Morgunblaðið - 21.08.1991, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
9
Óskum eftir aö taka þriggja til fimm herbergja íbúö á
leigu sem allra fyrst, og til lengri tíma. Við eru tveir
félagar rúmlega þrítugir, annar auglýsingateiknari og
hinn rekstrarhagfræðingur. Báðir í góðum stöðum.
Getum útvegað meðmæli sé þess óskað. Göngum
mjög snyrtilega um og erum reglusamir.
Allar nánari upplýsingar eru góðfúslega
veittar i símum 74174 og 620045
Vinum mínum öllum og vandamönnum þakka
ég innilega heimsóknir, kveðjur og gjafir á
áttrœðis afmœli minu þann 21. júlí sl.
Verið ávallt í guðsfriði.
Sveinbjörn Finnsson.
Nú eru raunvextir á
spariskírteinum ríkissjóðs í
áskrift 8,1%. Pantaðu áskrift
núna og þá færðu þessa háu
vexti, á þeim skírteinum sem þú
kaupir til áramóta, þótt vextir
lækki aftur síðar á árinu.
Hringdu eða korndu í Seðlabanka íslands eða
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og pantaðu áskrift
að spariskírteinum rtkissjóðs.
Q
«N
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Kalkofnsvegi 1, Hverfisgötu 6, sími 91- 626040
sími 91-699600 Kringlunni, sími 91- 689797
Traustur þing-
meirihluti
enn til staðar
I forystugrein norska
dagblaðsins Aftenposten
er fjallað um afstöðu
norskra stjómmála-
flokka til samningavið-
ræðnanna um Evrópska
efnahagssvæðið og um-
ræður um það mál á Stór-
þinginu. Þar segir meðal
annars:
„Niðurstaðan lá á
borðinu við upphaf um-
ræðnanna í Stórþinginu
um samningaviðræðum-
ar um Evrópska efna-
hagssvæðið: Sem fyrr
óskar traustur þing-
meirihluti eftir víðtæk-
um EES-samningi, ein-
faldlega vegna þess að
norskir atvinnuvegir
eiga líf sitt undir að hafa
frjálsan aðgang að innri
markaði EB. Þó það nú
væri. Á sínum tíma mark-
aði ríkisstjóm [Gro] Harl-
em Brundtland þá stefnu
sem enn er unnið eftir.
Og ríkisstjórn [Jans P.[
Syse lagði gmndvöllinn
að þeirri samningaskipan
sem núverandi rikis-
stjóm hefur byggt á í
viðræðunum. Á þessurn
tima hefur Miðflokkur-
inn að vísu dregið sig út
úr hinni breiðu samfylk-
ingu, en það breytir ekki
þeirri staðreynd, að þing-
meirihlutinn óskar þess
eindregið, að Noregur
taki þátt í hhiu evrópska
efnahagssamstarfi — í
fyrstu lotu.
Stjórnarandstaðan,
sem var óveiyu samtaka,
notaði tækifærið, undir
forystu Kaci Kullmann
Five, leiðtoga Hægri-
flokksins, til að hala inn
nokkur pólitísk prik með
því að gera sem mest úr
því vanmati, sem án
nokkurs vafa hefur átt
sér stað á fyrri stigum
viðræðnanna. Það var
aðdragandi að þjarki um
það hver hefði misskilið
hvað í þeirri lausn fisk-
veiðivandamálsins, sem
ríkisstjómin var ekki ein
um að halda að hefði
náðst á ráðherrafundin-
um margumtalaða í
Lúxemborg. En þetta
leiddi umræðumar um
aðaiefnið ekki á villigöt-
Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra ráðgast
við samflokksmann sinn, Petter Thomassen, við
EES-umræðurnar í Stórþinginu síðastliðinn föstu-
dag.
Mikilvægast að ná
sem bestum kjörum
í EES-samningnum
í forystugrein Aftenposten segir, að Ijóst
sé, að traustur meirihluti sé enn fyrir því á
Stórþinginu, að áfram verði haldið tilraunum
til að koma samningi um Evrópska efna-
hagssvæðið í höfn, þar sem norskir atvinnu-
vegir eigi allt undir að fá frjálsan aðgang
að innri markaði Evrópubandalagsins.
ur. Kullmami Five sagði
skýrt og skorinort, að
„Ríkisstjórnin nýtur
óskoraðs stuðnings
Hægriflokksins í því
starfi sem inna verður
af hendi til að ná sem
víðtækustum EES-samn-
mgi“. Káre Gjonnes,
þingflokksformaður
Kristilega þjóðarflokks-
ins, var varkárari og
krafðist þess bæði, að
þj óðaratkvæðagreiðsla
færi fram og hélt þeirri
leið opinni, að flokkurinn
gæti hafnað samningn-
um, þegar hann lægi fyr-
ir. Flokkur, sem lítur á
EES-samninginn sem
„sjálfstæðan og varan-
legan valkost á móti EB-
aðild“ á varla annarra
kosta völ.“
Vildu ekki
skoða
afleiðingar
EB-aðildar
Ennfremur segir í for-
ystugrein Aftenposterr.
„Því miður hafnaði
meirihluti þingsins enn
einu sinni tillögu Hægri-
flokksins um að taka til
rækilegrar skoðunar og
yfirvegunar, hvaða af-
leiðingar EB-aðild hefði
fyrir Noreg. Fyrsta
greinargerð Svía um af-
leiðingar aðildar fyrir þá
liggur þegar fyrir. Mark-
viss athugun á því, sem
einnig hlýtur að skipta
okkur mestu, þegar til
lengri tíma er litið,
mundi skapa breiðari
grundvöll að standa á og
verka hvetjandi í þeim
rökræðum, sem Verka-
mannaflokkurinn verður
einnig að taka þátt í,
strax og EES-samningur-
inn liggur fyrir. Tillaga
Hægriflokksins er því
engan veginn út í hött í
þessari umræðu, heldur
minnir á, að við verðum
einnig að undirbúa okkur
fyrir næsta skref í aðlög-
un okkar að hinni nýju
Evrópu.
Slík skoðun mundi þar
að auki skapa meira oln-
bogaiými og víðari sjón-
hring í umræðu okkar
| heima fyrir. Enginn er í
vafa um, að ríkisstjómin
metur ástandið þannig,
að þróunin í Evrópu haldi
áfram á sömu braut. Það
sem Hægrifiokkurinn
biður um er ekki annað
en það, 'að margháttaðar
kannanir, sem þegar fara
fram í ráðuneytunum,
verði með formlegri
hætti en hingað tíl. Og
vel á minnst, dijúgur
hluti grundvallargagn-
anna liggur þegar fyrir
í hlutum EES-samnhigs-
ins, sem fyrir löngu er
kominn á blað.
Það er kannski ekki
neitt reginhneyksli, að
V erkamannaflokkurinn
og rikisstjómin liika enn
á þessum punkti. Ráð-
rúmið, sem hinar lang-
dregnu EES-samninga-
viðræður veita okkur,
væri hins vegar rétt að
nota betur en við höfum
gert. I bili er eigi að síður
mikilvægast að tryggja
okkur samning, sem veit-
ir norskum atvinnuveg-
um aðgang að evrópska
markaðnum á því augna-
bliki, sem innri markaður
EB tekur gildi 1. janúar
1993.“
Höfnum ekki
næstbesta
valkostinum
Loks segir í forystu-
greininni: „í umræðun-
um í Stórþinginu í gær
tókst klókindalega að
forðast að fara í smáatr-
iðum út í það, hvaða nýj-
ar tilslakanir verði nauð-
synlegt að gera, þegar
EES-viðræðumar hefjast
á nýjan leik. Gunnar
Berge, þingflokksform-
aður Verkamannaflokks-
ins, gekk lengst. Ábend-
ing hans um, að við kunn-
um að neyðast til að
ganga að fiskveiðisam-
komuiagi, sem sé ekki
eins hagstætt og það,
sem talið var í höfn eftir
Lúxemborgar-fundinn,
felur hins vegar ekki í
sér nein ný sannindi. Við
vinnum ekki neitt á því
að hafna næstbestu
lausninni í gren\ju okkar
yfir að fá ekki allt sem
við fömm fram á í loka-
lotunni."
9
SKULDABRÉF OLITNIS
Fastir vextir,
ýmsir gjalddagar
Verðtryggð skuldabréf með föstum vöxtum eru ein
besta fjárfesting sem einstaklingar eiga kost á nú.
Raunávöxtun á skuldabréfum eignarleigufyrirtækisins
Glitnis hf., dótturfélags íslandsbanka, er 't.d. 9,5% um
þessar mundir. Ýmsir gjalddagar eru í boði og þannig
má try'ggja 9,5% ársávöxtun allt frá sex mánuðum upp
í fjögur ár.
Ráðgjafar VÍB veita nánari upplýsingar um ávöxtun
sparifjár. Verið velkomin í VÍB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Armula 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.