Morgunblaðið - 07.04.1991, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 07.04.1991, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ ATtflNNJVtað/^illKÍAGúR ÁÍRÍL'Í991 '32 ATVI NNUAUGiÝS/NGAR Rannsókna- blaðamaður Viljum ráða reyndan blaðamann í sjálfstætt tímabundið rannsóknaverkefni. Viðkomandi þarf að vera ákveðinn og nákvæmur og geta að rannsókn lokinni skilað ítarlegri greinar- gerð og gögnum. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendi skrifleg svör í pósthólf 1101, 121 Reykjavík. Upplýsingar ekki gefnar í síma. VARI öryggisþjónusta. Kexverksmiðjan Frón tvöfaldar kexframleiðsluna Frá og með 22. apríl óskast til starfa karlar og konur við framleiðslu á kexi. Vinsamlega hafið samband sem fyrst við Hrafnhildi í síma 11400 eftir kl. 13.00. Fóstrur óskast Fóstrur eða annað uppeldismenntað starfs- fólk óskast. Okkur á skóladagheimilinu í Hafnarfirði vant- ar hressan stafsmann til að vinna með kátum krökkum 6-10 ára. Um er að ræða 75% starf. Upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi í síma 53444 og forstöðumenn í síma 54720 alla virka daga. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. Akraneskaupstaður, tækni- deild Garðyrkjustjóri hjá Akranes- kaupstað Auglýst er eftir umsóknum um starf garð- yrkustjóra hjá Akraneskaupstað. Starfið er m.a. fólgið í undirbúningi og skipu- lagningu verkefna á sviði garðyrkjumála, umsjón með uppbyggingu og viðhaldi opinna svæða, lóða stofnana bæjarins og skógrækt- ar, umsjón með skipulagningu og fram- kvæmdum vinnuskóla, eftirlit með beitarhólf- um og forðagæslu. Næsti yfirmaður garð- yrkjustjóra er forstöðumaður tæknideildar. Menntun á sviði garðyrkju er áskilin. Laun eru skv. kjarasamningum Starfsmanna- félags Akraness. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður tæknideildar á bæjarskrifstofu Akraness, Kirkjubraut 28, 2. hæð í síma 93-11211, milli kl. 11.00 og 12.00 alla virka daga, eða á skrifstofu sinni að Kirkjubraut 28, Akranesi. Skriflegum umsóknum skal skilað til fulltrúa á bæjarskrifstofu Akraness, Kirkjubraut 28, 300 Akranesi, eigi síðar en 22. apríl nk. Umsóknareyðublöð afhendast á bæjarskrif- stofunni fyrir þá sem þess óska. Forstöðumaður tæknideildar. Stýrimaður 1. stýrimann vantar á 280 tonna togbát frá Vestmannaeyjum. Upplýsingar gefur útgerðarstjóri í síma 98-12303. Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. REYKJALUNDUR Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðinga vantar á fastar nætur- vaktir og til sumarafleysinga. Upplýsingar veitir Gréta Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 666200. Skólastjóri tónskóla Tónskóli Djúpavogs óskar að ráða skóla- stjóra. Um er að ræða heila stöðu. Æskilegt er að umsækjandi geti jafnframt sinnt organistastarfi í Djúpavogssókn. Upplýsingar í síma 97-88834 og á kvöldin í síma 97-88970. Sveitarstjóri Búlandshrepps. Sölustjóri Óskum eftir að ráða sölustjóra til að annast sjálfstæða sölu á nýjum vörubifreiðum og búnaði tengdum þeim hjá traustu og ört vaxandi innflutnings- og þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Hér er um sjálfstætt starf að ræða sem hinn nýi sölustjóri mun hafa mikla möguleika á að þróa og móta sjálfur. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Vélvirki Óskum eftir að ráða traustan vélvirkja, eða mann, vanan vinnuvélaviðgerðum, til við- halds- og þjónustustarfa hjá góðu innflutn- ings- og þjónustufyrirtæki. Góð laun í boði og mikil vinna framundan. SIMISI n/r ^ )( Nóatúni 17 105 Reykjavík Sími: 621315 Atvinnumiölun * Firmasala » Rekstrarráögjöf Hafnarfjörður - sumarstörf Æskulýðs- og tómstundaráð Hafn- arfjarðar óskar eftir að ráða starfs- fólk í eftirtalin sumarstörf: 1. Flokksstjóra við Vinnuskólann. 2. Leiðbeinendur í skólagarða. 3. Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanám- skeið. Lágmarksaldur umsækjenda í ofangreind störf er 20 ár. Garðyrkjustjóri óskar eftir að ráða starfsfólk ekki yngri en 16 ára til garðyrkjustarfa. Umsóknarfrestur rennur út þann 26. apríl. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Æskulýðsráðs, Strandgötu 8 (inngangur frá Linnetstíg). Upplýsingar eru veittar í síma 53444 frá kl. 10.00-12.00 hjá æskulýðsráði og frá kl. 11.30-12.00 í síma 652244 hjá garðyrkju- stjóra. Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarðar. Garðyrkjustjórinn í Hafnarfirði. FERÐA SKRIFSTDFA STÚDENTA 6l*56*56 Sölumaður Viljum ráða starfskraft á aldrinum 20-35 ára til að gegna almennum sölustörfum frá maí og fram í september. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af farseðlaútgáfu og fargjaldaút- reikningum. Umsóknum skal skilað til Félagsstofnunar stúdenta fyrir 16. apríl. Ferðaskrifstofa stúdenta. 11 HLÍÐABÆR Þjónustudeild Múlabæjar Hjúkrunarfræðingur Hlíðabær, dagvistun fyrir Alzheimer sjúkl- inga, Flókagötu 53, óskar eftir að ráða hjúkr- unarfræðing í 100% starf nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi sérmenntun á sviði öldrunar- og/eða geðhjúkrunar. Nánari upplýsingar gefur Þóra Arnfinnsdótt- ir, forstöðumaður, í síma 621722. Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. LANDSPITALINN Reyklaus vinnustaður Krabbameins- lækningadeild Landspítalans Röntgenhjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur með sérnám í röntgen- hjúkrun óskast til starfa við undirbúning geislameðferðar á krabbameinslækninga- deild Landspítalans. Um er að ræða stöðu aðstoðardeildarstjóra. Æskilegt er að við- komandi geti hafið störf sem fyrst. Deildarröntgentæknir Deildarröntgentæknir óskast til starfa við undirbúning geislameðferðar. Hlutastarf kemur til greina og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Hjúkrunarfræðingur Einnig óskum við eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við geislameðferðareiningu. Störfin krefjast öll talsverðrar þjálfunar og þurfa umsækjendur að geta starfað nokkuð sjálfstætt. Mjög góður tími verður veittur til starfsþjálfunar. Frekari upplýsingar gefa Geir Friðbergsson, deildarstjóri, í síma 601467 og Elín J.G. Haf- steinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í símum 601290 og 601300. Læknaritari Læknaritari eða starfsmaður með góða vél- ritunar- og íslenskukunnáttu óskast til afleys- inga í 2-3 mánuði helst frá miðjum apríl á öldrunarlækningadeild Landspítalans. Um framtíðarvinnu gæti verið að ræða og þá eftir samkomulagi. Upplýsingar veittar í síma 602250 frá kl. 8 til 16 alla daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.