Morgunblaðið - 22.03.1991, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
Stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur:
Næstu kjarasamningar verði
á grundvelli starfsgreina
FULLTÚAR Verslunarmannafélags Reykjavíkur áttu s.l. þriðju-
dag fund með starfsmönnum Vinnuveitendasambandins þar sem
kynntar voru hugmyndir stjórnar VR um nýjar leiðir við gerð
næstu kjarasamninga. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar, form-
anns VR, vill félagið standa að samningum í haust með öðrum
hætti en verið hefur. „Við förum fram á að kjarasamningar verði
gerðir með tilliti til starfsgreina," segir Magnús. Þá gerir VR
afgerandi kröfu um að horfið verði frá því fyrirkomulagi að
nota launataxta verslunar- og skrifstofufólks sem viðmiðun þegar
samið er um bónuskerfi í öðrum starfsgreinum.
Á síðasta ári hefur verið unnið
að því að skipta innra starfi VR
Aðalfundur VR:
Krafist hækk-
unar skatt-
leysismarka
Á AÐALFUNDI Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, 18.
mars sl. var samþykkt ályktun
þar sem þess er krafist að skatt-
ar láglaunafólks verði lækkað-
ir, m.a. með verulegri hækkun
skattleysismarka.
í ályktun stjórnar VR segir, að
kaupmáttur launafólks hafi
minnkað stórlega á undanförnum
árum. „Þrátt fyrir að nú hafi loks
tekist að stöðva kaupmáttarhrap-
ið er ljóst að kaupmáttur láglaun-
afólks er mjög lítill. Á sama tíma
og launafólk hefur tekið á sig
miklar fórnir með kjaraskerðingu
með það að markmiði að ná verð-
bólgunni niður og stuðla þannig
að betri lífskjörum hefur ríkisvald-
ið aukið skattheimru sína stór-
lega,“ segir í ályktuninni.
upp eftir einstökum starfsgrein-
um og er markmiðið að það
muni í framtíðinni skiptast í 12
starfsgreinar.
Magnús sagði að þessi tilhög-
un við kjarasamningagerð væri
nýmæli. „Til þessa hafa nokkrir
samningamenn sest niður og
fundið út hvað fiskvinnslan í
landinu þolir miklar launahækk-
anir og það verið látið ráða öðrum
launabreytingum í landinu burt-
séð frá afkomu eða stöðu ein-
stakra starfsgreina.
Við gerum einnig kröfu um
að horfið verði frá því að nota
launataxta verslunar- og skrif-
stofufólks sem reiknitaxta fyrir
afkastahvetjandi launakerfi.
Þetta launakerfi hefur stórskað-
að verslunar- og skrifstofufólk á
undanförnum árum og haldið
launum þess og fleiri aðila, sem
ekki búa við launahvetjandi kerfi,
niðri. Við getum ekki sætt okkur
við að launataxtar okkar séu
notaðir sem sökklar fyrir önnur
laun,“ sagði Magnús.’
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að
vinnuveitendur vildu ekki útiloka
þessar hugmyndir VR en meginá-
hersla í komandi kjarasamning-
um hlytu að snúast um að ná
heildarmarkmiðum sem miði að
því að viðhalda lágri verðbólgu
og hækkandi kaupmætti. „Önnur
markmið hljóta að verða að víkja
fyrir þessu,“ sagði hann.
Þórarinn sagði að Vinnu-
veitendasambandið hefði ekki
markað ákveðna afstöðu um
hvernig staðið verður að samn-
ingaviðræðum í haust. „Við fylgj-
umst með því af áhuga að Alþýð-
usambandið hefur sett á stofn
fimm manna nefnd, sem ætlað
er að gera tillögur um breytingar
á launahlutföllum á starfssviði
sambandsins með sérstakri
áherslu á hækkun lægstu launa,“
sagði hann.
Þórarinn sagði að launataxtar
VR-félaga hefðu aldrei verið not-
aðir sem grunntaxtar fyrir af-
kastahvetjandi launakerfi ann-
arra. „Á öðrum starfssviðum eru
afkastahvetjandi launakerfi
gjarna byggð á einhveijum við-
miðunum við launataxta og það
snýr ekki aðeins að okkur heldur
öðrum viðsemjendum okkar þar
sem slík kerfi eru í gangi,“ sagði
Þórarinn.
Hugmyndir Verslunarmanna-
félagsins verða lagðar fyrir fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambandins í apríl.
í samþykkt stjórnar VR, frá
6. mars sl., var áréttað að félag-
ið myndi eftir sem áður taka
þátt í undirbúningsvinnu með
ASÍ til að finna leiðir hvernig
hækka megi láglaunataxta.
Magnús kvaðst hafa kynnt hug-
myndir VR um starfsgreina-
samninga fyrir forseta ASÍ sem
hafi þótt þær eðlilegar.
Mor^unblaðið/Ami Sæberg.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI, heilsar Magn-
úsi L. Sveinssyni, formanni Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
við upphaf fundar þar sem fulltrúar VR kynntu hugmyndir sínar
um starfsgreinasamninga fyrir samtökum vinnuveitenda.
Aðalfundur VR:
Mótmælir tvískött-
un lífeyrisgreiðslna
Á AÐALFUNDI Verslunarmannafélags Reykjavíkur, sem haldinn
var 18. mars, voru samþykkt hörð mótmæli við tvísköttun í gegn-
um lífeyriskerfið. Einnig var mótmælt þeirri skerðingu sem lífeyr-
isþegar verða fyrir við greiðslu
í tillögu sem samþykkt var á
fundinum em þessi mál segir, að
lífeyrissjóðirnir séu til komnir
vegna sparnaðar þeirra sem í þá
greiða. Við greiðslur í sjóðinn
greiði sjóðfélagi skatta af þeim
sparnaði. Þegar komi að greiðsl-
um úr sjóðnum sé hann skattlagð-
ur að nýju. Er þessu harðlega
mótmælt og þess krafist að menn
fái notið þess á efri árum sem
sparast hafi.
„Við greiðslur úr Almanna-
tryggingakerfinu sem er sameig-
inlegur sjóður allra landsmanna
úr almannatryggingakerfinu.
eru greiðslur til lífeyrisþega skert-
ar sem nemur hluta af sparnaði
þeirra. Hér er um slíkt óréttlæti
að ræða að ekki verður unað við
lengur og þess krafist að lífeyris-
greiðslur skerði ekki rétt manna
til greiðslna úr almannatrygging-
akerfinu. Sparnaður í gegnum líf-
eyrissjóði er ekki annars flokks
sparnaður og þess er krafist að
hætt verði að gera greinarmun á
því hvort menn spara með greiðslu
í lífeyrissjóð eða á annan hátt,“
segir í samþykkt aðalfundar VR.
Inferno 5.
■ GERNINGAÞJÓNUSTA In-
ferno 5 er nú að heija starfsemi
sína á ný eftir vetrarfrí síðan í
haust. í tilefni þess gengst hún
fyrir gerningakvöldi á N1 bar við
Klapparstíg föstudaginn 22. mars
nk. Dagskráin er fjölbreytt að
vanda og fyrst má nefna nýjan
gerning Inferno 5 sem þeir nefna
Eitthvað er í hafinu. Eins og heiti
*hans gefur til kynna er efni hans
einhverskonar hugleiðing um haf-
ið. Skemmtunin hefst kl. 23.00 og
er öllum sem hafa aldur til heimill
aðgangur.
■ NÚ ER staddur hér á landi
kennari frá Kripalu-jóga og
heilsumiðstöðinni í N-Ameríku.
Coldon DeWees hefur búið og
starfað á Kribalu síðastliðin 14 ár
við jógakennslu, hugleiðslu og sem
nuddkennari undir leiðsögn jógans
Amrit Desai, betur þekktur sem
- Gurudev. Nú þegar eru hafín
kvöldnámskeið í hugleiðslu bæði
fyrir byijendur og þá sem lengra
eru komnir. Helgina 22.-25. mars
verður framhaldsnemum og öllum
þeim sem stundað hafa jóga boðið
upp á námskeið. Lögð verður
áhersla á að beita öndun samhliða
teygjunum, þjálfun einbeitingar,
umskapa spennu í jafnvægi og
mynda frið hið innra. Námskeiðið
fer fram í heilsu- og forvamarstöð-
inni Mætti, Faxafeni 14.
Áslaug Höskuldsdóttir
■ GALLERÍ 8, Austurstræti 8,
stendur fyrir kynningu á leirvösum
eftir Áslaugu Höskuldsdóttur í
sýningarglugga gallerísins dagana
22. mars til 1. apríl nk. Vasarnir
verða til sýnis og sölu í galleríinu
á venjulegum verslunartíma og um
helgar. Vasamir, sem unnir eru
úr steinleir, eiga það sameiginlegt
að vera unnir út frá kúluformi með
ýmsum tilbrigðum í Iit og skreyt-
ingum. Áslaug Höskuldsdóttir
stundaði nám við keramíkdeild
MHÍ á árunum 1971-75 og
1983-85 og hefur rekið eigið verk-
stæði undanfarin 4 ár. Hún hefur
tekið þátt í nokkrum samsýningum
í Reykjavík á undanförnum árum.
■ 60 AR eru liðin föstudaginn
22. mars frá stofnun Verkalýðsfé-
lags Borgarness. Það voru 39
verkamenn sem stofnuðu félagið.
I dag em í félaginu um 700 manns;
verkamenn, byggingamenn og
járniðnaðarmenn. Félagið hefur á
undanförnum ámm lagt áherslu á
fjölbreytta starfsemi. Stjórn fé-
lagsins árið 1991 er þannig skip-
að: Jón Agnar Eggertsson, form-
aður, Sigrún D. Elíasdóttir,
Baldur Jónsson; Agnar Ólafs-
son, Karl Á. Ólafsson, Svava
Halldórsdóttir og Áslaug Páls-
dóttir. Félagið minnist afmælisins
með hátíðardagskrá á Hótel Bor-
garnesi á afmælisdaginn. Kl.
20.15 leikur Lúðrasveit Borgar-
ness. Stjómandi Björn Leifsson.
Samkoman verður sett kl.20.30.
Kvöldúlfskórinn syngur. Stjórn-
andi Ingibjörg Þorsteinsdóttir.
Ræða: Jón Agnar Eggertsson
formaður Verkalýðsfélags Borgar-
ness. Óperusmiðjan sér um bland-
aða söngdagskrá. M.a. koma fram:
Sigurður Bragason, Jóhanna
Þórhallsdóttir og Inga Back-
man. FIosi Ólafsson Ieikari flytur
hugleiðingu. Gamanvísnasöngur
Þorkell Guðbrandsson. Ávörp
gesta. Nokkrir aldraðir félagsmenn
heiðraðir.
■ SÍÐASTA sýning er föstu-
dagskvöldið 22. mars á bandaríska
leikritinu Bréf frá Sylvíu eða
„Letters Home“ eftir Rose Lie-
man Goldemberg á Litla sviði
Þjóðleikhússins. Hún byggði verkið
á fjölda sendibréfa sem skáldkonan
Sylvia Plath skrifaði fjölskyldu
sinni allt frá menntaskólaárum til
dauðadags. Leikkonurnar Guð-
björg Thoroddsen og Helga Bac-
hmann fara með hlutverk Sylvíu
og móður hennar Aureliu Plath.
Edda Þórarinsdóttir leikstýrir nú
Guðbjörg Thoroddsen og Helga
Bachmann í hlutverkum sínum.
í fyrsta skipti i Þjóðleikhúsinu en
hún stundaði nám í kvikmyndaleik-
stjórn í Hollywood 1987-1989.
Guðrún J. Bachmann þýddi leikri-
tið úr ensku og Sverrir Hólmars-
son þýddi fjögur ljóð Sylviu Plath
sem flutt eru í leiknum. Sviðshreyf-
ingar annaðist Sylvia von Ko-
spoth, tónlist samdi Finnur Torfi
Stefánsson, Gunnar Bjarnason
hannaði leikmynd og Ásmundur
Karlsson lýsingu.
■ FRAMBOÐSLISTI Alþýðu-
flokksins í Reykjavík var sam-
þykktur á flokksstjórnarfundi síð-
astliðinn sunnudag. Þessir skipa
listann: 1. Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra. 2. Jóhanna
Sigurðardóttir, félagsmálaráð-
herra. 3. Ossur Skarphéðinsson,
aðstoðarforstjóri. 4. Magnús Jóns-
son, veðurfræðingur. 5. Valgerður
Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari. 6.
Ragnheiður Davíðsdóttir, blaða-
maður. 7. Helgi Daníelsson, yfir-
lögregluþjónn. 8. Lára Valgerður
Júlíusdóttir, lögfræðingur ASÍ. 9.
Steindór Karvelsson, verzlunar-
maður og form. FUJ. 10. Margrét
Björnsdóttir, endurmenntunar-
stjóri HÍ. 11. Vilhjálmur Þor-
steinsson, kerfisfræðingur. 12.
Ásta M. Eggertsdóttir, fram-
kvæmdastjóri. 13. Þröstur Ólafs-
son, hagfræðingur. 14. Hildur
Kjartansdóttir, varaformaður Iðju.
15. Grettir Pálsson, meðferðarfull-
trúi SÁÁ. 16. Valgerður Halldórs-
dóttir, kennari og formaður kven-
fél. Alþýðufl. 17. Jóhannes Guðna-
son, verkamaður, 18. Hulda Krist-
insdóttir, nemi. 19. Margrét Mar-
teinsdóttir, nemi. 20. Skúli G.
Johnsen, borgarlæknir. 21. Jóna
Rúna Kvaran, miðill. 22. Jóhanna
Vilhelmsdóttir, verzlunarmaður, í
stjórn VR. 23. Sigurður Péturs-
son, sagnfræðingur og form. SUJ.
24. Guðný Þóra Árnadóttir, hús-
móðir. 25. Birgir Árnason, hag-
fræðingur. 26. Herdís Þorvalds-
dóttir, leikkona. 27. Gunnar Ingi
Gunnarsson, læknir. 28. Benóný
Ásgrímsson, björgunarflugmaður.
29. Guðmundur Haraldsson,
deildarstjóri. 30. Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, formaður Bandalags
kvenna. 31. Atli Heimir Sveins-
son, tónskáld. 32. Guðni Guð-
mundsson, rektor. 33. Gunnar
Eyjólfsson, leikari. 34. Ragna
Bergmann Guðmundsdóttir,
form. verkakvennafél. Framsóknar.
35. Emilía Samúelsdótlir, hús-
móðir. 36. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrv.
ráðherra.
■ HLJÓMSVEITIN Full Circle
leikur í kvöld, föstudaginn 22. mars,
á Púlsinum. Tónleikarnir hefjast
kl. 21.30 og standa fram undir
miðnætti. Að þeim loknum tekur
Hljómsveit Eddu Borg við en hún
er skipuð tónlistarmönnum sem eru
jafnvígir á djass-, blús- og rokksvið-
inu. Hljómsveitina skipa: Edda
Borg, söngur, Friðrik Karlsson,
gítar, Þórir Baldursson, hljóm-
borð, Bjarni Sveinbjörnsson, bassi
og Pétur Grétarsson, trommur.