Morgunblaðið - 21.02.1991, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1991
EB veitir Sovét-
möimiim aftur aðstoð
Lúxemborg. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evr-
ópubandalagsins (EB) tóku á
þriðjudag aftur þá ákvörðun sína
að frysta efnahagslega aðstoð við
Sovétríkin en ákvörðun þar að
lútandi var tekin í kjölfar ofbeld-
isaðgerða Rauða hersins i Lithá-
en og Lettlandi í síðasta mánuði.
Þrír ráðherranna fóru til fundar
við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta
British Air-
ways stofnar
flugfélag í
Þýskalandi
Bonn. Reuter.
BRESKA flugfélagið British Air-
ways hefur sótt um leyfi til þý-
skra flugmálayfirvalda um að fá
að stofna nýtt flugfélag í Þýska-
landi, að sögn Bernds Wietfelds,
talsmanns félagsins.
Wietfeld sagði að British Airways
ráðgerði að eiga 49% í hinu nýja
flugfélagi en tilgangurinn með
stofnun þess væri að glæða þýska
flugþjónustu nýju lífi og auka sam-
keppni en ríkisrekna flugfélagið
Deutsche Lufthansa hefur verið
nær einrátt í þýskum flugsam-
göngum.
Flugfélagið sem British Airways
hyggst stofna yrði í meirihlutaeign
þýskra banka. Ætlunin er að það
yfirtaki áætlunarleiðir breska fé-
lagsins til og frá Berlín 1. apríl nk.
Talsmaður þýska samgönguráð-
uneytisins sagði að af hálfu ráðu-
neytisins væri ekkert því til fyrir-
stöðu að hið nýja flugfélag yrði
stofnað, gætu British Airways og
bankamir sem að því stæðu sýnt
fram á að félagið myndi uppfylla
kröfur sem um rekstur flugfélaga
og að það yrði rekið með hagnaði.
í gær var frá því skýrt að fyrrum
austurþýska flugfélagið Interflug
yrði lagt niður vegna hallareksturs
og óhagkvæms flugflota. Tilraunir
til að selja flugfélagið hafa reynst
árangurslausar.
sl. laugardag og í framhaldi af við-
ræðunum lögðu þeir til að banninu
yrði aflétt. Um var að ræða 560
milljóna dollara tækniaðstoð og 700
milljóna dollara lánafyrirgreiðslu
vegna innflutnings á matvælum
sem EB ákvað að veita Sovétmönn-
um í desember sl. Þá samþykktu
ráðherrarnir í gær að fjalla um frek-
ari tækniaðstoð við Sovétríkin á
næsta fundi sínum sem ráðgerður
er 4. mars næstkomandi.
„Við viljum ekki ögra Gorbatsjov
eða draga fljótfæmislegar ályktanir
um stefnu hans. Umbætur hans
styðjum við heilshugar," sagði Do-
uglas Hurd utanríkisráðherra
Breta. Roland Dumas, franskur
starfsbróðir Hurds, sagði ráðherr-
ana þess fullvissa að Gorbatsjov
hygðist halda áfram pólitískum og
efnahagslegum umbótum.
Þá var frá því skýrt á þriðjudag
að Evrópuþingið í Strassborg myndi
á í dag, fimmtudag, ryðja úr vegi
hindrunum sem það hefði reist við
því að senda matvælaaðstoð að
verðmæti 350 milljónir dollara til
Sovétríkjanna.
Reuter
Skrifstofa RÖSE í Prag opnuð formlega
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, opnaði form-
lega nýja skrifstofu Ráðstefnunnar um öryggi og
samvinnu í Evrópu (RÖSE) í gær. Á myndinni
ávarpar hann sendiherra aðildarríkja RÖSE við
það tækifæri. Ákveðið var að opna skrifstofuna
á fundi RÖSE í París í nóvember. Nils Eliasson,
forstöðumaður skrifstofunnar, sagði að fyrsta
verkefni hennar yrði að skipuleggja fund hátt-
settra embættismanna frá RÖSE-ríkjunum 23.-34.
mai.
Æðsta ráð Sovétríkjanna:
Borís Jeltsín sagður hafa
lýst yfir borgarastyriöld
Umbótasinnar saka harðlínukommúnista um skipulagða herferð gegn lýðræðisöflunum
Moskvu. Jleuter.
HÁRÐLINUMENN í Æðsta ráði Sovétríkjanna sökuðu Borís Jelts-
ín, forseta rússneska sambandslýðveldisins, í gær um að hafa með
kröfu sinni um afsögn Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta lýst yfir
borgarastríði. Þingmenn stóðu upp hver á eftir öðrum til að for-
dæma Jeltsín og þau orð sem hann lét falla um Gorbatsjov í sjón-
varpsviðtali á þriðjudag.
„Staðhæfíngar Jeltsíns í gær jafn-
gilda yfirlýsingu um borgarastyrj-
öld,“ sagði Anatólíj Tsjekójev, einn
af leiðtogum Sojuz-hópsins, sam-
taka harðlínukommúnista á þing-
inu. Jeltsín var einnig sagður beita
öllum tiltækum ráðum til að ná
fram persónulegum metnaðarmál-
um sínum og að þau væru ljarri
því að samræmast perestrojku og
lýðræði.
Jeltsín sagði sig úr Kommúni-
Ofnotkun algengra verkja-
taflna getur verið banvæn
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FÁTT er jafn mikið auglýst í bandarísku sjónvarpi og verkjatöfl-
ur. Sætir furðu hversu margar tegundir þeirra eru til. Langmest
ber á töflum, sem seldar eru undir tegundarheitinu „Tylenol".
Þær eru sagðar mest notuðu töflur á sjúkrahúsum og læknar
ráðleggja notkun þeirra í tíma og ótíma að því er virðist.
Lærðir menn og leikir eru nú
teknir að óttast stöðuga neyslu
slíkra verkjataflna. Vísindamenn
við Pennsylvania-háskóla telja t.d.
að nauðsyn sé á nákvæmri rann-
sókn á deyfilyfinu acetaminophen
(selt undir tegundarheitinu „Ty-
lenol“), því niðurstöður skýrslna
sýni, að mikil og stöðug notkun
þess og annarra skyldra lyfja or-
saki hættu á nýmasjúkdómum,
krabbameini, hjartasjúkdómum
og ótímabærum dauðsföllum.
Fjallað var um þetta mál í grein
í læknatímaritinu New England
Journal of Medicine 17. janúar sl.
Þar segir að niðurstöður 20 ára
rannsókna á deyfilyfinu „phenac-
etin“ sýni, að dauðsföll séu helm-
ingi algengari og nýrnasjúkdómar
16 sinnum algengari meðal þeirra,
sem að staðaldri nota lyfíð en
hinna sem ekki neyta þess. Rann-
sóknin, sem gerð var í Sviss und-
ir stjórn dr. Ulrich C. Dubach í
Basel, byggðist á könnun á orsök-
um dauða 623 kvenna á aldrinum
30-49 ára, sem sýndu engin merki
þess að vera haldnar banvænum
sjúkdómi.
Venjulegir neytendur deyfílyfs-
ins, þ.e. þeir sem neyta hæfílegra
skammta þess í stuttan tíma, voru
einnig taldir hafa minni mótstöðu
gagnvart krabbameinum og
hjartasjúkdómum en þeir sem
ekki neyta þess.
„Phenacetin" féll í ónáð hjá
bandarískum læknum fyrir nokkr-
um árum, er sannað þótti að það
ylli skaða á nýrum. Notkun þess
hefur því að mestu verið hætt í
Bandaríkjunum.
En þar sem mannslíkaminn
brýtur „phenacetin“ í „acetam-
inophen“, sem er virka efnið f
„Tylenol“ „er ástæða til að ætla
að afleiðingar af neyslu phenacet-
ins geti einnig orsakast af neyslu
acetaminophens", segir í greininni
í læknaritinu.
Frumrannsóknir sýna, að þó
„phenacetin" og „acetaminophen"
séu skyld efni, eru áhrif þeirra
ólík. Phenacetin, sem fyrst kom á
markað árið 1887, ræðst á nýrun.
Hætta á langvarandi misnotkun
er talin veruleg því lyfíð er ró-
andi, veitir sælutilfínningu og
hressir f skamma stund.
„Acetaminophen“ veitir ekki
sömu sælutilfinningu og* áhrif
þess koma niður á lifrinni í stað
nýrnanna. Of stór skammtur get-
ur valdið banvænni lifrareitrun.
„Acetaminophen“ getur einnig
skaðað nýrun, en slíkar hliðar-
verkanir eru sagðar sjaldgæfar.
íslenskur sérfræðingur tjáði
fréttaritara að „Tylenol“-töflur
væru ekki á markaði á íslandi en
margar sambærilegar. Að
minnsta kosti þijár tegundir af
slíkum töflum væru seldar á ís-
landi og væru „Panodil“-töflur
þeirra vinsælastar. Fleiri tegundir
innihéldu sama efni í blöndu með
öðrum efnum.
staflokki Sovétríkjanna á síðasta
ári og tileyrir nú engum stjómmál-
asamtökum. Hann krefst yfírráða
yfír náttúruauðlindum Rússlands
og róttækari efnahagsumbóta.
Gorbatsjov telur að áætlanir Jelts-
íns leiddu af sér ringulreið yrði
þeim framfylgt.
Umbótasinninn Ilíja Zaslavskíj,
sem situr í borgarráði Moskvu-
borgar og þekktur er fyrir and-
stöðu sína við Gorbatsjov, var í
gær sagður vera einræðisherra af
rússneskum harðlínumönnum,
sem vilja bola honum úr embætti.
„ímynd Zaslavskíjs í fjölmiðlum
er af andkommúnista og andstæð-
ingi Gorbatsjovs en hann hefur
tileinkað sér starfsaðferðir einræð-
isherra," hafði dagblaðið Sov-
jetskaja Rossíja, málgagn harðlín-
umanna innan rússneska komm-
únistaflokksins, eftir flokksmanni.
I dag, fímmtudag, verður mikil-
væg vantrauststillaga borin undir
atkvæði í borgarráðinu og komu
ásakanimar á hendur Zaslavskíj á
síðustu stundu fyrir atkvæða-
greiðsluna. Róttækir umbóta-
sinnar innan ráðsins segja að að-
gerðimar gegn Zaslavskíj séu hluti
af stærri herferð harðlínukom-
múnista er miði að því að koma
fleiri umbótasinnum úr embætti,
þ.ám. Gavríl Popov, borgarstjóra
Moskvu, Anatólíj Sobcbak, borg-
arstjóra Leníngrad, og Borís Jelts-
ín.
ERLENT
Kristilegir demókratar í Þýskalandi:
De Maiziere hreinsað-
ur af grun um njósnir
Bonn. Reuter.
Talsmenn Kristilegra demókrata
í Þýskalandi (CDU), flokks Helm-
uts Kohls kanslara, sögðu í gær
að Lothar de Maziere, fyrrver-
andi forsætisráðherra Áustur-
Þýskalands, hefði verið hreinsað-
ur af ásökunum um að hann hefði
njósnað fyrir Stasi, öryggislög-
reglu austur-þýska kommúnista-
flokksins.
Framkvæmdastjóri CDU, Volker
Ruhe, sagði að niðurstöður opin-
berrar rannsóknar á fortíð de Maizi-
ere, sem væntanlegar em síðar í
þessari viku, myndu gera honum
kleift að taka aftur við ábyrgðar-
stöðum innan flokksins. „Eftir því
sem ég best veit hafa ásakanirnar
ekki verið staðfestar,“ sagði Ruhe.
De Maiziere var síðasti forsætis-
ráðherra Austur-Þýskalands og
undir hans stjórn sameinaðist landið
Vestur-Þýskalandi 3. október á síð-
asta ári. Hann lét af embætti sem
varaformaður CDU og ráðherra án
ráðuneytis í fyrstu ríkisstjóm sam-
einaðs Þýskalands í desember sl.
eftir að fjölmiðlar gáfu í skyn að
hann hefði látið Stasi í té upplýsing-
ar um flóttamenn og fólk í trúar-
legu starfí. De Maiziere neitaði
ásökununum.
Ruhe sagðist vonast til þess að
de Maiziere yrði formaður nýs ráðs
á vegum CDU sem hefur stefnu-
mótun með höndum.