Morgunblaðið - 31.01.1991, Side 30

Morgunblaðið - 31.01.1991, Side 30
MOHG'ÖM'B'tAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3'Í. JAMOAR 199T Leiguíbúðir á vegnm Félagsmálastofnunar: Guðrún Sigurðardóttir deildar- stjóri á ráðgjafadeild Félagsmála- stofnunar sagði að niðurstaða-könn- unarinnar hefði leitt í ljós að fjár- hagur allra leigutaka væri erfiður. Langflestir ættu ekki kost á að kaupa íbúð á almennum markaði, en hreyfanleiki skapaðist helst í gegnum félagslegar kaupleiguíbúð- ir. Leigutakar eru á öllum aldri, frá tvítugu til níræðs, en stærstu hóp- arnir eru einstæðir foreldrar, aldr- aðir og öryrkjar. Áð meðaltali eru íbúðirnar leigðar til sömu aðila í níu ár, en flestar þeirra eru 2ja til 3ja herbergja íbúðir í ijölbýlishús- um. Guðrún sagði að á hverju ári væri úthlutað um tíu íbúðum og væru umsækjendur um hverja íbúð gjarnan 30-35 talsins. Algengt væri að umsækjendur væru í neyð og hefðu ekki aðra leið í húsnæðis- -xmálum. „Við getum því miður ein- ungis þjónað litlum hópi þeirra sem sækir um, það er skortur á íbúðum af þessu tagi,“ sagði Guðrún. „Við Formaður lítum á leiguíbúðirnar sem félags- lega hjálp, oft þarf fólk ekki á ann- arri aðstoð að halda en ódýru og öruggu húsnæði, það spjarar sig að öðru leyti. Einnig finnst fólki auðveldara að leigja af okkur íbúð, en að þiggja beina peningaaðstoð." Akureyrarbær á alls 82 íbúðir og eru 76 þeirra leigðar út á vegum Félagsmálastofnunar, en hjnar eru einkum leigðar kennurum. í síðasta mánuði bættust við fimm nýjar íbúðir og ein í næsta mánuði, þann- ig að íbúðirnar verða 88 alls. Stefnt er að því að fá inn tíu nýjar íbúðir á ári og sagði Guðrún að ef það tækist gæti ástandið orðið viðun- andi innan fárra ára. Morgunblaðið/Rúnar Þór Á leið á línu Eymundur Lúthersson trillukarl á Akureyri notað hinn óvænta sumarauka sem verið hefur norðan heiða síðustu daga og dyttaði að bát sínum, Frey EA. Eymundur er að búa sig undir línuveiðar, sem hann hyggst hefja á næstunni, en yfir sumarmáhuðina er hann á skaki. Engin merki í fjárhagsáætlun um að endurreisa eigi atvinnulífið Langflestir eiga ekki kost á kaupum á almennum markaði SKORTUR er á leiguíbúðum á vegum bæjarins, en 30-35 manns sækja að jafnaði um hveija íbúð sem losnar. Flestir leigjendanna eru einstæðir foreldrar, aldraðir og öryrkjar og eru íbúðirnar að meðaltali leigðar út til sömu aðila í níu ár. Leigjendur eru á öllum aldri og eiga það sameiginlegt að önnur úrræði í húsnæðismálum eru vart fyrir hendi. Þetta er niðurstaða könnunar á högum og aðstæðum leigutaka í ibúðum sem leigðar eru út á vegum Félags- málastofnunar Akureyrarbæjar, sem gerð var á síðasta ári af fimm starfsmönnum stofnunarinnar. ■ Alþýðuflokksins: Nám í útgerð- artækni verði í Háskólanum á Akureyri + JÓN Baldvin Hannibaisson ut- anríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins sagði á fundi flokksins á Akureyri í vikunni, að hann væri fylgjandi því að flytja útgerðartækinám frá Tækniskóla íslands til Háskólans á Akureyri. Málefni Háskólans á Akureyri komu lítillega til umræðu á fundin- um í tilefni þess að Jón Baldvin sagði ósanngjaman málflutning hafðan uppi um að hann styddi ekki Háskólann á Akureyri. Hann sagði að í upphafi hafi hann ekki verið hrifinn af þeim tillögum sem fyrir lágu um skólann, en sér fynd- ist að skólinn ætti að skapa sér sérstöðu og þar ætti að kenna námsgreinar sem ekki eru kenndar annars staðar í landinu, eins og sj ávarútvegsfræðin a. Af framhaldi af því lýsti ráðherra því yfir að sér þætti ekki óskynsam- legt að flytja nám í útgerðartækni frá Tækniskóla íslands yfir til Há- skólans á Akureyri, þannig að þar yrði í framtíðinni öll kennsla á þessu sviði. FULLTRÚAR minnihlutans í bæjarstjórn Akureyrar segja fjárhagsáætlun sem lögð var fram á fundi bæjarstjómar í fyrradag hafi tekið litlum breyt- ingum frá fyrra ári. Þeir gagn- rýna hversu litlu fé áætlað er að veija til atvinnumála og fulltrúi Alþýðuflokksins segir þess ekki sjá merki í áætluninni að mark- mið meirihlutans hafi verið að endurreisa atvinnulífið í bænum. Fulltrúi Framsóknarflokks segir að þó bæjarsjóður standi ekki illa, megi Iitlu muna að Akur- eyrarbær lendi undir smásjá fé- lagsmálaráðuneytis þegar litið sé til skulda Framkvæmdasjóðs og Hitaveitu Akureyrar. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Fram- sóknarflokki, sagði að margir endar væru lausir sérstaklega varðandi nýframkvæmdir, en að öðru leyti þætti sér áætlunin svo til óbreytt frá fyrra ári. „Það er nánast engin breyting, tekjustofnarnir eru nýttir á sama hátt og rekstrarliðir eru framreiknaðir á milli ára.“ Úlfhildur sagði að framsóknarmenn gagn- rýndu hversu litlu fé væri áætlað að veija til atvinnumála, það væri táknrænt fyrir sinnuleysi í atvinnu- málum. Einnig væru þeir óánægðir með að ekki væri gert ráð fyrir að veita 13 ára unglingum atvinnu í Unglingavinnulini í sumar og vildu því leita allra leiða til að hægt væri að bjóða þessum hópi áfram sumarvinnu hjá bænum. Þá taldi Úlfhildur ekki eðlilegt að binda tekjustofna bæjarins til fjögurra ára eins og ákveðið hefur verið, þar sem aðstæður í þjóðfélaginu væru breytilegar á milli ár. „Við höfum einnig lagt fram gagnrýni varðandi Framkvæmda- sjóð, hann virðist vera teppi sem öllu er sópað undir. Sjóðurinn var látinn taka lán vegna Krossanes- verksmiðjunnar á síðasta ári upp á 282 milljónir, en það þarf 66 millj- ónir á þessu ári einungis til að standa undir skuldbindingum sjóðs- ins. Mörg sveitarfélög standa höll- um fæti og eru nánast í gjörgæslu hjá félagsmálaráðuneyti, það má ekki miklu muna að við lendum þar þegar allt er tínt til og bæði Fram- kvæmdasjóður og Hitaveita Akur- eyrar eru tekin með í dæmið, þó bæjarsjóður sem slíkur sé ekki á hættumörkum.“ Gísli Bragi Hjartarson, Alþýðu- flokki, sagði áætlun þessa árs svip- aða og þá er lögð var fram á síðasta ári. „Það sem helst kemur á óvart er að þrátt fyrir að þessi meirihluti var myndaður til að endurreisa at- vinnulífið í bænum þá sér þess eng- in merki í fjárhagsáætlun að það eigi að gerast á þessu ári. Það hef- ur verið rætt um að fjármagna ein- hvern óskilgreindan atvinnurekstur með sölu hlutabréfa og hefur þar verið nefnt hlutabréf bæjarins í Landsvirkjun og þá hafa heyrst hugmyndir um að selja hlut Akur- eyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akur- eyringa. Alþýðuflokkurinn er alfar- ið á móti því, við teljum ekki skyn- hendi þó að vel gangi,“ sagði Gísli samlegt að láta það fyrirtæki af Bragi. Eyjafjarðarsveit: Pétur Þór Jónasson ráðinn sveitarsljóri Ytri-Tjörnum. AKVEÐIÐ var í gær á fundi hreppsnefndar Eyjafjarðarsveit- ar að ráða Pétur Þór Jónasson forstöðumann tölvudeildai- Bún- aðarfélags íslands sveitarstjóra í hinu nýsameinaða sveitarfélagi. Pétur er fæddur á Akureyri 9. maí 1952, sonur hjónanna Jónasar Péturssonar fyrrverandi alþingis- manns frá Hranastöðum í Eyjafirði og Önnu Jósafatsdóttur, en hann er uppalinn á Fljótsdalshéraði. Pétur varð stúdent frá MH 1972, búfræði- kandidat frá Hvanneyri 1977 og stundaði síðan framhaldsnám í Svíþjóð og lauk MS-prófi í landbún- aðarverkfræði frá búnaðarháskól- anum í Uppsölum 1983. Pétur starfaði að námi loknum við kennslu á Hvanneyri og vann einnig við bútæknideild þar. Frá 1984 hefur hann starfað hjá Búnað- arfélagi íslands og verið forstöðu- maður tölvudeildar. Pétur sagði að sér litist Ijómandi vel á nýja starfið og hann flytti norð- Pétur Þór Jónasson. ur með vorinu. Kona hans er Freyja Magnúsdóttir, ljósmóðir og hjúkr- unarfræðingur, og eiga þau tvær dætur, auk þess á Pétur einn son. - Benjamin BEINT FLUGi HUSAVIK - REYKJAVIK - HUSAVIK miðvikudaga • laugardaga # sunnudaga Farpantanir: Húsavík 41140 Reykjavík 690200 fluqfélaq nordurlands lif.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.