Morgunblaðið - 28.02.1991, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.02.1991, Qupperneq 18
icei. HA'jjiaaí .gs auoAauTMMn aiaAjavtuoHOM MÖRGUNBLÁÐÍÐ FIMMTUDÁGUR 28' FEBRUAR 1991 18 Býður í slendingum prentun peninga- seðla og frímerkja Viðtal við Harald Sivertsen, framkvæmda- stjóra prentsmiðju norska seðlabankans í VIKUNNI var staddur hér á landi, Harald Sivertsen, fram- kvæmdastjóri prentsmiðju norska seðlabankans, Norges Bank. Var erindi hans að bjóða íslendingum hágæða prentun peninga- seðla og frímerkja. Átti hann viðræður við yfirmenn Pósts og síma og Seðlabankans þar sem hánn kynnti þeim framleiðslu prentsmiðjunnar, sem er öll endurnýjuð og búin fullkomnum tækjabúnaði. Þar er m.a. notuð svokölluð djúpþrykksprentun, eða lágprent- un, sem er afar vandasöm en tryggir bestu gæði. Hún er hins vegar kostnaðarsamari en venju- leg offsetprentun. í Norges Bank fer ekki aðeins fram seðlaprentun heldur einnig umsvifamikil frímerkjaprentun með djúpþrykkstækninni. íslensk frímerki í fremstu röð „Við vonumst til að geta hafið prentun frímerkja fyrir Islendinga á næsta ári. Yfirmenn Pósts og síma sýndu þessu mikinn áhuga og ég mun koma aftur til íslands með tilboð innan skamms. Við gætum hafíð frímerkjaprentun fyrir íslendinga á næsta ári en íslensk frímerki eru í heimsklassa og verðskulda góða prentun," sagði Harald. • Harald sagði að yfírmenn Seðlabankans hefðu sýnt áhuga á prentgæðum prentsmiðju Norges Bank en ekki væri fyrirhugað að hefja prentun nýrra peningaseðla á næstunni. Seðlabanki íslands hefur frá árinu 1933 fengið alla sína pen- ingaseðlaprentaða í Englandi. Seðlabankar allra Norðurland- anna, að íslandi undanskildu sjá sjálfír um eigin seðlaprentun. Er samkeppni mikil á milli prent- smiðja í Evrópu sem margar eiga við umframgetu að stríða þar sem seðlaútgáfa hefur víðast hvar dregist saman vegna aukinnar notkunar greiðslukorta. Prent- smiðja Norges bank er þó vel sam- keppnisfær og er að auka umsvif- in að sögn Haralds. Eru áætlanir uppi um seðla- prentun fyrir Eystrasaltsríkin og eitt Afríkuríki. Auk þess býður prentsmiðjan prentun frímerkja, skuldabréfa og margs annars með vandaðri djúpþrykksprentun. Vann til verðlauna Harald segir mikils virði að prentsmiðja Norges Bank vann nýlega til fyrstu verðlauna í al- þjóðlegri samkeppni um gæði frí- merkja í 128 löndum, sem efnt var til af frönsku tímariti. Norsku frímerkin fengu þá umsögn að vera „heimsins fallegustu frí- •merki." Norges bank sér um alla djúp- þrykksprentun frímerkja í Noregi og hefur auk þess tekið að sér marghliða prentun fyrir fjölda Harald Siverts- en með sýnis- horn frímerkja með myndum af sögufrægum byggingum í Noregi en þau eru öll prentuð með djúp- þrykkstækni. NORGE ■ NOREG Þessi dýramerki voru meðal þeirra frímerkja sem unnu til verð- Iauna í alþjóðlegri frímerkjasamkeppni 128 landa á síðasta ári. Þau eru öll prentuð í prentsmiðju norska seðlabankans. landa í Evrópu, að sögn Haralds. „íslendingar hafa fengið sín frímerki prentuð í Sviss, Hollandi og England. Gæði íslensku frí- merkjanna eru mjög mikil en ég vonast til að næst taki íslendingar tilboði okkar og prenti einhvern hluta íslenskra frímerkja í Nor- egi. Við bjóðum gæðaprentun og gott verð,“ segir Harald. „Ég er bjartsýnn á að samning- ar takist um þetta á milli land- anna. íslendingar og Norðmenn hafa átt samleið frá fornu fari og fer vel á að samstarf takist á milli þeirra um prentun frí- merkja," segir hann. En er Harald Sivertsen sjálfur frímerkjasafnari? „Nei, það er ég ekki. Ég læt mér nægja að fram- leiða frímerki. Ég hóf störf hjá prentsmiðju Noreges Bank fyrir fjórum árum en hef starfað við prentun síðast liðin tuttugu ár og var þar af í tíu ár við prentun dagblaða," svarar hann. Könnun Verðlagsstofnunar: Bankakostnaður einstakl- ings lægstur í Landsbanka Heildarútgjöld bankakostn- aðar einstaklings á einu ári eru lægst hjá Landsbanka Islands, en hæst hjá sparisjóðunum, mið- að við könnun Verðlagsstofnun- ar. Miðað var við verðskrár bankanna 1. janúar sl. í könnuninni voru sett upp tvö Olafur Magnússon frá Mosfelli látinn ÓLAFUR Magnússon frá Mosfelli lést á Landakotsspítalanum 25. febrúar, 81 árs að aldri. Ólafur fæddist á Mosfelli í Mos- fellsdal 1. janúar 1910. Foreldrar hans voru Valgerður Gísladóttir og sr. Magnús Þorsteinsson, sóknar- prestur á Mosfelli, en hann féll frá þegar Ólafur var 12 ára gamall. Ólafur lauk búnaðarprófí frá bænd- askólanum á Hólum árið 1927. Að því loknu vann hann við ýmis störf, en lengst af var hann umsjónarmað- ur á Heilsuvemdarstöðinni í Reykjavík, eða frá 1955 til 1980. Ólafur lærði söng hjá Pétri Jóns- syni óperusöngvara og varð félagi í Karlakór Reykjavíkur árið 1934. Hann söng með kómum um langt skeið og oft sem einsöngvari, en hann var heiðursfélagi í kómum. Á seinni árum söng hann með karla- kórnum Stefni í Mosfellssveit, og hljómplata með einsöng Ólafs var gefín út í tilefni af 75 ára afmæli hans. Ólafur lætur eftir sig eigin- rkonu, Rósu Jakobsdóttur, og þijú börn. dæmi og miðuðust þau við ársút- gjöld vegna tékkareiknings, víxla- og skuldabréfaviðskipta og gjald- eyriskaupa. Annað dæmið var um einstakling, sem innti allar greiðsl- ur af hendi á gjalddaga og hitt um einstakling sem lenti í vanskil- um með hluta af sínum greiðslum. Niðurstöðumar vom m.a. þær, að heildarútgjöld einstaklings í báð- um dæmunum vom lægst hjá Landsbanka íslands, en hæst hjá sparisjóðunum. í öðru dæminu var kostnaður sparisjóðanna 7,1% hærri en kostnaður Landsbankans og í hinu dæminu var kostnaður sparisjóðanna 6,6% hærri en kostnaður Landsbankans. Allnokkur munur reyndist vera á einstökum liðum í dæmum Verð- lagsstofnunar. Lántökugjald, stimpilgjald, útlagður kostnaður og fleira vegna skuldabréfa var um 47% hærri hjá íslandsbanka en Búnaðarbankanum. Gjald vegna innheimtu á skuldabréfi var 43% hærra hjá Búnaðarbankanum en Landsbankanum. Tékkahefti vom um 14% dýrari hjá sparisjóð- unum en hjá bönkunum. 1 meðfylgjandi töflu sést kostn- aður miðað við að alltaf sé staðið í skilum, dæmi 1, ög miðað við að einstaklingur lendi í vanskilum með hluta af greiðslum, dæmi 2. Dæmi 1 Kostnaður við tékkareikning Búnaðarb. íslands 9.200 íslands- banki 6.575 Landsb. íslands . 6.575 Spari- sjóðirnir 6.875 Kosinaður við víxlaviðskipti 7.311 7.351 6.936 7.311 Kostnaður v. skuldabréfaviðskipti 44.120 47.444 44.451 47.915 Kostnaður við gjaldeyriskaup 1.150 1.175 1.130 1.170 Samtals 61.781 62.545 59.092 63.271 Dæmi 2 Kostnaður við tékkareikning Búnaðarb. íslands 14.337 íslands- banki 14.112 Landsb. íslands 13.212 Spari- sjóðirnir 14.012 Kostnaður við víxlaviðskiptí 8.786 8.826 8.411 8.786 Kostnaður v.skuldabréfaviðskipti 47.267 50.896 47.895 51.372 Kostnaður við gjaldeyriskaup 1.150 1.175 1.130 1.170 Samtals 71.540 75.009 70.648 75.340 Salan á Hjörleifi RE til Skagstendings: Kom okk- ur mjög áóvart - segir framkvæmda- sljóri Dvergasteins ENGIN áform eru uppi hjá Dvergasteini lif. á Seyðisfirði að kaupa annað skip í stað Hjörleifs RE 211, sem fyrirtækið ráðgerði að kaupa af Granda hf. í Reykja- vík, en skipið hefur verið selt til Skagstrendings hf. á Skaga- strönd fyrir 125 milljónir kr. Svanbjörn Stefánsson fram- kvæmdastjóri Dvergasteins vildi ekki tjá sig um ástæður þess að ekki varð af kaupunum en gengið hafði verið frá bráðabirgðasamningi milli þessara aðila. Hann sagði að þessi framvinda mála hefði komið þeim hjá Dvergasteini mjög á óvart. Hjörleifi RE fylgdi 450 tonna aflakvóti í þorskígildum og höfðu forsvarsmenn Dvergasteins reiknað með þessum kvóta í bolfiskvinnslu .fyrirtækisins, en Seyðisfjarðartog- ararnir Gullver og Otto Wathne hafa einkum siglt með afla sinn eða selt á fiskmörkuðum. „Við fáum físk hjá Gullveri og svo komum við til með að sækja físk á fiskmarkaði suður til Reykja- víkur,“ sagði Svanbjöm aðspurður um horfur í bolfiskvinnslu fyrirtæk- isins. Hann sagði að engin áform væru uppi um skipakaup hjá fyrir- tækinu. Sigurbjörn Svavarsson útgerðar- stjóri Granda hf. sagði að samning- ar við Dvergasstein hf. hefðu verið langt komnir og búið að gera sam- komulag um útborgun en dregist hefði hjá fyrirtækinu að uppfylla það samkomulag. Þá hafi verið gert samkomulag um að setja dag- setningu á útborgunina sem Dverg- asteinn hafi ekki séð sér fært að standa við. Hafi menn þá orðið ásáttir um að slíta viðræðunum. Dvergasteinn átti að greiða 10 millj- ónir við undirskrift kaupsamnings og 10 milljónir við afhendingu skipsins. Sigurbjörn sagði að Skagstrend- ingur hf. hefði komið inn í myndina um sama leyti og viðræður voru í gangi við Seyðfirðingana og þegar ljóst varð að það gengi ekki eftir voru hafnar samningaviðræður við Skagstrending. --------------- Formannskjörið í Sjálfstæðisflokknum: Stuðnings- menn Þor- steins opna skrifstofu Stuðningsmenn Þorsteins Pálssonar, í formannskjöri Sjálf- stæðisflokkssins, hafa opnað skrifstofu að Suðurgötu 7 í Reykjavík. Víglundur Þorsteinsson forstjóri sagði við Morgunblaðið, að þessi skrifstofa væri aðallega hugsuð sem fundaraðstaða og samastaður stuðningsmanna Þorsteins Pálsson- ar. Ekki væri fyrirhuguð auglýs- inga- eða útgáfustarfsemi en mikil vinna væri framundan við að ræða við landsfundarfulltrúa fyrir kosn- inguna. Stuðningsmenn Davíðs Oddsson- ar hafa opnað skrifstofu í Heklu- húsinu við Laugaveg, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.