarinnar, en Átli Magnús-
Arthur Hailey
Sr. Rögnvaldur Finnbogason
Að dagbókinni lokinni er prentuð
smásaga, Mobeijakeimurinn, eftir
ísraelsku skáldkonuna Hava Halevi.
Hefur eiginkona síra Rögnvaldar,
Kristín R. Thorlacíus, þýtt söguna
á lipurt og hugljúft mál. Segja má
að þessi saga sé eins konar skáldleg
árétting á niðurstöður bókarhöf-
undar. Þá eru í bókarlok teknar
samaní 52 greinum „nokkrar stað-
reyndir" varðandi Palestínumálið.
Hefur Elías Davíðsson tekið það
efni saman.
29. maí skrifar höfundur: „Eg
játa, að ég hafí ekki, á þeim sex
dögum sem dvöl mín hefur varað,
séð marga af hinum svonefndu
helgu stöðum í landinu. Enég hef
farið um Via Dolorosa. Og í mínum
eigum liggur Via Dolorosa gegnum
allt land Palestínu. Þetta finnst mér
að sem flestir þyrftu að kóma og
sjá með eigin augum.“
Þeim sem þetta ritar og viður-
kennir að hann hefur lengi verið
beggja blands um hveiju ætti að
trúa varð mikið um lestur þessarar
bókar. Hún hefur ekki viljað víkja
úr huganum, þrátt fyrir lestur
margra annarra bóka um þessar
mundir. Getur þetta verið satt? Og
ef er satt, hvílík áskorun er þá ekki
fólgin í frásögn af þessum þjáning-
anna vegi? Eg mælist einarðlega
til þess að hugsandi fólk lesi þessa
bók með athygli og hugleiði vel
þann boðskap sem hún flytur.
BILLIARDBORÐ
í stofuna,
kjallarann eóa
bílskúrinn
POT BLACK
þekktasta merkið
í minni „snookers“-
borðum
Billard borð með kjuðum og kúlum
2 fet ó borð kr. 2.990,- 4 fet kr. 8.900,- stgr. kr. 8.455,-
3 fet ó borð kr. 4.400,- 5 fet kr. 17.400,- stgr. kr. 16.530,-
4 fet ó borð kr. 5.900,- 6 fet verð fró kr. 22.100,- stgr. kr. 20.994,-
férslunin
14441
Sendum í póstkröfu
Kreditkortaþjónusta
Ármúla 40.
Sími 35320.
SKUGGSJA
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
MYNDIR ÚR LÉFI PÉTURS EGGERZ,
FYRRVERANDI SENDIHERRA
GAMAN OG ALVARA
PÉTUR EGGERZ
Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sfnu sem
lítill drengur í Tjarnargötunni í Reykjavík,
þegar samfélagið var mótað af allt öðrum
viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann
um það, er hann vex úr grasi, ákveður að
nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis-
þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur
hefur kynnst miklum íjölda fólks, sem
‘ hann segir frá f þessari bók.
KENNARI Á FARALDSFÆTI
MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI
AUÐUNN BRAGISVEINSSON
Auðunn Bragi segir hér frá 35 ára kennara-
starfi sínu í öllum hlutum landsins. Hann
greinir hér af hreinskilni frá miklum fjölda
fólks, sem hann kynntist á þessum tíma,
bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá
kennslu sinni og skólastjórn á fímmtán
stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol-
ungarvfk, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi
og f Ballerup í Danmörku.
SONUR SÓLAR
RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI
ÆVAR R. KVARAN
Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton,
sem dýrkaði sólarguðinn og var langt á
undan sinni samtíð. Meðal annarra rit-
gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf-
steinn Björnsson miðill; Vandi miðilsstarfs-
ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði
Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun-
ar; Er mótlæti í lífinu böl?; Himnesk tónlist;
Hefur þú lifað áður?
BÍLDUDALSKÓNGURINN
ATHAFNASAGA PÉTURS J. THORSTEINSSONAR
ÁSGEIR JAKOBSSON
Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem
var frumherji í atvinnulífí þjóðarinnar á
sfðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu
áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns,
sem vann það einstæða afrek að byggja upp
frá grunni öflugt sjávarpláss; hetjusaga
manns, sem þoldi mikil áföll og marga
þunga raun á athafnaferlinum og þó enn
meiri í einkalífinu.