Morgunblaðið - 21.08.1991, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐÍÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
VALDARANIÐ
I KREML
Edúard Shev-
ardnadze, fyrrver-
andi utanríkisráð-
herra Sovétríkj-
anna, flytur tölu
yfir mannfjölda við
ráðhús Moskvu í
gær. Tugþúsundir
manna voru á
staðnum og mót-
mæltu ákaft valda-
töku átta harðlínu-
manna sem
steyptu Míkhaíl
Gorbatsjov aðfara-
nótt mánudags.
Shevardnadze
sagði að nýja
klíkan yrði ekki
lengi við völd, lýð-
ræðisþróunin yrði
ekki stöðvuð héðan
af en mikil hætta
væri á borgara-
styrjöld vegna at-
burðanna.
Reuter
NIÐURMEÐ
HERFORINGJA-
KLÍKUNA!
Reuter
Kona í Moskvu færir hermanni, sem tók þátt í að gæta öryggis rúss-
neska þinghússins í gær, nokkur egg til að seðja hungrið. Skriðdrek-
ar úr herdeildum, sem ákváðu að styðja Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seta gegn valdaræningjunum, brutu sér leið í gegnum glufur á vamar-
girðingum Sovéthersins umhverfis þinghúsið til að geta tekið sér
Stöðu við þinghúsið þar sem þeir hyggjast veija Jeltsín.
Reuter
Um eitt hundrað þúsund manns söfnuðust saman á útifundi í Leníngrad í gær til að mótmæla valdaráninu
í Kreml og falli Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta. Á kröfuspjaldinu stendur: „Niður með herforingja-
klíkuna! Meðal áttmenninganna sem rænt hafa völdum eru Dmítríj Jazov, hershöfðingi og varnarmálaráð-
herra Sovétríkjanna, Vladímír Kijútjskov, yfirmaður öryggislögreglunnar, KGB, og Boris Púgó innanríkis-
ráðherra. Kijútjskov hefur undir sinni stjórn hátt í þijú hundruð þúsund manna lið KGB-hermanna, sem
hafa allmikið af skriðdrekum og brynvörðum liðsflutningabílum til umráða. Innanríkisráðuneytið hefur á
að skipa tugþúsundum vopnaðra manna og hafa sérsveitir þessa liðs, OMON-liðið eða Svarthúfurnar,
orðið alræmdar fyrir hrottahátt í Eystrasaltslöndunum.
Skriðdrekaher-
maður úr Sovét-
hernum styður sig
við lúguna á farar-
tæki sinu. Óbreytt-
ir borgarar hafa
skreytt drekann
blómum í von um
að bardagamóður-
inn þverri af her-
mönnunum. Fólk
raðaði sér upp yfír
þvera Gorkíj-götu
og tókst að hindra
fylkingu skrið-
dreka í að komast
ferða sinna.