Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991
17
fæddur 8. mars 1965 og á hann 1
son.
Gunnar og Magga kynntust árið
1983 og hófu sama ár búskap. Þau
giftu sig ári síðar. Ást og gagn-
kvæm virðing einkenndi þeirra sam-
band. Gunnar féll strax vel inn í
fjölskyldu Möggu og mannlífið hér
í Bolungarvík. Fljótlega eftir að
Gunnar og Magga bytjuðu saman
fór hann til sjós með Agga tengda-
föður sínum. Samstarf þeirra gekk
vel enda báðir líkir að mörgu leyti,
harðduglegir, laghentir og spaug-
samir. Gunnar og Magga keyptu
fokhelt einbýlishús að Traðarlandi
19 hér í Bolungarvík. Gunnar vann
mikið í húsinu sjálfur og innréttaði
það mjög skemmtilega og naut oft
aðstoðar Agga tengdaföður síns.
Nú síðast var hann að betrumbæta
húsið áður en Magga hans kæmi
heim í jólafrí frá námi í Reykjavík.
Gunnar var mikið fyrir útiveru
og voru Jökulfirðirnir kjörið svæði
til að veita þessum hugðarefnum
útrás. Gunnari leið vel á Hesteyri
og tók virkan þátt í að laga og
byggja við aðstöðuna sem fjölskyld-
an á þar. Hann var traustur og
skemmtilegur félagi og var ávallt
tilbúinn að rétta öðrum hjálparhönd
ef á þurfti að halda.
Við systkinin eigum erfitt með
að sætta okkur við að Aggi og
Gunnar skuli ekki vera lengur á
meðal okkar. Guð ætlar þeim annað
og veigameira verkefni annars stað-
ar. Góðar minningar um þessa góðu
drengi munu lifa með okkur og
hjálpa við að sætta okkur við þenn-
an mikla missi. Með þessum fátæk-
legu orðum viljum við þakka Agga
og Gunnari fyrir samfylgdina-.
Elsku Binna, Magga, Inga,
Sossa, Hrólli, Pálína, Haukur, Tóti,
Svavar, Erna, Helga Kolbrún,
Sigríður, Óttar Rúnar og aðrir að-
standendur. Ykkar missir er mikill
og biðjum við góðan Guð að styrkja
ykkur og blessa á þessari sorgar-
stund og um ókomna framtíð.
Börn Addýjar
Okkur setti hljóð er við fréttum
að vina okkar af vélbátnum Hauki
ÍS 195 frá Bolungarvík væri sakn-
að. Það hljómaði ótrúlega að heyra
að ef til vill myndum við ekki hitta
þá framar, en sú er nú orðin raunin.
Vagni og ijölskyldu hans kynnt-
umst við fyrir nokkrum árum, er
við fluttum til Bolungarvíkur. Það
var gegnum sameiginlegt áhugamál
okkar sem var harmonikkutónlist.
Um það leyti var verið að stofna
hér vestra harmonikkufélag og að
sjálfsögðu var Vagn meðal stofn-
enda og ævinlega var hann meðal
virkustu félaganna. Það var oft leit-
að til hans, þegar undirleikara vant-
aði við mannfagnaði, og ætíð var
Vagn hrókur alls fagnaðar er hann
spilaði á harmonikkuna. Tónlist var
honum í blóð borin og tónlistargáf-
una hafa börnin hans svo sannar-
lega erft.
Sjómennska og útgerð var starf
Vagns. Hann hafði af dugnaði og
eljusemi eignast bát og fiskverkun-
arhús. Það er ekki víst að menn
almennt geri sér grein fyrir þeirri
miklu vinnu sem fylgir slíku starfi.
En með Vagni stundaði sjóinn
tengdasonur hans, Gunnar Örn. Það
var Vagni ómetanleg stoð að hafa
með sér slíkan dugnaðarfork sem
Gunnar Örn var og hafði Vagn orð
á því hver munur það væri að hafa
mann um borð sem gerði mun meira
en ætlast væri til af honum en slíkur
var dugnaður Gunnars.
Það var oft mannmargt á heim-
ili þeirra Vagns og Birnu, fjölskyld-
an stór og vinirnir margir. En alltaf
voru allir velkomnir og þær voru
ófáar samverustundirnar, sem við
áttum þar saman. Þar kynntumst
við einnig börnum þeirra og tengda-
börnum þar á meðal Margréti og
Gunnari Erni. Það er gæfa að hafa
fengið að kynnast slíkri fjölskyldu,
þar sem gleðin og samheldnin var
ævinlega ríkjandi, og víst er að
þeirra stunda, sem við áttum sam-
an, verður lengi minnst.
Nú þegar erfiðleikar steðja að,
biðjum við þess að Guð styrki fjöl-
skylduna og styðji í þeirra miklu
sorg, og Birnu Margréti, systkinun-
um og aðstandendum öllum sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Elísabet og Guðfínnur
Þegar hendir sorg við sjóinn
syrgir tregar þjóðin öll.
(Sálmavers J. Magnússonar.)
Að þessu sinni sótti sorgin Bol-
ungarvík heim.
Svartasta skammdegið var í þann
mund að renna sitt skeið. Blessuð
jólin, hátíð ljóss og friðar, voru í
nánd. Þá bárust sorgartíðindin,
svipleg og óvænt, að tveir hraustir
og tryggir Bolvíkingar hefðu farizt
við skyldustörf sín á sjónum. Enn
hefur það gerzt, að Ægir hefur
höggvið stórt skarð í okkar raðir.
Þessi hörmulegi atburður varpaði
dimmum skugga á þessa byggð
mitt í önnum jólaundirbúnings.
Samúðarríkir hugir leituðu til
harmi sleginna ástvina, sem þessi
sára lífsreynsla var nú lögð á herð-
ar.
Bolvíkingar eiga nú á bak að sjá
tveim dugandi sjómönnum á bezta
aldurskeiði, og erfitt að hugsa sér
Víkina án tilvistar þeirra. Svo sterk-
um böndum voru þeir tengdir þess-
ari byggð.
Þeir voru vissulega góðum mann-
kostum búnir, hvor á sína vísu, og
samrýndir mjög.
Vagn var kátur og glaðvær, hress
og ötull dugnaðarmaður. Þau Vagn
og Birna, kona hans, eignuðust sjö
einstaklega mannvænleg börn. Fjöl-
skyldan mjög samhent, tónlist og
söngur í hávegum höfð. Á heimilinu
ríkti svo sannarlega glaðværð og
bjartsýni, og kynslóðabil þekktist
þar ekki.
Mjög kært var með okkur frænk-
unum, Birnu og undirritaðri, og
náin vinátta alla tíð.
Vagn lét létt að leika á harmon-
ikkuna sína, sér, fjölskyldunni og
samferðarfólkinu til yndis og
ánægju.
Hann var bóngóður maður, og
gott til hans að leita á þeim sviðum
sem á öðrum. Sunnudeginum áður
hafði hann spilað fyrir dansi fullorð-
inna borgara hér, og þá eins og
ávallt áður án endurgjalds.
Gunnar var einstakt ljúfmenni,
dulur að eðlisfari, háttvís og prúður
í viðmóti. Myndarlegur og þrekmik-
ill á velli með mikið starfsþrek.
Hagleiksmaður var hann og vann
í hjáverkum við að byggja upp hús
og heimili þeirra Margrétar, konu
hans, af smekkvísi. Hún hafði starf-
að um 10 ára skeið af alúð við fyrir-
tæki okkar. Lagt þar að mörkum
mikla og góða vinnu í krafti dugn-
aðar síns, kunnáttu og samvizku-
semi.
Við þessi vegamót leiðir hugi
okkar að því, hversu mikilvægt það
er litlu byggðarlagi, eins og Bolung-
arvík, að eignast og njóta samfélagS'
góðra og gegnra þegna.
Nú hefur skyndilega dregið fyrir
sólu á björtunr og glaðværu heimil-
Sjá nánar bls 37.
Vinningstölur laugardaginn
5. jan. 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 2.927.356
O 4af5^$y 3 168.530
3. 4af 5 111 7.857
4. 3af 5 3.760 541
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
6.339.233 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
ÚTSALft • ÚT5ALA • ÚTSALA • ÚTSAlfl • ÚTSALA • ÚTSALA • ÚTSALft • ÚTSALA • ÚTSAIA • Ú15ALA • ÚTSAIA • ÚTS
Barnafatnaður -
Kventatnaður ■ Skor »us
Betrí útsataf betri búbir
ÚTSALA r ÚTSALA°