Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
Sagnaþættir frá Djúpi
Páll bóndi í Bæjum að koma með útigönguá norður úr Jökulfjörðum
sem hann sótti á vélsleða 7. apríl. Við fjárhúsin í Bæjum.
Frá Jens í Kaldalóni, Kirkjubæ, ísafirði.
Á sumardaginn fyrsta
Oft hafa kaldir vindar strokið
vanga Islendinga á sumardaginn
fyrsta gegnum árin og aldirnar, og
minningar um hörðu árin blundað
í huga feðranna til frásagnar um
raunir og hinar ristu rúnir, sem hið
válega veðurfar skildi eftir sig í
straumum tímans, og sem svo sárt
bitu innað merg og beinum margra
þegna þessa lands, að við lá að til
auðnar horfði á köflum. En sumar-
dagurinn fyrsti var þá oftast sá
vonarneisti sem innst inni yljaði
hröktum sálum í von um betri tíð
með blóm í haga.
En hver skyldi trúa því, að undan
þessum feiknalega fannafeldi, sem
alla jörð þakti, svo sem meðfylgj-
andi myndir bera með sér, frá
Bæjum á Snæfjallaströnd á sumar-
deginum fyrsta vorið 1990, skyldi
svo mikið gras vaxa að allar hlöður
Páls í Bæjum ekki einungis fylltust
af ilmandi töðu, heldur varð að hirða
afganginn í hlöður fyrrverandi
nábúa síns, sem nú í eyði tróna í
öllu sínu umkomuleysi og einmana-
kennd.
En það var á fleiri stöðum en
Bæjum sem vel spratt og heyjaðist,
að segja má, að með eindæmum
hafi heyskapur Djúpmanna góður
verið, og því vel úr ræst eftir horf-
um þeim sem við auga blöstu á
sumardaginn fyrsta.
Römm er sú taug ...
Kirkjan í Unaðsdal er orðin aldin
að árum, upphaflega byggð árið
1896. Var því farið að feyskjast í
stoðum hennar og fótum. En þótt
ekki sé hann nú stór söfnuðurinn í
sókninni þeirri arna, aðeins 3 bæir
í byggð, lét þessi fámenni söfnuður
sig hafa það, að taka þessa kirkju
sína til algerrar endurnýjunar nú á
liðnu sumri, og svo rækilega að þar
var hver einasta fúaspýta, fót-
stykki, járn og klæðning fjarlægð
að öllu, og nýtt sett í staðinn. Og
sem ný væri nú að allri gerð brosir
hún við söfnuði sínum og mikilhæfa
kennimanni í guðs trú og góðum
siðum, séra Baldri Vilhelmssyni,
prófasti í Vatnsfirði. Endurnýjun
þessi í fámennum söfnuði er mikil
í fjármálum talið eða sem næst um
2,6 milljónir króna, og vóg þar í
efni mikil gjöf Unaðsdalssystkina
fyrír nokkrum árum, þ.e. barna
Helga Guðmundssonar _ bónda, og
konu hans Guðrúnar Ólafsdóttur,
sem með ávöxtun sinni nú var orð-
in hátt í kr. 600.000, en betur má
ef duga skal, og væri hverri þeirri
hendi fagnandi tekið, sem framrétta
vildi kirkjunni sinni, frá fornu fari,
lóð sitt á þá vogarskál til stuðnings.
En svo var hin ramma taug föst-
um rótum gróin í meðvitund þeirra
og tilveru, sem áður þar góðra
söngva nutu, en burtu horfnir, að
smiðir máttu hafa sig alia við, að
loka þeim helgidómi svo kirkjulegar
athafnir mættu þar fram ganga,
enda smiðirnir röskir í starfi, þeir:
Óskar Kárason, yfirsmiðurinn frá
Hornströndum ættaður og með-
Á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 1990. Páll bóndi í Bæjum að moka
snjó niður á bryggjuna í Bæjum.
smiður hans Rúnar Eyjólfsson á
ísafirði, en þéttsetinn bekkurinn er
þar komu saman kirkjugestir í ætt-
armóti Hærribæjar-ættar, þeirra
hjóna Sigurðar Ólafssonar og konu
hans Maríu Rebekku Ólafsdóttur,
um 140-150 manna hópi, en ein-
mitt í þessari kirkju var Sigurður
forsöngvari alla sína tíð í Bæjum,
óg því kærkomið afkomendum
þeirra að heyra þar tíðir sungnar,
og sýna þessu helga húsi virðingu
sína og hlýhug.
Daginn eftir, 24. júní, svo fermd-
ur yngsti sonur Páls í Bæjum, og
konu hans Önnu Magnúsdóttur,
eina fermingarbarnið í hreppnum.
Önnur ættarmótsathöfn var svo
í kirkju þessari 15. júlí, en þá komu
þar saman milli 70 og 80 manna
ættárhópur Jóns Ólafssonar, bróður
Sigurðar, sem að ofan getur, og
konu hans Steindóru Steindórsdótt-
um haustið áður, og þá búið var
lengi um að svipast, og var sjón
sögu ríkari um ástand kindarinnar
á meðfylgjandi mynd.
En þar sem enginn er annars
bróðir í leik um lífið og tilveruna,
hafði garmurinn hann Rebbi greyið
tekið sér bessaleyfi á hrútlambi,
sem með ánni átti að vera, til að
seðja sitt sárasta hungur, þar sem
engir markaðir þar um slóðir voru
í að hlaupa, enda fyrir lítið að
kaupa. En ánni tókst þeim að ná
og draga á snjósleða sínum innað
fjárhúsum Páls bónda, og þá er að
burði leið, kom í ljós að góðrar
meðhjálpar hafði henni notast í
skuggum dimmra élja á fengitíð-
inni, þar sem tveimur lömbum bar
hún stæðilegum eftir sinn löggilta
meðgöngutíma.
Slátrun á Hólmavík
ur.
En sú stóra rúsína í pylsuenda
þeirrar heiðríkju og kristilegu at-
hafna sem geisluðu um helgidóminn
í Dalskirkju sumarið 1990 var svo
þegar dóttir þeirra Unaðsdalshjóna,
Elín Anna, og maður hennar Hrafn-
kell Þórðarson, læknir útí Noregi,
komu þaðan alla leið til að láta
ferma þar tvö börn sín, og skíra
eitt, og éinnig bróðir Elínar: Helgi
Kjartansson, og kona hans Ásta
Albertsdóttir, létu skíra þar sína
dóttur, einnig um leið, og má þar
með sanni segja, að römm sé sú
taug sem bindur hugi þessara
ágætu barna við bernskuslóðirnar,
og um leið að lífga upp á helgustu
athafnir í fámennri byggð.
Að berja gaddinn og lifa
á sjálfri sér
En mitt í harðríki síðasta vetrar
má með-eindæmum telja í sögur
færandi, að norður í Jökulfjörðum
sást síðast í fyrravetur kind ein á
berangri fannhvítrar auðnarinnar.
Fé Páls í Bæjum gengur þarna um
slóðir sumarsins, og er hann 7.
apríl fær með sér knáan dreng,
Ingólf Kjartansson í Unaðsdal, á
snjósleða yfir Dalsheiði í mugguélj-
um á köflum, finna þeir þar úti-
gengna á, sem Páll vissi sig vanta
Sláturfé allt úr Djúpi var flutt
til Hólmavíkur í haust er leið. Slátr-
að var þar 16.000 fjár, og var með-
altalsfallþungi dilka þar 16,45 kg.
Af því varð 35% héðan frá Djúpi.
En hæstu meðalvigt af öllu sem þar
var slátrað, 19,60 kíló, átti bóndinn
á Birnustöðum í Ögursveit, Jón
Helgi Karlsson.
Þau hafa því verið kjarnrík
grænu stráin sem uxu undan þeim
skelfilega fannafeldi, sem hér um
slóðir lokuðu allri jörð lengi fram á
sumar.
Að lokum færi ég öllum þeim
fjölda kærustu þakkir, sem færðu
mér gjafir, skeyti og hlýjar kveðjur
á áttræðisafmælinu 9. nóvember,
og þá sérstaklega börnum mínum
og tengdabörnum er héldu mérveg-
lega veizlu í tilefni dagsins, sem
og Morgunblaðinu fyrir geislandi
körfu af brosandi blómum.
Eg óska öllum landsmönnum
gleðilegra jóla, árs og friðar á nýju
ári.
I
I
>
>
>
>
>
\
>
>
>
Dalskirkja í viðgerð sumarið 1990.
r