Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 16

Morgunblaðið - 23.06.1991, Síða 16
Veriur flaki kjarnorkukafbátsins Komsomolets bjargaó eftir Urði Gunnarsdóttur Mynd: Sverrir Vilhelmsson „VIÐ TELJUM öruggast að kjarnorkukafbáturinn verði ekki hreyfð- ur. Geislun frá honum verður að öllum líkindum lítil á löngum tima ef hann er látinn liggja á hafsbotni en verði hróflað við honum, gæti hann brotnað við yfirborðið og þá eykst hættan á geisla- virkni.“ Svo farast Knut Gussgard orð en kafbáturinn sem hér um ræðir er sovéskur kafbátur sem sökk 180 km suð-vestur af Bjarna- rey fyrir rúmum tveimur árum. Hugmyndir Sovétmanna um að lyfta kafbátinum á næsta ári og flytja hann til Kólaskaga hafa vakið ugg ýmissa þjóða, þar á meðal Norðmanna en Gussgard er forstöðumað- ur Kjarnorkueftirlitsstofnunar norska ríksins og var staddur hér á landi í siðustu viku á fundi forstöðumanna geislavarna og kjarnorku- eftirlitsstofnana á Norðurlöndum. Um ástand mála á Norðurslóðum, segir Gussgard að Norðmenn telji mesta hættu stafafrá Kólaskaga. „Þar er samankomið stærst samansafn geislavirkra efna á hafi og á landi á einu svæði og það má ekki mikið út af bera til að þar verði kjarnorkuslys með alvarlegum afleiðingum." Allt frá því er kafbáturinn Kom- somolets sökk 7. apríl 1989, hafa Norðmenn fylgst grannt með gangi mála. Noregur á ekki lagalega kröfu á kafbátinn, hann liggur á alþjóðahafsvæði, utan lög- sögu og efnahagslögsögu Noregs, en næst Bjarnarey. Norðmenn hafa margsinnis beint fyrirspurnum til Sovétmanna og hafa átt með þeim fundi. „Þessa aðgerð verður að undirbúa vel og byggja hana á mati á öryggisþættinum. Við mun- um mótmæla því að bátnum verði lyft, fáum við ekki þær tæknilegu upplýsingar um kjarnakljúfinn og einangrun í kringum hann, sem nauðsynlegar eru. Okkur hafa ekki borist nein gögn þar að lútandi frá Sovétmönnum þó að þeir' vinni án efa sjálfir að slíku mati. Ég er þó bjartsýnn á við fáum gögnin í hend- ur. Tilraunir til að lyfta kafbátinum árið 1990 strönduðu á því að fjár- mögnunin var ekki í lagi. Nú er undirbúningstíminn fram að 1992 einfaldlega of skammur til að lyfta honum. Þessa skoðun hafa Hollend- ingar einnig látið í ljós en-þeir yrðu Rætt við Knut Gussgard, forstöðumann Kjarnorkueftirlitsstofnunar norska ríkisins en hann telur að verði hróflað við sovéska kjarnorkukafbátninum við Bjarnarey, aukist hætta á geislavirkni. að öllum líkindum fengnir til verks- ins,“ segir Gussgard og bætir því við að Sovétmenn hafi neyðst til að samþykkja þetta. Einn af fimm kafbátum á hafsbotni Gussgard telur að geislun úr kjarnorkukafbátnum yrði væntan- lega undir einu prósenti af geislun- inni frá Tsjernobyl. „Flakið liggur á réttum kili en báturinn er skemmdur á áfturhluta og við hreyfilinn auk þess sem framhlutinn er klemmdur saman og lokur hafa ■ Þjððunum í norðri stafar mest hætta frá kjarnorkuiðnaði Sovétmanna á Kálaskaoa. ■ Nú liggja fimm kjarnorkuknúnir kafbátar á botni Atlantshafs, brír sovéskir og tveir bandarískir og líklegt er að beir hafi allir kjarnaodda innanborðs. ■ Tilraunir til að lyfta kafbátinum árið 1990 strönduðuábvíað fjármögnunin var ekki í lagi. NO er undirbúningstíminn fram að 1992 einfaldlega of skammur til að lyfta honum. opnast. Þetta getur þýtt að hinn mikli þrýstingur á þessu dýpi getur rofið einangrun við kjarnakljúfinn svo að sjór komist að honum og m'álmurinn tærst. Ef iyfta á kaf- bátnum, verður því að gera það eins fljótt og mögulegt er, áður en málmurinn fer í sundur. En við telj- um að öruggast sé að láta flakið liggja, við flutning gæti það brotnað við yfirborðið og þá er meiri hætta á geislun. Tíminn vinnur því með okkur, helmingunartími sesíums er þrjátíu ár.“ Nú liggja fimm kjarnorkuknúnir Dreifing geislavirkni „Ég tel sennilega öruggast að kafbáturinn verði látinn liggja á hafsbotni. Geislavirk efni síast þá út í djúpsjó Norðurhafs- ins, dreifast hægt x honum og það cæki þau áratugi að berast í djúpsjjo suður Atlantshaf. Tiltölulega ítill hluti geislunarinn- ar :nyndi herast app í yfirborðslögin með ióðréttri álöndun," negir Jón Ólafsson, haffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. ■ón segir að ef farið verði út í I björgunaraðgerðir og geislun ^ berist í yfirborðslög sjávar, lendi bún í yfírborðsstraumum og bærist í suðurátt með Austur- Grænlandsstraumnum. Geislunin yrði þá um 2 tii 4 ár að berast upp að íslenska iandgrunninu. „Þegar geislavirk efni komast í sjó, þynnast þau mikið og geislun yrði trúlega vel undir hættumörk- um. Við teljum okkur hafa nokkuð góða hugmynd um dreifíngu geislavirkni í Norðurhafi, þar sem mæld iiefur verið geislavirkni (magn sesíum 137) á þessu svæði sem aðallega stafar frá Sellafield á Bretlandi. Hvað fiskistofna varðar, eru uppeldisstöðvar loðnunnar norðan landsíns þar sem mest gætir geislavirkra efna. Það sama á við norsk-íslenska síldarstofninn fari Uppeldis- stöövar loðnu Helstu hafstraumar í Norðurhöfum Dreifing geislavirkni i""1""1......... Sesíum 137 Mælt í Bq/mz sjávar rfómfram f 1931-82 ogerástæða til þess að ætla að geisl- uninsé svipuð nú. Hér sökk kafbáturinn Astæða geislavirkninnar sem sést hér að afan er aðallega tvíþætt; annars vegar sá geislavirki íirgangur sem aarst frá endurvinnslustöðinni í Sellafield við írska haf og hins vegar eru leifar geislavirkni vegna íyarnorkutilrauna stórveldanna fyrir þremur áratugum þegar tilraunasprenging- ar fóru fram ofanjarðar og geislavirk efni bárust í höfin með úrkomu. Síðarnefnda geislunin er minnstur hluti þeirrar geislunar sem mælist. hann að ganga á þessu svæði. Þorskur og þær tegundir aðrar sem við nýtum mest, eru á land- grunninu en loðnan er reyndar ein helsta fæðutegund þorsksins. Að- aláhyggjuefnið er að neytendur erlendis munu tæplega gera greinarmun á fiskitegundum; geislamengun, lítil eða mikil, er vond fyrir markaðinn. Þó að geisl- unin sé langt undir þeim mörkum sem sett eru um leyfilegt magn í matvælum, getur hún haft gífur- leg áhrif á markaðinn og þá ímynd sem við höfum skapað okkur.“ ■ L.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.