Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.04.1991, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. APRIL 1991 EFNI Fiski landað á Suðurnesjum. Morgunblaððið/Bjöm Biöndal Kaupféiag Eyfirðinga: 262 milljóna króna hagnaður af rekstri HAGNAÐUR var af rekstri Kaupfélags Eyfirðinga á síðasta ári og nam hann 262 milljónum króna. Reksturinn gekk mun betur á síð- asta ári en tvð ár þar á undan þegar umtalsvert tap varð af rekstrin- um. A árinu 1989 var t.d. 177 milljóna króna halli á rekstrinum. Fjármunamyndun í rekstri félagsins á árinu 1990 var jákvæð um 275 milljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem hald- inn var í gær, laugardag. Heildarvelta KEA í aðalrekstri á síðasta ári var 8 miHjarðar, 315 milljónir króna og hafði aukist frá árínu áður um 7,2%. Velta sam- starfsfyrirtækja félagsins varð einn milljarður, 708 milljónir króna, sem er 12% lækkun frá fyrra ári. Vegma Sameiginlegnr fisk- markaður ólíklegnr nú - segir stj órnarformaður Faxamarkaðarins í Reykjavík ÁGÚST Einarsson, stjórnarformaður Faxamarkaðarins, segist ekki sjá fyrir sér, eins og aðstæður séu í dag, að komið verði á sameiginlegum fiskmarkaði fyrir allt landið. Líklegra sé að markaðir verði stofnaðir víðar um landið á næstunni og samtenging markaðanna muni ekki koma til fyrr en heimamenn telji hana nauðsynlega. Guðrún Lárusdótt- ir, stjórnarformaður Fiskmarkaðarins í Hafnarfirði, telur ekki iíklegt, að fjarskiptamarkaður með fisk komi í stað fiskmarkaða, eins og nú eru starfandi. í Morgunblaðinu í gær lýsti Logi Þormóðsson, stjómarformaður Fisk- markaðar Suðumesja, hugbúnaðar- kerfí, sem hann taldi gefa möguleika á að koma á sameiginlegum fisk- markaði fyrir allt landið. Agúst Ein- arsson, stjórnarformaður Faxa- markaðarins í Reykjavík, segist telja, að þróunin verði ekki með þeim hætti, sem Logi Þormóðsson geri ráð fyrir. Líklegra sé, að fiskmarkaðir verði stofnaðir víðar um landið á næstunni, til dæmis á Snæfellsnesi og ísafírði og að aftur verði gerð tilraun með markað I Vestmannaeyj- um. Ágúst segir að þróun fiskmarkaða taki tíma. Menn verði að feta sig áfram með markaðina eftir aðstæð- um á hveijum stað og hann telji að þegar menn verði búnir að kynnast þessu fyrirkomulagi, þá vakni þörf á samtengingu. Heimamenn á hveij- um stað verði að finna hjá sér þörf fyrir hana, því þessi þróun eigi sér ekki stað með valdboði að ofan. Þegar fram líði stundir muni upplýs- ingar berast greiðar milli kaupenda og seljenda um alilt land, en hann sjái hins vegar ekki fyrir sér að svo komnu máli, að komið verði upp ein- um sameiginlegum fiskmarkaði fyrir allt landið. Guðrún Lárusdóttir, stjómar- formaður Fiskmarkaðarins í Hafnar- firði, segir að vel geti svo farið, að :.fj arskiptamarkaður með fisk komist á hér á landi, en hún telji, að slíkur markaður muni ekki ryðja mörkuð- um, eins og nú eru starfandi, úr vegi. Auðvitað geti mikið hagræði fylgt því að fá upplýsingar í gegnum tölvu, en það sé ekki nóg að bjóða fiskinn upp heldur verði einnig að koma honum til kaupenda. Það sé spuming hvort hagkvæmara sé að keyra með hann frá markaði til kaupenda eða landa hjá þeim. Guðrún segir að reynsla manna í Hafnarfirði sé góð og hún sjái ekki hvers vegna ekki ætti að vera hægt að koma upp svipuðum mörkuðum á ýmsum stöðum á landinu. margháttaðra aðhaldsaðgerða á síðustu misserum hefur rékstrar- kostnaði verið ha'ldíð náðri og hækk- ar hann einungis um 2% á milli ára. Eignir félagsins í árslok 1990 voru samtals 6 milljarðar. 959 millj- ónir króna, skuldír þess voru 4 millj- arðar, 350 milijónir og eignir um- fram skuldir námu tveimur milljörð- um, 609 milljónum króna. Eigdn- fjárhlutfall var 37,5%. Meðalstarfsmannafjöldi KEA var á síðasta ári 948 starfsmenn og beinar launagreiðslur námu röskum einum milljarði króna. Hjá sam- starfsfyrirtækjum störfuðu að með- altali 223 starfsmenn og beinar launagreiðslur til þeirra námu 360 milljónum króna. AIls námu beinar launagreiðslur Kaupfélags Eyfirð- inga og samstarfsfyrirtækja einum milljarði, 367 milljónum króna, sem er 8% lækkun frá árinu 1989. I skýrslu stjómar og kaupfélags- stjóra kom fram að toata í rekstri mætti að hluta rekja ti hagstæðra ytri skilyrða, minni verðbólgu, stöð- ugs gengis og hóflegra kjarasamn- inga, þá hafi fískverð á erlendum mörkuðum hækkað á árinu. Af þáttum sem ekki voru að sama skapi hagstæðir rekstri, má nefna minnkandi aflaheimiidir, samdrátt í sauðljárslátrun og þá var nánast verðstöðvun á ýmsum framleiðslu- yörum fyrir innanlandsmarkað. Áskorun Alþýðuflokksmanna í Reykjaneskjördæmi: Viljum ræða við fleiri aðila - segir Ólafur G. Einarsson OLAFUR G. Einarsson, sem skipar 1. sæti á framboðslista Sjálfstæð- isflokksins í Reylq'aneskjördæmi, segir að sjálfstæðismenn í kjördæm- inu vi\ji kanna, hvort hægt sé að koma á opnum fundi með fulltrúum Alþýðnflokks, Framsóknarflokks og Alþýðubandalags. Alþýðuflokks- menn á Reykjanesi hafa skorað á sjálfstæðismenn að mæta sér á þremur kappræðufundum fyrir kosningarnar 20. apríl. Jón Sigurðsson, efsti maður á lista Alþýðuflokksins í Reykjanes- kjördæmi, hefur ritað Ólafí G. Ein- arssyni bréf, þar sem efstu menn A-listans skora á frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins að mæta sér á þremur kappræðufundum dagana 8. til 13.' apríl. Ólafur G. Einarsson segir að sjálfstæðismenn hafi skipulagt fundarhöld upp á nánast hvem ein- asta dag fram til kosninga og valdí það nokkrum erfiðleikum í þessu sambandi. Hann segist eidri vilja útiloka fund með frambjóðendum Aiþýðuflokksins, en þðtt áhugavert sé að eiga við þá orðastað, séu þeir afls ekki einu aðilamir í ríkisstjóra- inni, sem sjálfstæðismenn viji ræða við. Þeir vilji því kanna, hvort liægt sé að koma á fundi með fultrúum Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks. Ingi Bjöm Albertsson á framboðsfundi: Munum lækka virðisauka- og tekju- skatt eða hækka skattleysismörk Sjálfstæðisflokkur mun ekki hækka skatta SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN mun ekki hækka skatta, komist hann til valda eftir kosningar, og vill koma tíl móts við láglaunafólk með því að lækka virðisaukaskatt, lækka tekjuskatt eða hækka skattleys- ismörk. Þetta sagði Ingi Björn Albertsson alþingismaður á framboðs- fundi í Múlakaffi í gærmorgun. „Við Iofum ekki gulli og grænum skógum. En við lofum því þó, og við það munum við standa, að skattar munu ekki hækka. Við vilj- um koma til móts við lágtekjufólk- ið og þá, sem minna mega sín. Hvernig ætlum við að gera það? Við getum meðal annars gert það með því að lækka virðisaukaskatt- stigið, lækka tekjuskattstigið eða hækka skattleysismörkin. Þetta em þrír möguieikar, sem á að skoða og einhveija af þessum leið- um, blandáða- eða óbiarfdaða, för- -! um við,“ sagði Ingi Bjöm. Lára Margrét Ragnarsdóttir hafði einnig framsögu á fundinum í Múlakaffi. Hún benti á að lands- framleiðsla hefði minnkað um 5% síðastliðin fjögur ár, á meðan hún hefði hækkað um 15% í nágranna- lóndunum. Þama væri því 20% munur. Á fjómm árum hefði orðið 20% kjararýmun hjá launafólki. „Við búum við gamaldags hag- kerfí, og stjórnarflokkamir boða að við verðum í því áfram.“ sagði í.ára-M-argrét. -í-Uálílii-.3 Morgunblaðið/Sverrir Ingi Björn Albertsson talar yfir fundargestum á morgunfundi sjálf- stæðismanna t MúlakáM?áá‘ Heilagur sannleikur eða ailt í plati? ►Er mark takandi á skoðana- könnunum? Eru sumar skoðana- kannanir marktækari en aðrar? Eru niðurstöður rangfærðar og mistúlkaðar? Rætt við vísinda- menn, skoðanakönnuði og stjórn- málamenn /10 í borginni sorgmæddu ►Jóhanna Kristjónsdótt-ir heldur áfram för sinni um Miðausturlönd og er nú stödd í Beirút í Líbanon, þar sem líf er að færast í eðlilegt . horf eftir 15 ára stríð. /16 Heilsan höndluð á ný ►Endurhæfing á Reykjalundi get- ur breytt lífsvenjum manna og við- hoifi. /18 Vertu sæll, Yasser Arafat ►Tekst Yasser Arafat enn einu sinni að sleppa lifandi úr hættulegu klandri, sem hann hefur sjálfur komið sér í?/24 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-28 Hverfaskipulag fyrir Vesturbæinn ►A Borgarskipulagi Reykjavíkur hefur undanfarin ár verið unnið að inverfaskipulagi fyrir nokkra borgarhluta í Reykjavík. /16 ► l-32 Sendiboði ieyniþjón- ustunnar reyndist vera Sigurður Þórar- insson ►Það var dr. Sigurður Þórarins- son, jarðfræðingur, sem á stríðsár- unum smyglaði fyrir Breta út úr Danmörku nýju landakortunum af Islandi, sem lokuðust inni í vinnslu í Geodætisk Institut /1 Tónlistin er marg- höfða dreki ► A ferð um Svíþjóð með Niels- Henning Örsted Petersen /10 Með demoninn í sér ►Framtíð ungra leikara einkenn- ist oft af óvissu, en Stefáni Jóns- syni leikara finnst það spennandi að vita ekki hvað verður. /12 Samnefnari íslenskra jeppamanna ►Rætt við Benedikt Eyjólfsson um bilasport og fleira /14 FASTIR ÞÆTTIR Préttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 49 Dagbók 8 Gárur 51 Hugvekja 9 Mannlífsstr. 8c Leiðari 26 Fjölmiðlar 18c Helgispjall 26 Kvikmyndir 20c Reykjavíkurbréf 26 Dæg-urtónlist 21c Myndasögur 44 Menningarstr. 22c Brids 44 Minningar 23,24,25 c Stjörnuspá 44 Bíó/dans 26c Skák 44 Velvakandi 28c Fólk í fréttum 46 Samsafnið 30c Karlar/Konur 46 INNLENDAR FRETTIR: 2—6—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.