Morgunblaðið - 15.12.1990, Side 25

Morgunblaðið - 15.12.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990 25 Hróp og köll, spenntir verðbréfamiðlarar, síbreytilegt verð; allt þetta til- heyrir kauphöllum úti í hinum stóra heimi. / Nú hafa þessir fjarlægu atburðir færst örlítið nær okkur, því Islendingum er nú í fyrsta sinn heimilt að kaupa og eiga erlend hlutabréf. Fjárfestið í helstu kaup- höllum heimsins með VIB VÍB býður nú viðskiptavinum sínum og öðrum fjárfestum að taka þátt í ávöxtun hlutabréfa í helstu kauphöllum heimsins í gegnum Verðbréfasjóði VIB. Erlendar eignir nýrra Sjóðsbréfa eru ávaxtaðar í hlutabréfum erlendra fyrir- tækja með nánast sama vægi og fýrir- tækin hafa í hlutabréfavísitölum á við- komandi markjtði. Sjóðir sem þessir nefnast vísitölusjóðir. • Þegar er hafm sala á Þýskalandssjóði og Evrópusjóði en síðar verða í boði Bret- landssjóður og Ameríkusjóður. Markaðurinn ræður ferðinni Hlutabréfaeign vísitölusjóða er höfð í sem líkustum hlutföllum og hlutabréf í viðkomandi markaðsvísitölu. Verðbreytingar erlendra eigna sjóð- anna eru því samstíga vísitölunni eða því sem næsL í vísitölusjóðum 'kemur hludægt mat manna hvergi við sögu við val hlutabréf- anna því þeir eru samsettir úr fyrirfram ákveðnu úrvali þeirra hlutabréfa sem liggja að baki viðkomandi vísitölu. Fjárfestingarstefna vísitölusjóðanna byggist þannig á því að færa sér í nyt allar þær upplýsingar sem aðrir fjárfestar á markaðnum hafa samtals. London París, cWall Street.., Armúli Þýskalandssjóður: Erlendareignir Þýskalandssjóðsinseru ávaxtaðar í hlutabréfum þýskra fyrirtækja í því sem næst sömu hlutföllum og í Þýska- landsvísitölu Financial Times. Erlendar eignir sjóðsins munú því fylgja náið hluta- bréfavísitölu þýskra hlutabréfa. Evrópusjóður: Erlendar eignir Evrópusjóðsins munu á sama hátt fylgja Evrópuvísitölu Financial Times. Eignir sjóðsins eru því samsettar úr hlutabréfum fyrirtækja í Qölmörgum löndum á meginlandi Evrópu. Fyrst í stað verður fjárfest í fyrirtækjum í Frakklandi, Sviss og Hollandi, en eftir því sem sjóðurinn stækkar verður öðrum löndum bætt við. Ávöxtun vísitölusjóða Reynslan hefursýntaðumtyeirþriðju verðbréfasjóða sem ekki eru vísitölubundn- ir eru að jafnaði með lakari ávöxtun en sem nemur vísitölunni og aðeins þriðjung- ur er með betri ávöxtun. Samkvæmt lögum verða allir íslenskir verðbréfasjóðir að ávaxta minnst 11% eigna sinna í spari- skírteinum ríkissjóðs. Vegna þess sem og breytinga á gengi íslensku krónunnar, verður ekki bein samsvörun á milli kaup- hallarvísitölunnar og ávöxtunar sjóðanna. Erlendir og innlendir sérfræðingar Viö kaup á erlendum hlutabréfum nýtur VÍB aðstoðar og ráðgjafar hlutabréfasérfræðinga austurríska bankans Lánderbank og bresks dótturfyrirtækis hans Barbican Capital Management. Lánderbank er einn af stærstu og virtustu alþjóðabönkum Austuríkismanna og Barbi- can hefur mikla reynslu í rekstri vísitölusjóða um allan heim. Ráðgjafar VÍB hafa kynnt sér vel það helsta sem er að gerast á erlendum hlutabréfamarkaði og veita allar nánari upplýsingar um viðskipti með erlend verðbréf og eiginleika Þýskalands- og Evrópusjóðs. Verið velkomin í afgreiðslu VÍB í Armúla 13a, eða hringið í síma 91-681530. VfB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.