Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 31

Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991 31 Ivar Björnsson, Vopnafirði - Minning Fæddur 11. febrúar 1916 Dáinn 30. desember 1990 Hann fæddist á Arnórsstöðum á Jökuldal, en fluttist á öðru ári upp í Jökulsdalsheiði og átti sínar fyrstu minningar þaðán. Foreldrar hans voru Björn Jóhannsson, Húnvetn- ingur, og Anna Magnúsdóttir af Jökuldal. Þegar hann var 4 ára fluttist fjölskyldan út í Vopnafjarð- arkauptún, þar sem foreldrar hans tóku við rekstri sjúkraskýlis. Fljót- lega varð faðir hans skólastjóri á Vopnafirði, sem varð hans ævistarf upp frá því. Sjö til átta ára er hann tekinn í fóstur af þeim Vindfells- hjónum, Ólafi Sæmundssyni og Margréti Ólafsdóttur. Hann fékk sinn skammt af berkl- um eins og margur á þeim árum og bar þess merki æ síðan. Fór á sjúkrahús á Akureyri 1926. Dvaldi tvisvar á Vífilsstöðum. Eftir heim- komuna lagði Margrét sig fram um að koma döngun í piltinn og vár óspör á ijómann. Á Vindfelli var allgott til matfanga. Róið til fiskjar til heimilisnota og þar skaut Ivar bæði sel og fugl, þó aldrei ijúpur. Snemma kom kappgirni hans í ljós. Hann hafði þann háttinn á að bera alla kúapokana í einu inn göngin og gekk þá á ýmsu, því að göngin voru þröng. Okkar fyrstu kynni voru þegar hann kom með hjóladráttarvél á járnhjólum með ógurlegum spyrn- um, til að vinna að jarðabótum. Hestaverkfæri urðu að duga aftan í og þurfi m.a. að ganga á eftir og stýra plógnum. Síðar komu svo betri verkfæri og beltadráttarvélar. Ekki var kastað til höndum þegar hann sléttaði úr gömlu tóftunum fyrir mig. Þá sagði hann mér hvað sér þætti skemmtilegt að vinna fyrir Þorgrím á Búastöðum, hann væri svo vandlátur. Þetta var sum- arvinna hans í fjöldamörg ár. Á vetrum var hann ýmist á ver- tíð í Vestmannaeyjum eða í smiðj- um í Reykjavík, lengi í Héðni. Við vorum saman í herbergi eina vertíð í Vestmannaeyjum. Þá var lýsisfla- skan við rúmstokkinn og morgun- hressingin var vænn sopi af lýsi og appelsína. Hann fékk höfuðáverka í vinnu- slysi í Straumsvík. Gekkst undir aðgerð á eftir sem hann var þó varaður við. En það var ekki hans háttur að hika við að taka áhættu, enda líðanin slæm. Svo fór að næstu árin þurfti hann að dvelja langdvölum á Kleppi, en náði sér nokkuð á milli. í þeim erfíðleikum var Ragnar bróðir hans stoð hans og stytta eins og æ síðan. Þeir höfðu áður byggt hús í félagi og átti ívar þar íbúð um skeið, þó að hann dveldi þar lítt, enda alla ævi ókvæntur og barnlaus. Mörg síðari árin var hann að mestu laus við andlegar truflanir en þá gerðist lík- aminn honum erfiðari og heyrnin, sem lengi hafði verið léleg, versn- aði enn. Á þessum árum tókst Ragnari að útvega honum vist á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem hann dvaldi til dauðadags, síðast á sjúkradeild. Nú hefur hann kvatt okkur en austur í Vopnafirði eru grænar túnasléttur og nokkrir vegakaflar sem fáir muna lengur hver vann að. Gunnar Sigurðsson Kópavogsbúar og aðrir viðskiptavinir athugið! S parisjóður Kópavogs, lítibúið aö Engibjalla 8, hefur umboðfyrir Happdrœtti Húskóla íslands. Við bjóðum viðskiptavinum sparisjóðsins, bæði að Digranesvegi 10 og Engihjalla 8, að láta skuldfæra endurnýjunina á reikning viðkomandi. Einnig getum við séð um að skuldfæra á Euro-Visa reikninga, sé þess óskað. (...og að sjálfsögðu leggjum við vinningana inn á reikninga fyrir þá heppnu!) Það erþœgilegt að hafa miðann hjd okkur. SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS vænlegúst til vinnings Sparisjóður Kópavogs • Engihjalla 8 • sími 44155 AUGL YSINGAR Vesturbær Morgunblaðið óskar eftir blaðbera í eftirtalin hverfi: Oddagötu og Aragötu. Ennfremur vantar blaðbera í Skerjafjörð, norðan flugvallar. Austurbær Austurgerði og Byggðarenda. Hressandi morguntrimm sem borgar sig. Upplýsingar eru gefnar í síma 691253. Starfsmaður óskast Óskum eftir að ráða starfsmann á verkstæði ásamt akstri. Umsækjendur vinsamlega gefið upplýsingar skriflega um aldur, menntun og fyrri störf. Vestfjarðaleið, Jóhannes Ellertsson, Sætúni 4-105 Reykjavík. Bókabúð Bókabúð í miðbænum óskar eftir starfs- krafti. Vinnutími frá kl. 13.00-18.00. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Bókabúð - 6728“ fyrir 15. janúar. Myllan Starfsfólk óskast í að taka til pantanir. Vinnutími frá kl. 5-8, 5-10, 5-13 og 10-16. Upplýsingar hjá verkstjóra. Brauð hf., Skeifunni 19. ra Hjallaskóli Kópavogi Starfskraftur óskast í hálft starf frá kl. 13.00- 17.00 í „Frístund" í Hjallaskóla. Um er að ræða tómstundaheimili fyrir nemendur skól- ans þar sem þeir geta átt athvarf utan síns skólatíma. Starfið felst í því að sinna nem- endum og því er uppeldismenntun æskileg. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 42033. Kennara vantar Vegna forfalla vantar kennara nú þegar í bekkjarkennslu níu ára barna við Grunnskól- ann í Ólafsvík. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 93-61150 og heimasíma 93-61293 og yfirkennari í síma 93-61150 og heimasíma 93-61251. Skrifstofustarf Óskum eftir að ráða heiðarlegan og ábyggi- legan starfskraft á skrifstofu okkar til afleys- inga frá 1. mars 1991 til 1. jánúar 1992. Um er að ræða starf við lögfræðilega inn- heimtu vanskilaskulda. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt. Góð vinnuaðstaða. Umsóknum með upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf skal skila á auglysingadeild Mbl. fyrir 15. janúar nk. merktum: „G - 6729“. Nemi - offset - nemi Óskum eftir að ráða nema á meistarasamn- ing í offset-filmugerð (prentsmíði). Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja framhalds- skólamenntun. Starf sem framtíð er í. PRISMA BÆJARHRAUNI22, HAFNARFIRDI, SÍMI651616. Lyfjakynnir Óskum eftir að ráða lyfjakynni til að annast kynningu á lyfjum frá einu umboðsfyrirtækja okkar. Æskilegt er að viðkomandi sé lyfja- fræðingur, hjúkrunarfræðingur eða hafi menntun á heilbrigðissviði. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist til Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, fyrir 15. janúar nk. merktar: „Lyfja- kynnir“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.