Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.01.1991, Blaðsíða 30
Stöð 2 náðist ekki: Um 2.300 myndbönd leigð út á einu kvöldi REIKNA má með að um 2.300 myndbönd hafi verið leigð út í mynd- bandaleigunum á Akureyri á laugardagskvöld, en það kvöld náðist útsending Stöðvar 2 ekki á Akureyri og ekkert hljóð fylgdi útsend- ingu Ríkissjónvarpsins. Ekki þurfti að hella niður mikilli mjólk í rafmagnsleysinu: Sumir geymdu mjólk í brúsum í snjósköflum MJÓLKURBILAR mjólkurstöðvanna á Norðurlandi voru stöðugt á ferðinni óveðursdagana í síðustu viku og fóru þeir mun fleíri ferðir en venja er til. Með því móti var hægt að ná í meirihluta þeirrar mjólkur er til féll, en einhverri mjólk helitu bændur niður. Gripið var til þess ráðs í mörgum tilfellum að setja mjólk í brúsa og geyma þá í snjóskafli þar til mjólkurbílar komu. í samtölum við mjólkursam- lagsstjóra á Norðurlandi kom fram nokkur ótti við að nyt detti nið- ur tímabundið eða jafnvel varanlega í kjölfar þess að kýr voru liand- mjólkaðar. Akureyringar flykktust í mynd- bandaleigurnar á laugardagskvöld- ið og sagði Stefán Þengilsson eig- andi Vidíóvers að tæplega eitt þús- und myndbönd hefðu verið leigð út það kvöld hjá sér. „Við leigðum út myndbönd fyrir um 300 þúsund krónur á laugardagkvöldið og það verður að teljast ansi gott, það var löng biðröð við borðið allt kvöldið og þrír afgreiðslumenn höfðu ekki undan að afgreiða viðskiptavini,“ sagði Stefán. Hjá Vidíólandi fengust þær upp- lýsingar að um 500 myndir hefðu Morgunblaðið/JB Freyr Gauti íþrótta- maðurKA Freyr Gauti Sigmundsson júdómaður var kjörinn íþrótta- maður KA í hófi sem haldið var í KA-heimilinu á sunnudag. í öðru sæti var Valdimar Valdi- marsson, skíðamaður og Orm- arr Örlygsson knattspyrnumað- ur í því þriðja. íþróttamennirnir hlutu allir bikara til eignar og auk þess varðveitir Freyr Gauti farandgrip í eitt ár sem KA- klúbburinn í Reykjavík gaf a sextíu ára afmæli félagsins í janúar 1988. Þetta er í þriðja sinn sem kjör íþróttamanns KA fer fram, en áður hafa Guð- laugur Halldórsson og Erlingur Kristjánsson verið kjömir. Skammt er stórra högga milli. Margir hafa kvatt samferðamenn sína á síðasta ári. Á Þorláksmessukvöld lést Krist- ján Jóhannsson á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund. Þar dvaldi hann síðustu fimm ár ævi sinnar og þakkir skulu færðar starfs'liði og hjúkrunaraðilum, sem reyndust honum vel uns yfir lauk. Kristján átti heima, ásamt fjöl- skyldu sinni, í Grunnavík. Móðir Kristjáns Iést að Faxastöðum 17. febrúar 1941. Þar var stórt högg reitt, er móðirin og húsmóðir hvarf á braut. Mikill söknuður ríkti hjá eftirlifandi fjölskylduaðilum. Eftir lát Unnar Jakobínu, móður verið leigðar út og einnig vorú leigð- ar um 500 myndir út hjá Mynd- bandahöllinni, en þar sagði af- greiðslumaður að á þokkalegu kvöldi væru leigðar út um 120 myndir. Hjá Vídíó Evu var einnig mikið að gera og hillur nánast tæmdar. Þar voru leigðar út tæp- lega 300 myndir og sagði Maríanna Bernharðsdóttir að mikið hefði komið af fólki sem að jafnaði sést ekki á myndbandaleigunni. „Það var stöðugt hópur fólks hér inni allt kvöldið og ég held það hafi aldr- ei verið jafn mikið að gera.“ Rafmagnsleysið: Sleitulaust unnið að viðgerðum UNNIÐ var við að koma raf- magni á þau svæði sem enn voru rafmagnslaus í gær, en íbúar í Höfðahverfi, hluta Fnjóskadals og á fremstu bæjum í Eyjafjarð- arsveit bjuggu enn við rafmagns- leysi síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Rafmagnsveit- um ríkisins á Akureyri átti að reyna að koma rafmagni á alls staðar þar sem þess naut ekki. Allt frá því 2. janúar hefur verið unnið sleitulaust að viðgerðum og 170 til 200 manns verið að störfum auk þess sem bændur hafa lagt hönd á plóg við að berja ísingu af línum. Hafa starfsmenn tekið sér 5-6 tíma hvíld á milli lota. Síðdegis í gær var verið að reyna að koma á rafmagni á Ilöfðahverf- ið. Tókst mönnum að koma raf- magninu á að hluta í Fnjó'skadal, en þar voru enn nokkrir bæir án rafmagns seinnipartinn, þá hafði verið komið upp díselrafstöð á bæn- um Arnarfelli í Eyjafjarðarsveit og þjónaði hún bæjum í kring, en fremstu bæirnir í sveitinni voru enn án rafmagns undir kvöldið. Þar hefur verið rafmagnslaust frá því á fimmtudag í síðustu viku. Þá komst rafmagn einnig á hluta Svalbarðs- strandar, frá Brúarlandi að Víkur- skarði, skömmu eftir hádegi í gær. Kristjáns, fluttu faðir hans, Jóhann Jakob Jóhannsson, synir og dóttir að Oddsflöt í Grunnavík. Dóttirin, Hólmfríður Guðbjörg, fór snemma að heiman, og réðst til vinnu utan heimabyggðar. Árið 1943 eignaðist Hólmfríður telpu, sem fæddist 15. júlí 1943. Telpan hlaut nafnið Unn- ur Petra Siguijónsdóttir. Unnur Petra var hjá afa sínum að Odds- flöt og þeim bræðrum Stefáni Ágústi, þegar sá hörmulegi atburð- ur gerðist að þann 26. febrúar 1948, voru hún, Unnur Petra, og afi henn- ar á ferð niður að Sútarbúðum, sem er næsti bær við Oddsflöt, að Unn- ur Petra sté á óöruggan ís á bæjar- læknum, féll gegnum ísinn og drukknaði. Þetta slys setti mörk sín á ijölskylduna, og bar hún þess aldr- ei bætur. Þórarinn E. Sveinsson mjólkur- samlagsstjóri á Akureyri sagði að mjólkurbílar hefðu.verið í stöðugum ferðum og jafnvel var farið á suma bæi tvisvar á dag ef svo bar undir. Með því móti hefði verið hægt að ná í mestalla mjólkina og bændur því ekki þurft/að hella miklu niður. Innvegið mjólkurmagn til samlags- ins var svipað óveðursdagana og í Kristján var hinn síðsti sem lifði, og lést hann eins og fyrr er sagt þann 23. desember sl. Kristján flutti til Isafjarðar árið 1950 og gerðist þá heimilisfastur hjá hjónunum Björgu Jónsdóttur og Hinriki Einarssyni. Þar undi Kristján vel hag sínum. Þakkir skulu færðar Björgu fyrir alla þá alúð, umhyggju, og kærleika sem hún lét í ljós með sinni hjálp- semi og alúð, sem hún sýndi Krist- jáni og hans fjölskyldu. Kristján var barngóður og reynd- ist dóttursonum Bjargar sem og öðrum börnum góður. Elsku Björgvin og Helgi, þið misstuð mikið. Ég votta öllum sem að skyldleika og frændleika stóðu innilega sam- úð.- Sem Grunnvíkingur, vil ég þakka kynni þau, sem ég átti af fjölskyldu Kristjáns, Grunnvíkingar munu hugsa til hans á skilnaðarstund. Drottinn gefi dánum ró hinum líkn sem lifa. Guðrún Hansdóttir venjulegri viku. „Það kemur fyrst og fremst til af því að bílarnir vorii stöðugt úti, ferðirnar voru að vísu seinfarnar, en þetta nuddaðist allt sarnan," sagði Þórarinn. Páll Svavarsstfn mjólkursamlags- stjóri á Blönduósi sagði að ástandið hefði verið mjög slæmt óveðursdag- ana í síðustu viku, margir bændur hefðu þurft að handmjólka, setja mjólk í brúsa upp á gamla mátann og kæla úti í skafli. Þá voru mjólk- urbílar mikið á ferðinni og náðu í mjólkina jafnóðum á bæina. „Það sem verst var meðan á þessu gekk var að síminn var í ólagi og hvorki við hér né bændur vissum hvernig ástand og horfur voru,“ sagði Páll. „Það er síðan spurning hvernig framhaldið verður í kjölfar þess að kýrnar hafa verið handmjólkaðar um tíma og ástandið í fjósinu breyttist. Getur það haft áhrif á nytina, jafnvel varanlega þannig að erfitt getur verið að ná henni upp aftur,“ sagði Páll. „Það er enn ekki komið í ljós hversu mikið tjón er um að ræða, en við vitum að það er mikið,“ sagði Snorri Evertsson mjólkursamlags- stjóri á Sauðárkróki. Þar voru mjólkurbílar einnig í stöðugum ferðum að sækja mjólk og sagði hann að áfallalaust hefði gengið þó svo mjög seinfarið hefði verið yfir. Á nokkrum bæjum í Fljótum var enn ekki komið rafmagn í gær og tók Snorri í sama streng og Páll, kvaðst óttast að nyt dytti niður um tíma eftir að kýrnar hafa verið handmjólkaðar. Hjá Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík var ástandið viðunandi, að sögn Hlífars Karlssonar mjólkur- samlagsstjóra. Farnar voru fleiri ferðir en venja er til á mjólkurbílun- um, bændur á rafmagnslausum svæðum settu mjólk í brúsa og geymdu úti við. Hann sagði að þar sem bændur væru vel settir hvað fullvirðisrétt varðar hefðu þeir að einhveiju leyti hellt niður mjólk væru þeir í vafa um að geta losnað við hana. Mývetning'- ar sluppu vel frá óveðrinu Björk, Mývatnssveit. SEGJA má að Mývetningar hafi sloppið vel í hinum mikla veður- ham sem gengið hefur hér að undanförnu. Rafmagni sló aldrei út og má að sönnu þakka það Kröfluvirkjun, svo og gufustöð- inni í Bjarnarflagi. Einnig má geta þess að hitastig var hér um slóðir alltaf neðan við frostmark og úrkoma frekar lítil þannig að ísing myndaðist ekki á raflínum. Nægur hiti hefur verið í híbýlum fólks og alltaf hægt að hlusta á útvarp og horfa á sjón- varp, að vísu var sjónvarpið þögult síðastliðið laugardagskvöld, þó sást myndin. íbúar Mývatnssveitar hafa því ekki yfir neinu að kvarta hvað varð- ar veður þessa fyrstu dága ársins. Vonandi fer að sjá fyrir endann á þessum erfiðleikum sem margir hafa átt við að stríða vegna raf- magnsleysis og óveðurs. Kristján Krisiján Jóhanns- son - Minningarorð Fæddur 16. apríl 1916 Dáinn 23. desember 1990

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.