Morgunblaðið - 08.01.1991, Side 13

Morgunblaðið - 08.01.1991, Side 13
h MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991 13 I » I Valdbeitingn í vaxtamálum linni eftirEyjólf Konráð Jónsson Ekki er það furða að „sauðsvart- ur almúginn" eigi erfitt með að skilja þá speki að peningar eigi að vera skammtaðir og vextir frjálsir, þá verði verðið fyrir peninga (vext- irnir) rétt. Þetta hefði venjulegt fólk haldið að væri stefna í tvær gagnstæðar áttir, en kannski er það angi peningamagnskenningarinnar svokölluðu eða „mónitarismans", sem alltaf hefur verið hæpin speki en nú beinlínis hlægileg. Fyrir heilum áratug leiddist ég inn í víðtækar umræður um efna- hags- og peningamál almennt. Að- dragandinn var sá að Jónas Haralz sýndi mér þá vináttu að senda mér síðla árs 1979 langt bréf erlendis frá sem gagnrýni á ítarlega grein sem ég hafði skrifað í Morgunblað- ið. Það var raunar Leiftursóknarár- ið sællar minningar eða hitt þó heldur. Þetta bréf var birt í Frelsinu. Umræðan var hafin og margir lærð- if hagfræðingar tóku þátt í henni næstu misserin því að hún barst út um víðan völl, m.a. bar „mónitar- ismann“ þar á góma. í Frelsinu segir af öðru tilefni: „Fjórir þjóðkunnir íslendingar svara eftirfarandi spurningu: „Tvær hugmyndir þeirra Haykes og Buch- anans kunna að eiga við á Islandi. Önnur er, að menn fái að velja um gjaldmiðla, fái að gera fjárhags- skuldbindingar í hveijum þeim gjaldmiðli, sem um semst, en öll gjaldeyrisverslun sé látin afskipta- laus af ríkinu. Hin hugmyndin er, að teknar séu í stjórnlög ýmsar takmarkanir á valdi stjómmála- manna til seðlaprentunar og skatt- lagningar, en Buchanan nefnir nokkur dæmi um slíkar takmarkan- ir. Hver er skoðun yðar á þessum hugmyndum?“ I svari Jóhannesar Nordals við síðari spurningunni segir hann m.a.: „Þótt peningamagn sé t.d. hug- tak, sem allir hagfræðingar nota, er nákvæm skilgreining þess varla hugsanleg, svo að óyggjandi sé. Þar að auki hefur eðli peningamagnsins tekið sífelldum breytingum, eftir því sem greiðsluvenjur og greiðslu- tækni hefur breyst. Það er jafnvel hugsanlegt, að næsta kynslóð eigi eftir að lifa í allt að því seðlalausu þjóðfélagi, og hvaða gildi hefðu þá þær takmarkanir á seðlaprentun, sem settar væru í stjórnarskrá við núverandi aðstæður?“ Allir ættu að vita að þessi ábend- ing Jóhannesar er að rætast dag frá degi, því að „peningamagn" al- heimsins streymir nú þegar um Eyjólfur Konráð Jónsson tölvuæðar og hverskyns fjárskipti. Og árum saman hefur Evrópugjald- miðill án myntar gegnt mikilvægu hlutverki. íslendingar aftur á móti ríghalda í peningaskömmtun með þeim afleiðingum að raunvextir hér á landi eru hærri en þekkist í nokkru öðru vestrænu landi. Og ríkið og bankamir em í kapphlaupi um það hvernig skjótast og mest megi hækka vexti. Og enn gerist undur. Þröstur Ólafsson hagfræðingur „Og árum saman hefur Evrópugjaldmiðill án myntar gegnt mikil- vægu hlutverki. Islend- ingar aftur á móti ríghalda í peninga- skömmtun með þeim afleiðingum að raun- vextir hér á landi eru hærri en þekkist í nokkru öðru vestrænu landi.“ ritar grein þar sem segir: „Næsta ríkisstjórn verður í samráði við Seðlabankann að ákveða árlegan vöxt peningamagns í umferð og til- kynna það atvinnulífinu. Viti menn það að peningamagn verði ekki aukið nema um t.d. 5% árið 1992, þá eru það skýr skilaboð til ailra sem vita þurfa.“ Margt fleira spaklegt gefur að líta í þessari grein t.d. þetta: „Að beita peningalegum stjórn- unaraðferðum þýðir að menn hætta að stjóma með handafli." Nú má þessi grein ekki verða lengri enda skilur fólk það sem þarf að skilja — og finnur það á sér. Annars væri ég til með að taka á ný þátt í umræðu um þessi efni ef einhver vill taka upp þráðinn. Eskifjörður: Síldin flökuð fyrir Þýskalandsmarkað Eskiflrði. GUÐRÚN Þorkelsdóttir SH 211 kom í land með 100 tonn af mjög blandaðri síld síðastliðin laugardag, og á sunnudaginn kom Sæljón SH með 120 tonn af blandaðri síld. Síldin var flökuð fyrir Þýskalands- markað, en það virðist vera það eina sem hægt er að gera við síldina fyrir utan að setja hana í bræðslu. Togarinn Hólmanes fór á veiðar fór á veiðar á sama tíma og Hólma- 3. janúar og hefur hann fiskað nes, en kom í land aftur eftir 12 þokkalega, en hann er væntanlegur tíma með bilaða vél, og er áætlað í land í dag, þriðjudag. Hólmatindur að viðgerðin taki 3-4 vikur. BJ. Höfundur er nlþingismaður Sjálfstæðisflokks fyrir Reykjavíkurkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.