Morgunblaðið - 15.12.1990, Side 57
r
' " , -:,'
w m
í kvenfélagi stíga þær gjarnan sín
fyrstu spor á félagsmálabrautinni
til uppbyggingar fyrir sjálfar sig
og samfélagið.
Sú birta og þær vonir er foreldr-
arnir á Bíldudal bundu við litlu dótt-
urina sem fæddist þann 15. desem-
ber 1915 hafa vissulega ræst. Sem
fulltíða kona er hún merkisberi
þeirra vona er konur ólu í brjósti
til handa kynsystrum sínum í upp-
hafi þessarar aldar. Að konur ættu
að standa jafnt körlum að sameigin-
legri uppbyggingu lands og þjóðar.
Vinir Unnar og eiginmanns
hennar Kjartans Jónssonar senda
þeim kveðjur og hamingjuóskir til
Mallorca, þar sem þau nú dveljast
í vetrarfríi. Með ósk um sól og birtu
þeim til handa í framtíðinni.
Ingibjörg Magnúsdóttir
Sannarlega er Unnur föðursystir
mín Agústsdsóttir þess makleg að
opinberlega sé á hana kveðju varp-
að á þessum tímamótum. Henni á
ég margt gott upp að inna, svo
reyndist hún mér og okkur hjónum
á fyrri árum um það leyti er við
vorum að setja saman bú og alla
stund fyrr og síðar.
Það útaf fyrir sig að árin færast
yfir Unni er tímans lögmál. Það
krefst hins vegar nokkurar um-
hugsunar að - gera sér það ljóst.
Atorka hennar óg glæsileiki villir
þar sýn. Hún hefur lengst af haft
mörg járn í eldi í senn en þó ævin-
lega verið harla bóngóð, ekki mun-
að um eitt viðfangsefni í viðbót.
Unnur er einnig fyrirvaralausust
allra manna. Tekur hlutunum eins
og þeir fyrir bera, albúin til að taka
áskoruninni sem þeir fela í sér og
gera gott úr öllu. Okkur frændum
hennar utanaf landi þótti ekki í kot
vísað hér í Reykjavík þar sem
frænka var og varla mundi sá vandi
til sem hún væri ekki fær um að
leysa. Ræktarsemin hjá okkur var
ekki söm og hjá henni svo hún
sætti sig við að hugsa sem svo, að
heyrðist ekki frá okkur hlyti allt
að vera í lagi. Hún vissi svo sem
að fljótt yrði til hennar leitað ef
útaf bæri.
Unnur Ágústsdóttir fæddist á
Bíldudal 15. desember 1915, annað
barn þeirra hjóna Jakobínu Jóhönnu
Sigríðar Pálsdóttur og Ágústs Sig-
urðssonar, verslunarstjóra. Jakob-
ína var dóttir Arndísar Pétursdóttur
Eggerts úr Akureyjum og sr. Páls
prófasts í Vatnsfirði, Olafssonar
dómkirkjuprests í Reykjavík og
síðar prests á Melstað í Miðfirði.
Moðir Arndísar var Jakobína Páls-
dóttir amtmanns Melsted og móðir
Páls var Guðrún Ólafsdóttir Steph-
ensen, sekretera úr Viðey. Ágúst
var sonur Guðrúnar Sigfúscjóttur
frá Gilsárvallahjáleigu og Sigurðar
á Hólalandi í Borgafirði eystri
Árnasonar, ljósföður á Stokkhólma
í Skagafírði Sigurðsspnar.
Þau Jakobína og Ágúst bjuggu
lengst af í Valhöll á Bíldudal og
ólu þar upp börn sín: Guðrúnu
Sigríði, Unni, Arndísi, Hjálmar,
Pál, Jakobínu og Hrafnhildi og fóst-
urdæturnar Karolínu Sigurðardótt-
ur og Ingibjörgu Ormsdóttur.
Sigríður, Páll og Karolína eru látin.
Þau hjón voru börnum sínum góðir
og hollir foreldrar. Jakobína hin
MORGUNBLADID LAl’GARDAGUR 15. DESEMBÉr’ l990
-mesta forstandskona og búforkur,
söngvin og lék á oregl. Ágúst lipur-
menni í öllum skilningi, skemmtinn
en siðlátur. Þau féllu frá fyrir aldur
í Þormóðsslysinu 18. febrúar 1943.
Jakobína amma mín átti fyrir
frændgarð á Bíldudal sem var að
vaxa úr grasi á bernskuárum Unn-
ar. Þar bjuggu systur hennar, Guð-
rún kona Þorbjarnar Þórðarsonar
læknis og Sigríður kona Hannesar
Stephensen Bjarnasonar, kaup-
manns. Síðar Jakobínu kom bróðir
þeirra, Böðvar, kaupfélagsstjóri.
Hann átti Lilju Árnadóttur.
Börn þessara systkina voru fé-
lagar þeirra Valhallarsystkina. Þau
höfðu öll nóg að bíta og brenna og
bjuggu að því, allt atgervis- og
myndarfólk.
Eftirminnilegt var jólahald þessa
fólks sem lét sér ekki nægja að
gleðja sína heldur dreif með alla
þorpsbúa.
Unnur hleypti snemma heim-
draganum. Sautján ára gömul fór
hún til Reykjavíkur í því skyni að
læra á orgel. Hún fékk sér líka
vinnu við skrifstofustörf og þjálfað-
ist fljótt og vel í þeim, varð enda
eftirsóttur skrifstofumaður.
Hún gekk að eiga Karl Schram,
forstjóra Veggfóðrarans, 5. október
1940 og settu þau fyrst bú sitt á
Stýrimannastíg 8 hjá foreldrum
Karls, Magdalenu og Ellert, skip-
stjóra, Schram. Síðar keyptu þau í
Nökkvavogi 2 og bjuggu þar lengst
af sinni sambúð. Þau voru nýlga
flutt á Hávallagötu 51 er Karl lést.
Þau eiga_ saman tvö börn: Hrafn-
hildi og Ágúst Jakob.
Hrafnhildur er listfræðingur hjá
Listasafni Jslands og á með Pedro
Riba, lækni, Hrafndísi Teklu og
Karl. Ágúst er vélvirki og starfar
hjá Globus. Hann á með Marianne
Petersen dætur.iar, Unni Lísu og
Önnu Hlín en með eiginkonu sinni,
Báru Magnúsdóttur, dótturina
Þórdísi. Hjá þeim hafa alist upp
synir Báru, Ólafur og Magnús IIar-
aldssynir.
Eftir fráfall Karls 13. apríl 1963
tók Unnur við störfum hans hjá’
Veggfóðraranum og rak það fyrir-
tæki til ársins 1976. Það reyndist
henni ekki ofviða og óx hún af því
verkefni sínu eins og öllu sem hún
hefur tekið sér fyrir hendur.
Unnur gekk að eiga Kjartan
Gissur Jónsson kaupmann 5. ágúst
1967. Hann var ekkjumaður, hafði
átt Margréti Thorberg og voru syn-
ir þeirra Magnús og Bjarni á ungl-
ingsaldri er þau komu saman Kjart-
an og Unnur og gekk hún þeim í
móðurstað. Magnús er kvæntur
Auði Kristmundsdóttur og rekur
fólksflutningafyrirtæki í Mosfells-
bæ en Bjarni er kvæntur írisi Vil-
bergsdóttur og er kaupmaður á
Tálknafirði.
Kjartan átti íbúð á Sóleyjargötu
23 og hefur heimili þeirra verið þar
síðan um þjóðbraut þvera eins og
svo vel á við þau bæði. Þangað er
jafnan gott að koma, vinir og
vandamenn eru aufúsugestir og
njóta mikillar gestrisni húsráðenda.
Unnur lét félagsmál til sín taka.
Lengi var hún mikilvirk í Thorvald-
senfélaginu og var formaður þess
um árabil. Hún var kosin formaður
Bandalags kvenna í Reykjavík og
átti þátt í uppbyggingu og rekstri
Hallveigarstaða. Hún var sæmd
riddarakrossi Fálkaorðunnar 3.
október 1975. Þá var hún öruggur
liðsmaður Sjálfstæðisflokksins og
starfaði með sjálfstæðiskvennafé-
laginu Hvöt.
Það leynir sér ekki að þar fer
höfðingskona sem Unnur frænka
mín fer. Að henni sópar og lagðar
við hlustir er hún kveður sér hljóðs,
enda vel máli farin. Hún er enn
fögur kona og yfirbragð hennar
þokkafullt og frjálsmannlegt. Glað-
vær og skemmtin er hún svo sem
faðir hennar var og sækir enda
marga kosti sína til hans. Engum
trúi ég hafi þótt dauflegt í kringum
Unni Ágústsdóttur.
Við hjónin, systkini Unnar og
frændfólk sendum öllu með þessum
línum henni og þeim hjónum báðum
heillaóskir suður á hlýrri slóðir þar
sem þau hjón dvelja í vetur og biðj-
um þau vel og lengi að lifa sér til
sóma og okkur öllum til gleði.
Jakob Ágúst Hjálmarsson
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN