Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 1
104 SIÐUR B/C 139. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 23. JUNI 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Ámi Sæberg MIÐBORGINISUMARBLIÐU Baker fagnað sem þjóð- lietju í höfuðborg Albaníu Tirana. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fékk geysigóðar mót- tökur er hann kom til Albaníu í gær. 400.000 fagnandi Albanir fylltu Skand- erberg-torg í miðborg Tirana þegar Baker ávarpaði landsmenn. Sögðu þar- lendir embættismenn að þetta væri fjöl- mennasti útifundur í sögu landsins sem ekki væri skipulagður af stjórnvöldum. Minnast menn þess vart að bandarískur utanríkisráðherra hafi fengið slíkar viðtökurí erlendu ríki. Hvarvetna meðfram veginum stóð bros- andi og veifandi fólk þegar Baker ók frá flugvellinum til höfuðborgarinnar. Manngrúinn varð sífellt meiri eftir því sem nær dró Tirana og átti bílalestin í erfiðleik- um með að aka síðasta spölinn í gegnum mannhafið. „Ég hef aldrei séð svo ólýsanlegar mót- tökur,“ sagði Baker er hann ávarpaði Alb- ani af palli sem reistur var við hlið styttu af Skanderberg, þjóðhetju Albana, sem uppi var á miðöldum. Ráðherrann varð oft að gera hlé á máli sínu vegna fagnaðar- hrópa viðstaddra sem margir veifuðu bandaríska fánanum. „Nærvera ykkar hér í dag staðfestir hvaða kost þið hafið valið. Þið hafið kosið frelsi þjóðarinnar, frelsi fólksins, frelsi hvers og eins.“ Baker er fyrsti bandaríski utanríkisráð- herrann sem kemur til Albaníu en ríkin tóku upp stjómmálasamband í mars síðastliðnum. Á einu af fjölmörgum skilt- um, sem viðstaddir báru, stóð: „Vertu vel- kominn Baker. Albanir hafa beðið þín í 50 ár.“ Ráðherrann sagðist flytja Albönum kveðjur frá bandarísku þjóðinni: „Kveðjan er: Verið velkomin. Velkomin í samfélag ftjálsra þjóða sem byggja Evrópu, samein- aða og fijálsa." Að ræðunni lokinni tilkynnti Ylli Bufi, forsætisráðherra Albaníu, að Baker hefði verið gerður að heiðursborgara í Tirana. Á meðan Baker er í Albaníu ávarpar hann þing landsins en í apríl síðastliðnum fóm fram fyrstu fijálsu þingkosningar í Albaníu frá stríðslokum. Búist er Við að Baker tilkynni víðtæka aðstoð Bandaríkja- manna við að efla lýðræði í Albaníu. Maxwell naðra kvödd til vitnis DAVID Tai, 18 ára gamall New York- búi, hefur verið ákærður fyrir morð á þremur Víetnömum úr glæpaflokknum „Með dauðann að leiðarljósi". Tai neitar sakargiftum og heldur því fram að starfsmenn lögreglustöðvar í Chinatown hafi notað snákinn Maxwell, sem geymd- ur er í búri á lögreglustöðinni, til að knýja fram játningu. Lögmaður Tais hefur farið fram á að snákurinn verði kvaddur til vitnis í réttarsal og vitnar í dómsmál frá árinu 1908 er hestur kom í vitnastúkuna. Sérlegur ráð- gjafi forsetans CARLOS Andres Perez, forseti Venezú- ela, hefur skipað 12 ára gamlan dreng, Frederick Calderon að nafni, sérlegan ráðgjafa í umhverfismálum. Síðasta fimmtudag í hverjum mánuði rennur gljáfægð bifreið forsetaembættisins upp að skóla Fredericks í einu af fátækari hverfum Caracas. Pilturinn stígur upp í bifreiðina og heldur á reglulega fundi sína með forsetanum. Þar leggur hann fram lista yfir umkvörtunarefni í um- hverfismálum sem hann hefur safnað saman undanfarinn mánuð. Golfið hættu- legt börnum GOLF er hættulegra börnum en aðrar íþróttir. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var í bresku læknatímariti í gær. Af 27 tiifellum höfuðáverka, sem börn höfðu hlotið við íþróttaiðkun og læknar við Aðalsjúkrahúsið í Newcastle upon Tyne í Norðaustur-Englandi höfðu með- höndlað á einu ári, tengdust 11 golfi, fimm hjólabrettum, flmm fótboita og sex tilfelli öðrum íþróttum. Höfundar skýrsl- unnar sögðu golfkylfur geta verið ban- væn vopn í höndum barna sem lékju sér með þær eftirlitslaust. Sovétmönnum neitað um hæli? SOVÉSKUR verslunarsendifulltrúi í Ósló og sovéskur fréttamaður þar í borg hafa sótt um pólitískt hæli í Noregi og í Brctlandi. Báðir segjast vera njósnarar KGB. Talsmaður norska utanríkisráðu- neytisins sagði ekki víst hvort þeir fengju hæli. Áður en glasnost kom til sögunnar í Sovétríkjunum hefði hvaða sovéskur embættismaður sem er, sem reynt hefði að flýja, sjálfkrafa fengið hæli. Þetta væri ekki lengur raunin. Hvert tilfelli þyrfti að skoða fyrir sig. STÚDENTSPRÓFIÐ NÆR EINSKIS VIRÐI ÁATVINNUMARKAÐI Leitin að rauða Ungliðanum Ffönsk stjórnmál 20 LINURNAR SKERPAST REYKJAVIKUR 14B Þá eggja menn sig upp svo um munar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.