Morgunblaðið - 16.05.1991, Page 59
KNATTSPYRNA
JC(!J 'IAM ;9I flU0A0[UT3áMI’q HlHCllWl 1 JOflOI*
MOKGU.NBLAÐID SÞROTTIR FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991
59
„Erum ekki
hérsem
ferðamenn
- sagði Páll Guð-
laugsson, landsliðs-
þjálfari Færeyja
Júgóslavía og Færeyjar mæt-
ast í Evrópukeppni landsliða
í knattspyrnu í Belgrað í kvöld.
Heimamenn eru efstir í 4. riðli
og gestimir eiga ekki möguleika
á að komast í úrslitakeppnina,
en þeir gefa ekkert eftir og ís-
lendingurinn Páll Guðlaugsson,
þjálfari Færeyja, gaf það fvlli-
lega í skyn. „Við komum ekki
til Júgóslavíu sem ferðamenn."
Júgóslavar byrjuðu vel og
sigi-uðu í fyrstu ijórum leikjum
sínum, en töpuðu síðan óvænt
fyrir Dönum í Belgrað fyrir hálf-
um mánuði. Danir eru þremur
stigum á eftir, en eiga leik til
góða og Júgóslavar segjast ekki
hafa efni á að gera nein mistök
gegh Færeyingum.
„Þegar dregið var í riðla hlógu
margir vegna væntanlegra
leikja gegn Færeyingum, en nú
stekkur engum bros á vör. Dan-
ir eru á mikilli siglingu og við
verðum að sigra í öllum leikjum,
sem eftir eru til að komast
áfram, en það verður ekki auð-
velt,“ sagði Ivica Osim, þjálfari
Júgóslava og minnti á frammi-
stöðu Færeyinga í keppninni,
sem hafa þegar sigrað Aust-
urríki pg gert jafntefli við
Norður-Irland.
Paul Ince, Bryan Rob-
son og Mark Hughes
fagna sigrinum í Rott-
erdam. 23 ár voru liðin
síðan að United fagnaði
sigri í Evrópukeppninni
á Wembley.
Bo hefur valid hópinn
Sjö breytingarfrá því í leiknum gegn Spánverjum
Bo Johannsson, landsliðsþjálf-
ari, hefur valið 16 leikmenn
til að leika gegn Albaníu í Evrópu-
keppni landsliða 26. maí í Tirana.
Töluverðar breytingar eru á liðinu
frá því í síðasta Evrópuleik gegn
Spánvetjum í Sevilla í október
fyrra.
um gegn Spánverjum í október.
Atli Eðvaldsson og Sigurður Jóns-
son eru í leikbanni. Þorgrímur
Þráinsson er hættur og Pétur
Pétursson er meiddur. Kristján
Jónsson, Pétur Ormslev, Birkir
Kristinsson detta út. í stað þeirra
koma Ólafur Gottskálksson,
markvörður KR, Gunnar Gíslason,
Hacken, Ólafur Kristjánsson, FH,
Einar Páll Tómasson, Val, Þor-
valdur Örlygsson, Nottingham
Forest, Hlynur Stefánsson, ÍBV
og Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart.
Annars er liðið skipað eftirtöldum
leikmönnum:
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson, Val
Ólafur Gottskálksson, KR
Gunnar Gislason, Hácken
Ólafur Kristjánsson, FH
Einar Páll Tómasson, Val
Þoivaldur Örlygsson, N. Forest
Rúnar Kristinsson, KR
Ólafur Þóiðarson, Lyn
Sigurður Grétarsson, Grasshoppers
Hlynur Stefánsson, IBV
Arnór Guðjohnsen, Bordeaux
Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart
Antony Karl Gregory, Val
Ragnar Margeireson, KR
Aðrir leikmenn:
Guðni Bergsson, Tottenham
Sævar Jónsson, Val
Sjö breytingar eru í leikmanna-
hópnum nú frá því í Evrópuleikn-
Barcelona....1
„Stærsta stundin
á ferlinum“
- sagði Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United
MAIMCHESTER United fagnaði
sigri í Evrópukeppni bikarhafa
í knattspyrnu í Rotterdam í
Hollandi í gærkvöldi eftir að
hafa unnið Barcelona 2:1. Mark
Hughes gerði bæði mörk enska
liðsins, en Ronald Koeman
minnkaði muninn fyrir
spænska félagið. United sigr-
aði síðast í sömu keppni árið
1968. „Félagið hefur beðið eft-
ir þessum degi í 23 ár og skilj-
anlega er gleðin mikil,“ sagði
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Manchester United, en
hann stjórnaði skoska liðinu
Aberdeen til sigurs í sömu
keppni árið 1983. „Þetta er
stærsta stundin á ferlinum —
sem ævintýri líkast," bætti
hann við.
Fátt markvert gerðist í fyrri
hálfleik og var þá jafnræði með
liðununm. Brian McClair fékk eina
hættulega marktækifærið, komst
inn fyrir vörn Barcelona eftir 10
mínútna leik, en var of bráðlátur
rétt utan vítateigs og missti marks.
Breskir sóttu meira í seinni hálf-
leik og voru mun ákveðnari. Hug-
hes kom þeim á bragðið um miðjan
hálfleikinn eftir aukaspyrnu Rob-
sons fyrirliða og skalla Steve Éruce
framhjá markmanninum. Boltinn
var á leiðinni inn, en Hughes tók
enga áhættu. Skömmu síðar gerði
hann glæsilegt mark eftir stungu-
sehdingu frá Robson. Hughes lék á
markvörðinn, var í þröngri stöðu
utarlega í vítateignum, en skoraði
engu að síður með öruggu þrumu-
skoti.
Vaknað við illan draum
Við þetta var sem leikmenn
Barcelona hefðu vaknað við illan
draum og Koeman minnkaði mun-
inn beint úr aukaspyrnu af um 30
m færi. Það sló samt Bretana ekki
út af laginu og Hughes fékk tæki-
færi til að bæta þriðja markinu við
eftir stungusendingu frá McClair,
en Nando felldi hann á síðustu
stundu og fékk að sjá rauða spjald-
ið fyrir vikið. Spánveijarnir sneru
vörn í sókn og Michael Laudrup
átti gott skot á síðustu mínútu, en
Blackmore bjargaði á línu.
Þess má geta til gamans að í gær
var nákvæmlega sex ár síðan Ever-
ton vann sama bikar í Rotterdam,
Rapid Vín - 3:1, en tveimur vikum
seinna varð harmleikurinn í Briisfe-
el, þegar Liverpool og Juventus
léku, sem varð til þess að bann var
sett á ensk félagslið, en því banni
var aflétt fyrir þetta keppnistímabil
og leikmenn Manchester United
gátu svo sannarlega fagnað því í
gærkvöldi.
Feyenoordvöllur ! Rotterdam í Holl-
andi, úrslitaleikur í Evrópukeppni
bikarhafa i knattspyrnu miðvikudag-
inn 15. maí 1991.
Mörk Manchester United: Mark
Hughes (68. og 74.).
Mark Barcelona: Ronald Koeman
(79.).
Gult spjald: Bryan Robson, Man-
chester United, og Jose Bakero.
Rautt spjald: Nando Munoz, Barcel-
ona (84.).
Manchester United: Les Sealey,
Denis Irwin, Clayton Blackmore,
Steve Bruce, Gary Pallister, Mike
Phelan, Bryan Robson, Paul Ince,
Brian McClair, Mark Hughes, Lee
Sharpe.
Barcelona: Carlos Busquets, Nando
Munoz, Jose Alexanco (Antonio Pin-
Ula vm. á 72.), Ronald Koeman, Al-
berto Ferrer, Eusebio Sacristan, Ait-
or Beguiristain, Jose Bakero, Juan
Goikoetxea, Juliö Salinas, Michael
Laudrup.
Áhorfendur: 42.000.
Stuðningsmenn United
til fyrirmyndar
STUÐNINGSMENN Man-
chester United, sem fylgdu
liðinu til Rotterdam, voru til
fyrirmyndar í alla staði fyrir
og eftir leik, að sögn
hollensku lögreglunnar.
Meiraen 15.000 enskir
áhangendur voru á Fayeno-
ord-leikvanginum og var ótt-
astaðtil óláta kæmi.
Lögrelgan í Rotterdam var við
öllu búin og var með þúsund
lögreglumenn til taks ef til óláta
kæmi. Aðeins 18 hollenskir og 5
enskir áhorfendur voi-u handtekn-
ir fyrir minniháttar brot. „Áhang-
endur United vita það, að ef til
ólata hefði komið myndi það skaða
liðið. Þeir sýndu að þeir höfðu
gaman að þessu og skemmtu sér
vei,“ sagði taismaður lögi-eglunn-
ar.
United var annað tveggja
enskra liða sem fékk heimild til
að taka þátt í Evrópukeppninni
síðan 1985, eftir að bann var sett
á ensk lið vegna harmleiksins í
Brussel er 39 manns létu lífið.
„Eftir að hafa verið utan Evr-
ópukeppninnar í fimm ár, vorum
við staðráðin í því að skemmta
okkur og gera mikið að því,“ sagði
einn stuðningsmanna United eftir
leikinn.