Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 84

Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 84
DAGAR TIL JÓLA LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Morgunblaðið/Arni Sæberg Verslanir opnar til kl. 22 íkvöld VERSLANIR verða opnar til kl. 22 í kvöld, laugardaginn 15. desemb- er, og er það samkvæmt kjarasamningi Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Ef að líkum lætur verður þetta einn annasamasti dagur- inn í verslunum fyrir jólin. Samningurinn gerir ráð fyrir lengri verslun- artíma þijá fyrstu laugardaga í desember og þar sem 1. desember bar upp á laugardag, á, samkvæmt kjarasamningnum, ekki að vera vera opið lengur en til kl. 16 laugardaginn 22. desember. Verslanir geta þó samið sérstaklega við starfsfólk sitt um annað en kjarasamn- ingurinn segir til um. Að sögn Einars I. Halldórssonar, framkvæmda- stjóra Kringlunnar hf., hafa verslunareigendur þar ákveðið að hafa opið til kl. 22 laugardaginn 22. desember. Verslanir verða lokaðar á Þorláksmessu, 23. desember. Mikið annríki var í verslunum í gær eins og myndin ber með sér, sem tekin var í Tékkkristal í Kringlunni. Jólaglóð: Drukkið fyrir 16 milljónir Bensínverð hér er miðað við um 30% hærra verð NÆRRI lætur að Reykvíkingar, eða þeir sem lögðu leið sína í verslanir ÁTVR í Reykjavík tvo síðustu daga, hafi keypt rauðvín fyrir um sextán millj- ónir króna. í útsölu ÁTVR 5 Kringlunni vora seldir um fjögur þúsund lít.rar af rauðvíni í gær og á fimmtudag. Að sögn Einars Jónatanssonar, verslunarstjóra þar, selja þeir um 20% af því áfengi sem selt er í Reykjavík og því má ætla að Reyk- víkingar hafi keypt 20 þúsund lítra af rauðvíni. Til að gera jólaglóð þarf fleira en rauðvín og því er ekki vanreiknað að ætla að jóla- glóð helgarinnar kosti um 16 millj- ónir króna. Að sögn Einars virðist sem minna sé drukkið af jóiaglóð nú en í fyrra og sömu sögu er að ^egja um bjórinn, heldur minna nefur selst af honum nú fyrir jólin en á sama tíma í fyrra. Talsvert bar á ölvun í Reykjavík í gærkvöldi og bjuggust lögi'eglu- menn við því að hún færi vaxandi þegar liði á kvöldið og nóttina. Heimsmarkaðsverð á bensíni lægra nú en fyrir irinrásina í Kúvæt: Rússar buðu í gær sama bensínverð og búið var að hafna í London BENSÍNVERÐ á Rotterdam- markaði var lægra síðastliðinn fimmtudag en það var 1. ágúst, daginn fyrir innrás Iraka í Kú- væt. 98 oktana súperbensín .kost- aði 260 dollara 1. ágúst, en 240 á fimmtudag. 92 oktana blýlaust kostaði 231 dollar 1. ágúst, en 230 Síbelíusarkeppninni lokið: Sigrún Eðvalds- dóttir í þríðja sæti SIGRÚN Eðvaldsdóttir hreppti í gærkvöldi þriðja sætið í Síbelíusar- keppninni sem fram fór í Finnlandi. Keppni þessi er ein sú virtasta sem haldin er fyrir fiðluleikara í heiminum. „Ég er alveg í sjöunda himni með árangurinn," sagði Sigrán í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi þegar ljóst var _að hún hafði náð þriðja sætinu. „Ég átti ekki von á neinu þegar ég hóf keppni og var ánægð með að komast í aðra umferð. Síðan kom þriðja umferðin og ég var þar einnig. Þegar Ijóst var að ég kæmist í átta manna úrslit var ég alsæl og núna er ég enn sælli,“ sagði Sigrán. - Dómnefndin taldi sér ekki fært að veita fyrstu verðlaun enda þurfa menn mjög að skara frarpúr, nánast sýna fullkomnun til að hljóta þá við- urkenningUM þessari virtu keppni. í öðru sæti var rúmensk stúlka og þriðja sæti deiidi Sigrún með jap- anskri stúlku. Keppendur voru alls 42. I verðiaun fá þær stöllur bronspen- ing og að auki tvö þúsund dollara hvor, eða sem nemur rúmum 100 þúsundum íslenskra króna. Sigrún leikur í dag með hljómsveit í Fin- landiahúsinu í Helsinki á stórtónleik- um, sem er lokahátíð keppninnar. Guðný Guðmundsdóttir konsert- á fimintudag. Verð á 92 oktana bensíni hér ‘á landi er miðað við 306 dollara tonnið, sem er um 30% hærra en heimsmarkaðsverðið nú, og síðasti farmur sem kom til landsins var á um 290 dollara. Sovétmenn sendu í gær tilboð um sama bensínverð og þeir buðu Sigrún Eðvaldsdóttir meistari segir árangur Sigrúnar hreint frábæran. „Þetta er ein mesta keppni fyrir fiðluleikara sem haldin er í heiminum og því er árangur hennar frábær. Ég veit ekki til þess að ísienskur fiðluleikari hafi tekið þátt í keppninni áður og það er mjög gott hjá henni að komast þetta langt.“ þegar viðræðum við þá var hætt í síðustu viku og var þá hafnað. Viðskiptaráðherra ákveður á mánudag hvernig viðskiptunum verður háttað. Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíu- félagsins hf. sagði í gær að tilboð Sovétmanna hafi verið hið sama og í lok viðræðnanna í London. Tilboðið verður rætt á fundi í viðskiptaráðu- neytinu á mánudagsmorgun. Sovétmenn vildu fá 7,50 dollara álag á verð hvers tonns af bensíni, en voru komnir ofan í 4,50 dollara í lok viðræðnanna og buðu það á ný í gær. „En við gátum ekki sætt okkur við það þá og þannig stendur málið,“ sagði Vilhjálmur. „Ég geri ráð fyrir því að það verði tekin end- anleg ákvörðun um það hvað gert verður á mánudaginn.“ Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra kvaðst í gær ekki vilja tjá sig um stöðuna. Hann sagði að eftir fundinn á mánudag verði tilkynnt hvert framhaldið verður. I næstu viku þarf að ganga frá kaupum á næsta bensínfarmi til landsins, sem kæmi í bytjun næsta árs. Fram hefur komið að menn ótt- ast að verði 95 oktana bensín sett á markað í stað 92 oktana hækki það bensínverð sem leiddi af sér vísi- töluhækkun og í framhaldi af henni launahækkun og þjóðarsátt væri í hættu. Bjarni Snæbjörn Jónsson fram- kvæmdastjóri hjá'Skeljungi hf. segir að við núverandi aðstæður á heims- markaði mundi verð á 95 oktana bensíni verða lægra en 92 oktana bensín er selt á nú, þar sem inn- kaupsverð 95 oktana bensíns í dag sé verulega lægra en innkaupsvérð þess bensíns sem hér er selt nú og það að ákveða núna að skipta um tegund mundi því ekki valda verð- hækkun, en ef til vill yrði lækkunin minni en ella. Bjarni segir að miðað við þessar aðstæðui' ætti það ekkl að raska þjóðarsáttinni þótt skipt yrði um bensíntegund. Hann segir jafnframt að þó að aðstæður núna séu með þessum hætti, þá sé það hins vegar staðreynd að 95 oktana bensín er dýrara en 92 oktana, þegar til lengri tíma er litið. Henti grjóti í mömmu sína LITIÐ barn, 3-4 ára, kastaði steini í andlit móður sinnar fyrir utan verslun í Grafar- vogi síðdegis í fyrradag. Barnið mun hafa reiðst móð- ur sinni ákaflega þegar hún vildi ekki kaupa sælgæti handa því og hefndi fyrir sig með þessum hætti þegar út úr versl- uninni var komið. Steinninn kom í augabrún og enni konunnar og þurfti að flytja hana í sjúkrabíl á slysa- deild. VÖLVÖ PENTA Besti vinur sjómannsins!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.