Morgunblaðið - 22.03.1991, Blaðsíða 54
54
PfttSSAN
Bjarni Magnússon,
útibússtjóri
Landsbankans í Mjódd
REDDADIÓSI
LÁNUM Á MEÐAN
EIGINKONAN RAK
STEYPUDÍLA HJÁ
FYRIRTÆKINU
Maríus & Palli
álœcia,
útnáÁantu* 4tý í
oy yenaát
cOwttoÚHya* <£
áwileUft?
HJÚKRUNARKONURNAR
GANGA ÚT VEGNA
TILGANGSLÍTILIA
MARAÞONUPPSKURÐA
Á hverri nóttu
eru þrettán
þúsund hjón að
gera það
og aðrir einskis nýtir
fróðleiksmolar
PRESSAN
fullt blað
af slúðri
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
SNOKER
Fjölnir og Atli Már fyrstu
íslensku atvinnumennimir
FJÖLNIR Þorgeirsson og Atli Már Bjarnason, snókerspilarar,
halda út til Englands um helgina og ætla að dvelja þar í 5 mán-
uði við keppni og æfingar. Þeir munu m.a. keppa í 10 snókermót-
um atvinnumanna á þessum tíma. Þeir eru fyrstu íslendingarnir
sem gerast atvinnumenn í billjard.
Fyrstu atvinnumenn íslands
Bjarnason.
Morgunblaðið/RAX
snóker, Fjölnir Þorgeirsson (t.v.) og Atli Már
Fjölnir og Atli Már tóku þátt í
síðasta heimsmeistaramóti
unglinga sem_ fram fór Ástralíu og
stóðu sig vel. í framhaldi af frammi-
stöðunni þar sóttu þeir um að fá
að taka þátt í mótum atvinnu-
manna. Þeir segja það nýjung að
tveimur íslendingum sé heimil þátt-
taka í þessum sterkum mótum því
aðeins 500 snókerspilarar í heimin-
um komast inn.
HANDKNATTLEIKUR / C-KEPPNI KVENNA
ísland leikur um
5. sætið við Spán
ISLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik á enn von um að
komast í B-keppnina. Liðið leikur um 5. sætið í C-heimsmeistara-
keppninni, gegn Spánverjum, á morgun. Liðið vann það belgíska
ígær, 15:14, og ótrúleg úrslit — sigur Portúgalá Hollandi —
oerðu það að verkum að ísland náði þriðja sæti f sínum riðli.
Italía sigraði Finnland í riðlinum
í gær, 17:16, sem talið var að
myndi ekki nægja en fyrst hið ótrú-
lega gerðist, að Portúgal sigraði
Holland, varð ísland í þriðja sæti.
Portúgal, sem tapaði með fimmtán
marka mun fyrir íslandi, vann Holl-
and 9:8. Sannarlega óvæntar loka-
tölur, því Holland vann ísland með
tíu marka mun! Portúgal fékk því
þijú stig, náði þar með meira en 25%
árangri í riðlinum, og leikir liðsins
teljast með í lokastöðunni. ísland
nær því þriðja sæti á betra marka-
hlutfalli en Finnland og Portúgal.
Holland varð í efsta sæti B-riðils
og mætir Ungveijalandi í leik um
fyrsta sæti keppninnar, en Ungveij-
ar burstuðu Tékka 28:12 í gær. ítal-
ir og Tékkar keppa um þriðja sætið
og síðan ísland og Spánn um það
fímmta. Efstu fimm þjóðirnar kom-
ast í næstu B-keppni. Jafnvel sex,
ef eitthvert efstu landanna fimm
heldur mótið, sem fram fer haustið
1992. Þá fengi íslenska liðið (ef það
lendir í sjötta sæti) engu að síður
þátttökurétt sem næsta Evrópuþjóð.
„Við þekkjum Spánveija og eigum
að geta unnið lið þeirra," sagði
Margrét Theódórsdóttir, fararstjóri,
SUND
við Morgunblaðið í gærkvöldi. „A-
liðið okkar spilaði við Spán í Bac-
alao-keppninni fyrir jól heima og
tapaði, en þar voru reynslumiklu
stelpurnar, sem nú eru komnar í lið-
ið, ekki með. En Spánveijar eru yfir-
leitt mjög góðir á mótum sem þessu,
og gerðu til dæmis jafntefli við Ung-
veija hér. í síðustu C-keppni urðu
spænsku stelpumar í þriðja sæti,
eftir að við höfðum unnið þær nokkr-
um sinnum áður, bæði heima og á
móti í Portúgal. Þær eru með gott
tímaplan, og eru á toppnum á réttum
tíma. En ef við komumst í næstu
B-keppni, eftir tæp tvö ár, verður
allt annað fyrir okkur að vinna fyrir
hana en nú. Fyrir þetta mót hér
. voru öll hin liðin búin að fara milli
landa og spila 15-20 leiki með HM
fyrir augum. En við erum með nýjan
þjálfara og lið sem ekkert spilaði
saman,“ sagði Margrét.
En þá er það leikur Islands í
gær. Liðið sigraði Belgíu, sem fyrr
segir, 15:14, í síðasta leik sínum í
B-riðli C-keppninnar. Staðan í leik-
hléi var jöfn, 7:7. íslenska liðið hafði
frumkvæðið í síðari hálfleik og náði
mest þriggja marka forskoti, 15:12,
þegar 5 mínútur voru til leiksloka.
Helgabætir
sig í skriðsundi
Helgu Sigurðardóttur, úr Vestra
á ísafirði, gekk mjög vel á
háskólamóti í Aiabama um sl. helgi;
bætti sig verulega bæði í 50 og 100
m skriðsundi.
Synt var í 25 stiku [jarda] laug
í undanrásum að morgni, en í úr-
slitasundinu á kvöldin var aftur á
móti synt í 50 m laug.
Helga synti fyrst 50 stiku skrið-
sund, komst í B-úrslit á 24,50 sek.
í 25 stiku lauginni, en tíminn sam-
svarar 26,95 sek. í 25 metra laug.
í úrslitasundinu, í 50 m laug-
inni, synti Helga á 27,55 sek. sem
er lang besti tími hennar til þessa
og 14/100 úr sek. lakari tími en
íslandsmet Bryndísar Olafsdóttur.
Þetta var þriðji besti tími mótsins,
en þar sem hún var í B-úrslitum
lenti hún í fjórða sæti en ekki þriðja.
í 100 stiku skriðsundi synti hún
fyrst á 52,60 sek. í 25 stiku laug-
inni. Það samsvarar 57,79 sek. í
25 m laug. Hún komst í A-úrslit í
greininni og náði þriðja sæti — synti
á 59,64 sek. sem er besti tími henn-
ar til þessa.
í 200 stiku skriðsundi synti
Helga á 1:55,00 mín. í stuttu laug-
inni, sem samsvarar 2:06,26 mín.
í 25 m braut. Það er nálægt hennar
besta tíma, en Helga náði sér hins
vegar ekki á strik í A-úrslitunum;
synti þá 200 m á 2:11,30 mín. í 50
m lauginni.
íslensku stúlkurnar reyndu þá lang-
ar sóknir og freista þess að halda
fengnum hlut. Þær belgísku skorðu
síðan tvö síðustu mörkin.
Margrét Theódórsdóttir sagði að
dómararnir, sem eru ungverskir,
hafi ekki verið hæfir til að dæma.
„Þetta var algjör „dómaraskandall"
sem bitnaði þó jafnt á báðum liðum.
Við fengum tólf sinnum dæmd á
okkur sóknarbrot, sem var alveg út
í hött. En við sigruðum og það er
fyrri öllu. Það var mikil taugaspenna
í lokin,“ sagði Margrét.
Margrét sagði það há íslenska lið-
inu hve lítið stúlkurnar hafa leikið
saman. Önnur lið hafa undirbúið sig
mjög vel fyrir þessa keppni og leikið
fjölmarga landsleiki og það gerir
gæfumuninn, sagði Margrét.
Erla Rafnsdóttir, sem var tekin
úr umferð lengst af, og Rut Baldurs-
dóttir voru bestu leikmenn íslands.
Kolbrún Jóhannsdóttir var í markinu
og náði að verja samtals fimm skot
í leiknum. Islenska liðið misnotaði 5
vítaköst.
Mörk íslands: Erla Rafnsdóttir
4, Guðríður Guðjónsdóttir 4/1, Rut
Baldursdóttir 4/1, Svava Sigurðar-
dóttir 1, Erna Lúðvíksdóttir 1 og
Guðný Gunnsteinsdóttir 1.
Fj. leikja u j T Mörk Stig
HOLLAND 5 4 0 1 101: 56 8
ÍTALÍA 5 3 1 1 71: 72 7
ÍSLAND 5 2 0 3 93: 93 4
FINNLAND 5 2 0 3 76: 89 4
PORTÚGAL 5 2 0 3 67: 84 4
BELGÍA 5 1 1 3 64: 78 3
SKIÐI
Unglingameistara-
mótið sett í kvöld
Unglingameistaramót Islands á
skíðum verður sett í Glerárkirkju á
Akureyri kl. 20 í kvöld. Rúmlega 200
keppendur taka þátt og eru þeir á
aldrinum 13 - 16 ára. Keppt verður í
alpa- og norrænum greinum.
Á morgun hefst keppni í göngu,
stökki og alpagreinum. Mótinu verður
síðan fram haldið á sunnudag og
mánudag.
Leiðrétting
Guðbjörg Þorvaldsdóttir úr FH, sem
varð þrefaldur sigurvegari á meistara-
móti 14 ára og yngri í fijálsíþróttum,
var sögð Viðarsdóttir í blaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Atli Már er 21 árs og Fjölnir einu
ári yngri. Þeir eru fyrstu íslending-
arnir sem reyna fyrir sér sem at-
vinnumenn í snóker. „Við höfum
verið að safna upp í þessa ferð og
svo treystum við á að vinna okkur
inn peninga í mótum í Englandi,"
sögðu þeir félagar.
toúm
FOLK
■ ÖRNÓLFUR Valdimarsson
varð í 12. sæti í svigi og 28. sæti
í stórsvigi á heimsmeistaramóti
stúdenta í alpagreinum sem fram
fór í Japan fyrir skömmu. Kristj-
án, bróðir Örnólfs, tók einnig þátt
í mótinu og hafnaði í '51. sæti í
stórsviginu en varð úr leik í svig-
inu. Alls tóku 70 keppendur þátt í
mótinu.
■ JOHN Barnes, enski landliðs-
maðurinn í knattspyrnu, hefur
ákveðið að framlengja samning sinn
við Liverpool um eitt ár. Hann
rennur út í vor, og sögusagnir voru
í gangi um að Barnes færi til ein-
hvers stórliðsins á meginlandinu.
■ PETER Schmeichel, mark-
vörður danska meistaraliðsins
Bröndby, er undir smásjánni hjá
Manehester United. Hann lék frá-
bærlega í Evrópuleiknum gegn
Torpedo í Moskvu í fyrrakvöld, og
átti mestan þátt í að danska liðið
komst í undanúrslit.
■ MORTEN Olsen, þjálfari
Bröndby, lýsti því yfir í gær að
óskamótheiji hans í undanúrslitun-
um væri ítalska liðið AS Roma.
Hin liðin í undanúrslitum UEFA-
keppninnar eru Sporting Lissabon
og Inter Mílanó. Dregið verður í
dag.
■ CHRIS Waddle, sem gerði sig-
urmark Marseille gegn AC Mílanó
í fyrrakvöld, fékk snert af heila-
hristingi undir lok leiksins, er einn
mótheijanna sló hann aftan á háls-
inn og eftir leikinn mundi hann
ekki að hann hefði skorað. Honum
leið illa í móttöku eftir leikinn og
var ekið heim í sjúkrabifreið.
■ BERNARD Tapie, forseti
Marseille, var sigurreifur í leikslok.
Sagði þetta mikilvægasta sigur liðs-
ins síðan hann tók við félaginu. Það
hefur verið æðsta takmark hans
hvað félagið varðar að það verði
Evrópumeistari — fyrst franskra
liða.
■ BREIDDIN er mikil hjá Mar-
seille. Landsliðsmaðurinn Bernard
Pardo er meiddur og lék ekki með
í gær, og á varamannabekknum
sátu m.a. Júgóslavinn Dragan
Stojkovic og frönsku landsliðs-
mennirnir Eric Cantona og
Philippe Vercruysse. Gamla
kempan Jean Tigana komst ekki
einu sinni í hópinn.
■ EINN forráðamanna AC
Mílanó lýsti því yfir í fyrrakvöld,
strax eftir leik liðsins í Marseille,
að félagið myndi kæra leikinn og
krefjast þess að liðin mættust á ný.
Ástæðurnar voi-u þær að á síðustu
mínútunni slökknaði á einu fjögurra
flóðljósa á vellinum, þannig að gera
varð hlé, og einnig sagði hann ör-
yggi leikmanna ekki hafa verið
nægilega gott. í gær kom síðan
yfirlýsing frá félaginu þar sem
sagði að hætt væri við að kæra og
Marseille var óskað til hamingju
með sigurinn.