Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991
4
Ferðalög á vegum ríkisins:
Ytarlegar reglur um
greiðslu ferðakostnaðar
HÉR Á eftir fara reglur þær,
sem gilda um greiðslu ferða-
kostnaðar vegna ferðalaga á
vegum ríkisins:
1. gr.
Reglur þessar gilda um greiðslu
ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna
og annarra, sem. ferðast innan-
lands eða utan á vegum ríkisstofn-
ana og ríkisfyrirtækja.
Ferðalög innanlands
2. gr.
Fargjöld á ferðalögum innan-
lands skulu greiðast eftir reikn-
ingi, enda fyigi fullnægjandi frum-
gögn, svo sem farseðlar eða far-
gjaldakvittanir.
3. gr.
Kostnaður vegna ferðalaga inn-
anlands á vegum ríkisins greiðist
eftir reikningi, sem úrskurðast af
forstöðumanni viðkomandi stofn-
unar, enda fylgi fullnægjandi
frumgögn. Sama gildir, ef hluti
vinnudags er unninn svo langt frá
föstum vinnustað, að starfsmaður
þarf að kaupa sér fæði utan heim-
ilis eða fasts vinnustaðar.
Sé ekki unnt að leggja fram
reikninga eða um það samið skulu
ríkisstarfsmenn fá endurgreiddan
fæðis- og gistikostnað á ferðalög-
um innanlands með dagpeningum,
eins og þeir eru ákveðnir af Ferða-
kostnaðarnefnd, sbr. ákvæði í
kjarasamningum ijármálaráð-
herra við BHMR og BSRB.
Ferðalög erlendis
4. gr.
Fargjöld á ferðalögum erlendis
skulu greiðast eftir reikningi, enda
fylgir ávallt farseðlar. Far með
flugvélum skal miðast við venju-
legt farrými flugvélar, þ.e. ferða-
mannafarrými. Heimilt er þó að
greiða far á betra fanými flugvél-
ar fyrir þá, sem sérstakar reglur
gilda fyrir um greiðslu dagpen-
inga, sbr. 6. gr. Far með skipum,
lestum eða langferðabifreiðum
miðast við fará 1. farrými, ef við á.
Beri nauðsyn til að ferðast með
öðrum og kostnaðarsamari hætti
en áður er greint greiðist slíkur
kostnaður eftir reikningum, sem
hlutaðeigandi ráðuneyti úrskurð-
ar, enda fylgi reikningi greinar-
gerð um nauðsyn þessa auka-
kostnaðar.
Áður en ferð til útlanda hefst
ber að afla skriflegrar þeimildar
viðkomandi ráðuneytis. í heimild-
inni skal tilgreindur fjöldi ferða-
daga.
Að lokinni ferð skal viðkomandi
starfsmaður gera ferðakostnaðar-
reikning. Honum skal skila til
greiðslu eða bókunar, ásamt til-
skildum fylgiskjölum, innan 15
daga frá komudegi.
5. gr.
Annar ferðakostnaður en far-
gjöld greiðist af dagpeningum,
sem ákveðnir eru af Ferðakostnað-
arnefnd.
Sé ferðast utan Evrópu eða
Ameríku, ber að greiða sömu dag-
peninga og í Evrópuferðum.
6. gr.
Eftirfarandi sérreglur gilda um
greiðslu dagpeninga til ráðherra,
aðstoðarmanna ráðherra, ráðu-
neytisstjóra, biskups, forseta Al-
þingis, skrifstofustjóra Alþingis,
ríkisendurskoðanda, hæstaréttar-
dómara, ríkissáttasemjara og for-
setaritara: Ráðherrum og forset-
um hæstaréttar skulu greiddir
dagpeningar með 20% álagi. Auk
þess skal þeim greiddur gistikostn-
aður (hótelherbergi) og símtöl. Þá
er heimilt að greiða ferðakostnað
og helming dagpeninga til maka
ráðherra.
Öðrum þeim, er sérreglur gilda
um, skulu greiddir 2/s hlutar fullra
dagpeninga, auk gisti- og síma-
kostnaðar.
Þegar um er að ræða ferðir for-
stjóra stærstu ríkisstofnana, eða
staðgengla þeirra sem sérreglur
gilda um, getur viðkomandi ráð-
herra vikið frá aðalreglunni um
greiðslur ferðakostnaðar á ferða-
lögum erlendis og ákveðið að þess-
um einstaklingum verði greiddur
gistikostnaður og helmingur dag-
peninga.
7. gr.
Af dagpeningum ber að greiða
allan venjulegan ferðakostnað,
annan en fargjöld, svo sem kostn-
að vegna bifreiða að og frá flug-
völlum, fæði, húsnæði, minni hátt-
ar risnu, hvers konar persónuleg
útgjöld, yfirvigt persónulegs far-
angurs o.s.frv.
Beri nauðsyn til að hafa meiri
háttar risnu í ferðalögum erlendis,
greiðist slík risna eftir reikningi,
sem hlutaðeigandi ráðuneyti úr-
skurðar. Teljist sh'k greiðsla óþörf,
skal sá, sem risnuna veitti, bera
þann kostnað sjálfur.
8. gr.
Ef dvalið er Iangdvölum erlend-
is vegna þjálfunar- og eftirlits-
starfa á vegum ríkisins, skal
greiða dagpeninga samkvæmt
reglum sem Ferðakostnaðarnefnd
setur. Ef sami maður fer oftar en
einu sinni á ári (360 dögum) til
dvalar á sama stað, greiðast ofan-
greindir dagpeningar sem um
samfellda dvöl væri að ræða. Er
miðað við að starfsmenn séu í
þjálfun vegna síns eiginlega starfs
eftir ákvörðun forstöðumanns, en
eiga ekki við almenn þjálfunarná-
mskeið, sem ekki eru takmörkuð
við þröngt afmarkað starfssvið
stofnunar.
9. gr.
Ferðakostnaður samkvæmt
framansögðu greiðist eingöngu
fyrir þann, sem ferðast til útlanda
á vegum ríkisins en ekki fyrir
maka hans eða skyldulið. Sé um
að ræða opinbera heimsókn, al-
þjóðlega venju eða algerlega sér-
stæðar aðstæður, skal þó greiða
fargjald maka og að auki helming
dagpeninga vegna hans.
Greiði aðrir aðilar en íslenska
ríkið hluta kostnaðar við ferðalög,
sem farin eru til útlanda í erindum
ríkisins, getur hlutaðeigandi ráðu-
neyti ákveðið greiðslu allt að mis-
mun þess, sem greitt er af öðrum
og greiðist skv. þessum reglum.
10. gr.
Ef ferðakostnaður er að ein-
hveiju leyti óeðlilegur eða óþarf-
lega hár að mati Ríkisendurskoð-
unarinnar, er .starfsmaður skyld- t
ugur að endurgreiða það, sem um
of er eytt.
11. gr.
Um dagpeninga fyrir starfsfólk,
sem er félagar í aðildarfélagi Al-
þýðusambands íslands, gildir
samningur sá sem á hveijum tíma
er í gildi milli Alþýðusambands
íslands annars vegar og vinnuveit-
enda hins vegar.
12. gr.
Reglur utanríkisráðuneytisins
um greiðslu ferðakostnaðar starfs-
fólks, sem flyst búferlum milli
landa á þess vegum, skulu gilda
óbreyttar.
13. gr.
Þegar ríkisstofnun ferðatryggir
starfsmann, skal það gert eftir
þeim reglum, sem þar gilda á
hveijum tíma.
14. gr. I
Komi upp ágreiningur um gild-
issvið eða efni þessara reglna,
skal Ríkisendurskoðun úrskurða
þar um.
GOÐ HUGMYND VERÐUR
OFT AD ENGU
1IEGNA PENINGALEYSIS
Það er hægt að verða ríkur á góðri hugmynd - en
það kostar peninga að hrinda jafnvel arðvænlegustu
hugmyndum í framkvæmd.
Þú gætir stytt þér leið!
í Happdrætti Háskóla íslands eru vinningslíkur sem
þekkjast hvergi annars staðar í heimi og þar eru
vinningar - í beinhörðum og skattfrjálsum peningum -
sem geta breytt hugmyndum í veruleika.
Matvörumarkaður
í Hveragerði
Matvörumarkaður Olís í Hveragerði er til sölu
eða leigu með öllum tækjum og búnaði. Aðeins
traustir aðilar koma til álita.
Nánari upplýsingar veita undirritaðir
í síma 621090 LÖGMENN
ÁSGEIR ÞÓR ÁRNASON hdl.
V ÓSKAR MAGNÚSSON hdl. J
Macintosh fyrir byrjendur
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrfkerfi á
15 klst námskeiði fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá.
Wordnámskeið • Macintosh
Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritiö fyrir Macintosh!
12 klst námskeiö fyrir byrjendur og lengra komna!
Kennarabraut • Macintosh
Ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi. .
© Sórsniöin námskeiö fyrir kennara! 'ÍS®'
Gn -C?
Ay Tðlvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
y rgwt f f¥fTfirtTgf'f § IT fffj ífTfffí
t