Morgunblaðið - 08.01.1991, Page 48
Þormóður rammi:
Niðurstaða
Ríkisendur-
skoðunar í
næstu viku
HALLDÓR V. Sigurðsson, ríkis-
endurskoðandi, segir niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar vegna sölu
fjármálaráðherra á Þormóði
ramma jafnvel að vænta í næstu
viku.
Fjórir þingmenn úr Norðurlands-
kjördæmi vestra óskuðu eftir því við
forseta þingsins 20. desember sl. að
Ríkisendurskoðun yrði falið að rann-
saka sölu meirihluta hlutabréfa í fyr-
irtækinu.
Þrír starfsmenn Rikisendurskoð-
unar voru frá föstudegi til sunnudags
á Siglufirði og töluðu bæði við kaup-
endur fyrirtækisins, eigendur Drafn-
ars hf. og Egilssíldar hf., og einnig
við fulltrúa samstarfshóps Siglfirð-
inga sem gerðu tilboð í hlut ríkisins
en fengu ekki. Þá verður á næstu
dögum rætt við aðila í Reykjavík
vegna málsins.
Sá árstími er genginn í garð að kaupmenn setja varning sinn á hefðbundnar útsölur. Léttklæddar gínurn-
ar horfðu dreymnum svip á vegfarendur á Laugavegi í gær og minntu þá á að gera má kjarakaup á tímum
þjóðarsáttar.
Að aflokinni hátíð
Persaflóadeilan:
Aukinn við-
búnaður í
Keflavík
AUKINN öryggisviðbúnaður er
nú í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
og á Keflavíkurflugvelli vegna
ástandsins við Persaflóa. Var við-
búnaðurinn fyrst aukinn í ágúst
síðastliðnum, í kjölfar innrásar
Iraks í Kúvæt, og hefur síðan
aukist stig af stigi.
Að sögn Arnórs Sigurjónssonar
hjá varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins er þessi aukni viðbún-
aður afleiðing ástandsins við Persa-
flóa. Hann vildi ekki tjá sig nánar í
hveiju hinn aukni viðbúnaður fælist
en sagði hann ná til allra þátta þeirra
öryggisráðstafana sem viðhafðar
væru í flugstöðvum með alþjóðlegri
flugumferð. „Hótanir íraksforseta
um hermdarverk verði gripið til að-
gerða gegn honum hafa leitt til auk-
ins viðbúnaðar í flugstöðvum í allri
Evrópu,“ sagði Arnór.
Aðspurður um hversu lengi þessi
aukni öryggisviðbúnaður yrði við-
hafður sagði hann það verða þangað
til annað yrði ákveðið.
Skeljungur hf.i
95 oktana blýlaust bens-
ín á markað á næstunni
SKELJUNGUR hf. fékk til landsins i gær 1.500 tonna farm af 95
oktana blýlausu bensíni og er stefnt, að því að setja það á markað
á allra næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá félaginu.
Til að byija með verður 95 okt-
ana bensínið selt á 8 bensínstöðvum
Skeljungs á höfuðborgarsvæðinu.
Á þeim stöðvum verða þá seldar
þijár tegundir af bensíni, það er
92 og 95 oktana blýlaust og 98
oktána blýbensín.
Flestir nýir bílar eru gerðir fyrir
95 oktana bensín og þegar bílar
eru með mengunarvarnarbúnað á
útblæstrinum er það nauðsyn.
Ekki lá fyrir í gær á hvaða verði
95 oktana bensínið verður selt, en
áðut- hefur komið fram í fréttum
að heimsmarkaðsverð á því er svip-
að og á 98 oktana súperbensíni.
Kjaradeila stundakennara HI og ríkisins:
Nýjar tillögur ríkis-
ins þýða launalækkun
- segir formaður Samtaka stundakennara
FORYSTUMENN Samtaka stundakennara við Háskóla íslands áttu í
gær fyrsta fundinn frá í október um kjör stundakennara ineð fulltrú-
um fjármála- og menntamálaráðuneyta og starfsmannahalds háskól-
ans. Á fundinum voru stundakennurum kynntar nýjar tillögur að regl-
um um kjör þeirra en ríkið hefur ekki viðurkennt samtökin sem við-
semjanda og því er ekki um tilboð að ræða. Fulltrúar stundakennara
fengu hagfræðing í Þjóðhagsstofnun til að reikna út þýðingu tillögunn-
ar fyrir kjör sín í gær og að sögn Birgis Jónssonar, formanns samtak-
anna, eru þær óaðgengilegar þar sem stundakennarar muni í inörgum
tilfelluin lækka í launum ef þær öðlast gildi. Boðaður er annar fund-
ur þessara aðila á morgun.
Að sögn Gunnars Björnssonar,
deildarstjóra í fjármálaráðuneytinu,
viðurkennir ríkið ekki samtök
stundakennara sem viðsemjanda
uin kjaramál. Hann sagði ennfrem-
ur að BHMR hefði talið sig fara
með samningsumboðið en ráðuneyt-
Kaldbakur hf. og1 Bergur-
Huginn segja sig úr SH
KALDBAKUR hf. á Grenivík, sagði sig nú um áramótin úr Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, en Kaldbakur er 1,18% eignaraðili
að SH. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins leiddi fundur
með fulltrúum Kaldbaks og SIl í gærmorgun ekki til þess að
úrsögnin væri dregin til baka, og inun hún því koma til fram-
kvæmda að níu mánuðum liðnum. Þá tók úrsögn Bergs-Hugins hf.
í Vestmannaeyjum úr SH gildi nú um áramótin og samkvæmt,
því er fyrirtækið ekki lengur í viðskiptasamningi við SH. Stjórn
Isfélags Vestmannaeyja hf. dró á fundi sínum sl. laugardag til
baka úrsögn úr SH.
Ástæður fyrir úrsögn Kaldbaks
á Grenivík, sem á 1,18 % í SH
munu vera fjárhagslegs eðlis og
‘munu forsvarsmenn þess telja
meiri von til þess að ná inn nýju
fjármagni í fyrirtækið, með því að
geta boðið nýjum eignaraðilum að
selja framleiðslu fyrirtækisins.
Fundur fulltrúa Kaldbaks og for-
svarsmanna SH í gærmorgun
leiddi ekki til þess að Kaldbakur
drægi til baka úrsögn sína, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Magnús Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Bergs-Hugins, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær
að ekki lægi fyrir hver myndi ann-
ast sölu fyrir Berg-Hugin sem ger-
ir út frystitogarann Vestmannaey.
Magnús_ er jafnframt stjórnarfor-
maður ísfélagsins og sagði hann
stjórnina hafa metið stöðuna þann-
ig að skynsamlegast væri að draga
úrsögnina til baka.
Sjá Af innlendum vettvangi á
miðopnu.
ið hafnaði því þar sem aðeins 22%
stundakennara við HÍ væru innan
BHMR. Kjör stundakennara við HÍ
eru ákveðin með reglum sem
menntamálaráðuneytið gefur út og
er tekið mið af samningi Félags
háskólakennara, að sögn Gunnars.
Birgir Jónsson sagði að þeir
hefðu hitt fulltrúa ríkisins í október
til að ræða kjör sín en ekkert hafi
gerst í þeim málum fyrr en í gær,
þegar ráðuneytin kynntu kennurum
breytingar á reglum um laun þeirra.
„Þær eru ákaflega óljósar og okkur
sýnist að í mjög mörgum tilfellum
muni stundakennarar hreinlega
lækka í launum samkvæmt reglun-
'um. Þessar tillögur koma verst við
þá sem hafa kennt lengi,“ sagði
hann.
Birgir sagðist ekki sjá apnað en
að stundakennsla falli alveg niður
á næstu kennsluönn vegna þess að
stundakennarar væru almennt ekki
tilbúnir til að ráða sig áfram á þeim
kjörum sem í boði væru. Á aðal-
fundi samtakanna yrði væntanlega
lögð fram tillaga um að félagar í
þeim gangi ekki frá nýjum ráðning-
ársamningum fyrir næstu önn.
Einnig bjóst Birgir við viðkomandi
stéttarfélög hvetji sína félagsmenn
til að ráða sig ekki.
Stór hluti stundakennara í ýms-
um framhalds- og sérskólum auk
kennara við HÍ eru félagar-í BHMR,
og undirbúa samtökin nú kæru til
Féiagsdóms m.a. til að fá úrskurð
um hver fari með samningsréttinn
fyrir stundakennara. Að sögn
Gunnars hefur fjármálaráðuneytið
lýst yfir að ef fallist verði á að leita
úrskurðar félagsdóms muni ráðu-
neytið ekki standa í vegi fyrír því.
Tjörnes;
Sluppu úr
lOmfalli
Húsavík.
HJÓN frá Vopnafirði sluppu
með skrámur þegar bíll
þeirra fór út af veginum efst
í Gerðubrekku á Tjörnesi í
gær og valt niður háa brekku.
Lögreglan áætlar fall bílsins
tíu metra og telur að bílbeltin
hafi bjargað fólkinu.
Fólkið var á austurlejð. Öku-
maðurinn sagði í samtali við
fréttaritara að hann hefði misst
alla stjórn á bílnum í hálku á
brekkubrúninni. Bíllinn fór útaf
þar sem er mjög hátt. Bílstjórinn
sagðist hafa vankast og ekki
vitað af sér fyrr en bíllinn sat
á hjólunum eftir mikla flugferð
niður brekkuna. Kona hans
sagði að bíllinn hafi farið að
minnsta kosti tvær veltur.
Fréttaritari.