Morgunblaðið - 16.07.1991, Page 2

Morgunblaðið - 16.07.1991, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 1991 Ounninn fiskur til Færeyja: Bjóðast til að af- nema verðbætur Færeyska landsstjórnin hefur sent íslenskum stjórnvöldum bréf, þar sem hún býðst til að falla frá verðbótum á óunninn fisk sem íslensk fiskiskip landa í Færeyjum. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segist meta þessi viðbrögð, en þetta sé ekki samningsatr- iði milli íslendinga og Færeyinga og Færeyingar verði sjálfir að taka sinar ákvarðanir í þessu efni. Að sögn Þorsteins Pálssonar einfaldlega andvígir slíkum styrkj- stingur færeyska landsstjómin upp á ýmsum leiðum í bréfinu til að takmarka verðbæturnar, binda þær við ákveðnar tegundir eða fella þær algerlega niður. Þessar verðbætur nema um 14 krónum á kíló af óunn- um fiski. „í sjálfu sér er það ekki neitt til samninga okkar í milli. Þeir verða einfaldlega að taka sínar ákvarðan- ir og við okkar; við getum ekkert samið við þá um mismunandi mikla ríkisstyrki til fiskvinnslu. Við erum um enda eru þeir andsnúnir hags- munum íslenskrar fiskvinnslu," sagði Þorsteinn. Tilboð Færeyinga kemur vegna harða viðbragða sjávarútvegsráð- herra við fréttum af áðurnefndum verðbótum en hann gaf í skyn að veiðiheimildir Færeyinga í íslenskri landhelgi kynnu að verða endur- skoðaðar. Ekkert er minnst á þess- ar veiðiheimildir í bréfi Færeyinga, að sögn sjávarútvegsráðherra. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Einar Ólafs- son íLækjar- hvammi látinn EINAR Ólafsson, bóndi í Lækjar- hvammi, lézt í Sjúkrahúsi Suður- lands á Selfossi aðfaranótt mánu- dags, 95 ára að aldri. Einar sat meðal annars í borgarstjórn Reykjavíkur 1940-1944. ,, Einar var fæddur að Flekkudal í Kjósarhreppi 1. maí 1896, sonur Ólafs Einarssonar og Sigríðar Guðnadóttur. Hann bjó í Lækjar- hvammi við Reykjavík 1926-66 og rak einnig bú í Bæ í Kjós 1939-71. Hann starfaði hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins frá 1966. Einar var meðal annars formaður Ungmennafélagsins Drengs 1920- 1922, formaður jarðræktarfélags Reykjavíkur um áratugaskeið og í stjórn Búnaðarfélags íslands og Mjólkursamlags Kjalarnesþings um langan tíma. I öllum þessum félög- um var hann heiðursfélagi. Einar sat auk þess lengi í stjórn Osta- og smjörsölunnar, Stéttarsambands bænda og fleiri félaga. Banaslys í Þórsmörk NÍTJÁN ára gamall maður lézt í Þórsmörk aðfaranótt laugar- dags er hann hrapaði í gjá. Hann hét Barði Páll Óskarsson, til heimilis að Túngötu 50 á Eyrar- bakka. Talið er að slysið hafi orðið und- ir morgun á laugardag og maðurinn látizt samstundis. Hann fannst eftir hádegi á laugardag. Barði heitinn var ókvæntur og barnlaus. Grétar Guðmundsson með ávaxtafernur á Svíþjóðarmarkað. Mjólkurbú Flóamanna: 1,2 milljónir mjónuferna með ávaxtasafa á markað í Svíþióð Kona Einars var Berta Ágústa Sveinsdóttir, sem lézt árið 1968. Dóttir þeirra er Þórunn. Selfossi. í MJÓLKURBÚI Flóamanna er þessa dagana unnið af kappi við að pakka ávaxtasafa í 1,2 milljónir mjónuferna fyrir sænskt fyrirtæki, Falken AB. MBF hefur tæpan mánuð til að skila þessu verki sem það fékk eftir útboð. Það var fyrir rúmu ári að MBF pakkaði ávaxtasafa fyrir sænska fyrirtækið Falken, vegna mark- aðssetningar á vörunni í Svíþjóð. Vörunni var mjög vel tekið og fyrirtækið setti upp eigin pökkun- arvélar sömu gerðar og eru í MBF. Sú pökkun sem nú er fram- kvæmd í MBF er til þess að mæta því umframmagni sem Fal- ken í Svíþjóð getur ekki annað. Þessi pökkun var boðin út og MBF hreppti hnossið. „Þetta er góð búbót fyrir okkur og bætir nýtinguna á tækjunum auk þess sem þetta er ein leið til útflutnings á íslensku vatni. Þetta sýnir einnig að það eru ýmsir möguleikar til ef menn vita hveij- ir af öðrum milli landa,“ sagði Birgir Guðmundsson mjólkurbú- stjóri. Þeim 1,2 milljónum mjónuferna sem pakkað verður í MBF á að skila á 28 dögum og hefur vinnu- dagurinn í pökkunarsalnum verið lengdur á meðan unnið er við þetta pökkunarverkefni. Sig. Jóns. Heilbrigðisráðherra um gjaldtöku í heilbrigðisþjónustu: Gjaldtaka verður að mið- ast við gjaldþol greiðenda í heilbrigðisráðuneytinu er nú verið að kanna leiðir til að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um niðurskurð á fjárlagahallan- um. Sighvatur Björgvinsson, heil- brigðisráðherra, segir að meðal þeirra leiða sem verið sé að skoða sé gjaldtaka af þeim sjúklingum sem hafi bolmagn til að greiða fyrir þjónustuna. Sighvatur sagði í samtali við Morgunblaðið að tekjur vantaði fyrir 'A til 'h af útgjöldum ríkisins, það væri sá vandi sem við væri að glíma í ríkisfjármálum. „Þegar menn eru að tala um 20 milljarða þá eru menn ekki að tala um neina hagræðingu né aðhald í ríkisrekstri, það eru menn að tala um þegar hallinn er tveir milljarðar," sagði Sighvatur. Hann sagði að nú væri verið að ræða um hina dýru þjónustuliði ríkis- ins, sem væru tilfærslur til einstakl- inga, heimila og samtaka, almanna- tryggingamar, niðurgreiðslur á landbúnaðarvörur og styrkir til at- vinnulífsins. Síðan væru það hin dýru rekstrarviðfangsefni ríkissjóðs, menntamál, félagsmál og heilbrigð- ismál. Þýsku skátamir skyldu hertir við mannraunir ÞÝSKU skátamir tveir sem saknað var á Héraði em komnir fram. Þeir reyndust hafa hafst við í tjaldi sínu rétt innan við Egilsstaði. Drengirnir fóru ásamt fímm fé- lögum sínum upp á Fljótsdalsheiði á mánudaginn var og ætluðu að ganga úr Fljótsdal yfír í Hrafn- kelsdal. Tveir þeirra yfirgáfu fé- laga sina á heiðinni og var um tíma íhugað að hefja leit að þeim. Að sögn Úlfars Jónssonar lög- regluvarðstjóra á Egilsstöðum taldi lögreglan þar aldrei ástæðu til að óttast að ráði um drengina. Olíubílstjóri hefði tekið upp tvo pilta sem svöruðu til lýsingar á þeim og ekið þeim niður að Egils- stöðum. Það hefði því ekki verið nein ástæða til að hefja víðtæka leit að þeim á heiðinni. Þessir þýsku drengir eru félagar í þýskum skátaflokki frá Hamborg. Hópurinn kallar sig Pfardfinder- bund Nord. Foringi þeirra hér var Alexander Pusch, nítján ára að aldri. Yngsti drengurinn í hópnum var aðeins tólf ára, þrír voru fjórt- án ára gamlir, einn sextán ára og einn átján ára. Það voru tveir þeir elstu af óbreyttum í hópnum sem yfirgáfu foringja sinn og félaga á heiðinni. Úlfar Jónsson segir að foringi drengjanna hafi haft undir höndum undirskrifað leyfi foreldra drengj- anna um að fara með þá til Is- lands. Tilgangur ferðarinnar hafí að því er virðist hafa verið sá einn að herða þá við einhvers konar mannraunir. Sagði Úlfar að sér þætti það furðulegt að foreldrar skyldu veita svo ungum manni sem Alexander Pusch væri, skilyrðis- laust leyfí til að fara með böm sín um óbyggðir íslands. Drengirnir munu ætlá að fara burtu af landinu með Norrænu á fimmtudaginn kemur. Eiður Guðnason, umhverfisráð- herra, sagði í samtali við Morgun- blaðið að mál þetta væri að hans mati hið furðulegasta. Hann kvaðst ekki hafa íhugað neinar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir að svona atburðir endurtækju sig enda væri erfitt að ná til ferða- manna á hálendinu með lögum. „Þegar menn eru að tala um 20 milljarða eru menn að tala um þetta,“ sagði Sighvátur. „Vandinn er sá að þá þjónustu sem þjóðin vill fá vill hún ekki borga fyrir. Það er út af fyrir sig allt í lagi að fresta einhveijum hluta af reikningnum um skamman tíma til einhverrar framtíðar sem enginn veit hver verð- ur. Það höfum við gert undanfarin ár, en þegar um svona miklar fjár- hæðir er orðið að ræða dugir það ekki lengur. Lækningin við því er ekki nema ein. Sú kynslóð sem nýt- ur þjónustunnar verður að greiða hana. Hún getur ekki ávísað svona háum reikningum á framtíðina. Ann- að hvort verður hún að vera án ein- hvers hluta þjónustunnar sem hún fær eða hún verður að greiða fyrir hana og það er það sem við erum að leita að. Hún vill ekki greiða fyr- ir hana í sköttum og þá er ekki nema um tvennt að ræða. Hvers geta menn verið án í þjónustunni og eru menn þá reiðubúnir að greiða fyrir það sem þeir fá? Þá verður gjaldtakan auðvitað að miðast við gjaldþol þeirra sem greiða. Það er ástæðulaust að ríkið við þessar að- stæður sé að láta í té ókeypis þjón- ustu til fólks sem getur greitt fyrir hana. Það sem þarf hins vegar að veija er fólkið sem ekki getur greitt fyrir þjónustuna sem það þarf að fá og það er ekki hægt að veija það fólk nema að þeir borgi sem geta greitt. Svo einfalt er það.“ Aðspurður sagði hann að það yrði að taka á öðrum þáttum í útgjöldum ríkisins jafnframt, eins og trygg- ingakerfí atvinnurekstrarins, en þar væri landbúnaðurinn fremstur í röð- inni. Sama gilti um gjaldtöku fyrir veiðileyfí, ekki stæði á Alþýðu- flokknum að fara í það. „Þetta verð- ur allt að fylgjast að. Menn fara ekki í erfiðar ráðstafanir í heilbrigð- is-, félags- og menntamálum upp á það að menn haldi áfram að ríkis- reka landbúnað og menn haldi áfram að horfa upp á það að útgerðarmenn velti milljörðum í viðskiptum síii á milli með almannaeigu.“ Birtir til á Suður- og Vesturlandi GERT er ráð fyrir lítilli breytingu á veðrinu norðan- og austaniands næstu daga en sunnan- og vestan- lands verður veður bjartara þegar líður á vikuna. Hiti verður á bilinu 9-11 stig norðanlands en 10-17 stig sunnanlands. Á Norðurlandi, frá Húnaflóa og austur á firði, er gert ráð fyrir skýj- uðu veðri og lítilsháttar rigningu og súld á köflum. Á Suður- og Vestur- landi verður skýjað á köflum og hætt við síðdegisskúrum í uppsveit- um og inni á hálendi. Þegar líður á vikuna er gert ráð fyrir eindregnari norðaustanátt og Lim»tn»»n vnrít’i ----

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.