Morgunblaðið - 16.07.1991, Síða 44

Morgunblaðið - 16.07.1991, Síða 44
Símabilanir halda áfram: Sérfræð- -ingar ráðþrota MIÐBÆJARSTÖÐ Pósts og síma varð tvisvar sinnum sam- bandslaus í gær. Sérfræðingar L.M. Ericsson-fyrirtækisins standa enn ráðþrota gagnvart bilunum í stöðinni. Að sögn Thors Eggertssonar hjá Pósti og síma voru sænsku sérfræðingarnir í símstöðinni þeg- ar hún bilaði í gær. Það hjálpaði þeim þó lítið til að finna bilunina. jAnnars vegar varð sambandslaust ” við tjölda síma í miðbænum frá klukkan 14.48 til kl. 15.30 og svo aftur í stundarfjórðung um kl. 18. Thor segir að enn sé allt á huldu um hvort þama sé á ferðinni hug- búnaðarvilla eða bilun í vélbúnaði. Aðspurður hvort hugsanlega væri um tölvuveiru að ræða sagði Thor að það væri afar ólíklégt, vegna þess að fjöldi símstöðva um allt land gengi fyrir sama forriti og miðbæjarstöðin. Útlendur fáni á íslensku skipi Morgunblaðið/Árni Sæberg Torkennilegir fánar á íslenskum kaupskipum er ekki lengur óalgeng sjón, því af rúmlega 40 kaupskip- um, sem íslendingar eiga eða reka, siglir tæpur helmingur undir íslenskum fána. Hin skipin eru skráð í ýmsum löndum, svo sem á Kýpur, Möltu, Panama eða Antigua og Barbuda. Á þessari mynd sést leiguskip Eimskipafélagsins, Mánafoss, í Reykjavíkurhöfn og á því blaktir fáni Antigua og Barbuda, sem er eyríki í Vestur-Indíum. Handknattleikur: Sigurður Sveinsson til Selfoss SIGURÐUR Sveinsson, hand- knattleiksmaður, ákvað í að gær að ganga til liðs við 1. deildarlið Selfyssinga og leika með því næsta vetur. I gær voru síðustu forvöð að skipta um félag fyrir næsta vetur og var mikið um félagaskipti. Meðal félagaskipta má nefna að Stefán Kristjánsson skipti úr FH i KA á Akureyri, Gunnar Gunnars- son, sem lék í Svíþjóð, verður með Víkingi, Sigtryggur Albertsson, markvörður úr Gróttu, fór í Fram og Helgi Bragason úr ÍBV í Víking. Einar Þorvarðarson þjálfar lið Selfýssinga næsta vetur og því bætast tveir landsliðsmenn í lið þeirra. Sjá frétt á forsíðu íþróttablaðs. 1.000 manna varalið bandaríska hersins væntanlegt: Fyrstu heræfingamar utan vamarsvæðisins í Keflavík SJÖTTA reglulega varnaræfing Atlantshafsbandalagsins á Is- l^landi, Norðurvíkingur 91, verð- Fuglafræðing- ur gripinn við gluggagægjur ÞÝZKUR fuglafræðingur var handtekinn aðfaranótt laugar- dags þar sem hann var að gægj- ast á glugga í háhýsunum við Hátún. Maðurinn var lítt mæltur á íslenzku og ekki er á hreinu hvort hann taldi athæfi sitt til fuglaskoðunar. Maðurinn var staðinn að verki eftir að kvartanir höfðu borizt frá íbúum. Fyrir skömmu hafði lögregl- an afskipti af erlendum fuglafræð- ingi, sem lagði stund á gluggagægj- ur, en ekki liggur ljóst fyrir hvort um sama mann er að ræða. ur haldin hér á landi 30. júli - 7. ágúst nk. 1.000 manna varalið bandaríska hersins verður flutt til landsins til að taka þátt í æfingunum, sem fara fram á varnarsvæðinu í Keflavík en einnig í fyrsta skipti utan þess, við ratsjárstöðvarnar á Stokk- nesi, Gunnólfsvíkurfjalli og Bolafjalli. Einnig verða æfingar á æfingarsvæði björgunarsveita hersins í uppsveitum Árnes- sýslu. Það 1.000 manna varalið sem hingað verður flutt frá Pennsyl- vaníu í Bandaríkjunum gegnir her- þjónustu í einn mánuð á ári og hefur það sérverkefni að veija Is- land á ófriðar- og hættutímum, samkvæmt upplýsingum Varnar- málaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins. Um er að ræða 17% þess landherafla og 10% alls þess her- afla sem ráðgert er að staðsettur yrði á landinu á slíkum tímum. Um 600 manns munu fást við stjórnstöðvaræfingar en um 400 Trékyllisvík: Hundaþvottur í sundlaug Trékyllisvík. MENN í Norðurfirði urðu varir við bifreið frá Reykjavík, með hjón, þrjú börn og tvo hunda innanborðs sem voru hér á ferða- Iagi, fimmtudaginn 11. júlí s.l. í sjálfu sér telst slíkt ekki til tíðinda og að sjálfsögðu eru allir velkomnir hingað í sveitina, en held- ur fór að síga í brúnir heimamanna er fólkið hafði baðað hunda sína i sundlauginni við Krossnes. Er þeim tilrriælum beint til fólks að það gæti hreinlætis og baði hunda sína frekar í baðkarinu heima hjá sér. Þess má geta að sundlaugin hef- ur verið hreinsuð svo að fólki er aftur óhætt að fara í sund. - V. Hansen. við hinar verklegu landvarnaræf- ingar. í tengslum við æfingarnar verð- ur gengist fyrir hreinsun þeirri á ummerkjum um ratsjárstöðina á Bolafjalli, sem greint hefur verið frá í Morgunblaðinu. Ólafur Ragn- ar Grímsson, alþingismaður, hefur ritað utanrikisráðherra bréf þar sem hann segir ámælisvert að leggja í svo umfangsmiklar heræf- ingar á landinu á sama tíma og afvopnun og samdráttur í herafla einkenni þróun í okkar heimshluta og að kynna hefði átt utanríkis- málanefnd málið sérstaklega. Ól- afur Ragnar sagði við Morgun- blaðið að hann teldi ákveðna stefnubreytingu felast í því að útvíkka æfingarnar þannig að þær færu fram í öllum landshlutum. Sjá nánar á miðopnu. Spariklædd sauðkind slapp úr afmælisboði LÖGREGLAN elti uppi sauð- kind, sem spókaði sig í Skerjafirðinum síðastliðið föstudagskvöld, að því er virtist í leit að bithaga. Sér- staka athygli vakti að ærin var spariklædd, með rauða slaufu um hálsinn. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að ærin hafði sloppið úr afmælisboði í hverfinu. Hafði hún verið ætluð sem gjöf handa barni, en líkaði ekki vist- in og strauk úr samkvæminu. Kindinni var komið í umsjá vörzlumanns sauðkinda á höf- uðborgarsvæðinu, sem kom henni í haga á Mosfellsheiði, en hún mun ættuð úr Þingvalla- sveit. Skattrannsóknardeild um Stöð 2: Söluskattskyld velta vantalinum 157 millj. SAMKVÆMT áliti skattrann- sóknardeildar ríkisskattstjóra var söluskattskyld velta Stöðvar 2 vantalin um 157 milljónir árin 1986, 1987 og 1988. Af því nem- ur vangoldinn söluskattur um 30 milljónum króna. Skýrt var frá þessu í fréttum Stöðvar 2 í -gærkvöldi. Þar kom fram að álitsgerð skattrannsókn- ardeildar hefði borist Stöð 2 í síðustu viku, en rannsókn málsins hófst í október 1988. Var óskað eftir athugasemdum fyrirtækisins við álitsgerðina. Mestur hluti þeirrar fjárhæðar- innar sem um er að ræða, 112 milljónir eða 85 milljónir að við- bættum söluskatti, varðar svo- nefnda kostun á dagskrárgerð og bvort líta eigi á hana sem sölu- skattskylda auglýsingu eða ekki. Páll Magnússon forstjóri Is- lenska útvarpsfélagsins sagði í fréttum Stöðvar 2, að forráða- menn Stöðvarinnar hefðu á sínum tíma ekki litið svo á að greiða bæri söluskatt af kostun á inn- lendri dagskrárgerð og það væri raunar álit félagsins enn þann dag í dag. Skattayfirvöld virtust hins vegar vera á öðru máli hvað þetta varðaði og þá væri ekki annað eftir en fá úrskurð til þess bærra yfirvalda hvort er rétt. Fram kom að ekki hefði verið deilt um þessi mál síðan virðis- aukaskattur var tekinn upp. Um það sem á vantar sagði Páll, að aðallega væri um að ræða vöruskipti, sem skattayfirvöld teldu að hefðu verið bókfærð á of lágu verði og þar af leiðandi greiddir of lágir skattar. Páll sagði aðspurður að ef um saknæmt at- hæfi væri að ræða í því sambandi væri það ekki á vegum þeirra sem ættu, eða stjómuðu fyrirtækinu nú, heldur yrðu aðrir að svara fyrir það. Jóhann J. Ólafsson stjórnarfor- maður Stöðvar 2, sagði við Morg- unblaðið, að þetta væri ekki mál þeirrar stjórnar sem nú stýrði fyr- irtækinu og vísaði á forstjóra þess. Ekki náðist í Pál* Magnússon í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.