Morgunblaðið - 28.02.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FLMMTUUAGUu’ ‘28. FEBRUAR Í991
11
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Frumflytur í Evrópu tvö
verka Rachmaninoffs
eftirRafn Jónsson
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói
laugardaginn 2. mars nk. kl.
14.30 verða frumflutt í Evrópu
tvö verka Rachmaninoffs. Þetta
eru Píanökonsert nr. 4 í upphaf-
legri mynd og ófullgerða óperan '
Monna Vanna. Jafnframt tón-
leikunum hafa verkin verið tekin
upp fyrir breska hljómplötufyrir-
tækið Chandos, sem mun dreifa
þeim á geisladiskum og hljóm-
plötum í 32 löndum. Hvorugt
þessara verka hefur verið hljóð-
ritað áður. Nýlega hafa tekist
samningar við Chandos um
hljóðritanir hljómsveitarinnar á
verkum, sem Chandos velur og
er samningurinn til þriggja ára.
Ríkisstjórn íslands hefur sam-
þykkt að styðja við þetta verk,
enda blandast engum hugur um,
hvílík kynning þessar hljóðritanir
verða fyrir hljómsveitina og
íslensku þjóðina.
Verkin flutt fyrir tilstuðlan
hljómsveitarstjórans
Verkin verða flutt hér fyrir
tilstuðlan hljómsveitarstjórans,
Igors Buketoff, en hann var um
þriggja ára skeið á sjöunda ára-
tugnum aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands. Hann á all-
an heiður af því að verkin verða ■
flutt nú í Evrópu. Hann var vin-
ur Rachmaninoffs síðustu átta
æviár hans. Rachmaninoff hóf
samningu óperunnar í Dresden
1907. Þegar hann hafði lokið
fyrsta þættinum komst hann að
því að höfundarréttur vegna sög-
unnar hafði verið seldur og hann
varð því að hætta við samningu
verksins. Vegna þessara höfund-
arréttarákvæða var Monna
Vanna aldrei flutt en Buketoff
komst að því að flutningsréttur
sögunnar var fallinn niður í
Bandaríkjunum og því var óp-
eran frumflutt þar í ágúst 1984.
Hún verður því flutt hérlendis á
ensku og eingöngu bandarískir
einsöngvarar taka þátt í flutn-
ingnum að undanskildum Jóni
Þorsteinssyni.
Píanókonsertinn var fluttur
tvisvar í upphaflegri mynd á
miðjum 3. áratugnum og hlaut
slæman dóm gagnrýnenda. Rac-
hmaninoff, sem var mjög við-
kvæmur fýrir allri gagnrýni,
lagði upphaflegu gerðina á hill-
una og snemma á fjórða ára-
tugnum kom fram ný gerð kon-
sertsins, sem síðan hefur verið
flutt með smábreytingum. Fyrsti
kaflinn er nánast eins í báðum
gerðunum, annar kafli töluvert
öðruvísi en þriðji og lokakafli
verksins er gerólíkur endurskoð-
uðu útgáfunni. Að sögn Buket-
óffs, hljómsveitarstjóra, er það
mál manna að frumgerðin sé
mun betri en endurskoðaða út-
gáfan.
Listamennirnir
Einleikari á tónleikunum er
bandaríski píanóleikarinn Will-
iam Black og er talið að hann
sé eini píanóleikarinn í dag, sem
hafi þennan konsert á valdi sínu.
Black hefur hlotið margháttuð
verðlaun og viðurkenningar fyrir
píanóleik og leikið einleik í
Bandaríkjunum, Kanada og víða
í Evrópu. Hann hefur frumflutt
nokkra nútímapíanókonserta,
t.d. eftir Aaron Copland og David
Diamond.
Nokkrir, söngvarar koma við
sögu í óperunni Monna Vanna.
Þar er merkastan að telja banda-
ríska baritonsöngvarann Sherríil
Milnes. Hann hefur í aldarfjórð-
ung sungið í flestum óperuhús-
um heims og hlotið takmarka-
laust lof fyrir. í Washington
Post var m.a. skrifað um eina
sýningu hans: „í hvert skipti sem
hann kom fram í sýningunni var
óhjákvæmilegt að skynja nálægð
eins mesta listamanns vorra
tíma.“ Hann hefur sungið öll
baritonhlutverk tónbókmenn-
tanna og hvar sem komið er í
hljómplötuverslanir blasir nafn
hans við á hljómplötum og
geisladiskum. Aðir söngvarar
eru Jón Þorsteinsson, sem hefur
í rúman áratug starfað í Holl-
andi og syngur nú við Óperuna
í Amsterdam, bandaríski bari-
tonsöngvarinn Nickolas Karous-
atos, sem hefur, þótt ungur sé,
SherriH Milnes
Blythe Walker
Nickolas Karousatos
Seth McCoy Igor Bucketoff Jón Þorsteinsson
William Black
getið sér gott orð sem söngvari
austan hafs og vestan og kom
nýlega fram í Boccanegra með
Sinfóníuhljómsveit Chicago-
borgar undir stjórn sir George
Soltis, bandaríski tenónsöngvar-
inn Seth McCoy, sem hefur hlot-
ið mörg verðlaun fyrir söng sinn
og tekið þátt í frumflutningi
nokkurra verka, s.s. Utrenja eft-
ir Penderecki, og bandaríska
sópransöngkonan Biythe Wal-
ker, sem hefur sungið mörg sópr-
anhlutverk tónbókmenntanna,
allt frá Mozart og Bach til Gers-
hwins og Kerns. Auk þeirra tek-
ur Kór Islensku óperunnar þátt
í flutningnum. Kórstjóri er Peter
Locke.
Eins og áður sagði verður Igor
Buketoff hljómsveitarstjóri á
tónleikunum. Hann er Banda-
ríkjamaður af rússnesku bergi
brotinn. Hann lauk námi frá
Juillard-tónlistarháskólanum í
New York og hefur hlotið marg-
ar viðurkenningar og verðlaun
fyrir hljómsveitarstjórn. Hann
þykir sérstaklega góður óperu-
stjórnandi og er þekktur fyrir
vandaðar hljóðritanir. Hann hef-
ur stjórnað þekktum hljómsveit-
um víða um heim, Norður- og
Suður-Ameríku og Evrópu.
Höfundur er kynningarfulltrúi
Sinfóníuhljómsveitarinmir.