Morgunblaðið - 20.03.1991, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ. 19.9,1
Vinnustöðvun starfsfólks í fiskvinnslu:
Mikil þátttaka virð-
ist vera í verkfallinu
Tilgangurinn að þrýsta á stjómvöld um hækkun skattleysismarka
VIÐTÆK þátttaka virðist vera í vinnustöðvun fiskvinnslufólks í dag.
Starfsfólk frystihúsa víða ura landið hefur ýmist greitt atkvæði á fund-
um eða skrifað undir yfirlýsingu um að leggja niður störf í dag til að
mótmæla skattaálögum og krefjast hærri skattleysismarka. Á nokkrum
stöðum mætir starfsfólk þó til vinnu, m.a. í Granda hf. í Reykjavík, víða
á Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Á sumum stöðum var samþykkt
formlega i atkvæðagreiðslu að fara ekki í vinnustöðvun og látið nægja
að senda áskorun til ríkisstjórnarinnar um hækkun persónuafsláttar.
Um átta til níu þúsund manns starfa við fiskvinnslu á landinu og bentu
viðbrögð í gær til, að meirihluti þeirra ætlaði að leggja niður störf í dag.
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, sagði í
gær erfitt að átta sig á hversu víð-
tækar aðgerðirnar yrðu, en hann
sagði að frystihúsaeigendur teldu
rangt að láta aðgerðirnar bitna á
fiskvinnslunni en hefðu fullan skiln-
ing á sjónarmiðum fiskvinnslufólks-
ins um að mótmæla háskattastefn-
unni. Sagði hann að fiskvinnslu-
menn hefðu víða gert ráðstafanir
til að forða afla frá skemmdum
vegna yfii’vofandi vinnustöðvun'ar.
„Við höfum reiknað með að aðgerð-
imar verði víðtækar í Vestmanna-
eyjum,“ sagði hann.
V erkamannasam bandi ð
fylgist með
Morgunblaðið hafði samband við
trúnaðarmenn í frystihúsum í öllum
landshlutum í gær og í meirihluta
þeirra hafði starfsfólk samþykkt að
leggja niður störf.
Snær Karlsson, formaður fisk-
vinnsludeiidar Verkamannasam-
bandsins, sagði að félagið fylgdist
með þessu og virtist honum að yfír-
gnæfandi meirihluti fiskvinnslu-
fólks tæki þátt í aðgerðunum.
Nokkuð hefur þó borið á gagn-
rýni á undirbúning aðgerðanna.
Kristín Hjaltadóttir, trúnaðarmaður
í Fiskanesi í Grindavík, sagði t.d.
að enginn hefði haft samband við
starfsfólk þar vegna aðgerðanna
og bjóst hún ekki við vinnustöðvun
hjá fyrirtækinu og taldi að lítil þátt-
taka yrði í fiskvinnsluhúsum í
Grindavík. Sömu svör fengust í
Fiskiðju Raufarhafnar hf. Þar var
kvartað yfir því að hafa ekki feng-
ið upplýsingar um aðgerðirnar
nema úr fjölmiðlum.
Leggja ekki niður störf
Ekki varð samstaða um að leggja
niður störf á nokkrum stöðum á
Vestfjörðum, s.s. á Patreksfirði,
Flateyri, Þingeyri Suðureyri og í
Bíldudal. Sömu sögu er að segja frá
Húsavík, Raufarhöfn og Vopnafirði.
Aftur á móti var samþykkt vinn-
ustöðvun bæði í Ishúsfélaginu og
Norðurtanga á ísafirði og hrað-
frystihúsi Einars Guðfínnssonar hf.
á Bolungarvík. Bjarnveig Samúels-
dóttir, trúnaðarmaður í hraðfrysti-
húsinu á Bolungarvík, sagði að eig-
endur vinnslunnar væru samþykkir
aðgerðunum og teldu kröfur fisk-
vinnslufólksins samrýmast hags-
munum vinnslunnar, vegna erfið-
ieika á að fá fólk til starfa í fisk-
vinnslu.
Áskorun sú, sem samin var að
loknum vinnustaðafundi á mánudag
og birtist í Morgunblaðinu í gær, féll
í grýttan jarðveg, þegar á reyndi.
Fólkið sætti sig ekki við orðalagið
og taldi ekki rétt að horfið hefði
verið frá vinnustöðvun vegna beiðni
kaupfélagsstjóra. Því var samin ný
áskorun: „Við undirrituð, fiskverkun-
arfólk í fiskverkun Fáfnis hf., skorum
á ríkisstjóm íslands að vinna að
hækkun á persónuafslætti hjá lág-
launafólki í landinu." Hún fékk al-
mennan hljómgrunn, en Vagna Sól-
veig Vagnsdóttir, annar trúnaðar-
manna starfsfólks og einn þriggja
forsprakka vinnustöðvunar fisk-
vinnslufólks um allt land, og Svana
Guðmundsdóttir, sem samdi fyrri
Víðtækt verkfall
á Austfjörðum
Starfsfólk Útgerðarfélags Akur-
eyringa samþykkti með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða að taka
þátt í aðgerðunum. Þá virðist verk-
fallið vera víðtækt á Austfjörðum
og var talið í gær að víðtæk sam-
staða hefði náðst í öllum vinnslu-
stöðvum í Vestmannaeyjum um að
mæta ekki til vinnu í dag.
Jóhanna Guðmundsdóttir, trún-
aðarmaður í frystihúsi og saltfisk-
vinnslu Síldarvinnslunnar á Nes-
kaupstað, sagði að þar hefðu um
80% starfsmanna samþykkt að-
gerðirnar til að þrýsta á stjórnvöld
um að hækka skattleysismörkin. Á
Eskifírði, Fáskrúðsfirði, Stöðvar-
firði og Höfn var einnig samþykkt
að leggja niður störf.
Frjálst val
Einar Svansson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðju Sauðárkróks, sagði
að starfsfólk þar legði niður störf
áskorunina, skrifuðu ekki undir, en
sögðust ætla að taka þátt í vinnu-
stöðvuninni.
Vagna Sólveig sagði við Morgun-
blaðið að hún kæmi ekki nálægt
þessari áskorun. Hún hefði fundið
góðan meðbyr víða um land vegna
vinnustöðvunarinnar og afstaða sam-
verkafólksins kæmi henni mjög á
óvart. Hún sagði að með þessu væri
fólkið hvorki að hugsa um eigin hag
vegna launataps í einn dag né hag
fyrirtækisins vegna þess að óunninn
fiskur gæti skemmst. „Ástæðan er
hreinlega sú að fólkið þorir ekki og
vill ekki láta skoðun sína í ljós.“
Svana Guðmundsdóttir sagði að
fyrri áskorunin hefði verið í anda
þess, sem hér hefði gerst, og í fullu
& .......-■■■ ......
Morgunblaðið/KGA
Marý Karlsdóttir skrifar undir
áskorunina. Ragnheiður Halla
Ingadóttir fylgist með.
í dag. Sagði hann að stjórnendur
fyrirtækisins legðust ekki gegn að-
gerðunum. „Við vorum látnir vita
af þessu og töldum að þetta yrði
að vera ftjálst val hvers og eins
starfsmanns, án þess að verkalýðs-
félög eða atvinnurekendur reyndu
að hafa þar áhrif á. Ég furða mig
ekki á þótt fiskvinnslufólk vekji
athygli á þessu baráttumáli," sagði
hann.
Starfsfólk Heimaskaga hf. á
Akranesi samþykkti í gær að leggja
samræmi við það, sem samþykkt var
á vinnustaðafundinum á mánudag.
Hún sagði að kaupfélagsstjóri hefði
talað um að hann yrði að gera ráð-
stafanir vegna afla, ef til verkfalls
kæmi. Með öðrum orðum færi togar-
inn annað, sem þýddi enga vinnu
fyrir fólkið í viku, og til þess væri
leikurinn ekki gerður. Hún sagðist
ekki geta skrifað undir seinni áskor-
unina, því hún gengi ekki nógu langt.
Ragnheiður Halla Ingadóttir hafði
frumkvæði að því að semja nýja
áskorun í gærmorgun. Hún sagði að
byijað hefði verið á röngum enda
með boðun vinnustöðvunar og orða-
lag fyrri áskorunarinnar væri ekki
við hæfi. Samstaða væri um að per-
sónuafsláttur þyrfti að hækka, en
framhald aðgerða réðist af viðbrögð-
um stjórnvalda.
Sigurður P. Jónsson, annar trún-
aðarmanna, sagði að fólk væri ekki
tilbúið að fara í verkfall og það væri
ekki rétta leiðin vegna of hárra
skatta. Hann sagðist vera ánægður
niður störf í dag og verkstjóri hjá
Haraldi Böðvarssyni & Co. hf. sagði
allar líkur á, að starfsfólk þar myndi
leggja niður störf þótt það hefði
ekki verið samþykkt sérstaklega.
Sjómennirnir kútta fiskinn
Anna Þorleifsdóttir á Hellissandi,
sem er ein þeirra þriggja sem stóðu
að upphafi aðgerðanna, sagði í gær
að mikil samstaða væri um aðgerð-
irnar og hefðu borist yfirlýsingar
mjög víða að af landinu um þátt-
töku í aðgerðunum. Sagði hún að
starfsfólk stæði að þessu með ýmsu
móti. Sumstaðar með atkvæða-
greiðslu en annars staðar hefðu
aðgerðirnar verið ákveðnar í óform-
legum viðræðum í kaffitímum. Hún
sagði að alls staðar hefði vinnuveit-
endum verið gert viðvart og hefðu
þeir víðast hvar lýst yfir skilningi
á aðgerðunum.
Anna sagði, að starfsfólk Hrað-
frystihúss Hellissands ætlaði að
hittast í dag á veitingahúsi til að
ræða málin og víðar fengust þau
svör að fiskvinnslufólk ætlaði að
safnast saman í dag.
„Við fórum til vinnuveitanda
okkar hér til að tilkynna honum
vinnustöðvunina og hann tók þessu
mjög vel. Við vinnum bara að aflan-
um í kvöld og ég hef trú á að sjó-
mennirnir á bátunum muni bara
sjálfír kútta fískinn. Útlendingarnir
sem hér starfa ætla meira að segja
að vera með okkur þótt við höfum
ekki viljað blanda þeim í þetta. Það
virðast allir standa með okkur,“
sagði hún í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
með að eitthvað væri gert í því að
lækka skatta, en það yrði að nota
verkalýðsfélögin til að beita sér í
málinu.
Halldór Tryggvason, verkstjóri,
sagði að hráefni lægi undir skemmd-
um og því hefði verkfall í dag komið
sér illa. Hann kannaði í gæiTnorgun
hverjir ætluðu að mæta til vinnu í
dag og var ánægður með niðurstöð-
una. Hann neitaði alfarið ásökunum
um að hafa reynt að hafa áhrif á
starfsfólkið fyrir vinnustaðafundinn,
en sagði að illa hefði verið staðið að
undirbúningi málsins og fólk hefði
tekið afstöðu í samræmi við það.
Magnús Guðjónsson, kaupfélags-
stjóri, tók í sama streng. Hann sagð-
ist hafa skýrt sjónarmið fyrírtækisins
á fundinum, en ekki reynt að hafa
áhrif á afstöðu fólks. Hann sagðist
vera mjög feginn að ekki kæmi til
vinnustöðvunar og málið ætti ekki
eftir að hafa nein eftirköst varðandi
samskipti fyrirtækisins og starfs-
fólksins.
Fiskvinnslufólk á Þingeyri sendir ríkisstjórninni áskorun:
Askorunin aðeins fyrsta skrefið
Þingeyri. Frá Steinþóri Guðbjartssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
NÆR allt starfsfólk í fiskverkun Fáfnis hf. á Þingeyri skrifaði i gær
undir áskorun til ríkisstjórnar íslands um að vinna að hækkun á per-
sónuafslætti hjá láglaunafólki í landinu. Vinna verður með eðlilegum
hætti í hraðfrystihúsinu í dag, en tvær konur neituðu að skrifa undir
áskorunina og sögðust ætla að sýna samstöðu með öðru fiskverkunar-
fólki á landinu með því að sitja heima.
Neskirkja og Fella- og Hólakirkja:
Kirkjuskjól fyrir skóla-
börn eru tekin til starfa
„KIRKJUSKJÓL" tók til starfa í Neskirkju og Fella- og Hóla-
kirkju síðastliðinn föstudag. Kirkjuskjólið er ætlað skólabörnum á
aldrinum 6-10 ára, og er tilgangurinn að bjóða börnunum upp á
skjól þar sem þau eru í umsjá fullorðinna þann tíma dags sem þau
eru ekki í skóla og foreldrar þeirra eru í vinnu. í „skjólunum" er
leikaðstaða fyrir börnin en einnig er þeim boðið upp á aðstoð við
heimanám. Umsjón með kirkjuskjólinu hafa Toby Herman, Sólveig
Guðlaugsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir. Auk starfsmannanna munu
tveir ellilífeyrisþegar koma í skjólið á hverjum degi, ræða við börn-
in og lesa fyrir þau. Stefnt er að því að fá sóknarprestana til að
tala við börnin, kenna þeim bænir og syngja með þeim einu sinni
í viku. Skjólið í Neskirkju er opið alla morgna, milli klukkan 8.45
og 13.00. Skjólið í Fella- og Hólakirlyu er opið frá 7.45 til 13.00.
Kirkjuráð styður þessa starfsemi auk þess sem Reykjavíkurborg
mun að öllum líkindum einnig veita stuðning.
í samtali við Toby Herman og
Sólveigu Guðlaugsdóttur kom
fram að um tilraun væri að ræða.
„Við byijuðum á því að gera könn-
un á þörfínni," sagði Toby í sam-
tali við Morgunblaðið. „Og kom
þá í ljós að hún var töluverð. Tíu
skólabörn úr MelaSkóla hafa verið
skráð í skjólið og komu hingað í
morgun þegar það tók til starfa.“
í samtalinu kom fram að börnin
kæmu með nesti að heiman til að
borða í hádeginu en morgunhress-
ingu fá þau í safnaðarheimilinu.
Toby og Sólveig sögðu að upp-
haflega hugmyndin hefði verið að
hafa opið allan daginn en vegna
þess hve mikil starfsemi færi fram
í safnaðarheimili kirkjunnar hefði
það ekki verið hægt. Þær sögðust
vonast til að tilraunin gengi vel
pg haldið yrði áfram næsta haust.
í framtíðinni sögðust þær vonast
til að skjóli af þessu tagi yrði kom-
ið fyrir í fleiri kirkjum.
Þrír strákar sem blaðamaður
ræddi við í safnaðarheimilinu voru
mjög ánægðir. Tveir þeirra sögð-
ust vera einir heima á morgnana
en sá þriðji sagði að pabbi hans
væri heima fyrir hádegi. Aftur á
móti væru þar engir krakkar til
að leika við. I skjólinu sögðust
þeir geta spilað á spil, teiknað,
skoðað bækur og farið í bobb en
við þá íþrótt voru þeir einmitt önn-
um kafnir. Þá sögðust þeir einnig
syngja og bentu á að aðstaða væri
til heimanáms.
Guðmundur Karl Ágústsson,
sóknarprestur í Fella- og Hóla-
sókn, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að samþykkt hefði verið á
kirkjuþingi í haust að gera tilraun
með athvörf fyrir skólabörn. Kom-
ið hefði verið á fót nefnd á vegum
prófastsdæmisins til þess að sjá
um tilraunina, og var ákveðið að
stofna „kirkjuskjól“ í safnaðar-
heimili Neskirkju og Fella- og
Hólakirkju. Hann sagði að 10
krakkar hefðu komið þegar opnað
var á föstudaginn en reiknað er
með að þar verði hægt að taka á
móti allt að 12 bömum. Boðið er
upp á morgunhressingu og hádeg-
isverð, en opið er frá kl. 7.45 á
morgnana til kl. 13.00. Auk þeirra
Tobyar og Sólveigar mun starfs-
kraftur í hálfri stöðu sjá um eld-
hússtörfín. Að lokum má geta þess
að allir foreldrar í viðkomandi
sóknum geta sótt um fyrir börn
sín í kirkjuskjólinu.