Morgunblaðið - 16.05.1991, Síða 26
2(r
' HttÍMffiÍAGÚÍ^WÍÍfcÆÍðSl:.
Deilur um kirkiubyggingu Digranessafnaðar:
Bæjaryfirvöld munu taka
ákveðna afstöðu á næstunni
- segir Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi
Unnur Vilhelmsdóttir píanóleik-
ari.
Islenska óperan:
Píanóleik-
ari lýkur
einleikara-
prófi
Einleikaraprófstónleikar
verða haldnir á vegnm Tónlistar-
skólans í Reykjavík í íslensku
óperunni föstudaginn 17. maí kl.
20.30.
Á tónleikunum flytur Unnur Vil-
helmsdóttir píanóleikari Prelúdíu og
fúgu nr. 8 í es-moll eftir J.S. Bach,
Sónötu í C-dúr op. 2 nr. 3 eftir
Beethoven, Estampes eftir Debussy
og Sónötu í g-moll op. 22 eftir
Schumann.
Tónleikarnir eru síðari hluti ein-
leikaraprófs Unnar frá skólanum
og er aðgangur ókeypis.
SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri í
Kópavogi, segir að bæjarstjórn
muni á næstunni taka ákveðna
afstöðu til þess hvort Digranes-
söfnuði verði heimilað að byggja
kirkju á opnu svæði við Víghól á
Digranesinu. Deilur hafa lengi
staðið um staðsetningu kirkjunnar
og hafa íbúar í nágrenninu mót-
mælt henni harðlega. Sigurður
segist ekki vita hvernig málið fari
i bæjarstjórn, en nauðsynlegt sé
að ákveðin afstaða verði tekin,
þannig að einhver niðurstaða fáist
i málinu.
Sigurður segir að bæjarfélaginu
beri að útvega söfnuði lóð undir
kirkjubyggingu. Digranessöfnuður
hafi lengi haft áhuga á að byggja
kirkju sína við Víghól, en frá upp-
hafi hafi íbúar í nágrenninu mót-
mælt harðlega. Árið 1987 hafí
Digranessókn verið skipt í tvennt, í
Digranessókn og Hjallasókn. Innan
Hjallasóknar hafí verið búið að fínna
kirkjustæði, sem hafí verið hugsað
fyrir báða söfnuðina. Hins vegar
hafí ekki náðst samkomulag milli
safnaðanna um sameiginlega kirkju-
byggingu.
Sigurður segist út af fyrir sig
ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort
Digranessókn byggi kirkju sína á
opna svæðinu við Víghól, en hins
vegar muni hann beita sér fyrir því,
að niðurstaða fáist í málinu, enda
gangi ekki lengur að það sé óaf-
greitt. Bærinn hafí látið skipuleggja
svæðið þar sem gert er ráð fyrir
kirkjubyggingunni, þær skipulags-
hugmyndir hafí verið kynntar íbúun-
um og þeir sent inn sínar athuga-
semdir. Bæjarstjóm muni svo á
næstunni taka afstöðu til þess hvort
þær skipulagshugmyndir nái fram
að ganga.
Heppilegra að byggja tvær
kirkjur
Þorbergur Kristjánsson, sóknar-
prestur í Digranessókn, segir að Di-
granessöfnuður sé að verða tuttugu
ára um þessar mundir og sé hálfur
annar áratugur síðan hafist var
handa við að afla hefðbundinnar og
lögmætrar starfsaðstöðu, þ.e. kirkju-
byggingar. Hann segir að þegar
söfnuðurinn var stofnaður hafí hon-
um verið ætlaður ákveðinn staður
austan Bröttubrekku og sunnan Di-
granesvegar en þegar að til kom
hafi þetta svæði ekki verið á lausu,-
Því hafi verið ráðstafað undir götu
sem nú væri búið að leggja og því
ljóst að leita þyrfti annarra úrræða.
Á fjölmennum safnaðarfélagsfundi,
þar sem þáverandi bæjarstjóri hafði
framsögu, hafi niðurstaðan orðið sú
að óbyggða svæðið á Digraneshæð
vestan Gagnheiðar væri heppilegur
staður. Skömmu síðar var það svæði
hins vegar friðlýst. Nokkrum árum
síðar lá hins vegar fyrir að knatt-
spymuvöllur sem er austan Gagn-
heiðar yrði lagður niður. Létu bæjar-
yfírvöld skipuleggja svæðið upp á
nýtt og er gert ráð fyrir að þarna
komi kirkja og umhverfis hana opið
útivistarsvæði. Hefur þessi breyting
á skipulagi verið auglýst og á eftir
að taka tillit til athugasemda. Tölu-
verður fjöldi íbúa hefur mótmælt
skipulagsbreytingunni og segir Þor-
bergur aðspurður um álit sitt á því
að það komi alltaf fram mótmæli í
svona tilvikum. „Þetta gerist alls
VALI NYS BORGARSTJORA FRESTAÐ
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins frestaði í gær að velja eftirmann Davíðs Oddssonar í embætti
borgarstjóra. Hér á eftir fara umsagnir þeirra borgarfulltrúa flokksins sem Morgunblaðinu tókst að hafa
samband við vegna málsins í gærkvöldi.
Júlíus Hafstein:
Borgar-
stjórastóll-
inn hleypur
ekki burt
„Borgarstjórnarflokkurinn
hefur alltaf staðið mjög vel
saman. Það hefur ekkert breyst
í þeim efnum. Ég er ánægður
með þessa niðurstöðu eins og
hún er og það var full samstaða
um hana,“ segir Júlíus Haf-
stein.
„Það liggur ekkert á, því það
er engin hætta á að borgarstjóra-
stóllinn hlaupi eitthvað í burtu.
Þarna fóru engar kosningar fram
heldur var þetta einróma niður-
staða og allir sammála um að það
lægi ekkert á,“ sagði Júlíus.
Katrín Fjeldsted
Þurfum
meiri tíma
„ÉG HELD að mönnum hafi
almennt þótt að það hefðu ekki
farið fram nægilegar umræður
um val borgarstjóra innan
borgarstjórnarflokksins. Ég tel
það mjög gott, að samstaða
náðist um að þessi háttur yrði
hafður á,“ sagði Katrín
Fjeldsted, borgarfulltrúi, þegar
álits hennar var leitað á niður-
stöðu fundar borgarsljórnar-
flokksins.
Katrín sagði að umræður um
val borgarstjóra hefðu einkum átt
sér stað í fjölmiðlum og ekki ver-
ið með öllu hlutlausar. Borgar-
stjórnarflokkurinn hefði hins veg-
ar ekki náð að ræða málin út og
þeir Qórir, sem einkum hefðu ver-
ið nefndir til sögunnar sem borg-
arstjóraefni, hefði í rauninni verið
að hittast saman í fyrsta sinn í
gær eftir að þessar umræður byrj-
uðu.
„Ef tilfínning manna var sú,
að það þyrfti að ræða málin betur
var þetta eðlileg niðurstaða,"
sagði Katrín. „Það, að ekki skyldi
fara fram atkvæðagreiðsla um
málið nú, var í rauninni hið besta
mál. Það hefur verið leiðarljós
þessa hóps að vera samstæður og
þannig viljum við hafa það
áfram.“
Páll Gíslason:
Samþykkt
að gefa
okkur betri
tíma
„ÞAÐ varð samkomulag um
þetta og það gefur okkur betri
tíma til að athuga gang mála.
Þetta var einróma samþykkt,"
segir Páll Gíslason.
„Menn ræddu málin fram og aftur
en síðan var samþykkt einróma
að gefa sér betri tíma án þess að
liggi önnur ákörðun í því,“ sagði
Páll.
Árni Sigfússon:
Treysti
hópnum til
ákvörðunar
„VIÐ erum að ræða þessi mál
í okkar hópi og ég treysti hon-
um til að taka þessa ákvörð-
un,“ sagði Árni Sigfússon,
borgarfulltrúi, þegar hann var
spurður álits á niðurstöðu borg-
arstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna í gær.
„Þetta var okkar fyrsti fundur
um þetta mál,“ segir Ámi. „Við
erum nú að ræða málið frekar
innan borgarstjórnarflokksins og
ég treysti þessum hópi best til að
ljúka því verki.“
Guðrún Zoega:
Allir sáttir
við niður-
stöðuna
„ÞAÐ var ákveðið á fundinum
að borgarstjóri segði það sem
flokkurinn hefur að segja um
þessa niðurstöðu," segir Guð-
rún Zoega.
„Þetta varð einróma niðurstaða
og ég held að allir hafi verið mjög
sáttir við hana. Þetta var bráða-
birgðaniðurstaða og er ekkert
meira um hana að segja,“ sagði
Guðrún.
staðar þar sem opin svæði eru skipu-
lögð. íbúar vilja auðvitað halda þeim
áfram. Ég veit því ekki hversu mikið
er leggjandi upp úr þessum mótmæl-
um,“ segir Þorbergur.
Þegar hann er spurður um hvort
til greina komi að byggja sameigin-
lega kirkju með Hjallasöfnuði segir
hann heppilegra að byggja sína kirkj-
una fyrir hvorn söfnuðinn. Þegar
Hjallasöfnuður var stofnaður 1987
hafi innan hans vébanda verið svæði
sem ætlað var undir kirkju. Hafí
þeir hafíst handa við að teikna kirkju
en þegar aiveg var að koma að fram-
kvæmdum hafí sú hugmynd komið
upp og verið orðuð við bæjaryfírvöld,
að eðlilegra væri að byggja eina
kirkju fyrir báða söfnuðina. „Um
þetta urðu umræður á milli safnað-
anna og niðurstaðan varð sú að þetta
væri ekki heppileg lausn. Þannig er
það mál komið," segir Þorbergur.
Báðir söfnuðurnir væru mjög stórir,
í Digranessöfnuði væru um 7000
manns og í Hjallasöfnuði um 5000
manns, og að teknu tilliti til nýbygg-
ingarsvæðis stefndi í að báðir teldu
þeir 8000 manns innan skamms.
„Ég hygg að það sé algjört eins-
dæmi að söfnuður hafí þurft að sæta
þeirri meðferð sem við höfum þurft
að sæta,“ segir Þorbergur.
Ekki aftur snúið eftir fyrstu
skóflustungu
Kristján Þorvarðarson, sóknar-
prestur í Hjallasókn, segir að á aðal-
safnaðarfundi á sunnudag hafí verið
ákveðið að reisa kirkju í sókninni að
Álfaheiði 17. Verður fyrsta skófl-
ustungan tekin næsta sunnudag,
hvítasunnudag. Þá umræðu sem ver-
ið hefði um kirkjubyggingar í Kópa-
vogi að undanförnu segir hann
Hjallasöfnuði að öllu leyti óviðkom-
andi, þær snúist um það hvort að
Digranessöfnuður fái þá lóð sem
hann sækist eftir en til þess þurfi
breytingu á aðalskipulagi. „Við erum
sérstakur söfnuður, sem var stofnað-
ur 1987, og berum ábyrgð á að reisa
kirkju fyrir okkur,“ segir Kristján.
Hann segir aðspurður um hvort
rætt hafí verið um byggingu sameig-
inlegrar kirkju að á sínum tíma hafí
staðið yfír viðræður milli safnaðanna
um hugsanlegt samstarf en af því
hafi ekki orðið. „Fram á síðasta dag
munum við ekki loka neinum dyrum
gagnvart viðræðum um samstarf en
eftir að fyrsta skóflustungan hefur
verið tekin verður ekki aftur snúið,“
segir Kristján.
VAL NYS BORGARSTJORA
Hér á eftir fara umsagnir þriggja fulltrúa minnihlutaflokkanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur vegna þeirrar ákvörðunar borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins að fresta tilnefningu nýs borgarstjóra.
Ólína Þorvarðardóttir:
Mikill álits-
hnekkir
„ÞETTA er að mínu viti mikill
álitshnekkir fyrir meirihluta
sjálfstæðismanna I borgar-
stjórn og fyrir borgarstjórnina.
Það er að koma í ljós, sem fé-
lagshyggjuflokkarnir óttuðust
að vísu að myndi gerast, að
þessi leiðtogakreppa ætti sér
stað,“ segir Ólina Þorvarðar-
dóttir, borgarfulltrúi Nýs vett-
vangs.
„Kjósendur hafa verið blekktir
og borgin er stjómlaus á meðan
Sjálfstæðisflokkurinn er að ráða
fram úr þessu. Það er staðgengill
í stóli borgarstjóra og loga allir
eldar,“ sagði Ólína.
Sigrún Magnúsdóttir:
Sýnir
glund-
roðann
r
SIGRUN Magnúsdóttir borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins
sagði að niðurstaða borgar-
stjórnarflokks sjálfstæðis-
manna væri ótrúleg. „Þarna
gefst Sjálfstæðisflokkurinn upp
á ekki stærra máli en að velja
einn úr sínum hópi sem borgar-
stjóraefni. Flokkurinn hefur til
margra ára talað digurbarka-
lega um að hér eigi að vera
pólitískur borgarstjóri og hefur
nú haft langan tima til að
ákveða þetta. Niðurstaðan hlýt-
ur aðeins að sýna þann glund-
roða sem ríkir innan flokks-
ins,“ sagði hún.
„Það er líka einkennilegt áð
borgarfulltrúar flokksins skuli
ekki treysta sér til að greiða at-
kvæði um borgarstjóraefnið
vegna þess að flokkurinn er nýbú-
inn að ganga í gegnum atkvæða-
greiðslu um formann. Sem borg-
arfulltrúi fínnst mér þetta slæm
niðurstaða vegna þess að valda-
kerfi Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórn hefur verið byggt upp
sem píramídi og allar ákvarðanir
verið bornar undir borgarstjórann.
Þó svo að mjög hæfur embættis-
maður taki nú við starfi borgar-
stjóra óttast ég að þessi glundroði
innan flokksins komi einnig fram
í borgarstjórnarstörfunum," sagði
Sigrún.
Elín G. Ólafsdóttir:
Lýsir
tilvistar-
kreppu
„ÞETTA kom í opna skjöldu
vegna þess að við höfum verið
látin trúa þí að þarna ríkti mik-
il samstaða en svo kemur allt
annað á daginn. Þessi niður-
staða slær mig mjög illa því þó
borgarritari sé mjög hæfur ein-
staklingur þá er það ekki viðun-
andi fyrir borgarbúa að þurfa
að búa við þetta,“ segir Elín
G. Ólafsdóttir fulltrúi Kvenna-
listans.
„Þetta er með hreinum ólíkind-
um og lýsir ákveðinni tilvistar-
kreppu og er uppgjöf gagnvart
þessu verkefni. í kosningabaráttu
hefur alltaf verið að hamrað á því
að verið sé að kjósa um samhent-
an flokk, andstætt minnihlutan-
um, sem muni ekki verða í neinum
vandræðum með að taka ákvarð-
anir. Við sem sitjum í borgarráði
fjöllum um flest mikilægustu mál
sem varða beill borgarbúa og ótt-
ast ég að inn í þau störf berist
nú sá ágreiningur sem við horfum
uppá hjá sjálfstæðismönnum, að
ekki takist samstaða um mál og
þeim verði í frestað í sífellu. Það
er engan vegin viðunandi fyrir
borgarbúa. Eg ætlaði í fyrstu
ekki að trúa þessari niðurstöðu
borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna,“ sagði Elín.