Morgunblaðið - 28.02.1991, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRUAR 1991
Frumsýn ing
íkvöld kl. 21.00
Alfonso Vilallonga og Cabaret fíose
a
III
a
Söngur, stemmning, stíll
IMOlílN. IBCRC
Tökumadokkur: Arshátíðir, erfidn,kkjur,
•0=0!
0=0=0=
ö
q
III
0
0
0
0
„Góð meining
enga gjörir stoð“
Annað bréf til menntamálaráðherra
M
eftir Erling Sigurðar-
son frá Grænavatni
Við erum höfðingjadjarfir menn
Mývetningar. Þess vegna tölum við
oftast við æðri menn eins og jafn-
ingja okkar og ætlumst á sama
hátt til svara af þeim. Ef til vill
má rekja til þessa uppruna rníns
það sem þér finnst vera frumhlaup
mitt, að skrifa þér opið bréf í dag-
blaði. En ég held að ástæða þess
að ég leyfði mér slikt sé ekki síður
sá skilningur minn á lýðræði, að
umboð valdsmanná sé komið frá
kjósendum þeirra en ekki af himn-
um ofan. Því sé það meira en rétt-
lætanlegt að þeir séu beðnir um
skýringar finnist þegnunum ein-
hveijar athafnir þeirra við stjórn
landsins umdeilanlegar.
í ljósi þessa skrifaði ég þér bréf-
ið sem birtist þrískipt í Morgun-
blaðinu 5., 6. og 7. febrúar. Síðan
eru tíu dagar liðnir og mér sýnist
sem þú ætlir ekki að virða mig
svars. En til svars tel ég ekki „at-
hugasemd" þína vegna greina okk-
ar Njarðar P. Njarðvík í Morgun-
blaðinu 8. febrúar, né heldur per-
sónulegt símtal í sama anda. Það
sama gildir um málalista frá
menntamálaráðuneytinu sem ég
fékk sendan. En málið er opinbert
— ekki persónulegt þó að þú takir
það sem slíkt.
Mér finnst ég því knúinn til að
ítreka bréf mitt, ekki síst vegna
þess að í „athugasemd“ þinni lætur
þú falla um það ýmis orð sem ekki
eiga við nein rök að styðjast. Ég
get ekki látið eins óg þau séu rétt-
mæt með því að mótmæla ekki.
Þó vænti ég þess að þeir sem lásu
bréf mitt sjái fjarstæðurnar í „at-
hugasemd" þinni, en hafi einhveij-
ir aðeins lesið hana fá þeir mjög
gardeur
- DÖMUFATNAÐUR
Síðbuxur - fjölbreytt uml
ull/terelene,
bómull
gallabuxur
Hnébuxur,margirlitir
Bein pils
62 cm síð, 72 cm síð
Víð pils - buxnupils
Stukirjakkar
einlitir — köflóttir
stuttir - síðir
GÆÐAVARA
- TÍSKUVARA
OÓumv
verzlun v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 611680.
Opið daglega frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14
ranga hugmynd um það. Hins veg-
ar geta þeir ráðið af henni að þú
hafir þar verið borinn „alvarlegum
sökum“ og ómaklegum og mikið
verið gert á hluta þinn og vegið
að persónu þinni. Þetta má m.a.
ráða af kveðjuorðunum: „í vinsemd
þrátt fyrir allt.“ Hvað?
Dylgjur og
fullyrðingar hraktar
Þú lætur að því liggja að ég
vilji stefna þér fyrir landsdóm.
Slíkt er hvergi orðað.
Þú segist líka vera í skrifum
okkar Njarðar „flokkaður í hópi
þeirra VL manna forðum", og þyki
þér „eriginn sómi að“. Hvorugur
okkar minnist á „Varið land“ né
gefur nokkurt slíkt samband í
skyn.
Þú segir: „ .. . fullyrt er að ég
vilji að engu hafa forsendur þjóð-
menningar á íslandi.“ Þetta er
hvergi sagt. En vissulega höfðum
við vænst þess af þér að hyggja
betur að þessum forsendum en
reglugerðarbreytingin gaf til
kynna.
Þú segir að þig „bresti geð til
að sitja þegjandi í fúkyrðaflaumin-
um miðjum". Ég fullyrði að hvergi
í þessum skrifum er eitt orð sem
hægt er að telja fúkyrði og þykir
mér þú nú gerast heldur orðsjúk-
ur. Orökstutt stóryrði kann það
að teljast að kalla Stöð 2 „furðu-
verk fjármálaspillingarinnar" hér á
landi. Því var ekki til þín beint og
átti ég tæpast von á að þessi orð
hittu þig fyrir.
Þó að „ár læsis“ sé nú liðið í
menntamálaráðuneytinu er ekki
hægt að taka þar upp lesskilning
af því tagi sem þú hefur tileinkað
þér samkvæmt þeim orðum sem
ég vitna hér til.
Þú talar úm „staðlausa stafi“
án þess að rökstyðja það frekar,
svarar engu og gefur þar með til
kynna að bréf mitt sé allt þess
eðlis. Betra fyrir þig að satt væri,
en því miður er reglugerðarbreyt-
ing þín hörmuleg staðreynd og
gagnrýni mín á því byggð.
Hins vegar eru það staðlausir
stafir að reglugerð þín sé um „að
efni sjónvarpsstöðva skuli að
minnst hálfu leyti vera islenskt
efni“, en þannig er hún nú kynnt
í ráðuneytinu. í henni mun að vísu
vera talað um „að stefnt skuli að
því“. Slíkt orðfæri leyfði ég mér
að gagnrýna og gera lítið með í
ljósi reynslunnar þar sem oft yrði
lítið úr framkvæmd óljósra mark-'
miða þótt háleit væru. Hef ég þar
m.a. fyrir mér „þráttfyrir-kafla“
fjárlaganna, þar sem Alþingi fres't-
ar í sífellu að láta framkvæma
marga tugi lagaákvæða. Má ég
úr þínu ráðuneyti aðeins minna á
viðtækjagjaldið sem hirt hefur ver-
ið af rikisútvarpinu undanfarin ár
með þeim árangri að nú er svo
komið fyrir dreifikerfinu og lang-
bylgjustöðinni sem raun er á.
Hvernig á maður að.taka alvarlega
fögur orð þegar slík dæmi tala,
og hafði þó hvassviðrið ekki bros-
tið á þegar ég skrifaði bréfið?
Já — slík kynning á reglugerð
er „staðlausir stafir“ þegar horft
er til þeirra áhrifa sem hún hefur
þegar haft. Ég vitna til úttektar
Morgunblaðsins á sjónvarpsefni
vikuna 2.-8. febrúar sem birtist
þar sunnudaginn 10. febrúar. Þá
viku var íslenskt efni sent út í 22
klst. af 145 í ríkissjónvarpinu eða
15%! A Stöð 2 var árangurinn enn
glæsilegri: Af 168 stundum töldust
10 íslenskar en það er minna en
6%. í Ijósi fyrstu reynslu’er því
nafngift reglugerðarinnar til
marks um það sem kallað hefur
verið háðhvörf á íslensku.
Gagnrýni á
einstakt embættisverk
Ég skrifaði þér að minni hyggju
mjög málefnalegt bréf þar sem ég
gagnrýndi ákveðna stjórnarathöfn
þína — tilgang hennar, tildrög og
flýti þann sem á var hafður. Hvað
sem líður annars góðum vilja verð-
ur mörgum það á að vinna óhappa-
verk — kannski aðeins eitt. En
þeim kemur fyrir ekki að tíunda
öll sín góðverk til réttlætingar
slíku, þó að margt fyrirgefist. Eins
verða valdsmenn að skilja að það
er ekki það sanja að ætla og vilja
annars vegar og framkvæma og
fylgja eftir hins vegar. Þetta nefndi
ég í grein minni, en eftir sem áður
reynir þú að réttlæta þig með því
að afnuminn hafi verið virðisauka-
skattur á bókum og framlög til
menningarmála aukin. Það kemur
þessu máli ekki við þó að hvort
tveggja séu hin bestu mál.
Þú segist líka svara og hafa
svarað í verki „ósanngjörnum um-
mælum“ þegar þetta embættisverk
þitt er gagnrýnt. „Meðal annars
með_því — eins og hefur legið fyr-
ir lengi — að ný reglugerð um
þýðingar og íslensku í útvarps- og
sjónvarpsstöðvum mun senn sjá
dagsins ljós. Það hef ég löngu
ákveðið og marg oft tilkynnt opin-
berlega.. .“
Allt er þetta sjálfsagt satt, þó
að mig reki ekki minni til umræðu
um þetta fyrr en eftir breytinguna
á fimm ára „gömlu“ reglugerðinni
um daginn. Það er líka skrýtið að
breyta í skyndi reglugerð sem er
í endurskoðun áður en þeirri endur-
skoðun er lokið, nema ákveðið sé
að ein meginbreytingin á henni
eigi að verða sú sem svo mjög ligg-
Hvar eru hinir 62?
- Fyrirspurn til þingmanna
Er þögn ykkar alþingismanna
um reglugerðarbreytingu mennt-
amálaráðherra sama og sam-
þykki? Hvar eru nú ýmsir þeir
er gjarnan taka stórt upp í sig á
þingi þegar íslenskt ;nál og
menning er þar rætt? Ég beini
þessari spurningu sérstaklega til
þeirra ykkar sem sitja í mennta-
málanefndum þingsins, en aðrir
eru ekki undan þegnir. Hvað
veldur þögn ykkar? Er málið ekki
þess vert að fara upp með það
utan dagskrár? Af því hef ég
ekki ennþá heyrt. Eruð þið þing-
menn hræddir við aðsúg Stöðvar
2, Dévaffs og Pressunnar og ótt-
ist slúðurdálkana eða finnst ykk-
ur málið einskis vert? Á meðan
þögn ríkir á þingi hef ég í huga
orð Johannesar úr Kötlum:
„Vér heiglar
sem þorum hvorki að lifa né deyja.
Moðir vor blygðast sín fyrir oss bræður.“
Með efablandinni virðingu,
Erlingur Sigurðsson.