Morgunblaðið - 08.01.1991, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1991
Aleinn heima:
Uppselt á
allar sýningar
ALEINN heima nefnist fjöl-
skyldumynd sem sýnd er þessa
dagana í Bíóhöllinni. Á sunnu-
daginn var uppselt á allar fimm
sýningar dagsins.
„Ég man varla annað eins. Það
var mikil aðsókn á þessa mynd á
sunnudaginn og u'ppselt á allar sýn-
ingar, klukkan 3-5-7-9 og 11, þann-
ig að við ætlum að sýna myndina
líka í Bíóborginni," sagði Árni
Samúelsson í Bíóhöllinni í gær.
Árni sagði að myndin hefði feng-
ið mjög góða aðsókn í Bandaríkjun-
um og Evrópu og það sama virtist
vera að gerast hér. „Þetta er annað
ET-æði,“ sagði Árni. Þess má geta
að salurinn í Bíóhöllinni rúmar 500
mans og í Bíóborginni 650 manns.
Myndin fjallar um ungan pilt sem
gleymist heima þegar fjölskylda
hans heldtfr í sumarfrí til Parísar.
Innbrotsþjófar ætla að ræna og
rupla heimili hans en hann verst
af miklum krafti.
Jólin kvödd íEyjum
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 8. JANÚAR
YFIRUT I GÆR: Yfir N-Grænlandi er 1015 mb hæð en 976 mb
lægð skammt suður af landinu þokast vestur.
SPÁ: Norðaustan- og austankaldi eða stinningskaldi. Suðvestan-
lands verður úrkomulítið og einnig sunnanvert é Vestfjörðum en
annars staðar él.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG-OG FIMMTUDAG: Norðan- og norðaust-
anátt kaldi eða stinningskaldi. Bjart veður um sunnanvert landið
en él í öðrum landshlutum. Frost 4-5 stig.
TÁKN:
Heiðskfrt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
á * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J* Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍBA UM HEIM
•kl. 12:00 i gær að isl. tíma
Akureyri Reykjavík hitl •t-3 0 veður skýjað skýjað
Bergen 0 slydda
Helsinki 0 þokumóða
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq +4 skafrenningur
Nuuk *3 skýjað
Ostó 0 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Barcelona 16 skýjað
Berlín 6 léúskýjað
Chtcago tB skýjað
Feneyjar 5 súld
Frankfurt 9 þokumóða
Glasgow 1 slydda
Hamborg 6 skúr á síð. klst.
Las Palmas 19 léttskýjað
London 7 léttskýjað
LosAngeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 6 rígningogsúld
Madrfd 9 alskýjað
Malaga 15 skýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal +16 léttskýjað
New York vantar
Orlando 17 þoka
París 10 skýjað
Róm vantar
Vín 4 skýjað
Washington 2 ískorn
Winnipeg +31 heiðskírt
Húsnæðisstofnun
fékk peninga í gær
„MÁLIN eru leyst og það gengur
allt eðlilega fyrir sig,“ sagði Sig-
urður E. Guðmundsson forstjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins í
gær, aðspurður um hvort tekist
hefði að tryggja fjármagn til
útgreiðslu húsnæðislána, sem
hefja átti í gær. Eins og áður
hefur komið fram í fréttum
Morgunblaðsins ríkti óvissa um
það fyrir helgina, hvort takast
mundi að tryggja fjármagn
tímanlega.
Viðræður stóðu á föstudag um
víxillán til Byggingarsjóðs ríkisins
frá Seðlabanka íslands til þess að
tryggja sjóðnum fjármagn svo að
Jiefja mætti útgreiðslu lána og láns-
hluta í gær, en samkvæmt lánslof-
orðum áttu lántakar að fá lán sín
greidd eftir 5. janúar. Þar til i
gærmorgun gkti óvissa um hvort
það tækist.
„Með samtölum milli ráðuneyta,
okkar og Seðlabankans í morgun
hefur allt fallið í ljúfa löð,“, sagði
Sigurður E. Guðmundsson í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðdeild Landsbanka íslands á að
afgreiða um 290 lán eða lánshluta
í þessum mánuði, samtals að upp-
hæð um 460 milljónir króna.
Landsbanki íslands;
Þjónustu-
gjöld hækka
UM áramótin voru gerðar breyt-
ingar á þjónustugjöldum Lands-
banka Islands en aðrir bankar
breyttu gjaldskrá sinni ekki.
Ávísanahefti í Landsbankanum
kostar nú 220 krónur en kostaði
200 krónur fyrir áramót. Hjá ís-
landsbanka, Búnaðarbanka og
Samvinnubanka kostar ávísana-
hefti einnig 220 krónur og hefur
gert það í rúmt ár. Ávísanahefti
hjá Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis kostar hins vegar 250 kr.
Samvinnubankinn sameinaðist
gjaldskrá Landsbankans um áramót
en við það verður engin hækkun á
gjaldskrá bankans.
Loðna fundin en
mælingum ólokið
LEIÐANGUR Hafrannsókna-
stofnunar hefur fundið loðnu
út við landgrunnskantinn út af
sunnanverðum Austfjörðum og
Hitaveita Reykjavíkur:
40-50 kvartan-
ir um helgina
MILLI 40 og 50 kvartanir bárust
til Hitaveitu Reykjavíkur um helg-
ina, vegna vatnsleysis og kulda.
Að sögn Hreins Frímannssonar
yfirverkfræðings, var frekar lítið um
kvartanir yfir helgina og virtist
ástandið vera orðið frekar gott.
Flestar kvartanirnar mátti rekja til
bilunarinnar í Höfðabakkabrú þegar
leki kom á aðalæð og vatnsleysis af
þeim sökum í Kópavogi, Garðabæ,'
Hafnarfirði og Bessastaðahreppi.
Sagði Hreinn það eðlilegt að vand-
ræði sköpuðust þegar vatni væri
hleypt á kerfið á ný. Sem fyrr ber-
ast flestar kvartanir vegna útfellinga
frá íbúum í mið- og vesturbæ
Reykjavíkur.
austur af Langanesi en þar sem
niðurstöður mælinga liggja ekki
fyrir vildi Hjálmar Vilhjálmsson
leiðangursstjóri ekkert láta hafa
eftir sér í gær um horfur á því
hvort hún væri veiðanleg eða
hve mikið væri af henni.
Fjögur þeirra sex loðnuskipa
sem fóru til leitar ásamt hafrann-
sóknaskipunum, Börkur NK,
Hólmaborg SU, Helga II RE og
Hilmir RE, hafa leitað langt til
hafs á svæði frá Melrakkasléttu
og suður að 63»30’ norðlægrar
breiddar en Víkingur AK og Júpít-
er RE sem leita áttu á svæðinu frá
Vestfjörðum og að Melrakkasléttu
hafa ekkert getað athafnað sig
vegna veðurs. Skipin á eystra
svæðinu eru hins vegar, að sögn
Hjálmars, um það bil að ljúka við
upphaflega leitaráætlun og munu
í framhaldinu skoða þau svæði þar
sem loðna fékkst.
Hjálmar Vilhjálmsson sagði
óvarlegt að tjá sig á nokkurn hátt
um horfurnar meðan" niðurstöður
mælinga lægju ekki fyrir og sagði
að þeirra væri ekki að vænta fyrr
en að liðnum nokkrum dögum.