Morgunblaðið - 21.08.1991, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
Vogar:
Fékk fimm
punda lax
við húshlið
Vogum.
ÞAÐ eru ekki allir eins heppnir
og hann Olafur Berjólfsson í
Hvammi í Vogum, sem fékk 5
punda lax nánast við húshlið á
heimili sínu þann 14. ágúst. Þeg-
ar aðrir eyða miklu fé og tíma
til að veiða lax fer Ólafur aðeins
20-30 metra frá húsinu þar sem
laxinn kemur og á enga undan-
komuleið.
Það hagar þannig til að síki er
rétt fyrir sunnan Hamm og á stór-
straumsflóði fellur sjór inn í síkið.
Laxinn hefur líklega synt inn á flóð-
inu, en orðið innlyksa á fjörunni,
en þá verður síkið að smáum grunn-
um tjömum. Það heyrðist skvamp
frá tjörninni sem er næst Hvammi
sagði Ólafur f samtali við Morgun-
blaðið, og það sást uggi upp úr
vatninu þegar laxinn synti um.
Heimilisfólkið kom til aðstoðar til
VEÐUR
Skagafjörður:
Héraðsnefnd býður forseta Islands
í þriggja daga opinbera heimsókn
Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson
Ólafur Herjólfsson með laxinn
sem náðist við Hvamm í Vogum.
að ná þessum eftirsótta fiski, og
eftir mikinn hamagang og læti tókst
það.
Það hefur gerst einu sinni áður
að lax hefur gengið í síkið, það var
fyrir 2-3 árum.
- E.G.
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, fer í opinbera heim-
sókn í Skagafjarðarsýslu og
Sauðárkrókskaupstað 23.-25.
þ.m. í boði Héraðsnefndar Skag-
firðinga.
Heimsoknin hefst kl. 9 að morgni
föstudags með móttökuathöfn á
Alexandersflugvelli. Þar flytur odd-
viti héraðsnefndar, Þorsteinn Ás-
grímsson ávarp, og karlakórinn
Heimir syngur. Þá verður ekið að
tónlistarskólanum þar sem snæddur
verður morgunverður, sem mat-
vælaframleiðendur í Skagafirði
bera fram hlaðborð. Þaðan er farið
upp á Nafir, tré gróðursett í Sauð-
árgili og farið í Safnahús Skagfirð-
inga, þar sem opnuð verður sýning
á málverkum skagfirskra lista-
mannna.
í hádeginu á föstudag taka íbúar
Lýtingsstaðahrepgs á móti forseta
í félagsheimilinu Árgarði, en þaðan
verður ekið að Amarstapa, sem er
I/EÐURHORFUR I DAG, 21. AGUST
YFIRLIT: Um 200 km suður af Hornafirði er heldur vaxandi 989
mb lægð á hreyfingu norðaustur.
SPÁ Rigning eða súldarhraglandi við norðurströndina og suður
með Austurlandi, en bjart sunnan lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðlæg átt og heldur hlýnandi veður.
JRigning eða skúrír víða um land, einkum sunnan og vestan lands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestan- eða norðvestan átt og lítið eitt
svalara. Bjart með köflum á Suðaustur- og Austurlandi en skúrir í
öðrum landshlutum.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
s, Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
# * #
-f o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
JKr
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísi tíma
hiti voður
Akureyrl 12 hálfskýjað
Reykjavík 9 úrkoma I grennd
Bergen 14 skýjað
Helsinki 18 skúr
Kaupmannahöfn 16 rigning
Narssarssuag 8 skýjað
Nuuk 7 alskýjað
Osló 21 léttskýjað
Stokkhölmur 20 skruggur
Þórshöfn 13 skúr
Algarve 31 hálfskýjað
Amsterdam 19 skýjað
Barcelona 27 heiðskirt
Berlín 15 rigning
Chlcago 21 léttskýjað
Feneyjar 26 léttskýjað
Frankfurt 24 skýjað
Qlasgow 16 skýjað
Hamborg 18 skúr
London 22 skýjað
LosAngeles 23 mistur
Lúxemborg 23 helðskírt
Madrid 34 mistur
Malaga 26 mistur
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 21 skýjað
NewYork 27 alskýjað
Orlando 32 alskýjað
Paría 25 léttskýjað
Madeira 25 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Vln 20 skýjað
Washíngton 33 þokumóða
Winnipeg 28 skýjað
minnismerki um skáldið Stephan
G. Stephansson. Eftir stutta við-
komu þar verða skátar heimsóttir
í skála þeirra skammt frá og gróð-
ursett tré. Þá verður kirkjan á Víði-
mýri skoðuð og ioks verður sam-
sæti í félagsheimilinu Miðgarði fyr-
ir íbúa Staðar-, Seylu og Akra-
hrepps. Um kvöldið býður bæjar-
stjórn Sauðárkróks til kvöldverðar
í Hótel Mælifelli.
Að morgni laugardags verður
ekið að Sólgörðum og þaðan að
félagsheimilinu Ketilási þar sem
Fljótamenn bjóða til morgunverðar
með íbúum sveitarinnar. Ur Fljótum
verður ekið að Hofsósi, skoðað
bjálkahús, sem nú er í endurbygg-
ingu og farið í Staðarbjargavík þar
sem eru sérkennilegar klettamynd-
anir. í hádeginu bjóða Hofshrepp-
ingar til hádegisverðar í félags-
heimilinu Höfðaborg. .
Frá Hofsósi verður ekið að Hól-
um í Hjaltadal. Þar verður helgi-
stund í Hóladómkirkju, tré gróður-
sett á skógræktarsvæði, og síðan
farið í kaffisamsæti með íbúum
Hóla- og Viðvíkurhrepps í barna-
skólanum. Að lokinni heimsókn að
Hólum verður ekið að Glaumbæ og
bærinn skoðaður. Um kvöldið býður
Héraðsnefnd Skagfirðinga til kvöld-
verðar í félagsheimilinu Miðagarði
í Varmahlíð.
Á sunnudagsmorgni 25. ágúst
verður ekið út á Skaga, en þar taka
íbúar Skefilsstaðahrepps á móti for-
seta í félagsheimilinu Skagaseli.
Þaðan ekið til Sauðárkróks þar sem
forseti þiggur hádegisverð hjá bæj-
arfógetahjónum. Klukkan hálf tvö
er helgistund í Sauðárkrókskirkju
en að henni lokinni verður skoðuð
kirkjan á Sjávarborg og gróðursett
tré við félagsheimili Skarðshrepp-
inga. Þá verður farið á íþróttavöll-
inn á Sauðárkróki, þar sem forseti
afhendir verðlaun á Króksmóti. Því
næst verður heimsókn á öldrunar-
heimilið á Sauðárkróki og að lokum
verður kaffisamsæti í íþróttahúsinu
fyrir Sauðkrækinga og íbúa Skarðs-
og Rípurhrepps.
Heimsókninni lýkur með kveðju-.
athöfn á Alexandersflugvelli kl.
18.30 á sunnudag.
Hálendið:
Ný Gæsavatnaleið
kortlögð næsta sumar
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Vegagerð Ríkisins, var „Nýja-
Gæsavatnaleiðin" opnuð 25. júní
í vor, en hún var rudd í fyrrasum-
ar. Leiðin liggur 200 metrum
neðar en gamla leiðin, og opnast
því mánuði fyrr en ella, eða um
leið og Sprengisandur. Leiðin er
enn ókortlögð, en úr því verður
bætt á sumri komandi. Slóðinn
er fær jeppum en ófær fólksbíi-
um.
Sigurður Hauksson vegaeftirlits-
maður hjá Vegagerð rikisins, segir
að jeppavegur sá er nefnd hefur
verið „Ný-Gæsavatnaleið“, hafí ver-
ið ruddur í fyrrasumar til að hægt
væri að opna fyrr, en leiðin liggur
um 200 metrum lægra en Gæsa-
vatnaleið og opnast þar af leiðandi
3-4 vikum fyrr, eða samtímis
Sprengisandi. I sumar opnaðist hún
25. júní. Nýja-Gæsavatnaleið liggur
frá Tómasarhaga, og austur að
Skjálfanda, en við brúna þar grein-
ast leiðirnar. Eldri leiðin liggur rak-
leiðis að Gæsavötnum en nýja leiðin
fer norður fyrir Þríhyrning, þær
koma síðan saman fyrir sunnan
Öskju. Að sögn Sigurðar hyggst
Vegagerðin halda nýja slóðanum
við eins og öðrum fjallvegum, og
verður leiðin merkt inn á kort um
leið og Landmælingar íslands hafi
tekið loftmynd af slóðanum og gert
nauðsynlegar mælingar, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Landmæl-
ingum íslands, verður Nýja-Gæsa-
vatnaleiðin á aðalkorti því sem
prentað verður fyrir næsta sumar.
„Menn verða þó að gæta þess að
aka veginn ekki á fólksbílum," seg-
ir Sigurður, „leiðin er illfær og að-
eins opin jeppum og stærri bílum.“
1700 manns að með-
altali atvinnulausir
I júlímánuði sl. voru skráðir
36.400 atvinnuleysisdagar á
landinu öllu, 19 þúsund hjá kon-
um en 16 þúsund bjá körlum.
Þetta jafngildir því að 1.700
manns hafi að meðaltali verið á
atvinnuleysisskrá í mánuðinum
en það svarar til 1,2% af áætluð-
um manuafla á vinnumarkaði
6.600 frá mánuðinum á undan eða
um 22% en fækkað um 7.700 miðað
við sama tíma í fyrra. Skráðum
atvinnuleysisdögum fjölgaði í júl-
ímánuði á öllum skráningarsvæð-
um, mest á landsbyggðinni þar sem
hlutfallslegt atvinnuleysi nam 1,6%
á móti 0,9% á höfuðborgarsvæðinu.
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnun- í heild var skipting skráðs at-
ar. vinnuleysis í júlímánuði sl. sem hér
Samkvæmt þessu hefur skráðum segir, flokkað eftir landshlutum og
atvinnuleysisdögum fjölgað um kyni:
Svæði: Konur Karlar Alls
Höfuðborgarsvæðið 1,0% 0,8% 0,9%
Vesturland 3,1% 1,4% 2,1%
Vestfírðir 0,2% 0,3% 0,2%
Norðurland vestra 2,3% 1,2% 1,7%
Norðurland eystra 3,3% 1,4% 2,2%
Austurland 1,5% 1,1% 1,3%
Suðurland 2,6% 0,9% 1,5%
Suðurnes 1,7% 1,1% 1,3%
Landið allt 1,5% 0,9% 1,2%
Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin 1,0% 2,3% M O 'i-* oo 0,9% 1,6%