Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 20.03.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1991 33 Kjarnalundur. Bygging Kjarna- lundar: Bærinn lil- búinn til samstarfs BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fundi í gær að ganga til samstarfs við Nátt- úrulækningafélag Akur- eyrar á grundvelli tillögu sem samþykkt var í atvinnu- málanefnd fyrir skömmu. Nefndin lagði til að Akur- eyrarbær leggi fram 50% af áætluðum kostnaði við að ljúka byggingu Kjartnalund- ar, þó að hámarki 42 milljón- ir króna, en áætlað er að um 84 milljónir króna vanti til að ljúka byggingunni. í samþykkt bæjarstjórnar kemur fram að áður en til fjár- veitinga kemur af hálfu bæjar- ins sé nauðsynlegt að fyrir liggi önnur fjáröflun, þannig að verkinu ljúki og starfsemi geti hafist. Þá telur bæjarstjórn nauðsynlegt að niðurstaða fáist varðandi verkaskiptingu milli þessarar stofnunar og annarra heilbrigðisstofnana á svæðinu. Til að unnt verði að halda áfram nú, samþykkir bæjar- stjórn að veita einfalda ábyrgð á 12 milljón króna láni, sem Náttúrulækningafélag Akur- eyrar tekur. Samningar um framlög bæjarins verði gerðir þegar önnur fjáröflun til að ljúka verkinu liggi fyrir. SJÓMENN á fimm ísfisktogurum Útgerðarfélags Akureyringa hafa sagt upp störfum hjá félag- inu og búist er við að sjómenn á Björgvin EA frá Dalvík og Súlna- felli EA frá'Hrísey fylgi fordæmi þeirra, en Björgúflur EA er í slipp og því þegar búið að segja áhöfn skipsins upp. Ekki er reiknað með að sjómenn þiggi endurráðningu. Um er að ræða tæplega 150 manna hóp sjó- manna sem þegar hefur sagt upp eða mun gera það. Sjómenn höfðu farið fram á viðræður um hækkun heimalöndunarálags og lagt fram kröfur þar um. ÚA hækkaði álagið um 10% síðastlið- inn föstudag og stjórn félagsins telur ekki forsendur til frekari hækkunar. Konráð Alfreðsson formaður Sjó- mannafélags Eyjafjarðar sagði að áhöfn Svalbaks hefði lagt fram uppsagnarbréf í gær og áhöfn Hrímbaks mun væntanlega leggja þau fram í dag, en sjómenn á öðrum skipum hefðu afhent skipstjórá bréf sín í gær. Hann sagðist fastlega búast við að áhafnir Súlnafells og Björgvins myndu einnig segja upp störfum og áhöfn Björgúlfs sem er í slipp myndi ekki þiggja endurráðn- ingu. Konráð sagði að hugmyndum sjó- manna um hækkun á heimalöndun- arálagi hefði ekki verið svarað. „Við fengum aldrei neitt svar um hvort það væri inni í myndinni að ræða við okkur um þær hugmyndir og lítum þar af leiðandi svo á, að þær séu út úr myndinni," sagði Konráð. Hugmyndir sjómanna nú eru að greidd verði föst krónutala fyrir hvert kíló. „Við erum fyrst og fremst að beijast fyrir því að fá skilaverð, þetta var þannig að menn voru á strípuðu verðlagsráðsverði, Morgunblaðið/Rúnar Þór Hrimbakur EA kom að landi í gærkvöld, en áhöfn skipsins mun væntanlega leggja uppsagnarbréf sín inn á skrifstofu Útgerðarfélags Akureyringa í dag. Áhafnir fimm ísfisktogara félagsins hafa sagt upp störf- um vegna óánægju með kjör sín og er reiknað með að sjómenn á Dalvíkurtogurum og Súlnafelli frá Hrísey fylgi á eftir, þannig að um er að ræða tæplega 150 manna hóp. því kostnaðarhlutdeild upp á 30% át upp 30% heimalöndunarálag," sagði Konráð. Sjómenn vilja fá fram viðræður við forsvarsmenn útgerðarfélag- anna til að leggja fram sín sjónar- mið. „Óánægjan er fyrst og fremst til komin vegna þess að við fáum ekki að ræða þessi mál, ákvörðun er tekin einhliða án þess að rætt sé við menn, en á þann hátt er sjó- mönnum sýnd lítilsvirðing,“ sagði Konráð. Pétur Bjarnason formaður stjórnar ÚA sagði að forsendur væru ekki fyrir hendi til að hækka laun sjómanna meir en gert var þegar hækkun á heimalöndunar- álagi var ákveðin fyrir helgi. „Það er ekki vilji fyrir því að hækka álag- ið meir, en við eru alltaf tilbúin til að ræða við okkar starfsfólk. Það er þó ljóst af okkar hálfu að um eiginlegar samningaviðræður verð- ur ekki að ,ræða, enda samningur í gildi,“ sagði Pétur Bjarnason. Uppsagnir sjómanna á fimm ísfísktogurum ÚA Morgunblaðið/Benjamín Ráðhús Eyjafjarðarsveitar. Á minni myndinni eru þeir Þórhallur Sigurgeirsson og Kristján Jónasson önnum kafnir við að breyta gamla barnaskólanum í ráðhús. Eyjafjarðarsveit: Gamla barnaskólanum breytt í ráðhús fyrir 7,9 milljónir kr. Ytri-Tjörnum. MIKLAR og gagngerar breytingar standa nú yfir á ráðhúsi Eyja- fjarðarsveitar. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 7,9 milljónir króna. Stefnt er að því að verkinu ljúki 1. maí næstkomandi en þá tek- ur nýráðinn sveitarstjóri, Pétur Jónasson, til starfa. Bótaábyrgð vegna vatnstjóns hafnað: _ Ibúar við Grenilund höfða mál gegn bænum Núverandi ráðhús var byggt sem bamaskóli fyrir Öngulsstaða- hrepp árið 1950 og var skólinn þar til húsa í aldarþriðjung, en þá var hann fluttur í fyrrverandi húsnæði Húsmæðraskólans á Laugalandi. Inni í þessari 7,9 milljóna króna fjárhagsáætlun eru allar innrétt- ingar endurnýjun á gluggum svo og tengibygging með kjallara, en þar verður skjalavarsla hreppsins. — Beiyamín ÍBÚAR við Grenilund, sem urðu fyrir tjóni af völdutn vatnsflóðs í maí á síðasta ári ætla að liöfða mál á hendur Akureyrarbæ, en bæjarstjórn hefur hafnað bóta- ábyrgð vegna tjónsins sem þeir urðu fyrir. Bæjarstjórn lítur svo á að bærinn Tónlistarskólinn: Fyrirlestur og opið hús Kammermúsíkvika stendur nú yfir í Tónlistarskólanum á Akur- eyri með fjölbreyttri dagskrá, skólaheimsóknum og tónlcikum. Prófessor Marek Podhajski flytur fyrirlestur um tónlist pólska tón- skáldsins Karol Szymanowsky á sal skólans annað kvöld, fímmtudags- kvöld, kl. 20.00. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku, en þýddur jafnóðum á íslensku. Opið hús verður í skólanum á föstudag frá kl. 15 til 17, flutt verð- ur fjölbreytt tónlist, hægt verður að skoða og kynna sér hljóðfæri, ræða við kennara og veitingar verða í boði. D-blásarasveit skólans leikur í götunni framan skólans kl. 17 á föstudag. beri ekki ábyrgð á þessu tjóni, ekki hafi verið um að ræða vangæslu, heldur sé tjónið afleiðing af óvenju- miklum snjóalögum á vormánuðum og miklum leysingum. Bótaábyrgð er því hafnað og sagði Sigurður J. Sigurðsson formaður bæjarráðs að í ljós kæmi fyrir dómi hvort bótakröf- ur á hendur Akureyrarbæ eigi við rök að styðjast. Tjón þetta sé þess eðlis að engin rök hefðu verið fyrir því að ganga til samninga við íbúana um bætur áður en niðurstaða lægi fyrir um hvort bænum bæri að greiða það eður ei. Kolbrún Þormóðsdóttir, Fram- sóknarflokki, sagði að hún hefði gjarnan viljað að bærinn hefði samið um bætur við eigendur húsanna. Hún teldi að starfsmenn bæjarins hefðu getað staðið betur að málum er vat- nið braut sér leið niður götuna og flæddi inn í kjallara húsa. -----m------- Lóðaúthlutun: Tveir á móti SAMÞYKKT var á fundi bæjar- sljórnar í gær að veita Aðalgeir Finnssyni hf. lóðina við Skipagötu 9 i miðbæ Akureyrar. Sex bæjarfulltrúar samþykktu að veita Aðalgeir Finnssyni lóðina, tveir voru á móti og þrír sátu hjá við af- greiðslu málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.