Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 35

Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1991 35 verkinu lokið. Afganginn reiknaði hann svo í höndunum, eins og hann orðaði það. í annað skipti fann hann upp launatöflu til að setja í tölvu, þannig að ekki þyrfti að reikna laun einstaklingsbundið í tvö ár, en aðrir vinnuveitendur sem bjuggu við sama launakerfi urðu að gera það þrisvar sinnum á sama tímabili. Þótt Árni væri jafnan elztur að árum á vinnustað okkar var hann ævinlega fyrstur og fljótastur að til- einka sér nýjungar. Hagstofan, Raf- magnsveita Reykjavikur og launa- deiid borgarinnar hófu sameiginlega tölvuvinnslu hér á landi og 'voru brautryðjendur á því sviði. Þessi vinnubrögð áttu vel við Árna. Hann skildi strax hina nýju tækni og nýtti hana til fulls. Gilti það jafnt um hin- ar stóru tölvur hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem tæki þau er menn höfðu á borði sínu. Man ég vel er Árni lagði til hliðar stórvirka rafmagnsreiknivél af gamla skólanum og tók í notkun nýja og fullkomna tölvu. Lék hann sér glaður að nýja tækinu og tók svo til við vinnuna með enn meiri afköst- um en áður. Á vinnustað var Árni ekki aðeins ómissandi vegna óvenjulegrar starfs- hæfni. Hann var og lífið og sálin í léttum og skemmtilegum vinnuanda og ómissandi einnig af þeirri ástæðu. Mér fannst hann alltaf um áratug yngri en árin sögðu til um. Gilti það jafnt um útlit sem andlegt atgervi. Fór raunar svo að hann vann um áratug lengur en gengur og gerist um opinbera starfsmenn, því alltaf komu upp verkefni sem óhjákvæmi- legt þótti að fela honum. Var unun að sjá hann á áttræðisaldri, umsetinn ungu samstarfsfólki, ekki sízt stúlk- um, sem hann skemmti með gáska og léttleika og gerði vinnuna og vinnustaðinn ánægjulegri en ella. Ekki eru margar vikur síðan hann var beðinn að koma einu sinni enn og hjálpa til við ákveðið verk sem hann einn kunni til hlítar frá fyrri tíð. Var hann þá nýlega orðinn 81 árs. Man ég hann síðast á heimleið úr þeirri vinnu, hnarreistan og hress- an, glerfínan í tauinu eins og ævin- lega, höfðingja í sjón og raun. Mörgum árum áður en ég kynntist Árna hafði ég heilmikið um hann heyrt og dáð hann úr fjarlægð. Var ég þá í Menntaskólanum á Akureyri og með slæma bridsdellu um skeið. Árni var þá einn þekktasti og fremsti bridsspilari landsins. Hann var fyrir- liði landsliðsins í brids, skrifaði mikið um brids og var ævinlega getið er um þá íþrótt var fjallað. Því miður kann ég ekki að rekja bridsferil hans sem skyldi og hefði betur fengið hann oftar til að segja mér frá hon- um, en hann rakti yfirleitt ekki afrek sín að fyrra bragði. Man ég þó að hann sagði mér frá j)ví að hann stóð í bréfaskiptum við Italina sem síðar urðu um árabil heimsmeistarar í brids. Voru þeir þá að kynna brid- Rýmingarsalan hefst í dag Nýr fatnadur Stórar stœrdir 30% afsláttur Hár:x. 'pryði y' Sérverslun I láaleitisbraut 58-60 Sími 32347 skerfi sitt og sendu bridsmeisturum í ýmsum löndum það til umsagnar. Eina athugasemd a.m.k. sem Árni gerði tóku þeir til greina og varð hún hluti af kerfinu. Einnig sýndi Árni mér bréf frá þekktum bridsklúbbi í Bretlandi sem bauð honum að koma þangað og gerast atvinnuspilari í brids. Færni Árna í brids og óvenjuleg hæfni til að leysa flókin verkefni í vinnu var án efa í tengslum við stærðfræðihæfileika hans og áhuga. Ekki áttum við vel saman á því sviði og ræddum lítt reikningskúnstir en einhvern tímann datt það upp úr honum að hann glímdi gjarnan við stærðfræðiþrautii' á gönguferðum. Annað áhugamál áttum við hins veg- ar sameiginlegt en það var knatt- spyrna. Þar var nú ekki komið að tómum kofunum hjá Árna frekar en annars staðar. Hann var góðni' knatt- spyrnumaður á yngri árum og keppti með meistaraflokki Víkings í í Reykjavík. Alla ævi fylgdist hann svo með knattspyrnu og gerði það eins og annað sem hann tók sér fyrir liendur, betur og öðruvísi en flestir aðrir. Auk lesturs enskra blaða fylgd- ist hann með lýsingum BBC á enska fótboltanum á hvetjum laugardegi, þegar hann gat því við komið, í um það bil 60 ár og veit ég ekki um neinn annan sem það hefur gert svo lengi. Öll þessi ár hélt hann nákvæmt bókhald urn úrslit leikja og annað sem máli skipti. Gaman var að fara með Árna á völlinn, einkum á stærri leiki. Naut hann þess mjög og ég' ekki síður að hafa hann við hlið mér og hlýða á athugasemdir hans og úthstun á leiknunt. Árni lézt á sjúkrahúsi sl. jóladag eftir að hafa varið aðfangadags- kvöldinu með fjölskyldu sinni. Hann var heilsuhraustur alla ævina og fékk að kveðja andlega heill og óbugaður. Eg minnist hans með þakklæti og virðingu og flyt konu hans og ástvin- um öllurn innilegar samúðarkveðjur. Magnús Oskarsson HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Næstu námskeið íReykjavík hefjast Fimmtudaginn 30. janúarog miðvikudaginn 6. febrúar. Námskeiðin eru kvöldnámskeið og taka 6 vikur. Námskeiðin henta öllum, sem vilja auðvelda sér lestur góðra bóka eða auka afköst í námi og vinnu með margfoldun á lestr- arhraða. Þátttakendur ná að jafnaði meir en þreföldun á lestrar- hraða á námskeiðunum. Vegna þessa góða árangurs veitir Hraðlestrarskólinn nu ábyrgð á árangri á námskeiðunum. Einnig verða í vetur haldin námskeið úti á landi. Þeir sem áhuga hafa, eru vinsamlegast beðnir um að háfa samband við Hraðlestrarskólann til að fá frekari upplýsingar. Ath. að VR og fleiri verkalýðsfélög styrkja félaga sína til þátt- töku á námskeiðunum. Skráning alla daga í síma 641091. H R AÐLESTR ARS KOLIN N 10 ARA .I..I.Í) ri A • J..LQT-1.4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.