Morgunblaðið - 20.03.1991, Síða 32

Morgunblaðið - 20.03.1991, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAÖUR 20. MARZ 1991 Morgunblaðið/Sverrir Órói og óvissa á síðasta þingdegi Órói var í lofti í Alþingishúsinu í gær. Andrúmsloftið var þó ekki eins stormasamt og í fyrradag og fram á fyrrinótt en þá sagði þing- maðurinn Salóme Þorkelsdóttir (S-Rv) að, „írafár ríkir á þingi“. Fundahald gekk þó nokkuð greiðar fyrir sig i neðri deild, en í efri deild var fundum öðru hvoru frestað á meðan beðið var eftir að neðri deild afgreiddi mál til hinnar deildarinnar. í fyrrakvöld og fyrri nótt náðist samkomulag um mörg mál — svona nokkum veginn. Ólafur G. Einars- son þingflokksformaður sjálfstæð- ismanna sagði að allt of mörg mið- ur vönduð frumvörp myndu fara í gegn en þó hefði fjölmörgum „stór- slysum" verið afstýrt, en ríkis- stjómin hefði haft yfir sjötíu mál á óskalistanum í upphafí. Nú væru um tuttugu inni í myndinni. Fundir hófust í deildum kl. 11 í gcfermorgun. Fundahald var nokkuð slitrótt, en eftir því sem leið á dag- inn fór að liðkast til með afgreiðslu mála í deildum og milli deilda; ný lög voru sett. Frumvarp um al- mannatryggingar var samþykkt. Lögin kveða á um lífeyri elli- og örorkulífeyrisþega sem dveljast á stofnunum og vistheimilum. Þjóð- minjalög voru samþykkt. Frum- varp um félagsþjónustu sveitarfé- lagavar samþykkt. Framvarp um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða var samþykkt. Halldór Asgrímsson sjávarút- vegsráðherra kom frumvarpi sínu um ráðstafanir vegna afla- brests í loðnuveiðum heilu í höfn. Hann hafði orðið að leggja fram- varpið fram í eigin nafni vegna þess að honum tókst ekki að afla stuðnings alþýðubandalagsmanna. MMllCI Ráðherrann leitaði á önnur mið og kom frumvarpinu í gegnum báðar þingdeildir með stuðningi eða hjá- setu sjálfstæðismanna. Grunnskóli Grannskólafrumvarpið var ekki á dagskrá á fyrstu fundum, en það var ótvírætt til umræðu í hliðarher- bergjum. Menntamálaráðherra lagði mikla áherslu á að frumvarpið hlyti framgang, en á hinn bóginn voru sjálfstæðismenn framvarpi Sljóraarskrárbreyt- ingar samþykktar Frumvarp til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýð- veldisins íslands var í gær samþykkt á Alþingi. Ein helsta breyting- in sem frumvarpið gerir ráð fyrir er að þingið muni framvegis starfa í einni málstofu. Frumvarpið verður þó ekki að lögum fyrr en það hefur verið staðfest á næsta þingi. Framvarpið var samið að fram- kvæði forseta Alþingis af nefnd formanna allra þingflokkanna. Nefndin gerði ekki tillögur um aðr- ar breytingar en þær sem ætla mætti að nokkur samstæða gæti náðst um. Sumir þingmenn höfðu nokkrar efasemdir. Þorvaldur Garð- ar Krisjánsson (S-Vf) hafði engar efasemdir og barðist af harðfylgi á móti. Hann taldi þá breytingu að þingið starfaði í einni málstofu síst verða til þess að auka skilvirkni eða tryggja vandaða málsmeðferð. Meðmælendur frumvarpsins voru algjörlega á annarri skoðun og töldu þessar breytingar löngu tímabærar. Eftir að frumvarpið hefur hlotið samþykki Alþingis verður forsætis- ráðherra að ijúfa þing svo fljótt sem verða má. þessu mjög andsnúnir, töldu frum- varpið einkennast af stjórnlyndi gagnvart foreldrum, skólamönnum og sveitarfélögum. Um kl. 18. var frumvarpið skyndilega tekið á dag- skrá í efri deild með mörgum breyt- ingartillögum frá menntamála- nefnd. Sjálfstæðismenn töldu breyt- ingarnar vera mjög til bóta. Að sögn Ragnhildar Helgadöttur (S- Rv) voru sjálfstæðismenn tilbúnir til að fallast á framvarpið þar sem allar þeirra breytingartillögur höfðu hlotið framgang í menntamála- nefnd efri deildar og voru þær lagð- ar fram i nafni deildarinnar. Lýstu allir ræðumenn ánægju og stuðn- ingi við framvarpið. Menntamála- ráðherra þakkaði samstarfíð og sagði afgreiðslu þessa máls vera þingdeildinni til sóma. Lánsfjárlög Frumvarp til lánsfjárlaga var lengi til 2. umræðu í neðri deild í gær. Bar umræðan öðrum þræði svip af því að álmálið var ofarlega í hugum þingmanna og vora lán- tökuheimildir Landsvirkjunar mikið ræddar. Þegar greiða átti atkvæði um frumvarpið brá svo við að það var ekki hægt sökum þess að þing- menn Borgaraflokks voru gengnir úr fundasal. Ástæðan mun hafa verið sú að þeir vildu leggja áherslu á þá ósk sína og Samtaka um kvennalista að þinghaldi lyki ekki nema kosið væri í ráð og nokkrar stjórnir fyrirtækja sem ríkið ætti hlutdeild í, þ.m.t. stjórn Landsvirkj- unar. Á níunda tímanum var geng- ið til atkvæða um frumvarpið og voru tillögur meirihlutans í fjár- hags- og viðskiptanefnd samþykkt- ar. Ragnar Arnalds fulltrúi lagði fram sérstaka tillögu sem var felld, hann vildi ekki heimildir til undir- búnings virkjana vegna álvers yrðu skilyrtar því að fyrirvaralaus orku- sölusamningur lægi fyfir. Tillaga Kvennalista um að skerðingará- kvæði á tekjum Ríkisútvarpsins af aðflutningsgjöldum útvarps- og sjónvarpstækja yrði aflétt var felld. Tillaga Ásgeirs Hannes Eiríkssonar (B-Rv) um heimild til að taka lán til að endurlána Olafi Laufdal veit- ingamanni var einnig felld, flutn- ingsmaður greiddi henni einn at- kvæði, en 31 var andvígur. Frum- varpið var endanlega samþykkt sem lög eftir 3. umræðu í gærkveldi. Stuttar þingfréttir Sérstök lán Eitt af fímm frumvörpum um breytingu á lögum um Húsnæðis- stofnun ríkisins var til 2. umræðu í neðri deild í fyrradag. Þetta frumvarp varðar húsnæðissam- vinnufélög og búseturétt. Brejít- ingartillaga sem Geir H. Haarde (S-Rv) flutti ásamt Alexander Stefánssyni (F-Vl), Guðmundi G. Þórarinssyni (F-_Rv), Eggert Haukdal (S-Sl) og Ólafí Þ. Þórðar- syni var samþykkt. Tillagan var þess efnis að Húsnæðismálastofn- un væri heimilt að veita sérstök lán til þriggja ára til þeirra aðila sem ættu í verulegum erfiðleikum með útborgun ef um væri að ræða sérstaklega erfiðar fjölskyldu- og fjárhagsaðstæður. Samskonar heimild var í lögum um verka- mannabústaði en var felld niður fyrir ári. Samþykkt þessarar til- lögu var Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra til nokkurs ama þar eð hún taldi að þetta ákvæði næði ekki tilgangl sínum og ennfremur að þegar ákvæðið hefði verið afnumið hefðu aðrar ráðstafanir verið gerðar til að auðvelda sveitarfélögum byggingu íbúða fyrir efnalítið fólk. Hún taldi því vafamál að breytingartillaga Geirs H. Haarde næði tilgangi sínum. I gær fluttu hún breyting- artillögu með samþykki Geirs H. Haarde um að heimilt yrði að veita þessi sérstöku lán, enda gæti umsækjandi sýnt fram á að greiðslubyrði hans vegna lána færi ekki fram úr þriðjungi af tekj- um. Svo breytt var framvarpið sent til efri deildar þar sem það varð að lögum frá Alþingi. Sjóðshappdrætti í fyrradag barst alþingismönn- um bréf frá formönnum Lands- sambands hjálparsveita skáta og Landssambands flugbjörgunar- sveita. Þar var m.a. sú ósk látin í ljós að þingmenn sæju til þess að frumvarp um sjóðshappdrætti næði ekki fram að ganga í óbreyttri mynd. „Það er skelfileg staðreynd, að dómsmálaráðuney- tið, ríkisstjórn og síðan Alþingi ætli að stela fjáröflunarhugmynd um Sjóðshappdrætti sem fijáls félagasamtök þurftu að leggja fyrir þessa aðila til samþykktar. Þessi þjóðnýting á sér stað án nokkurs samráðs við þá sem áttu hugmyndina." Leikskóli Frumvarp um leikskóla varð að lögum frá efri deild Alþingis í fyrradag við lófatak frá áheyr- endapöllum en nokkrar fóstrur höfðu tekið sér frí frá bamagæslu og uppeldi en höfðu þess í stað vakandi auga með þingmönnun- um. Þær höfðu fylgst grannt með framgangi málsins í báðum deild- um fyrir og eftir helgi. Að sögn einnar fóstrannar þótti þeim viss- ara að „passa þingmenn". Nýir ríkisborgarar Alþingi samþykkti frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar í fyrradag. Alls hlutu 48 einstakl- ingar ríkisborgararétt við sam- þykkt framvarpins, sá elsti sextíu og átta ára en sá yngsti þriggja ára. Jöfn staða karla og kvenna Frumvarp til laga um jafna stöðu kvenna og karla var sam- þykkt sem lög frá Alþingi í fyrra- dag í efri deild. Frumvarpið hefur tekið nokkram breytingum sem þingmenn Samtaka um kvenna- lista hafa gagnrýnt. Kvennalistinn studdi þó framvarpið, að sögn Danfríðar Skarphéðinsdóttur (SK-Vl) var ekki seinna vænna að koma því út úr þinginu áður en þessi grautarvellingur þynntist í súpu. Fjáraukalög Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1991 var kom fyrir augu þing- manna í fyrradag. í athugasemd- um með frumvarpinu kemur m.a. fram að Alþingi hafi tvívegis breytt greiðsluheimildum fjárlaga á árinu 1990. Heimildir alls voru 97.696 milljónir króna en endan- leg útkoma reyndist, 96.899. Heildarheimildir til útgjalda námu því 797 m.kr. umfram endanlegar greiðslur. Nú liggur fyrir endan- legt greiðsluuppgjör vegna A- hluta ríkissjóðs fyrir árið 1990. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 92,5 milljörðum króna en útgjöld námu 96,9 milljöfðum, eða 0,8 milljörðum undir útgjaldaheimild- um fjárlaga. „Afkoma ríkissjóðs varð þannig nokkru betri en gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjáraukalaga í desember sl. eða sem nemur 0,7 milljörðum króna og nam rekstrarhallinn rúmlega 4,4 milljörðum króna sem svarar til 1,3% af landsframleiðslu," seg- ir í athugasemdum. Almannatryggingar Frumvarp til laga um almanna- tryggingar var lagt fram til kynn- ingar í fyrradag en eldri löggjöf er talin vera orðin ómarkviss og óaðgengileg. Meðal nýmæla í framvarpinu er að tillaga er gerð um að tekjutengja elli- og örorku- lífeyri, þ.e. að fella niður þessar greiðslur til þeirra tekjuhæstu. Þingsályktunartillögur Sameinað þing samþykkti nokkrar þingsályktunartillögur í fyrradag: Um að vinna að fram- kvæmd ályktana Vestnorræna þingmannaráðsins. Einnig sam- þykkti Alþingi að fullgilda al- þjóðasamþykkt um öryggi og heilbrigði við vinnu. Nokkur svið atvinnulifsins era þó undanskilin. Þá samþykkti Alþingi að staðfesta samning milli samgönguráðherra og hlutafélagsins Spalar hf. um vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð. Og í fyrrinótt var íslensk heilbrigðisáætlun sam- þykkt. Vegaáætlun Vegaáætlun 1991-1994 var samþykkt í sameinuðu þingi í fyrradag. Fjárveitinganefnd lagði aðeins til óverulegar breytingar frá upphaflegri tillögu. Á næstu fjórum áram er ráðgert að verja rúmum 25 milljörðum til vegamála samkvæmt áætluninni. Áætlunin gerir ráð fyrir að fullnýta tekju- stofna; bensíngjald og þungaskatt með hækkun þeirra umfram verð- lagsforsendur á næstu tveimur árum. Samvinnufélög Framvarp um samvinnufélög var samþykkt serri.lög frá Alþingi á 72. fundi neðri deildar síðastlið- ið föstudagskvöld. Framvarp það, sem samþykkt var, var samið af nefnd sem viðskiptaráðherra skip- aði í apríl á síðasta ári. Nefndin aðlagaði frumvarpið að nokkru lögum um hlutafélög. Lögin gera samvinnufélögum kleift að afla sér eigin fjár með sölu hluta í B-deild stofnssjóðs sem að mörgu svipar til sölu hluta í hlutafélögum. Húsaleigubætur Fyrir helgina var lagt fram stjórnarfrumvarp um húsaleigu- bætur. Frumvarpið gerir ráð fyrir að bæta sérstökum kafla við lög um tekjuskatt og eignarskatt. Lagt er til að húsaleigubætumar verði teknar inn í skattakerfið með svipuðum hætti og vaxtabætur. Húsaleigubætur yrðu tekju- og eignatengdar, mismunandi eftir fjölskyldugerð og húsaleiguút- gjöldum, auk þess að veya bundn- ar ákveðnu hámarki. í athuga- semdum með frumvarpinu segir að miðað við verðlag 1990 hefðu hámarksbætur einstaklings orðið 3.000 kr. á mánuði en bætur ein- stæðs foreldris eða hjóna/sambýl- isfólks hefðu orðið 5.500 kr. á mánuði. Erlendar fjárfestingar Síðasta föstudagskvöld sam- þykkti efri deild tvö frumvörp um fjárfestingu eriendra aðila í íslenskum atvinnurekstri. Þessum nýju lögum er m.a. ætlað að koma í stað margra og margvíslegra lagaákvæða sem nú gilda um heimildir erlendra aðila til að fjár- festa í atvinnurekstri hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.