Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991
27
Smábátaeigendur reiðir
og óánægðir með kvótann
Sjávarútvegsráðherra telur lítið svigrúm til leiðréttinga
FÉLÖG smábátaeigenda á Reykjanesi, Hafnafirði og Reykjavík héldu
fund með Halldóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra og fulltrúum
þingflokka síðdegis í fyrradag. Smábátaeigendur, gagnrýndu sjávarút-
vegsráðherra og ráðuneyti hans harðlega fyrir að ætla trillukörlum
lítinn aflahlut. Ráðherrann gaf fundarmönnum lítil eða engin fyrir-
heit um úrlausn.
Fundurinn í fyrradag var haldinn
í veislusal Skútunnar í Hafnafirði,
um 240-50 manns munu hafa sótt
fundinn. Auk sjávarútvegsráðherra
og trillukarla mættu fulltrúar þing-
flokka. Fulltrúi Alþýðubandalagsins
forfallaðist.
í upphafi fundar bar Örn Pálsson
framkvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda fram ályktun um
að Alþingismenn og þingflokkar
þeirra beiti sér fyrir því að:
a) farið verið eftir lögum um stjórn
fiskveiða, þar sem ákvæði til bráða-
birgða í kafla II, annarri og fimmtu
málsgrein, kveði skýrt á um að afla-
hlutdeild báta sem veiðileyfi fá í
fyrsta sinn eftir 31. desember 1989,
án þess að sambærilegir bátar hafi
horfið varanlega úr rekstri í þeirra
stað, hafi ekki áhrif á úthlutun afla-
hlutdeildar þeirra smábáta sem fyrir
voru.
■as*b) efnd verði fastmæli sjávarútvegs-
ráðuneytis og Landssambands smá-
bátaeigenda um það, að búin verði
til aukaaflahlutdeild handa c) efnd
verði fastmæli sjávarútvegsráðu-
neytisins og Landssambands smá-
bátaeigenda um það, að smábátaeig-
endur fái rétt hlutfall af þeim kvóta
sem til skipta kemur við afnám sókn-
armarksins.
Það kom m.a. fram í máli Arnars
ALMANNATRYGGIIMGAR, helstu bótaflokkar
1. janúar 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 11.497
’/z hjónalífeyrir 10.347
Full tekjutrygging 21.154
Heimilisuppbót 7.191
Sérstök heimilisuppbót 4.946
Barnalífeyrir v/1 barns 7.042
Meðlag v/1 barns 7.042
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns 4.412
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna 11.562
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 20.507
Ekkjubætur/ekkilsbæturémánaða 14.406
Ekkjubætur/ekkilsbætur12mánaða 10.802
Fullurekkjulífeyrir 11.497
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) 14.406
Fæðingarstyrkur 23.398
Vasapeningarvistmanna 7.089
Vasapeningarv/sjúkratrygginga 5.957 Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar 981,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 490,70
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri . 133,15
Slysadagpeningareinstaklings 620,80
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri .. 133,15
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
7. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 136,00 100,00 110,52 5,479 605.544
Þorskursmár 90,00 79,00 83,96 0,839 70.439
Ýsa 156,00 142,00 149,93 ' 0,754 113.045
Karfi 51,00 50,00 50,65 0,046 2.355
Ufsi 45,00 45,00 45,00 0,011 495
Steinbítur 78,00 78,00 78,00 0,6561 50.817
Hlýri 72,00 72,00 72,00 0,063 4.536
Langa 80,00 80,00 80,00 0,100 8.000
Lúða 445,00 355,00 422,12 0,232 97.931
Steinbítur(ósL) 85,00 85,00 85,00 0,102 8.670
Koli 99,00 99,00 99,00 0,025 2.475
Keila 40,00 - 40,00 40,00 0,063 2.520
Hrogn 345,00 300,00 300,00 0,108 32.400
Langa (ósl.) 82,00 82,00 82,00 0,070 5.740
Keila (ósl.) 29,00 29,00 29,00 ■ 0,604 17.516
Gellur 300,00 300,00 300,00 0,014 4.830
Samtals 112,13 9,162 1.027.313
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur (ósl.) 129,00 81,00 104,81 0,324 3.597.673
Þorskur (sl.) 101,00 101,00 '101,00 0,258 26.058
Ýsa 166,00 • 128,00 160,56 0,499 240.672
Karfi 61,00 61,00 61,00 0,025 1.525
Lúða 500,00 430,00 442,73 0,055 24.350
Undirm. fiskur 80,00 80,00 80,00 0,376 30.080
Síld 9,04 8,04 8,87 107,662 954.876
Blandað 33,00 12,00 14,38 0,159 2.286
Skata 100,00 100,00 100,00 0,012 1.200
Lýsa 55,00 55,00 55,00 0,051 2.805
Steinbítur 74,00 69,00 70,77 2,180 154.349
Hlýri/Steinb. 42,00 42,00 42,00 0,024 1.008
Langa 67,00 56,00 66,75 0,870 58.070
Keila 42,00 35,00 41,87 3,856 161.434
Ufsi 50,00 39,00 '42,97 0,898 38.584
Samtals 34,78 152,250 5.294.961
Pálssonar að smábátaeigendum hafi
komið það í opna skjöldu hversu
mikil skerðing varð á aflaheimildum
þeirra við tilraunaúthlutun sjávarút-
vegsráðuneytisins á kvóta til smá-
báta í bytjun síðastliðins desember-
mánaðar. Smábátaeigendur vildu
knýja á um að sá lagatexti sem nú
lægi fyrir væri að öllu leyti rétt túlk-
aður, sérstaklega hvað varðaði afla-
hlutdeild og aflaúthlutun. Einnig var
bent á að Samtök smábátaeigenda
hefðu lengi haft áhyggjur af fjölgun
smábáta meðan ekki kæmu til aukn-
ar aflaheimildir. í tilraunaúthlutun
Sjávarútvegsfáðuneytisins væri gert
ráð fyrir að afli nýrra báta sem komu
inn á síðasta ári og voru komnir með
haffærniskírteini fyrir 18. ágúst
væri milli þijú til fjögur þúsund tonn
og væri ráð fyrir því gert að aðrir
smábátar legðu þar til 13% (390-520
tonn). Leitað hafi verið álits glöggra
aðila og teidu þeir að lagaákvæði
um meðalaflahlutdeild smábáta sem
fengju leyfi í fyrsta sinn ættu ekki
að hafa áhrif á aflahlutdeild annarra
smábáta.
Vaxandi hlutdeild í heildarafla
Halldór Ágrímsson sjávarútvegs-
ráðherra taldi að hlutur smábátaeig-
enda hefði ekki verið fyrir borð bor-
inn. Hlutur smábáta í heildarafla
hefði vaxið stöðugt og væri gert ráð
fyrir að hlutdeild þeiyra í heildarþor-
skafla væri 12,91% að viðbættri hlut-
deild þeirra skipa hefðu komið inn á
árinu 1990 og þar að auki væri sú
hlutdeild tekin af heildinni en ekki
einungis af hlut þeirra smábáta sem
fyrir væru. Ráðherrann sagði það
sjálfsagt að farið yrði að lögum um
stjórnun fiskveiða og túlkun laga-
greina ættu sér m.a. stoð í nefndará-
liti og umræðum á Alþingi og öðrum
umræðum við undirbúning málsins.
Talað hefði verið við fulltrúa Lands-
sambands smábátaeigenda og hefðu
þeir kannast við þau sjónarmið sem
hefðu verið uppi í undirbúningsstarf-
inu. Ráðherra kannaðist ekki við að
aukin aflahlutdeild hefði verið fast-
mælum bundin.
Sjávarútvegsráðherra taldi erfitt
að útdeilda aukakvóta-til smábáta;
lögin væru skýr um hver væri hlut-
deild smábáta í heildaraflanum. Það
svigrúm sem myndaðist við afnám
sóknarmarksins væri nýtt til handa
þeim skipum sem hefðu haft mögu-
leika til að velja það í gegnum tíðina.
Mörg þessara skipa yrðu fyrir mik-
illi skerðingu og fengju nokkrar
bætur á móti. Ef þetta svigrúm væri
nýtt til handa smábátum væri jafn-
framt verið að taka ákvörðun um
að auka hlutdeild smábáta í heildar-
aflanum.
Fulltrúi sjálfstæðismanna, Krist-
inn Pétursson, sagði að lögin um
stjórnun fiskveiða hefðu verið af-
greidd í miklum flýti síðastliðið vor
og árangurinn eftir því. Hann hefði
lagt til að málinu yrði frestað og
tíminn notaður til að athuga það
betur. Um fiskveiðar yrðu að vera
einfaldar almennar reglur, það væri
óframkvæmanlegt að hafa 2.000
trillu dagheimili í sjávarútvegráðu-
neytinu. Frá því að kvótalög voru
fyrst sett árið 1984 hafi sífellt verið
að hringla með reglurnar. Kristinn
sagði einnig að tæpast væri unnt að
ræða stjórnun fiskveiða án þess að
ræða um leið stjórnmálalegt siðferði.
Ræðumaður var þess fullviss að lög-
Morgunblaðið/Sverrir
Það var þungt yfir trillukörlum í Hafnarfirði á sunnudag.
in um stjórnun fiskveiða brytu í bága
við 69. grein stjórnarskrárinnar um
takmörkun atvinnufrelsis og einnig
brytu þau 67. grein um friðhelgi
eignarréttarins og j afnréttisregluna.
Framtíð margra byggðar-
laga í hættu
Anna Ólafsdóttir Björnsson full-
trúi Kvennalistans taldi að lítil hlutur
smábáta stefndi framtíð margra
byggðarlaga í hættu. Saga kvóta-
kerfisins væri saga kvótabrasks. En
fiskurinn í sjónum nægði ekki öllum,
Anna reifaði hugmyndir Kvennalist-
ans um byggðakvóta, taldi að heima-
mönnum væri betur treystandi til að
ráðstafa kvóta, en „miðstýrðu batt-
eríi“ í sjávarútvegsráðuneytinu.
Ræðumaður rakti kosti smábátaút-
gerðar; smábátar nýttu aflann betur
og lönduðu aflanum heima þannig
að fiskverkunarfólk fengi starfa.
Einnig taldi Anna naumar úthlutanir
til smábáta geta orðið að hreinum
lífsháska; naumur kvóti hvetti menn
til að sækja sjóinn einir á báti og
kynni þá illa að fara.
Guðmundi Ágústssyni, fulltrúa
Borgaraflokksins, og Jóni Sigurð-
syni, fulltrúa Alþýðuflokksins, þótti
að í flestu hefði verið vel á þessu
máli tekið en sögðu að hér væri fjall-
að um lífsafkomu manna og það
væri gjarnan viðkvæmt og tilfinn-
ingaþrungið umræðuefni. Jóni Sig-
urðssyni sýndist að þessir erfiðleikar
vera umþóttunarvandamál, erfítt
væri að semja sig að nýjum háttum.
Gæta yrði réttlætis og ekki mætti
skerða athafnafrelsi manna meira
en brýna nauðsyn bæri til, en það
þyrftu að vera nokkrar einfaldar út-
hlutunarreglur og það væri mikil-
vægt að samstarfsnefnd sú sem fjall-
aði um málefni smábáta fjallaði um
álitamál um úthlutanir og túlkun
reglna.
Slátrun trillukalla og smáfiska
Smábátaeigendum þótti mismikið
til um ræður stjórnmálamannanna.
Um lögin um stjórnun fiskveiða —
kvótalögin — var fátt eða ekkert
gott sagt, um tilraunaúthlutun sjáv-
arútvegs margt illt.
Sigurgeir Jónasson sagði það verst
við kvótalögin að þar stæði ekkert
um uppbyggingu fiskstofnanna og
lagði fram ályktun um að forsætis-
ráðherra yrði falið að vinna að því
máli. Kristinn Gunnarsson frá Garði
greindi frá því að kvótinn í Sand-
gerði og Vogum hefði verið skertur
um 50% og 60% Hann sagði erfitt
fyrir smábátaeigendur að afla sér
upplýsinga, á þá væri skellt bæði
símtólum og hurðum. Kristinn hafði
aflað sér upplýsinga um aukaúthlut-
anir til stærri báta vegna niðurfell-
ingar sóknarmarksins hann greindi
frá úthlutun til skipa sem hefðu ekki
verið á veiðum um árabil, jafnvel
ekki á skrá. Ræðumanni þótti lítið
um þann möguleika að fara á svo-
nefndar „krókaveiðar“ það væri
gálgafrestur, þeir sem á þær veiðar
færu, væru líka í snörunni, eftir tvö
Olíuverö á Rotterdam-markaði, síöustu tíu vikur, 26. okt. - 4. jan., dollarar hvert tonn
POTUELDSNEYTI
26.0 2.N 9. 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J
GASOLIA
425“
400-
375“
350“
325
300
225-
200“
175-
244/
-242
H--1—I—I—I—I—I—I—I—I—I—
26.02.N 9. 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.0-
SVARTOLIA
H—I—I—I—I—I—I I -I—h-+-
-26.0 2.N 9. 16 23 30 7.D 14. 21,- 28 4J
ár yrði þeim grundvelli kippt undan
fótum þeirra, þeim „slátrað“. Krist-
inn gagnrýndi nokkuð veiðar stærri
skipa sem þyrfti að hafa eftirlit með,
kannski væri ætlunin að ráða til
þess eftirlitsstarfa trillukalla sem
búið væri að setja á hausinn.
Bjarni Óiafsson frá Vogum sagði
það heiðarlegra að ganga hreint til
verks ef menn vildu leggja niður
trilluveiðar og hreinlega kaupa út-
gerðina upp en ekki vinna að þessu
eins og rottur á kindaskrokk; naga
smárn saman af aflanum. Bjarni taldi
hlut raunvei-ulegra smábáta minni
en 12,91% þegar til þess væri litið
að margir þessara svokölluðu 9,9
tonna báta fengu dtjúgan hlut og
þetta væru í raun miklu stærri og
afkastameiri skip en skráningin gæfi
til kynna. Árni Vilhjálmsson frá
Keflavík sagði kvótakerfið gjörsam-
lega hafa brugðist, kvótinn hefði
minnkað ár frá ári. Árni Tryggvason
leikari — sem á kvótalausa trillu í
Hrísey — bar sig karlmannlega en
sagði smáþorp víða um land í stór-
hættu ef trilluútgerð legðist af með
þeim afleiðingum að allur landslýður
flyttist suður. Árni taldi minni skaða
af fískadrápi trillukarla en veiðum
dragnótabáta „í bláfjörum". Eyjójfur
Bjarnason frá Hafnarfirði taldi Ámi
hafa vanmælt, dragnótabátarnir
veiddu í kálgörðunum. Skjöldur
Þorgrímsson, Skarphéðinn Árnason,
Eiríkur Bjarnason og Jón Ármann
Héðinsson gagnrýndu kvótakerfið og
kvótann. Réttlæti sjávarútvegsráðu-
neytisins sýndist ranglætinu verra.
Kvótakerfið væri í grundvallaratrið-
um rangt, einstaklingar fengu ekki
að njóta sín í þessu haftakerfi. Af-
kastamikil veiðarfæri stærri báta
voru tíunduð, Jóni Ármanni Héðins-
syni ofbauð t.a.m. drápskraftur flot-
trollsins.
Veiðidagar
Eftir þessar almennu umræður
héldu fulltrúar stjórnmálaflokkanna
lokaræðurnar, íttrekuðu þeir mest-
megnis fyrri málflutning. Eyjólfur
Konráð Jónsson talaði fyrir hönd
Sjálfstæðisflokks í síðari umferð.
Eyjólfur viðurkenndi nokkra ábyrgð
á kvótakerfinu, hann hefði hleypt því
í gegn á sínum tíma; þá hefði líf ríkis-
stjórnar legið við. Ræðumaður taldi
kvótakerfið ekki á vetur setjandi; það
væri óréttlát, óframkvæmanlegt, og
stuðlaði að smáfiskadrápi. Kvóta-
kerfið væri ofstjórnarkerfi. Nú væri
verið að leggja niður ofstjórnar- og
haftakerfi í Austur-Evrópu. Eyjólfur
Konráð taldi vænlegra að stýra fisk-
veiðunum með takmörkunum veiði-
daga.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra minnti fundarmenn á að ^
aldrei yrði svo gert að öllum líkaði;.
á þessum fundi væri samstaða um
aukinn hlut smábáta en hann hefði
setið aðra fundi þar sem ríkjandi
skoðun væri að smábátum væri sýnd
ofrausn. í ræðu ráðherrans kom m.a.
fram að hann taldi nauðsynlegt að
skipta aflanum milli skipa. Sjávarút-
vegsráðherra sagði um þau dæmi
sem rakin höfðu verið um úthlutanir
til stærri skipa sem ekki væru að
veiðum, að ekki væru heimildir til
að taka veiðirétt af skipum og ef
fækka ætti fiskiskipum yrði að vera
heimild til að færa kvóta milli skipa.
Ráherra taldi einnig gæta misskiln-
ings varðandi þau skip sem hefðu
verið færð af sóknarmarki og fengið
aukaúthlutanir. Það væri ljóst að
mörg þeirra yrðu fyrir verulegr
skerðingu.
Halldór Ágrímsson gaf fundar-
mönnum tæpast fyrirheit um að
þeirra hlutur yrði verulega aukinn. •
í fundarlok var ályktun fundar-
_-jboð_enda_ _samþykkt nær einróma.