Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 83
MORgUNBLMHÐ IÞROT^TIR LÆ&G'AKMCt?R!-l5. DESKMBF.K .1990
<98
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Auðvelt
íCardiff
„ÞETTA var fyrst og fremst
sigur liðsheildarinnar. Þar var
sterkur varnarleikur okkar sem
skóp sigurinn gegn Wales - við
náðum fjölmörgum hraðaupp-
hlaupum, sem Walesmenn
réðu ekkert við,“ sagði Magnús
Matthíasson, eftir að íslend-
ingar höfðu unnið enn einn
auðveldan sigur í Cardiff á Evr-
ópumeistaramóti smáþjóð-
anna. í gærkvöldi urðu gest-
gjafarnir fórnarlömbin og
máttu þola stórtap, 48:92.
Leikmenn íslands tóku Wales-
menn í kennslustund í körfu-
knattleik og voru yfirburðir íslend-
inga miklir á öllum sviðum. Wales-
búar náðu ekki að bijóta niður hinn
sterka vamarmúr íslands - þar sem
Pétur Guðmundsson var eins og
kóngur í ríki sínu inn í vítateig og
tók hvert frákastið af fætur öðm.
Það var allt svo létt og auðvelt hjá
íslensku leikmönnunum sem brun-
uðu hvað eftir annað upp í
HANDBOLTI
Fram-KA19 : 24
Laugardalshöllin. íslandsmótið (handknatt-
kik, 1. deild, föstudagur 14. desember 1990.
Gangur leiksins: 0:1, 1:4, 4:4, 8:6, 8:11.
8:12, 10:13, 12:14, 14:15, 16:16, 17:19,
18:20, 19:21, 19:23, 19:24.
Mörk Fram: Jason Ólafsson 7/2, Egill Jó-
hannesson 4, Karl Kralsson 3, Jón G. Sæv-
arsson 2, Páll Þórólfsson 2, Gunnar Kvaran
1.
Varin skot: Þór Bjömsson 13/1. Guðmund-
ur A. Jónsson 1/1.
Utan vallar: 12 mín. Karl Karlsson utilok-
aður.
Mörk KA: Hans Guðmundsson 8/2, Erling-
ur Kristjánsson 6, Pétur Bjarnason 4, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Sigurpáll Aðal-
steinsson 2/1, Andres Magnússon 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 13.
Utan vallar: 10 mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon
Sigurjónsson, dæmdu ágætlæega.
Ahorfendur: 28 greiddu aðgangseyri.
Dapurt í Höllinni
KA þurfti ekki að sýna nein
snilldartilþryf til að leggja
Fram að velli. Leikurinn var óyndis-
legur á að horfa snda kannski ekki
mikið í húfi. Liðin
vora jöfn lengst
framan af, en KA
þó alltaf starkara.
Segja má að útilok-
un Karls Karlssonar í upphafi seinni
halfleiks hafi gert útslagið - því
að Gunnar Andresson, leikstjórn-
andi Framliðsins, var veikur og lék
ekki með. Þó sýndi Iiðið hetjulega
baráttu, en styrkur KA manna var
einfaldlega of mikill. Hans Guð-
mundsson var atkvæðamestur KA-
manna og Erlingur Kristjánsson var
drjúgur í seinni háfleik. Jason lék
best Framara og þá varði Þór
Björnsson ágætlega.
| Hörður
! Magnússon
i skrífar
\
hraðaupphlaup og skoruðu stig í
öllum regbogans litum. Walsmenn
stóðu hvað eftir annað ráðþrota
eftir úti á miðjum velli - þegar
knötturinn hafnaði í körfu þeirra.
Staðan var orðin 51:18 þegar
flautað var til hvíldar, en í seinni
hálfleik slökuðu leikmenn íslands á
- þeir voru of bráðlátir í sóknarað-
gerðum sínum og leyfðu sér ýmsar
kúnstir. Ef þeir hefðu haldið sínu
striki - hefðu þeir brotið 100 stiga
múrinn og gott betur.
„Það er eðlilegt að leikmenn slaki
á þegar yfirburðir eru miklir. Strák-
amir voru farnir að hugsa um leik-
inn gegn Luxemborgarmönnum,
sem verður miklu erfiðari - en þeir
gerðu það sem lagt var fyrír þá í
kvöld og era harðákveðnir að
standa uppi sem sigurvegarar í
mótinu hér,“ sagði Torfí Magnús-
son, landsliðsþjálfari íslands.
írland og Kýpur leika í hinum
undanúrslitaleiknum í dag.
Island - Wales 92:48
Smáþjóðaleikarnir'* í körfuknattleik í
Cardiff í Wales.
Gang^ur leiksins: 2:0, 21:5, 34:10,
42:15, 51:18. 68:20, 77:26, 83:37,
92:48.
Stig íslands: Teitur Örlygsson 24,
Magnús Matthíasson 16, Jón Arnar
Ingvarsson 11, Pétur Guðmundsson 10,
Sigurður Ingimundarson 9, Albert
Óskarsson 6, Jón Kr. Gíslason 6, Pálm-
ar Sigurðsson 5, ívar Ásgrímsson 3,
Friðrik Ragnarsson 2.
Teitur Örlygsson lék best í jöfnu liði íslands.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN
Frábær jólagjöf
- sagði Franz Heinzer eftirfyrsta sigurinn í þrjú ár
SVISSLENDINGURINN Franz
Heinzer, sem hefur verið frekar
fastur í 2. sæti, gerði sér lítið
fyrir og sigraði í brunkeppni
heimsbikarmótsins, sem fram
fór í Val Gardena á Ítalíu í
gær. „Það er ánægjulegt að
sigra svona rétt fyrir jólafríið —
þetta er frábær jólagjöf," sagði
Heinzer, sem hafði ekki sigrað
á heimsbikarmóti ítæplega
þrjú ár, en stefnir á að endur-
taka afrekið ídag.
Heinzer sagðist ekki hafa verið
vonsvikinn með 2. sætið að
undanförnu. „Satt best að segja,
þá hvatti það mig til dáða, því ég
vissi að ég var í góðri æfingu og
gerði mér grein fyrir hvers vegna
ég hafði ekki sigrað. í síðustu viku
fór ég of varlega, en nú lagði ég
KORFUBOLTI
Kristinn dæmir í
Kristinn Albertsson, alþjóðlegur dómari í körfu-
knattleik, dæmir fyrri leik belgíska liðsins
Oostende gegn Paniolokis frá Grikklandi í 16 liða
úrslitum Evrópukeppni félagsliða í körfuknattleik.
Leikurinn fer fram í Belgíu 16. janúar og dæmir
Kristinn með ítölskum dómara.
Kristinn er einn dómara á Evrópumóti smáþjóða
í Cardiff í Wales og hefur fengið mjög góða dóma.
Sérstaklega var honum hælt eftir leik San Maiínó
og írlands, en írar sigruðu með Ijögurra stiga mun
í baráttuleik.
Franz Heinzer fagnaði sigri.
GETRAUNIR
allt í sölurnar og hafði það af,“
sagði 28 ára kappinn, sem fór á
2.00,21 mínútu.
Berni Huber frá Þýskalandi kom
mest á óvart, fékk tímann 2.00,57
og hafnaði í 2. sæti, en hafði best
náð 7. sæti áður. Munurinn var
lítill og reyndar var Þjóðveijinn með
betri tíma, þegar hann átti stutt
eftir. „Þetta er ótrúlegt," sagði
hann'. „Ég trúi þessu ekki. Ég hafði
ekki á tilfinningunni að ég væri á
svona mikilli ferð. Ég gerði engin
mistök neðst í brautinni, sem hefðu
getað komið mér í koll. Því er ég
mjög ánægður með annað sætið og
það kemur liði mínu vel.“
Atle Skárdal frá Noregi hafnaði
í þriðja sæti. Hann sagðist hafa
gert mistök í byijun, en var ánægð-
ur með seinni hlutann og sagðist
geta gert betur í dag.
Utúm
FOLK
■ GÍSLI Siffurðsson,markvövð-
ur ÍA á síðasta kepppistímabili,
verður hugsanlega áfram, en komið
hefur fram að hann fari aftur til
Tindastóls. „Gísli stóð sig mjög
vel með okkur í sumar og það yrði
mikill missir af honum, en það er
alls óvíst að hann fari,“ sagði Gunn-
ar Sigurðsson, fonnaður Knatt-
spyrnufélags ÍA.
Íi BRIAN Robson verður í byij-
unarliði Manchester United í dag.
þegar liðið sækir Coventry heim.
Robson var síðast í byijunarliði
United á Wenibley í maí — í bikar-
úrslitaleiknum gegn • Crystal
Palace, sem United vann 1:0.
■ ROBSON lék síðustu 20 mínú-
turnar gegn Leeds um síðustu helgi
og var fyrirliði B-liðs Englands
gegn Alsír á þriðjudag.
■ NEIL Webb, sem fékk að sjá
rauða spjaldið gegn Alsír, missir
sennilega sæti sitt hjá Manchester
United í dag — sennilegt er að
Paul Ince komi inn, en hann hefur
verið meiddur.
■ ALAN McLoughlin leikur í
fyi-sta sinn með Southampton í
dag, en liðið fær Aston Villa í heim-
sókn. McLoughlin er dýrasti leik-
maður Southampton — félagið
greiddi Swindon milljón pund fyrir
írska landsliðsmanninn.
■ BILLY McNeill er í heitu sæti
hjá Celtic og ekkert nema sigur
gegn Dunfermline í dag kemur til
greina hjá stjórn félagsins. Celtic
hefur tapað sex leikjum af 16 í
skosku deildinni.
■ WILLIAM Ayache gerði í gær
sex mánaða samning við Marseille,
en hann var leikmaður félagsin^
1987-1988 og fór síðan til Borde-
aux.
■ ÍR-ingar hafa rekið Banda-
ríkjamanninn Douglas Shouse úr
herbúðum sínum í körfuknattleik.
Þeir hafa fengið Björn Steffensen
á ný, en hann lék með KR. Þá hef-
ur Ragnar Torfason ákyeðið að
hefja leik á ný með þeim. ÍR-ingar
eru að reyna að fá ommy Lee, sem
lék með þeim í fyrra - aftur.
URSLIT
HEIMSBIKARINN Á SKÍÐUM
Val Gardena, ílaliu
Brun karla:
FVanz Heinzer, Sviss,.........2.00,21
Bemi Huber, Þýskalandi,.......2:00.57
AUe Skaardal, Noregi,.........2:00.64
Lasse Amesen, Norcgd,.........2:00.73
Daniel Malircr, Sviss....'.....2:00.80
Hannes Zehentner, Þýskalandi,..2:00.87
Staða efstu manna í bruni eftir tvö mót:
Fra Heinzer, Sviss,................45
Leonhard Stock, Austurríki.........25
Hannes Zehentner, Þýskalandi,......22
Bemi Huber, Þýskalandi........... 20
Lasse Amesen, Noregi............. 20
Daniel Mahrer, Sviss...............18
Peter Wimsberger, Austurriki.......15
Atle Skaardal, Noregi,.............15
Patrick OrUieb, Austurríki,........15
Staðan efstu manna í stigum eftir sex
greinar:
Franz Heinzer, Sviss,..............65
Alberto Tomba, Ítalíu..............47
Franck Piccard, Frakklandi.........43
Ole Christian Furuseth, Noregi,....3£
Peter Roth, Þýskalandi,............34
Lasse Kjus, Noregi,................33
Hannes Zehentner, Þýskalandi,.......32
Staöan á ýmsum tímum Hálfleikur Urslit Mín spá 1 x 2 12 réttir
-fjA-h—
7Y1 "
Arsenal : Wimbledon
Coventry : Manchester Utd.
Derby County : Chelsea •
^Manchester City : Tottenham i
Q.P.R. : Notth. Forest
Southampton : Aston Villa
Sunderland : Norwich City
Blackbum : Bristol City
Brighton : Barnsley
Oldham : Wolves
Sheffield Wed. : Ipswich Town
West Ham : Middlesbro