Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
63
fjórum svefnherbergjum, tveimur
salernum og stóru baðherbergi, með
stærsta baðkeri sem ég hafði séð
til þessa. Það tók auðveldlega tvo.
Við urðum ásátt um hvaða her-
bergi ég ætti að fá; það- var um
20 fermetrar, og setti stærðar arinn
mikinn svip á herbergið. í því var
voldugt hjónarúm, jafnbreitt og það
var langt. Ég tók strax upp úr tösk-
um mínum og lagði mig í rúmið.
Ég var þakklátur forsjóninni og
hafði á tilfinningunni að hér myndi
mér líða vel, sem kom líka á dag-
inn. Er ég með nokkrum trega hafði
stillt upp mynd af konu minni og
sonum á arinhilluna, sofnaði ég á
svipstundu.
Ég vaknaði við að leigusali minn
barði að dyrum, og snaraðist fram-
úr til þess að opna fyrir honum.
Hann varð greinilega mjög undr-
andi við að sjá mig, og er við höfð-
um kynnt okkur, spurði hann mig
hvort ég væri í raun og veru „anci-
en secretairé“, það er fyrrverandi
ritari. Ég kvað svo vera. Þá sagði
hann, að hann hefði haldið að fyrr-
verandi embættismaður hlyti að
vera vel fullorðinn en ég væri
greinilega nokkru yngri en hann
sjálfur. í fáum orðum skýrði ég
fyrir honumm hvernig þessu var
varið með mig. Hann sagði mér
seinna að óvíst væri hvort hann
hefði leigt mér, ef hann hefði vitað
aldur minn, og enn síður ef hann
hefði áður litið mig augum. Það
hefði yfirleitt ekki verið ætlun hans
að leigja neinum sér yngri manni
herbergi í íbúð sinni, og síst eins
og á stóð. Kvaðst hann hafa haldið
að ég væri maður hátt á sjötugs-
aldri, en úr því sem komið væri
yrði þessi leigumáli að standa.
Hann varð nokkuð þungur á svip,
en þegar hann sá myndirnar á arin-
hillunni léttist brúnin. Hann tók þær
og dáðist að þeim og spurði mig
um leið hvort Islendingar tækju
hjónabandið alvarlega. Eg fullviss-
aði hann um að landar mínir tækju
hjónaband mjög alvarlega og giftir
karlar renndu sjaldan hýrum aug-
um til annarra en eiginkvenna
sinna. Slíkt væri illa séð á Islandi.
Honum létti bersýnilega enn
meir við þessi orð mín.
Frábær lífsstíll
Porre tók fjölskyldumyndirnar
nn'nar með sér fram í eldhúsið, þar
sem ástkonan, Angela, var að glóð-
arsteikja nautalundir á gasi. Hann
kallaði á mig, kynnti okkur form-
lega og endurtók við hana það sem
okkur hafði farið á milli. Hann sagði
mér með alvörusvip að Angela
kæmi alltaf á föstudögum og þá
snæddu þau saman. Hann gat þess
ekki þá, að þau færu alltaf fyrst í
bað saman, en ég hafði sofið svo
fast að ég hafði ekki heyrt til þeirra
í baðinu. Seinna varð ég var við
píkuskræki og gusugang, er hann
var með einhverri ástkonu sinni í
baði. Að lokinni böðun fylgdi máltíð,
og loks ástin.
Hann sagði mér ekki heldur, að
Yvette kæmi alla mánudagí og
færi í bað með honum og matreiddi
fyrir hann og væri ástkona hans
þann daginn. Því síður, að Francois
væri ástkona hans á þriðjudögum,
Madeleine á miðvikudögum og síst
að Fleur kæmi á fimmtudögum. Á
laugardögum var hann venjulega
með kunningjum sínum og á sunnu-
dögum gaf hann sig að lestri. Allar
fengu þessar ástkonur sömu kynn-
inguna á mér með ljósmyndunum
og sama alvöruþunga, eins og hver
þeirra væri eina konan sem kæmi
til að matbúa fyrir hann.
Þetta var sem sagt hið fullkomna
piparsveinslíf. Hann tók aldrei með
sér heimavinnu og var aldrei með
skjalamöppu, því hann taldi það
m^stu fásinnu að vinna í frítíman-
um. Við nánari kynni reyndist hann
einstaklega skemmtilegur, fróðleg-
ur og víðlesinn, og hlaut að heilla
konur.
Af öllum konunum sem ég kynnt-
ist þarna í íbúðinni geðjaðist mér
langbest að Angelu. Reyndar sóttist
ég ekki eftir að kynnast neinni
þeirra; það var andstætt leigumál-
anum. Én alltaf gáði hún að hvort
ég væri heima, þegar hún kom, og
spjallaði þá dálítið við mig. Hún
skildi ekkert í því að Porre hefði
aldrei tíma til að sinna henni nema
á föstudögum. Hún spurði mig
hvort ég myndi vilja hafa þann
hátt á. Eg neitaði því að sjálfsögðu
og sagði henni að það myndi lagast
þegar þau væru gift. Þá varð hún
döpur á svip, en sagðist trúa því
og bætti við, að þegar að því kæmi
ætti ég að vera svaramaður henn-
ar. Til þess kom þó ekki.
Mörgum árum seinna giftist Gilb-
ert Porre vellauðugri einkadóttur
vínræktanda. Sú var jafnaldra hans
og þá var orðið of seint fyrir þau
að fjölga mannkyninu saman.
Þegar ég sagði löndum mínum
frá lífsmáta þessa snillings, héldu
allir að um skáldskap væri að ræða,
og alveg sérstakleg sagan um böð-
in.
Það kom fyrir í tvö skipti, að
Elín Pálmadóttir, starfsmaður
íslenska sendiráðsins og síðar
blaðamaður, kom seinni hluta dags
með bréf frá sendiráðinu. í fyrrá
skiptið stóð svo vel á að leigusali
minn var í baði með einni af ástkon-
unum. Ég bað Elínu að staldra við
og hlusta á lætin í baðinu, gusu-
gang og skræki. Henni þótti þetta
furðu sæta, og ég lofaði henni því
að fá að sjá baðkerið, ef hún kæmi
aftur, t.d. á laugardegi. Nokkrum
dögum seinna kom hún. Þá var
Gilbert Porre heima, og ég kynnti
hana fyrir honum. Hún fékk að sjá
alla íbúðina og baðkerið mikla. Þá
sannfærðist hún um sannleiksgildi
frásagnar minnar.
Þennan mikla elskhuga langaði
að bæta Elínu í safn þeirra stúlkna,
sem hann sagðist hafa haft mök
við, én þær voru frá nítján þjóðum
og nú gætu þær orðið tveir tugir.
Hann stakk upp á því að þau fengju
sér gönguferð í Bologneskógi, en
tók fram að Elín yrði að vera í lág-
um hælum, ef þau fengju sér skóg-
argöngu saman. Hann var nefnilega
tæpast meira en 165 sm á hæð.
Mér er ókunnugt um hvort af
skógarferð þeirra varð, því að ásta-
mál þessa lífsþyrsta manns komu
mér alls ekki við.
1,910 KR.
” ...ámánuði.
40 ÆFINGAR
GYM TRIM styrkir:Axlir, hendur, brjóst og bak.Maga, mitti, læri og rass.
GYM TRIM er einfalt, tekur lítiö pláss og þarf engar festingat,
MYNDBAND OG VEGGSPJALD FYLGIR
PÖNTUNARSÍMI 91- 82265
Breska Verslunarfélagið
Faxafeni 10 - Húsi Framtíðar -108 Reykjavík
STIHm KROPPUR
...og aukið úthald er árangur sem þú nærð á ótrúlega skömmum tíma ef þú æfir þig
reglulega á GYM TRIM æfingatækinu. GYM TRIM hefur hlotið frábærar viðtökur og nú
erum við í TRIMMBÚÐINNI að taka upp nýja sendingu af þessu vinsæla æfingatæki.
GYM TRIM fæst í TRIMMBÚÐINNI
ÁABEIKS
... 19.800 kr. staðgreitt. Eða með allt að tólf mánaða greiðslukjörum,
engri útborgun og u.þ.b.
fsmm
m mmamm
mm \ u\
- e VIÐ ERUM ALDREI
Dulmögnuð bók eftir Margit Sandemo höfund ísfólksins
Prentnúsiö Faxafeni 12, sími 678833