Morgunblaðið - 22.03.1991, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
41
Kveðjuorð:
Margrét Jónatans-
dóttir Líndal
Fædd 2. september 1917
Dáin 3. mars 1991
Okkur hjónunum varð það svo
sannarlega mikið áfall að frétta
af andláti Margrétar. Það er sárt
að vita til þess að við sjáum hana
ekki meir í lifenda lífi.
Margrét, þessi ljúfa, velgefna
manneskja sem var viss punktur
í tilverunni. Við sjáum hana ekki
oftar meðal okkar. Þetta er ótrú-
legt. Við höfum aldrei hugsað um
þetta. Við höfum alltaf talið að
Bergur og Margrét væru jafn sjálf-
sögð og við í þessu lífi. Er það
eigingirni?
Við vitum að lífið tekur enda
hér á jörð, en við höfum sjálfsagt
aldrei hugsað til þess hvert okkar
verður fyrst yfir móðuna miklu.
Kannski hefur það verið vegna
þess að Margrét var fremst okkar
allra í góðu lífemi í lifenda lífi.
Margrét Jónatansdóttir Líndal
var fædd á Holtastöðum, Langa-
dal, A-Húnavatnssýslu. Hún var
dóttir hjónanna Jónatans Jósafats-
sonar Líndals og Guðríðar Sig-
urðardóttur Líndal frá Lækjamóti.
Margrét ólst upp á Holtastöðum
sem óskadóttir með eldri albróður
sínum, Jósafat, fóstursystur, Sig-
ríði Stefánsdóttur frá Smyrla-
bergi, en hún var tekin í fóstur á
Holtastaðaheimilið mjög ung, og
hálfsystkinum sínum, Haraldi'
Holta, óðalsbónda á Holtastöðum,
og Kristínu Hjördísi, hjúkruna-
.rfræðingi. Holti og Hjördís voru
börn Jónatans frá seinna hjóna-
bandi hans með Soffíu. Ég veit
að þau systkinin áttu góða æsku
á Holtastöðum. Holtastaðaheimilið
var stórbrotið menningarheimili.
Guðríður húsfreyja var velmennt-
uð, húsmæðrakennari og mjög
tónelsk. Jónatan var menntaður
frá búfræðiskóla í Noregi. Það
má nærri geta hvort þessi ungu
hjón væru ekki eftirsóknarverð
fyrir ungt fólk á þessum stöðum.
Það varð því svo að á Holtastöðum
hjá ungu hjónunum, Jónatan og
Guðríði, var jafnan mannmargt.
Ég minnist Margrétar Jónat-
ansdóttur Líndal á Holtastöðum
fyrst er ég sá hana. Hún var sérs-
taklega falleg og vel gefin ung
stúlka, allra uppáhald í sveitinni,
tónelsk, hagmælt, ljúflynd, og vildi
ávallt gera gott úr öllu, ef eitthvað
fór úrskeiðis. Mér hlýnar um hjart-
arætur þegar ég minnist þessara
kosta Margrétar. Síðar áttum við
hjónin eftir að kynnast Margréti
og Bergi, manni hennar, miklu
betur undir öðrum kringumstæð-
um. Margrét giftist Bergi Vigfús-
syni frá Geirlundi á Síðu. Hjóna-
band þeirra var farsælt og gaman
að heimsækja þau í Hafnarfjörð,
í Flensborg á fyrri árum og síðar
á Hringbrautina. Þau voru höfð-
ingjar heim að sækja og eins og
þau ættu í manni hvert bein.
Margrét og Bergur eignuðust þijú
mannvænleg börn. Þau eru: Þor-
geir, f. 8. nóvember 1946, vél-
tæknifræðingur, Guðríður Halla,
f. 20. apríl 1948, kennari, og Ás-
laug Edda, f. 9. nóvember 1950,
cand.mag. í náttúrufræði.
Margrét og Bergur voru mjög
áhugasöm um útiveru og ferðalög.
Þau ferðuðust mikið utanlands og
innan, en ísland var þejrra ferða-
land fyrst og síðast. Ég er viss
um að andlát Margrétar bar að
með þeim hætti sem hún hefði
helst kosið, uppi í Bláfjöllum á
gönguskíðum með Bergi manni
sínum.
Það var nokkuð sérstakt, að á
síðastliðnu ári áttum við hjónin
meiri kynni við Margréti og fjöl-
skyldu hennar heldur en oft áður.
Þær stundir verða okkur ógley-
manlegar.
Við Erla þökkum Margréti
og ætlað honum verk að vinna hjá
sér. Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að hafa hann hjá okkur þessi
ár og geymum minninguna um
góðan dreng. Megi algóður guð
styrkja okkur öll í þessari miklu
sorg, sérstaklega móður hans og
systur, en þau þijú hafa haldist í
hendur í gegnum lífið. Við vitum
að Jóni Gísla líður núna vel og það
er huggun harmi gegn. Fari hann
í friði og hafi hann þökk fyrir allt
og allt.
Amma og afi á Vallarbarði.
Mig setti hljóða er ég heyrði
andlát elskulegs frænda míns, Jóns
Gísla. í gegnum hugan streyma
minningarnar allt frá þvííhann var
lítill og ljóshærður hnokki sem ég
passaði. Frá þeim tíma er svo margs
að minnast. Góðu stundirnar sem
við áttum saman mun ég alla tíð
geyma í huga mér.
En nú er hann allur, Jón Gísli
minn, aðeins 19 ára gamall. Það
er erfitt að sætta sig við að kveðja
hann svona ungan í hinsta sinn, en
það er þó huggun að vita að nú er
hann í Guðs höndum.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með fijóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,
líf mannlegt endar skjótt.
(Hallgrímur Pétursson)
Dóra
Og hvað er það að hætta að draga andann
annað en að frelsa hann frá friðlausum öid-
um lífsins, svo að hann geti risið upp í
mætti sínum og ófjötraður leitað á fund
guðs síns?
(Úr Spámanninum.)
Til að mynda trausta keðju þarf
góða hlekki og í henni eru elsku
vinkona mín, Margrét Jónsdóttir,
og Sigurður Gíslason. Þau eignuð-
ust saman tvö böm.
í dag erum við saman komin til
að stíga þau erfiðu spor að fylgja
syni þeirra til grafar. Hann var
skírður nafninu Jón Gísli eftir öfum
sínum báðum. Eftir eiga þau yndis-
lega dóttur, Seselíu Guðrúnu, og
eitt barnabarn sem hún á. En
Magga og Siggi slitu samvistir fyr-
ir nokkrum árum, en alltaf hefur
vinátta okkar haldist í hátt nær
þrjá áratugi. Við höfum fylgst með
uppvexti barna okkar beggja og
deilt saman bæði gleði og sorgum.
Við munum minnast Jóns Gísla;
fallegum, ljóshærðum, tápmiklum
og fjörugum dreng.
Megi hinar góðu hliðar hans vera
yfirsterkari í minningunni. Það er
alltaf sárt að horfa á eftir ungu
fólki í blóma lífsins, en þeir sem
guðirnir elska deyja ungir og við
höfum þá trú, að Guð hafi ætlað
Jóni Gísla mikilvægt starf á öðru
tilverustigi. Og við vitum það að
hann hefur fengið góða heimkomu
og tekið hefur verið vel á móti hon-
um. Á svona stundu erum við svo
lítil og orð mega sín lítils, og erfitt
er að sjá á bak honum, en látum
góðu minningarnar um elsku Jón
Gísla lifa með okkur sterkar og
bjartar um ókomin ár.
Elsku Magga mín, Siggi, Seselía
og aðrir ástvinir, megi Guð almátt-
ugur styrkja ykkur og hugga á
þessari erfiðu stund lífs ykkar.
Megi elsku Jón Gísla líða vel og
Guð blessi hann og varðveiti.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi. (V. Briem.)
Jóna, Steini og börn.
Jónatansdóttir Líndal fyrir öll þau
góðu ár sem við höfum átt með
henni og fjölskyldu hennar. Við
biðjum þess að góður guð styrki
Berg og börnin í sorg þeirra sem
við vitum að er mikil.
Erla og Hörður Valdimarsson
PÁSKATILBOÐ
Hornsófar m/áklæði 5 sæta, 2 h 2,
kr. 81.500,- stgr.
6 sæta, 2 h 3,
kr. 85.000,- stgr.
Einnig nýjar sendingar af sófasettum
á hagstæðu verði.
Ármúla 8, símar: 8-22-75 og 68-53-75
:
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
FRUMSYHIK:
1 - *■*!^
Fjárhættuspilari ^
sem treystir engum.
Kona sem fórnaði öllu.
Og ástríðan
sem leiddi þau saman
í hættulegustu borg
heimsins.
ROBERT REDFORD • LENA OLIN
a SYDNEY PÖLLACK film
H 'A'V-A-N A
Sýnd kl. 5 og 9 í A-sal og kl. 11 í B-sal.
Hækkað verð. Bönnuð börnum yngri en 14 ára.