Morgunblaðið - 22.03.1991, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
Könnun á verði og gæðum uppþvottalagar:
Sápa 6- 39%
af innihaldi
Erfítt fyrir neytendur að meta teng-sl verðs og gæða
NEYTENDUR hér á landi geta valið á milli a.m.k. 37 tegunda af
uppþvottalegi i 53 mismunandi umbúðum. Merkingarnar á umbúð-
unum gefa enga vísbendingu um sápuinnihaldið í leginum. Þvi
standa neytendur berskjaldaðir þegar þeir reyna að gera raunhæf-
an verðsamanburð á uppþvottalegi. Niðurstöðurnar á rannsókn-
inni á uppþvottalegi gefa tilefni til þess að gerðar verði kröfur
um að á umbúðunum komi m.a. fram hvaða sápumagn sé í viðkom-
andi þvottalegi.
Verðlagsstofnun hefur á liðnum
árum gert nokkrar kannanir þar
sem kannað hefur verið efnisinni-
hald vöru. Má t.d. nefna könnun
á málningu og kjötvörum. Kann-
anir hafa leitt í ljós að stundum
er gæðum áfátt og innihaldsmerk-
ingu ábótavant og er nú unnið að
setningu ákveðinna staðla um
innihald og merkingu á unnum
kjötvörum.
Verðlagsstofnun hefur nú í
samvinnu við Neytendasamtökin
gert könnun á þvottaefnum. Var
Iðntæknistofnun íslands ráðin til
að rannsaka sápuinnihald og aðra
eiginleika efnanna.
Niðurstöður rannsóknar á upp-
þvottalegi er birt í 3. tbl. Verð-
könnunar Verðlagsstofnunar frá
þessu ári en niðurstöður rann-
sókna á þvottadufti verða birtar
innan tíðar.
Tildrög rannsóknarinnar eru
m.a. þau að almennir neytendur
eiga erfítt með 'að meta gæði
þvottaefna og hefur því verið hald-
ið fram að þvottaeiginleikar sumra
þvottaefna séu takmarkaðir.
Er uppþvottalögur ekki bara
uppþvottalögur?
Þær 37 tegundir af uppþvotta-
legi sem eru á markaðnum í 53
mismunandi umbúðum eru mjög
misjafnar að gæðum. Sápuinni-
haldið í uppþvottaleginum er
allt frá því að vera 6% af rúm-
máli Iagarins upp í 39%.
Almennir framleiðslustaðlar
gera ráð fyrir sápu sem nemur
10-40% af rúmmálinu en u.þ.b.
10 tegundir á íslenskum markaði
innihalda sápu sem er minna en
10% af rúmmáli í uppþvottalegi.
Einfaldur verðsamanburður
gefur ekki vísbendingu um
raunverulegt verð sápunnar
Þegar borið er saman verð á
hveiju prósenti af sápuefni í upp-
þvottalegi (sem er eini raunhæfi
verðsamanburðurinn) kemur m.a.
í ljós að lögur sem við einfaldan
samanburð er sá ódýrasti ú mark-
aðnum í almennum neytendaum-
búðum er í raun 10. ódýrasti upp-
þvottalögurinn. Sá sem í raun er
ódýrastur er með einföldum sam-
anburði 5. ódýrasti uppþvottalög-
urinn.
Ódýrasti lögurinn er Today’s
washing up liquid og kostar 5,0
kr. á % af sápuefni. Dýrasti lögur-
inn í almennum neytendaumbúð-
um er Hreins sítrónu sem kostar
16,3 kr. á % af sápuefni sem er
226% hærra verð en lségsta verðið.
Er innlendur uppþvottalögur
samkeppnisfær í verði?
Þrátt fyrir vissa fjarlægðar-
vernd innlendrar framleiðslu
vegna flutningskostnaðar og 4%
jöfnunargjald á kostnaðarverð
innflutts uppþvottalagar er ódýr-
asti íslenski lögurinn sá 14.
ódýrasti af 39 gerðum sem eru á
markaðnum í almennum neytend-
aumbúðum.
í stórum brúsum (u.þ.b. 4 lítra)
er innlendur uppþvottalögur 4.
ódýrasti lögurinn þegar vegið er
saman verð og sápuinnihald.
Þykkur uppþvottalögur þarf
ekki að vera góður
uppþvottalögur
Sumir framleiðendur setja óvirk
efni t.d. salt til að þykkja upp-
þvottalöginn. Dæmi er um að
þykkingarefni sem allt að 18% af
þurrefnum í uppþvottalegi.
Að gefa upp sýrustig á
uppþvottalegi er ekki annað
en auglýsingabrella
Sex framleiðendur gáfu upp sýru-
stig á uppþvottalegi. í nær öllum
tilvikum var uppgefið sýrustig
víðsQarri mældu sýrustigi. Að
mati sérfræðinga hefur það ekkert
hagnýtt gildi að gefa upp sýrustig
á uppþvottalegi.
Uppþvottalögur í algengum neytendaumbúðum
Uppgefið magn (ml) Mælt magn (ml) Þurrefni Sápuefni % % Verð kr/á einlngu (mlðverð) Verð kr/á líter (mælt) Verð kr/á % sápuefni
Today’s Washing Up Liquid 750 765 1.9,0 17,9 69 90,2 5,0
Ajax Nya disk 675 675 32,0 31,5 112 165,9 5,3
Prox 1 Itr 1000 22,5 22,0 119 119,0 5,4
Green force washing up liquid 1 Itr 1050 22,6 21,9 149 141,9 6,5
Lux Lemon 500 515 42,0 39,0 135 262,1 6,7
Life Style Lemon 750 750 20,9 19,5 99 132,0 6,8
Life Style 750 760 20,6 19,4 103 135,5 7,0
tex-i Lemon (450 gr) 440 464 20,3 20,2 67 144,4 7,2
Sparkle Washing Up Liquid 500 525 25,5 25,1 101 192,4 7,7
Crown crest lemon 1 Itr 1050 7,1 6,6 55 52,4 7,9
Fairy liquid Mildgreen 500 515 37,7 33,6 139 270,0 8,0
Lux liquid 1 Itr 1000 27,8 26,9 225 225,0 8,4
Vel Diskmedel, Lemon Lime 675 700 19,0 18,9 122 174,3 9,2
Vex m/eplailmi 700 685 20,6 20,3 129 188,3 9,3
Vel Extra Mild 675 690 19,3 19,0 128 185,5 9,8
Sparr með sítrónu 700 715 13,1 12,5 88 123,1 9,9
Hreinol sítrónu 500 515 18,5 17,7 91 176,7 10,0
Hreinol grænt 500 515 18,4 17,5 92 178,6 10,2
Formula 77 Lemon 1000 1000 9,2 9,1 94 94,0 10,3
Concentr. Shine Liquid 1 Itr 1050 6,5 6,3 69 65,7 10,4
Extra-Sitrónu 580 • 595 12,7 12,7 79 132,8 10,5
LuxLiquid 600 600 27,8 26,9 169 282,7 10,5
Vex m/sítrónuilmi (660 gr) 640 650 18,3 18,0 123 189,2 10,5
texi Ny m/protein 600 650 15,6 15,6 111 170,8 11,0
Formula 77 1000 1040 8,7 8,7 98 98,0 11,3
Þvol, grænt (505 gr) 488 495 19,6 19,5 109 220,2 11,3
Brugsen Mini risk opvask 500 515 27,2 26,4 154 299,0 11,3
Þvol (650 gr) 628 650 20,5 19,3 . 143 220,0 11,4
FK uppþvottalögur 700 720 64 88,9 11,4
Pvol (505 gr) 488 495 20,5 19,3 109 220,2 11,4
Primo grænn (580 gr) 570 590 11,4 10,7 71 120,3 11,5
Mildi uppþvottal. 480 495 20,6 19,8 113 228,3 11,5
texi Ny m/eddike 600 630 15,1 15,1 111 176,2 11,7
Palmolive 500 515 19,0 19,0 118 229,1 12,0
Fezza 1 Itr 1000 7,2 5,9 76 76,0 12,9
Prik Citronopvask T 750 760 9,8 9,6 96 126,3 13,1
Gité neutral 600 615 16,9 16,5 138 224,4 13,6
tex-i protein (450 gr) 436 450 14,2 14,0 86 191,1 13,7
Hreins sitrónu 750 750 9,7 9,3 113 150,7 16,3
Þegar litið er á verð miðað við sápumagn er dýrasti lögurinn „Hreins sítrónu" 3,3 sinnum dýrari
en „Today’s washing up liquid“ sem er ódýrasti lögurinn sem kannaður var.
Uppþvottalögur í stærri umbúðum
Uppgefið magn (ml) Mælt magn (ml) Þurrefni Sápuefni % % Verð kr/á einingu (miðverð) Verð kr/á Ifter (mælt) Verð kr/á % sápuefni
Vex m/sítrónuilmi (ca. 3800g) 3690 ml. 3720 | 18.3 18.0 377 101,3 5,6
Hreinol sítrónu 3,8 Itr. 3850 •8.5 17.7 384 99,7 5,6
Vex m/eptailmi 2 Itr. 2000 20,6 20,3 246 123,0 6,1
Extra-Sítrónu 3,8 Itr. 3830 12,7 12,7 308 80,4 6,3
Extra-Sítrónu 2 Itr. 2010 12,7 12.7 170 85,0 6,7
Vex m/sítrónuilmi (ca. 2020 g) 1960 ml. 2000 18.3 • ' 18.0 242 121,0 6,7
Þvol 3,8 Itr. 3800 20,5 19,3 508 133,7 6,9
Hreinol sítrónu 2 Itr. 2000 18,5 17,7 249 124,5 7,0
Hreinol grænt 2 Itr. 2000 1.8,4 17,5 247 123,5 7,1
Þvol 2 Itr. 2000 20,5 19,3 288 144,0 7,5
Nopa Citron opvask 2 Itr. 2000 12,6 12,4 193 96,0 7,7
FK uppþvottalögur 2 Itr. 1900 7,8 7,8 139 73,2 9,4
Formula 77 2000 ml 2010 . 8.7 8,7 163 81,5 9,4
Hreins sítrónu 2 Itr. 1940 9,7 ,9.3 201 103,6 11,1
Finnsk Kvikmyndavika:
JÓLASVEINAR,
EINN OG ÁTTA...
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó - Finnsk kvik-
myndavika:
Kúrekar frá Leningrad á ferð
í Bandaríkjunum — Leningrad
Cowboys Go America
Leikstjóri og handritshöfund-
ur Aki Kaurismáki. Aðalleik-
endur Matti Pellonpáá, Kari
Váánáne, Nicky Tesco. Finn-
land 1989.
Leningrad Cowboys Go Amer-
ica stendur næstum undir fyndn-
asta nafni á kvikmynd um langa
hríð. Nú er Aki kominn á slóðir
vinar síns og lærimeistara, Jims
Jarmusch (sem fer meira að
segja með lítið hlutverk bflasala
í myndinni), þar sem hann heldur
um flatneskjur og fátækrahverfí
þeirrar niðurníddu Ameríku sem
hefur tæpast sést á tjaldinu
nema í myndum Jarmusch. Segir
hér af „hljómleikaferð” svo
slæmrar rokkhljómsveitar - sem
myndin dregur nafn sitt af - að
hún er talin sú versta í heimi,
en þessir hæfileikasnauðu átt-
menningar halda til Ameríku
ásamt umbanum Vladimir (Matti
P.), því þeir hafa heyrt að Kan-
inn gleypi við hvaða óþverra sem
er. „ ... swallow any kind of
shit“, eins og segir í fleygum
textanum!
En Ameríski draumurinn dag-
ar uppi á óþrifabúlum, slömm-
hverfum, eyðiströndum og út-
kjálkum draumalandsins og end-
ar niður í Mexíkó.
Aki hefur sennilega aldrei ver-
ið pönkaðri né fyndnari, það er
ekki hægt að lýsa þeim áhrifum
sem þessi snargeggjaða absúrd-
gamanmynd hefur á mann. Sjón
er sögu ríkari. Hún er vissulega
ekki fyrir alla en aðdáendum
Akis er hún hreinasta veisla.
Þeim mun örugglega fjölga
vegna þessarar kvikmyndahát-
íðar og hefði myndin örugglega
staðið undir sér á almennum
sýningum. Hljómsveitin er sam-
ansafn heldur ótótlegra ung-
menna sem eru leiknir af full-
komnum skilningi af hressum
náungum með skopskynið í lagi.
Bestur af öllum er Matti P., sem
hér fer með hlutverk leiðtogans,
andstæðu tugthússlimsins í Dolly
og elskhuga hennar. Þó ekki sé
langt í hann. Þeir sem hafa gam-
an að fáránleikanum, listilega
framreiddum, mega ekki missa
af henni þessari. Sjón er sögu
ríkari og Aki engum líkur.
Sýningar í dag:Amazon, Kú-
rekar frá Leningrad á ferð í
Bandaríkjunum.
LÚÐALÍF
Finnsk kvikmyndavika í Há-
skólabíói:
Dolly og elskhugi hennar -
Rápsy ja Dolly
Leikstjóri Matti IjSs. Aðalleik-
endur Matti Pellonpáá, Raija
Paalanen, Pertti Sveholm. Finn-
land, 1990.
Finnskir kvikmyndagerðarmenn
hafa greinilega ofuráhuga á lífi í
botnfallinu og persónum sem skera
sig úr sléttgreiddu mannhafinu.
Kynlegir kvistir sjálfsagt í útrým-
ingarhættu þar sem annars staðar.
Allar myndimar á hinni forvitni-
legu og vel þegnu kvikmyndaviku
þeirra fjalla að meira og minna
leyti um undirmálsfólk að undan-
skilinni bamamyndinni Pési og III-
usia. Og flestir kannast við efnivið
finnskra sjónvarpsmynda. Það má
vera að þetta sé landlægt tlskufyr-
irbrigði, en þá hefur það staðið
lengi. Og leikstjórar séu hinir
mestu sérvitringar. En umfjöllun-
arefnið, þessa lítils megandi auðnu-
leysingja og brennivínsslugsara, er
einkar kærkomin tilbreyting frá
iðnaðinum — í viku tíma.
Dolly og elskhugi hennar segir
frá miðaldra smáglæpamanni og
vesalingi sem flækist í umkomu-
leysi í mannlífsdreggjunum, ný-
sloppinn úr tugthúsinu. Reynir að
finna fótfestu í félagsskap gamals
kunningja úr glæpabransanum,
sem nú rekur klámverslun og ólög-
leglegan innflutning á sovéskum
málverkum. Meginhaldreipið verð-
ur þó vínsvelgurinn Dolly, bosma-
.mikill, roskinn kvenmaður sem
dreymir löngum um sitt ljúfa líf í
heimsborginni París. Hvar hún
starfaði í blóma lífsins sem fata-
fella m.m. Eins og smákrimminn
hafi ekki nóg á sinni könnu þá er
hann hundeltur af lögreglunni sem
reynir að veiða uppúr honum vitn-
eskju um málverkasmyglið.
Fyrst og fremst grátbrosleg lýs-
ing á guðsvoluðum aðalpersónun-
um sem eru snilldarlega leiknar af
Matta og Raiju. Gæfuleysið fellur
að síðum þeirra, eins og ort var
um frægan, íslenskan ólánsmann.
Umhverfið er með eindæmum
óhijálegt en kvikmyndagerðar-
mennirnir ná sér oftar en ekki á
flug.