Morgunblaðið - 21.08.1991, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
5
Stykkishólmur:
Olafur H. Svemsson
ráðinn bæjarstjóri
Stykkishólmi.
BÆJARSTJÓRN Stykkishólms ákvað í gærmorgun með atkvæðum
allra bæjarfulltrúa að ráða Ólaf Hilmar Sverrisson viðskiptafræðing
bæjarsljóra í Stykkishólmi. Umsækjendur voru alls tuttugu talsins.
Ólafur er nú bæjarritari í Kópavogi. Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að starfið leggðist ákaflega vel í sig. Ekki er ákveðið hvenær
hann kemur til starfa.
„Þetta er eflaust erfítt og krefj-
andi starf, en um leið skemmtilegt
og lifandi,“ sagði Ólafur. „Ég er
nú ekki alveg ókunnur þessum slóð-
um, þar sem ég starfaði sem sveit-
arstjóri í Grundarfirði á árunum
1986-90.“
Ólafur er fæddur 13. desember
1959. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1980,
og útskrifaðist sem viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla íslands 1984.
Ólafur er sonur Ingibjargar Þor-
valdsdóttur og Sverris Júlíussonar
fyrrum alþingismanns. Kona hans
er Ragnheiður Gunnarsdóttir hjúkr-
unarfræðingur.
- Árni.
Ólafur H. Sverrisson
Saulján ára ökumað-
ur slasast í bílveltu
SAUTJÁN ára piltur slasaðist
alvarlega er fólksbíll sem hann
ók valt á Álftanesvegi skammt
sunnan við bæinn Landakot aðf-
aranótt sunnudagsins. Farþegi í
bílnum slapp með minniháttar
meiðsl, en að sögn lögreglunnar
í Hafnarfirði var hvorugur
þeirra í bílbeltum.
Lögreglunni barst tilkynning um
slysið kl. 4 aðfaranótt sunnudags-
ins. Talið er að bíllinn hafi oltið
þegar hann lenti í lausamöl. Öku-
maðurinn kastaðist að hluta út um
þaklúgu á bílnum og klemmdist
undir honum. Hann var meðvitund-
arlaus þegar lögregla kom á stað-
inn, en komst til meðvitundar á ný
í sjúkrabifreið á leiðinni á slysa-
deild Borgarspítalans. Að sögn lög-
reglunnar voru meiðsli hans talin
alvarleg.
Tíu téknir
með fíkniefni
LÖGREGLAN í Árnessýslu handt-
ók 10 manns síðastliðinn sunnu-
dagsmorguni húsi í Hveragerði
og færði í fangageymslu vegna
gruns um fíkniefnaneyslu.
Að sögn lögreglunnar fannst
nokkuð magn af fíkniefnum við leit
í húsinu. Þeir handteknu voru um
og yfir tvítugt og búsettir í Árnes-
sýslu og í Reykjavík. Lögreglan vann
að rannsókn málsins ásamt fíkniefn-
alögreglunni í Reykjavík.
ROYAL CROWN'COLA
* Meðalverð í tíu verslunum á höfuðborgarsvæðinu 10.08.91.
RC og Coke eru í margnota umbúðum með 10 kr. skilagjaldi
en Pepsi í einnota umbúðum með 6 kr. skilagjaldi.
- fyrír bragdið og verðið.
RC-Cola st^ndur upp úk..