Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 51
MORGL'NBLAOH) LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
Pilot.
eftir hallærisvor og sumar, og hélt
úr höfn.
Pilot var ekki veglegur farkostur
að sigla yfir Atlantshaf að haust-
lagi. Skipið var sagt 24 tonna, ein-
mastra, eins og jagtir voru, með stór-
segl, toppsegl, fokku og klýfi. Pilot
gamli var kubbslega vaxinn og þrek-
lega, mikill yfir bringuna og þykkur
á síðuna, stuttur og sver og allur
hinn traustlegasti, áreiðanlega önd-
vegis sjóskip, en ekki þar eftir góður
siglari.
Það myndi talið bijálæði nú að
leggja í siglingu yfir Norður-Atlants-
haf að haustlagi og allra veðra von
á slíkum farkosti og taka með sér
konuna. En Pétur hefur engu fengið
ráðið um það. Þær yfirgáfu ekki
menn sína í-harðræðum, dætur Guð-
mundar Einarssonar. Asthildur var
um það líkt farið og Theódóru syst-
ur hennar. Þær systur voru um sumt
líkar, þótt þær væru um margt ólík-
ar. Tryggðin var að jninnsta kosti
söm. Auðvitað vissi Ásthildur ekki
af eigin raun útí hvað hún var að
leggja; henni hefur áreiðanlega verið
gert það ljóst, en það engu breytt.
Svona er ástin, engin skynsemi, eng-
in glóra; eitt skyldi yfir Ásthildi
ganga og mann hennar.
Það má ímynda sér, að þótt Pétur
hafi haft áhyggjur þungar af sínum
erindislokum í Danmörku, þá hefur
hann haft.þær meiri af sinni ungu
konu . ..
Pilot var sex vikur í hafi, hreppti
hin verstu illviðri, hraktist um hafið,
en hafði það af að komast til Hafn-
ar...
Hann bar þess alltaf merkin
Eins og fram er komið í sögunni
hér var Bíldudalur byggður upp rneð
einstæðum hætti. Ekkert þorp á ís-
landi hefur byggzt með sama hætti.
Ung hjón setjast á staðinn mannauð-
an. Þar er aðeins eitt hús metið til
fimm þúsund króna eignar í tíundar-
skýrslum 1880, annað var þar ekki
metið til verðs. Ungi maðurinn átti
engar eignir nema mikla bjartsýni,
mikinn kjark og mikið þrek og mik-
inn vilja til að gera stóra hluti. Þetta
eru ærnar eignir, þótt ekki verði þær
metnar til fjár í tíundarskýrslum og
á þessum eignum unga mannsins
byggðst upp Bíldudalspláss. Engir
sjóðir voru í landinu, enginn banki,
ekkert samgöngukerfi, enginn sími
og yfir haf að sækja það sem þurfti
til að gera þar garðinn. Sveitin var
fátækust sveita, aðeins 2 skattskyld-
ir gjaldendur í Suðurfjarðarhreppi.
Pétur J. Thorsteinsson settist að
á eyðistað og tekur þar land á verstu
hallærisárum aldarinnar.
í átta ár barðist hann svo harðri
baráttu, að samtímamenn hans, sem
þekktu hvað við var að etja í því
hallæri, sem var í landinu 1880—90,
furðuðu sig og sögðu ganga krafta-
verki næst, að hann lifði af baráttu
sína þennan áratug, maður sem eng-
in efni hafði til að ganga í á meðan
illa áraði. Það var reyndar ekki fyrr
en 1893, að hann gat verið viss um
að hann hafði sigrað. Og hann gerði
meira en lifa af hallærin, hann
keypti skip, reisti hús og um leið
og rofaði til í árferðinu, hófst hann
handa af meiri jötunmóð en nokkuy
annar athafnamaður í landinu. Á
næstu tíu árum byggir hann upp
nýtt pláss, 300 manna pláss, húsar
það af íbúðarhúsum, verzlunarhús-
um og fiskhúsum, og fyrstur manna
í landinu byggir hann bryggju fyrir
skútur sínar og þar næst hafskipa-
bryggju, leggur vatnsleiðslu í fisk-
hús og fram bryggjur, leggur
brautateina til að aka á vögnum,
kemur upp skipasmíðastöð, sem get-
ur gert upp lítið járnskip, sem hann
keypti. Hann lætur draga skip sín á
land með spilkrafti, leggur akfæran
veg og byggir brimvarnargarð.
Allt voru þetta nýjungar og menn
sáu þetta og undruðust, og fluttu
fregnir af framkvæmdunum á
Bíldudal, hver til síns heima, og
skrifuðu um það i blöð- höfuðstaðar-
ins, sem var að gerast í þessu af-
skekkta sjávarplássi vestur á fjörð-
um.
Tökudrengurinn hafði gert garð
sinn frægan og sjáifan sig um leið
sem mesta athafnamann landsins á
árunum 1890—1900 og til hans af-
reka verður seint jafnað, ef horft
er til tímans, sem hann lifði á.
En er nú þar komið sögúnni að
mesti loginn sé úr eldinum? Líklega.
Það logar að vísu glatt — en var
ekki _að byrja að sneiðast um eldivið-
inn? í miklu báli brennur hratt viður-
inn. Og hvernig mundi sá viður
brenna í ofni, sem áður brann á hlóð-
um? Fyrir dyrum stendur að flytja
til Danmerkur.
„Þessi staður er ég, og ég er þessi
staður!“
Þetta var svo fyrir honum, en
hann gerði sér það ekki ljóst að
Bíldudalur hlyti að fylgja honum.
Og hveiju hefði það svo sem skipt,
þótt hann hefði gert sér það ljóst í
tíma, hann var undir álögum þeirrar
tilfinningar, sem engvar skynsemi
né röksemdum lýtur, ástinni. Konu
sína sagði hann sína dýrmætustu
eign, og hann blessaði hennar fæð-
ingardag. Það kom aldrei til álita
að neita henni um neitt, sem hann
gat veitt henni.
Um seinan vaknaði Pétur J. Thor-
steinsson upp til þess að hann var
staðurinn og staðurinn var hann og
myndi fylgja honum ævilangt.. .
Bj örgunarfélagið
Milljónafélagið var spilafélag, þar
sem spilað var með spilapeningum,
sem sumir reyndust verðlitlir þegar
átti að innleysa þá.
Og Milljónafélagið var skuldakista
þeirra sem inestan hlut áttu að því,
en það er ekki þar með sagt að ekki
hafi hugsjón um framfarir legið að
baki hjá sumum, sem að því stóðu,
þótt sú hugsjón víxlaðist og væri
ýmist dönsk eða íslensk.
í viðskiptalífinu eru menn ýmist
að tefla skák eða spila á spil. Þegar
51
spilað er þá er nauðsynlegt að fylgj-
ast með hvernig spilin eru stokkuð,
því að sagt er að til séu þeir menn,
sem hafi lagt á að stokka svo spilin,
að þeir fái trompin á höndina. Við
vitum ekki hver hafi stokkað spilin
áður en sest var að spilum í Milljóna-
félaginu, en það má vel greina hvar
trompin voru, þegar farið var að
spila úr spilunum.
Pétur J. Thorsteinsson var áreið-
anlega góður spilamaður, en þó sá
hann ekki fyrr en spilað hafi verið
úr spilunum og hann fékk engan
slaginn, að allt gat ekki verið með
felldu um spiiamennsku félaga
sinna; hann hefði betur hugað vand-
legar að hvernig þau voru stokkuð
áður en gefið var.
I megindráttum var ekkert annað
að gerast við stofnun þessa Milljóna-
félags, en það sem alltaf er að ger-
ast í viðskiptalífinu á öllum tímum,
að menn stofna með sér félag til að
færa af sér eigin skuldir, sem þeir
sjá ekki leið til að bjargast frá með
öðrum hætti. Milljónafélagið var
fjagra manna spil og þrír sþilamann-
anna spiluðu saman og sá fjórði tap-
aði spilinu.
Útgáfuskemmtun Ómars
í dag í Kringlunni
Ómar Ragnarsson heldur útgáfuskemmtun í Kringlunni
í dag kl. 17:30 í tilefni af útgáfu fyrstu skáldsögu hans
í einu höggi og samnefndrar snældu.
Söngur, glens, grín og góðir gestir
*
Aritun í Kringlunni í dag: Penninn milli kl. 18 og 20.
Hagkaup milli kl. 20 og 22.
Ómissandi fylginautur!
Snælda með lögunum
úr spennusögu Ómarsl
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA