Morgunblaðið - 21.02.1991, Page 38
38
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1991
SELFOSS
• •
Oskudag-
ur á léttu
nótunum
Selfossi.
Böm á Selfossi gerðu sér glaðan
öskudag þrátt fyrir óhagstætt
veður. Farin var skrúðganga frá
Bamaskólanum á Tryggvatorg þar
sem safnast var saman og kötturinn
sleginn úr tunnunni.
Bömin klæddust skrautlegum
búningum þrátt fyrir rigninguna og
gáfu tunnunum mörg góð högg og
hlutu að lokum sælgæti að launum.
Mörg bamanna gengu á milli
verslana og tóku lagið. Allur bragur
þennan dag var á léttu nótunum.
Deginum luku bömin síðan með
grímudansleik í Hótel Selfossi.
Sig. Jóns.
Börnin klæddust skemmtilegum búningum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
alandseSar
Örn ráðinn til að annast
umsjón allrar danskennslu
Örn Guðmundsson.
• •
Orn Guðmundsson danskennari
hefur verið ráðinn um- sjón
armaður allrar danskennslu á
Álandseyjum til eins og hálfs árs.
Örn sagði það venju hjá Álands-
eyingum að ráða umsjónarmenn
hinna ýmsu listgreina til eins og
hálfs árs í senn. „Þetta er í fyrsta
sinn sem ráðinn er umsjónarmaður
með dansi og þetta verður því
spennandi brautryðjandastarf,"
sagði Örn, sem mun dvelja á
Álandseyjum fram á mitt ár 1992.
Danskennslá er á verkefnaskrá
grunnskólanna á Álandseyjum og
læra börnin bæði klassískan ballet
og samkvæmisdansa. Örn sagði að
í höfuðstaðnum, Maríuhöfn, væru
um eitt hundrað böm á aldrinum
7-14 ára, sem lærðu dans en að
auki færi hann eitthvað út fyrir
höfuðstaðinn til að kenna.
í dagblöðum á Álandseyjum hef-
ur talsvert verið rætt um ráðningu
Arnar og vænta heimamenn sér
mikils af starfi hans. Vonast menn
til að ráðning hans auki áhuga eyja-
skeggja á dansi og að balletflokki
verði komið á fót.
Gunnar Snæland Ingimarsson og Júlíus Pálsson reka ferðaskrif-
stofuna Hekla Rejser í Kaupmannahöfn en þeir eru jafnframt
að ljúka námi í landbúnaðarfræðum.
FERÐALÖG
Landbúnaðar-
fræðingar reka
ferðaskrifstofu
eir stunda nám í landbúnaðar-
fræðum við Kaupmannahafn
arháskóla og eru langt komnir með
það en tóku upp á því fyrir hálfu
öðru ári að reka ferðaskrifstofu.
Hún heitir Hekla Rejser og er í
miðborg Kaupmannahafnar, á
þeim slóðum þar sem flest flugfé-
lög hafa skrifstofur sínar. En af
hverju að fara út í þennan rekst-
ur, Gunnar Snæland Ingimarsson
og Júlíus Pálsson?
“Eftir að hafa búið hér í nokkur
ár og starfað bæði fyrir félög ís-
lendinga og komið nálægt ferða-
málum sáum við að hér var
óplægður akur og við ákváðum
strax að sérhæfa okkur í íslands-
ferðum," segja þeir félagar í stuttu
spjalli við blaðamann Mbl. “Danir
ferðast ekki mjög mikið til Islands
og þrátt fyrir að Flugleiðir haldi
uppi tíðum ferðum og SAS nú
seinni árin þá hefur lítið sem ekk-
ert verið gert að því að bjóða Dön-
um upp á skipulagðar ferðir um
landið.
Við lögðum því út í þennan
rekstur í september 1989, söfnuð-
um saman upplýsingum um ferða-
og gistimöguleika heima og hófum
að selja. Við höfum unnið þetta í
samvinnu við ýmsa aðila heima,
ferðaskrifstofur og aðra sem sjá
um þá hlið mála heima, hluti sem
við getum ekki stjórnað héðan.“
Hvemig hefur gengið að fá við-
brögð og undirtektir að heiman?
“Það hefur gengið vel og menn
hafa verið fljótir til að veita okkur
allar upplýsingar og vilja vera með
í því að ná fleiri ferðamönnum til
íslands, ferðamönnum sem vilja
fara um landið og það má kannski
segja að þama náum við til þess
hóps fólks sem vill ferðast svolítið
á annan hátt en hinn hefðbundni
ferðamaður. Ferðaþjónustan á Is-
landi er orðinn háþróaður iðnaður
sem við teljum að eigi framtíð fyr-
ir sér.“
Þeir félagar segja að reksturinn
gangi vel en vinnan sé mikil. Skrif-
stofan er opin 9 til 5 og nýlega
gáfu þeir út bækling með upplýs-
ingum um ýmsa ferðamöguleika á
íslandi. Þeir vom einnig með á
ferðasýningu í Bella Center og
deildu út bæklingnum.
“Þetta er mikil samkeppni og
það þarf að leggja höfuðið í bleyti
til að finna það sem er áhugavert.
Nýlega sendum við út 2.500 bréf
til fyrirtækja og bentum þeim á
þann möguleika að senda starfs-
fólk sitt til íslands til ráðstefnu-
halds eða í svonefnda hvataferð
sem nú er orðið svo algengt. Eitt
aðalverkefni okkar um þessar
mundir er að fylgja þessu bréfi
eftir með hringingum.
EP
Vsff Vn,K^BBSTGtJl
cdYðn
Kventólkíð í fyrirtaekmu fær nó j einn
og lýsir yf ir striði _________
Æsispennondi mynd sem byggð er ó
^onnsöguleóum atburðum.
Útgðfo 25. rebrúar.
Ífí NA
<V I
OLlVEf,
AOBEhj
MJODÐ
gos
hraun
celia
bónuskort
Þarsem myndimarfást! ^stórgóó m
leikorer og óvenji
KM n i D mogno upp dulúí
"iw ' tJ *#' *ff t>9 sp«nnu.
or sem fróbærir.
%
myndbanðaleigur
KRINGLUNNI 4, SÍMI 679015 ■ REYKJAVÍKURVEGI 64, SÍMI 671425 • ÁLFABAKKÁ 14, MJÓDO, SÍMl 79Ó15 ■ SKIPH0LTI 9, 5ÍMI 626171