Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.01.1991, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 81. .1ANÚÁR 1991 4 VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 31. JANUAR YFIRLIT I GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er kyrrstæð 988mb lægð en við Irland er 1.030 mb hæð. Um 600 km'suðsuðvestur af landinu er vaxandi 990 mb lægð á hreyfingu norður. SPÁ: Allhvöss eða hvöss sunnanátt, 5-8 stiga hiti og rigning austan- lands fram yfir hádegi en annars hægari suðvestanátt og kóln- andi, él vestanlands en léttir til norðaustanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG :Suðvestan strekkingur með éljum vestan- lands en nokkuð björtu veðri norðaustantil en þykknar síðan upp með vaxandi suðaustanátt, fyrst suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig, hlýnandi. HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnanátt, sennilega stormur eða rok og rigning víða um land en síðan suðvestlægari og él vestanlands. Kóinandi veður. TAKN: Ö:Hei Heiðskírt Lettskyjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * •J0 Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður Vinnu- og ráðningarfyrirkomulag aðstoðarlækna verður endurskoðað: -.■■■■■ ■ -- r • ■ - -1 Nefnd samningsaðila metur greiðslur fyrir vaktir í apríl Læknar geta takmarkað yfirvinnu sína í ráðningarsamningi í KJARASAMNINGI Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur við ríkisvaldið og Reykjavíkurborg, sem undirritaður var í gærmorg- un, er bókun þar sem gert er ráð fyrir endurskoðun vinnu- og ráðning- arfyrirkomulags aðstoðarlækna á sjúkrahúsum, með það fyrir augum að langar vaktir, þ.e. umfram 16 klukkustundir, verði sem fæstar. Endurskoðuninni skal lokið 1. apríl og skal þá nefnd samningsaðila og stjórnenda sjúkrahúsanna meta og flokka þær löngu vaktir, sem eftir verða, og ákveðá hvernig greiðslum fyrir þær skuli háttað. Samningsaðilar vildu lítið láta hafa eftir sér í gær um einstök atriði í samningnum, fyrr en félagsfundur lækna hefði fjallað um samninginn. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst eru grunnkaupshækkanir í samningnum í samræmi við þjóðar- sáttina svokölluðu og gert er ráð fyrir sömu hækkunum, samkvæmt ákvörðun launanefndar, og gert er í þjóðarsáttarsamningunum. Samn- ingurinn gildir fram til ágústloka. Bókun í samningnum gengur út á að stjórnendur spítalanna endur- skipuleggi vaktafyrirkomulag, þann- ig að langar vaktir lækna, sem hafa orðið allt að 26 klukkustundir, verði styttar og þeim fækkað sem allra mest. Vaktir verði sameinaðar þar sem það er hægt og kannað verði hvort hægt verði að taka upp bak- vaktir fyrir staðarvaktir. Ákvæði eru um að nefnd skipuð fulltrúum lækna- félaganna, ríkis, Reykjavíkurborgar og sjúkrahúsanna meti þær löngu vaktir, sem kunna að verða eftir 1. apríl. Nefndin á að meta vinnuálag á vöktunum og möguleika á hvíld og matar- og kaffitímum. Nefndin mun flokka vaktimar eftir vinnuálagi og ákveða að því loknu fastargreiðsl- ur fyrir mismunandi flokka. I samn- ingnum, sem undirritaður hefur ver- ið„ er því í sjálfu sér ekki kveðið á um launahækkanir umfram þjóðar- sáttina, heldur bíður það ákvörðunar nefndarinnar að ákveða sérstakar greiðslur fyrir vaktimar. Samnings- aðilar munu vera sammála um að það samkomulag, sem væntanlega næst í nefndinni, muni gilda. í samningnum er ákvæði um að lækni sé ekki skylt að vinna fleiri en 90 vinnustundir á mánuði í yfir- vinnu, hafi hann samið um það við Havaðinn í loftvama- flautunum gat ver- ið ansi óþægilegur „EFTIR fyrstu loftárásina á Riy- adh fluttum við út fyrir borgina þar sem við vorum í 4 daga en fórum síðan akandi yfir eyði- mörkina um 800 km leið til Jiddah sem tók 12 tíma. Þaðan flugum við svo til Stokkhólms og síðan heim til íslands,“ sagði Sigrún Jónasdóttir sem búið hefur í Saudi-Arabíu síðan í september. Eiginmaður Sigrún- ar er norskur landslagsarkitekt, Björn Johanssen, og eiga þau 3 börn. Sigrún sagði að fólk hefði verið rólegt og ekki með neinn æsing yfir stríðinu. Hún sagði að eftir að hluti úr flugskeyti hefði hæft og skemmt hús í borginni hefði mikil forvitni gripið marga sem hefðu gert sér ferð til að skoða vegsummerkin. „Við vorum ekki hrædd, en hávaðinn í loftvarna- flautunum á nóttunni gat verið ansi óþægilegur.“ Björn Jo- hanssen starfaði í 5 ár á Islandi áður en hann hélt til Saudi-Arabíu í apríl á síðasta ári. Hann starfar hjá sænsku byggingaverktakafyr- irtæki sem vinnur að ákaflega við- amiklum byggingaframkvæmdum og sagðist hann búast við að fara utan fljótlega aftur. Sigrún sagði að þeim hefði líkað vel í Saudi- Arabíu og um leið og hægðist um í stríðsrekstrinum færi hún utan aftur með börnin. - BB Samvinnuferðir semja við Atlantsflug: Aætlanir ann- arra ferðaskrif- stofa óbreyttar SAMNINGUR Samvinnu- ferða/Landsýnar við Atlantsflug um leiguflug í sumar, breytir í engu áætlunum annarra ferða- skrifstofa um leiguflug. Hörður Gunnarsson forstjóri Ur- vals-Útsýnar sagði að samningur við Flugleiðir væri nánast frágenginn. Hörður sagðist ekki hafa upplýsingar um hvort tilboð Flugleiða til Sam- vinnuferða hefði verið hagstæðara en sá samningur sem Úrval-Útsýn gerði við félagið, en sagði að þó svo væri myndi það ekki breyta neinu. Andri Ingólfsson forstjóri Ferða- miðstöðvarinnar Veraldar sagði að búið væri að semja við Flugleiðir og spænska flugfélagið Oasis og samn- ingar Samvinnuferða breyttu engu um það. Andri sagði að Flugleiðir hefðu gert ferðaskrifstofunni mjög hagstætt tilboð, bæði um verð og flugtíma en flogið yrði dagflug. ráðningu. Þetta hefur ekki þau áhrif að vinni læknirinn fleiri en 90 yfir- vinnutíma, fái hann borgað auka- lega, heldur að viðkomandi yfirlækni sé skýlt að haga vinnu þannig að yfirvinna læknis fari ekki yfir umsa- mið hámark. Sett voru í samninginn almenn ákvæði samkvæmt vinnuvemdarlög- um um lágmarkshvíld og tvöfalda greiðslu, fari vinna fram yfir 16 stundir í einni lotu. Þetta tekur hins vegar ekki til bundinna vakta, sem þýðir að tvöföld greiðsla myndi að- eins koma til vegna tilfallandi yfir- vinnu í undantekningartilvikum, en ekki vegna skipulagðra vakta. Líklegast þykir að greitt yrði tvöfalt kaup samkvæmt þessum ákvæðum til dæmis til lækna á slysadeild eða skurðstofu, sem oft verða að vinna í löngum lotum til að bjarga manns- lífum. Guðríður Þorsteinsdóttir, formað- ur samninganefndar ríkisins og Reykjavíkur borgar, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið vera ánægð Starfsemi á sjúkrahúsunum ætti nú að vera að komast í eðlilegt horf í kjölfar samninga. með að deilunni við lækna skyldi vera lokið, og að hún teldi samning- inn viðunandi. Hún sagði að samn- ingurinn ætti ekki að þurfa að hafa neinn útgjaldaauka í för með sér fyrir ríkissjóð umfram það, sem þjóð- arsáttarhækkanir leiddu til, *ef ha- græðingu og fækkun vakta yrði fylgt eftir. Sverrir Bergmann, formáður samninganefndar læknafélaganna, sagðist vera ánægður með niður- stöðu samningalotunnar, en vildi að öðiu leyti ekki tjá sig um samninginn fyrr en læknar hefðu fengið að skoða hann. Morgunblaðið/Björn Blöndal Björn Johanssen og Sigrún Jónasdóttir ásamt börnunum Einari 10 ára, ívari 6 ára og Nínu 4 ára við komuna til Keflavíkur á þriðju- dagskvöldið. Heim frá Saudi-Arabíu: VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tfma hlti veður Akureyri S skýjað Reykjavik 5 skýjað Bergen 2 rigning á sfð.kfst. Helsínki +13 skýjað Kaupmannahöfn 0 skýjað Narssarssuaq vantar Nuuk vantar Osló 4-1 snjókoma ' Stokkhólmur 44 skýjað Þórshöfn 3 léttskýjað Algarve 14 hálfskýjað Amsterdam 2 mistur Barcelona 8 mistur Berlín 1 haglél Chicago vantar Feneyjar vantar Frankfurt 2 skýjað Glasgow 3 þokumóða Hamborg 2 skýjað Las Palmas 19 alskýjað London 2 mistur LosAngeles 8 mistur Lúxemborg +0 heiðskfrt Madríd 4 þokumóða Malaga 12 léttskýjað Mallorca vantar Montreal vantar NewYork vantar Orlando vantar París 1 þokumóða Róm 10léttskýjað V/n 3 léttskýjað Washington vantar Winnipeg +17 snjókoma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.