Morgunblaðið - 16.07.1991, Qupperneq 25
25
MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 1991
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. júlí 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................. 12.123
'A hjónalífeyrir ...................................... 10.911
Fulltekjutrygging .................................... 26.320
Heimilisuppbót ........................................ 8.947
Sérstök heimilisuppbót ................................ 6.154
Barnalífeyrir v/ 1 barns ................................ 7.425
Meðlagv/1 barns ......................................... 7.425
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.653
Mæðralaun/feðralaun v/2ja barna ........................ 12.191
Mæðralaun/feðralaun v/3ja barnaeðafleiri ............... 21.623
Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða ......................... 15.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ....................... 11.389
Fullur ekkjulífeyrir .................................«. 12.123
Dánarbæturí8ár(v/slysa) ............................... 15.190
Fæðingarstyrkur ........................................ 24.671
Vasapeningar vistmanna ..................................10.000
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga .........................10.000
Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar ............................ 1.034,00
Sjúkradagpeningareinstaklings .......................... 517,40
Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ............... 140,40
Slysadagpeningareinstaklings ........................... 654,60
Slysadagpeningarfyrirhvertbarn áframfæri ............... 140,40
18% tekjutryggingarauki, sem greiðist aðeins í júlí, er inni í upphæð-
um tekjutryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbót-
ar.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
15. júlí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 91,00 85,00 87,23 4,979 434.402
Þorskur(óst) 96,00 96,00 96,00 0,537 51.552
Ýsa 128,00 50,00 106,81 14,355 1.533.345
Smárþorskur 67,00 67,00 67,00 0,310 20.770
Karfi 37,00 35,00 36,35 13,749 449.711
Ufsi 60,00 60,00 60,00 0,712 42.720
Steinbítur 53,00 53,00 53,00 0,840 44.520
Smáufsi 50,00 50,00 50,00 0,657 32.850
Langa 60,00 50,00 52,14 2,086 108.762
Lúða 280,00 215,00 236,51 1,198 283.335
Koli 75,00 75,00 75,00 0,045 3.375
Keila 37,00 37,00 37,00 0,570 21.109
Samtals 76,84 40,044 3.076.951
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur (sl.) 91,00 47,00 81,46 50.101 4.081.141
Þorskur smár 75,00 75,00 75,00 3,682 276.150
Ýsa (sl.) 134,00 50,00 103,82 7,929 823.154
Karfi 36,00 35,00 35,41 4,489 158.939
Ufsi 61,00 59,00 60,14 31,563 1.898.097
Steinbítur 50,00 50,00 50,00 0,276 13.800
Langa 50,00 50,00 50,00 0,330 16.500
Lúða 315,00 245,00 280,63 0,527 147.890
Skarkoli 85,00 84,00 84,67 0,160 13.547
Sólkoli 50,00 50,00 50,00 0,099 4.950
Skata 95,00 95,00 95,00 0,060 5.700
Lýsa 24,00 24,00 24,00 0,050 1.200
Kinnar 90,00 80,00 84,55 0,055 4.650
Langlúra 10,00 10,00 10,00 0,046 460
Blandað 35,00 35,00 35,00 0,202 7.070
Undirmál 68,00 67,00 67,01 2,286 153.190
Samtals 74,66 101,735 7.595.038
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 92,00 50,00 84,75 38,847 3.292.316
Ýsa 119,00 79,00 101,39 24,998 2.534.631
Blandaö 24,00 24,00 24,00 0,308 7.416
Hlýri/Steinb. 56,00 56,00 56,00 0,387 21.672
Koli 70,00 70,00 70,00 0,844 59.080
Blálanga 62,00 58,00 60,90 0,734 44.700
Náskata 5,00 5,00 5,00 0,035 175
Langa 52,00 35,00 47,16 0,137 6.461
Undirmál 55,00 52,00 53,75 0,144 7.740
Sólkoli 67,00 67,00 67,00 0,012 804
Skötuselur 445,00 165,00 407,77 0,173 70.545
Skata 84,00 83,00 83,94 0,266 22.328
Steinbítur 57,00 54,00 55,95 0,560 31.330
Karfi 37,00 27,00 34,24 12,698 434.815
Keila 44,00 43,00 43,50 4,004 174.198
Lúða 355,00 90,00 206,09 0,997 105.475
Ufsi 60,00 50,00 55,91 18,363 1.026.757
Samtals 76,71 103,511 7.940.443
Selt var úr Sveini Jónssyni, Ágústi Guðmundssyni, Stafnesi, Keflvíkingi og fl.
A morgun verður selt úr dagróðrabátum og Þuríði Halldórsdóttur.
FISKMARKAÐURINN í ÞORLÁKSHÖFN.
Þorskur (sl.) 113,00 82,00 95,83 3,091 296.218
Þorskur smár 65,00 65,00 65,00 0,162 10.530
Ýsa (sl.) 116,00 64,00 103,52 2,588 267,962
Karfi 32,00 32,00 32,00 0,413 13.216
Ufsi 60,00 60,00 60,00 1,360 81.600
Steinbítur 42,00 42,00 42,00 0,748 31.416
Langa 80,00 20,00 66,26 2,192 145.240
Lúða 290,00 290,00 290,00 0,039 11.310
Skarkoli 74,00 73,00 73,57 3,688 271.338
Keila 28,00 20,00 27,16 0,554 15.048
Skata 97,00 97,00 97,00 0,428 41.516
Samtals 77,66 15,263 1.185.394
Helgi Ass Grétarsson í 2. sæti
Varsjá, frá Andra Grétarssyni fréttaritara Morgunbladsins.
ÍSLENDINGAR fengu ein verð-
laun á heimsmeistarainóti barna
í Varsjá í Póllandi.
I elleftu og síðustu umferð í opn-
um flokki 14 ára og yngri gerði
Helgi Áss Grétarsson jafntefli við
Pólveijann Bartlomiej Macajeja með
svörtu.
Teflt var uppskiptaafbrigði
spænska leiksins. Skákin var í jafn-
vægi allan tímann nema á einum
tímapunkti, í tímahraki átti Helgi
möguleika á að snúa á Pólveijann.
Helgi gerði einnig jafntefli í bið-
skák sinni úr tíundu umferð við Dao
Thein Hai og fékk því átta vinninga
og silfrið.
Kaminski frá Póllandi varð heims-
meistari með 9 l/i
vinning og
Macajeja fékk 7 'h
vinning og brons-
ið.
Þátttakendur í
Helga flokki voru
50 frá yfir 40
þjóðum.
í opnum flokki
12 ára og yngri
gerði Jón Viktor
Gunnarsson jafn-
tefli við Indverj-
ann Das Dipanjan með hvítu. Tefld
var Sikileyjai-vörn.
Jón Viktor fékk 51/’ vinning og
lenti í 19 sæti, af 43 keppendum.
Efstur varð Dualibe, Brasilíu, með
Helgi Áss
Grétarsson.
9'/2 vinning, annar Leko, Ungveija-
landi, einnig með 9'/2 vinning og
lakari stigatölu. í þriðja sæti var
Berescu, Rúmeníu, með 8 vinninga.
í opnum flokki 10 ára og yngri
gerði Bergsteinn Einarsson jafntefli
við Adrian Leroy frá Frakklandi með
svörtu. Tefldur var enskur leikur.
Bergsteinn fékk 6 'h vinning og
lenti í 12 sæti af 36 keppendum.
Heimsmeistari varð Leroy með 8 lh
vinning, annar Vallejo, Spáni með 8
og þriðji Ganguly, Indlandi með 8.
í stúlknaflokki 14 ára og yngri
sigraði Pepten, Rúmeníu. í stúlkna-
flokki 12 ára og yngri sigraði
Blimka, Póllandi, og í stúlknaflokki
10 ára og yngri sigraði Voicu, Rúm-
eníu.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
12.-15. júlí.
Mjög mikill manníjöldi var í
miðbænnum aðfaranótt laugar-
dags. Talsverð ölvun var meðal
fólks, en allt fór tiltölulega frið-
samlega fram. >
Fjórir ungir ökumenn voru
sviptir ökuréttindum sínum aðfara-
nótt Iaugardags. Þeir höfðu orðið
uppvísir að því að aka á yfir 100
km hraða á götum borgarinar.
Aðfaranótt laugardags handt-
óku lögreglumenn í miðbænum
mann, sem hafði veist þar að öðr-
um. Mennirnir þekktust frá fyrri
tíð, en gamalt ágreiningsmál gerði
það að verkum að annar sló til
hins. Kunningi þess bætti síðan
um betur með þeim áfleiðingum
að einhveijir áverkar hlutust af.
Á föstudag var 17 ára drengur
handtekinn í banka á Seltjarnar-
nesi. Hann hafði reynt að fram-
selja þar ávísun úr hefti reiknings,
sem stofnaður hafði verið í öðrum
banka daginn áður, en síðan verið
gengið rösklega fram í að ávísa á.
Á laugardagsnótt voru tveir
tæplega þrítugir menn handteknir
á Grettisgötu eftir að þeir höfðu
reynt að komast þar inn í bíla.
Eftir handtökuna viðurkenndu þeir
að hafa verið að leita sér að bíl
til þess komast á honum leiðar
sinnar. Bíleigendur á þessum slóð-
um höfðu gert mönnnunum erfitt
fyrir með því að hafa bíla sína
læsta og komu þannig í veg fyrir
að einveijum þeirra yrði stolið
þessa nótt.
Tvítugur maður var handtekinn
á laugardagsmorgun. Hann hafði
áður brotið rúðu í bíl við Klapp-
arstíg. Eftir handtökuna kom í ljós
að hann hafði einnig brotið 6 rúð-
ur í barnaheimili við Njálsgötu.
Maðurinn átti erfitt með að gefa
skýringu á háttarlagi sínu.
Á föstudag tóku lögreglumenn
u.þ.b. 30 metra langt laxanet upp
úr Reykjavíkurhöfn. Netið hafði
verið strengt á miili báts við loðnu-
mjölsbryggjuna og olíuskips við
olíubryggjuna. Enginn vildi kannst
við að vera eigandi eða umráða-
maður netsins. Svo virðist sem
mikil laxagengd sé í höfninni um
þessar mundir.
Þijú umferðarslys urðu á föstu-
dag og föstudagsnótt. Um miðjan
dag slösuðust tveir ökumenn og
fjórir farþegar í árekstri tveggja
bíla á gatnamótum Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar. Um
kvöldið slasaðist ökumaður og
tveir farþegar í árekstri tveggja
bíla á gatnamótum Hringbrautar
og Njarðargötu og undir morgún
á laugardag slösuðust tveir öku-
menn í árekstri tveggja bíla á gat-
namótum Laugavegs og Vitastígs.
Samtals gistu 26 fangageymslur
lögreglunnar aðfaranótt laugar-
dags og sunnudags. Þurfti að vísa
málum fjögurra tl dómara að
morgni. I öllum tilvikum var um
að ræða fólk, sem ekki kunni sér
hóf undir áhrifuín áfengis og sýndi
af sé ósæmilegt hátterni gagnvart
lögreglumönnum, sem þurftu að
hafa af því afskipti. Hveiju og einu
var gert að greiða kr. 6.000 til
lúkningar málum sínum.
Tvö umferðarslys urðu á laugar-
dag og aðfaranótt sunnudags. Rétt
fyrir kl. 20.00 'laugardagskvöld
meiddist ökumaður bifhjóls er
hann missti vald á hjólinu í gryfj-
unum í Áslandi og um nóttina
meiddist gangandi vegfarandi þeg-
ar hann lenti fyrir biflijóli á gatna-
mótum Hafnarstrætis og
Pósthússtrætis.
Á sunnudagsmorgun var kvart-
að yfir lélegum umferðarmerking-
um framkvæmda við gatnamót
Kringlumýrarbrautar od Lauga-
vegs. Verktakanum var gert að
færa þær til að betra horfs.
Um kl. 18.00 á laugárdag var
tilkynnt um að jeppabifreið væri
föst í fjöruborðinu við Grandagarð
rétt hjá olíubryggjunni og flæddi
að henni. Þegar lögreglan kom á
staðinn var eigandinn ásamt vini
sínum í óðaangist að reyna að
draga jeppann upp með öðrum slík-
um. Lítið sást í jeppann nema topp-
urinn. Eftir góða stund tókst að
ná honum á þurrt og flytja á brot
með vörubíl. Eigandinn hafði verið
að prófa tryllitækið í fjörunni.
Áðfaranótt sunnudags handtók
lögreglan tvo drengi. 17 og 19
ára, á Laufásvegi. Drengirnir
höfðu reynt að komast þar inn í
bíla og báru pappakassa, fullan
af alls kyns dóti, á milli sín. Þeir
viðurkenndu að hafa stolið dótinu
úr bílum, sem þeir höfðu fundið
ólæsta við Laufásveg og víðar.
Slökkviliðsmenn þurftu að fara
inn um glugga á mannlausri íbúð
við Sólheima á sunnudag, en mik-
inn reyk lagði frá íbúðinni. Reykur-
inn kom frá potti, sem gleymst
hafði á eldavélahellu og kveikt var
á.
Aðfaranótt laugardags veittust
nokkrir unglingar að manni, sem
var á leið heim til sín í Fella-
hverfi. Einn drengjanna sparkaði
í manninn með þeim afleiðingum
að hann féll við og reyndi drengur-
inn þá að sparka í höfuð manns-
ins. Einn drengjanna tók sig þá
út úr hópnum og kom manninum
til aðstoðar, en annars er sýnt að
illa hefði getað farið. Maðurinn
átti ekkert sökótt við drengina og
ekki er vitað til þess að hann hafi
þekkt þá á nokkurn hátt. Vitni að
atburðinum hafa gefið sig fram
og er því vitað hver og hvetjir
voru þarna að verki.
Á sunnudag kom upp eldur í
fiskimjölsverksmiðjuniii Faxamjöli
við Köllunarklettsveg. Eldur var í
mjöli og logaði glatt. Starfsmanni
tókst að slökkva eldinn, en slökkvi-
liðið þurfti til að ljúka við verkið.
Flytja þurfti starfsmanninn á
slysadeild Borgarspítalans vegna
hugsanlegrar reykeitrunar.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
um mann í vandræðum á bát utan
við Gróttu. Lögreglumenn fóru á
vettvang og kom þá í ljós að vél
bátsins hafði stöðvast vegna elds-
neytisstíflu. Stíflan var losuð og
hægt var að koma vél bátsins í
gang.
Um kvöldið var tilkynnt um reyk
frá bát við Eiðisvík. Slökkviliðið
fór á vettvang. Ekki reyndist um
eld að ræða heldur hafði vél báts-
ins ofhitnað með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Tilraunir til íkveikju
TILRAUNIR voru gerðar til að
kveikja í tveim trillum á Húsavík.
aðfaranótt sl. sunnudags, en
skemmdir urðu óverulegar.
Um klukkan 3 aðfaranótt sunnu-
dags, urðu vegfarendur varir við
reyk frá slippnum í Naustafjöru.
Höfðu þar verið dregnar undir
á Húsavík
kinnung 7 tonna trillu, sem var í
slippnum, netadræsur og fleira rusl
og eldur að borinn, sem þó var ekki
orðinn mikill, þá að var komið.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 3. maí - 12. júlí, dollarar hvert tonn
Þeim, sem fyrst að komu, tókst
að slökkva eldinn með því að bera
sand að honum og með slökkvitæki,
sem þau fundu í nálægum bát. Lítils-
háttar skemmdir urðu á kinnungn-
um. Stúlka, sem að slökkvistarfinu
vann, brenndist lítillega.
Á sunnudag varð eigandi trillu,
sem hann átti í höfninni, var við að
hellt hafði verið úr 25 lítra olíubrúsa
víðsvegar um trilluna, í trillunni log-
aði á lítilli kabyssu í lúkar, svo lán
var að olían náði ekki til hennar.
Þarna leikur sterkur grunur á að
tilraun hafi verið gerð til íkveikju.
(Fréttarilari)