Morgunblaðið - 21.08.1991, Qupperneq 21
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
21
pliorgminMalíili
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
ÁgústlngiJónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Kommúnismi í verki
- fjörbrot fortíðar
"p^að hefur einatt sýnt sig að sag-
an kallar einn mann til vitnis
og ábyrgðar þegar miklir atburðir
gerast og virðist hann þá látinn
gegna einstæðu sögulegu hlutverki
sem tákngervingur þeirra atburða
sem rísa eins og öldurót úr sam-
tímanum. Við þekkjum mörg slík
dæmi þótt við vitum aftur á móti
mætavel að sagan er fyrst og síðast
einskonar hreyfing fjöldans sem ber
fram óskir um nýja tíma, byggðar
á nýjum viðhorfum, sem valda kafla-
skiptum í sögulegri þróun. Fjöldinn
velur sér tákngervinga á örlaga-
stundum og má augljóst vera að sá
maður sem mestar vonir hafa verið
bundnar við í ölduróti Sovétríkjanna,
Jeltsín forseti Rússlands, hefur verið
kallaður í það hlutverk, sem athygli
heimsins beinist að á skrifandi
stundu. Fáir menn hafa breytt sam-
tímanum með jafn áþreifanlegum
hætti og annar Rússi, sem nú er
fallinn í ónáð samstarfsmanna sinna
í Kreml, en var þó kallaður til
ábyrgðar á mikilvægum tímamótum
án þess fjöldinn kæmi þar við sögu
heldur var hann kosinn af fámennri
kommúnískri valdaklíku, að hefð-
bundnum hætti. Atburðarásin hefur
samt leitt hann fram á sjónarsviðið
sem fulltrúa mikilla breytinga og
raunar má fullyrða að kalda stríðinu
hafí linnt á þeim hálfa áratug sem
hann hefur setið að völdum í þessu
víðlenda heimsveldi, sem við köllum
Sovétríkin, en það er eins og kunn-
ugt er samansett af mörgnm og óh'k-
um lýðveldum sem hafa haft nokkra
sjálfstjórn en krefjast þess nú sum
hver að fá fullt sjálfstæði og má þar
nefna Eystrasaltsríkin, Georgíu,
Armeníu og Moldovu. Það er á þess-
um punkti sem hnífurinn stendur í
kúnni og ljóst er að valdaklíkan inn-
an Kremlarmúra hefur ekki látið sér
lynda þá þróun sem augljós var og
átti að leiða til þess að í gær yrði
undirritaður nýr stjómskipunarsátt-
máli lýðveldanna og staðfest í verki
harla mikil og óvenjuleg sjálfstjórn
þeirra þótt reynt væri að halda ríkinu
saman eins og kostur væri.
Hlutverk Gorbatsjovs hefur verið
mikið og merkilegt og verður ávallt
í minnum haft, hvað sem líður ólík-
um skoðunum á því sem hann áork-
aði og erfiðleikunum sem orðið hafa
í kjölfar þeirrar þróunar sem spratt
úr opnunarstefnu hans. Má ólíklegt
þykja að frá henni verði horfíð og
þá einungis um skeið því að augljóst
er að almenningur í Sovétríkjunum
unir ekki lengur því alræðisbrölti
sem einkennt hefur stjórn kommún-
ista í lýðveldunum svo ekki sé talað
um miðstjórnarvaldið innan Kreml-
arveggja. Þó að menn eigi um eitt-
hvert skeið eftir að verða varir við
gamla vofu Stalíns innan þessara
veggja er harla ólíklegt að nokkrum
manni takist að stilla klukkuna eins
og hún var fyrir opnunarstefnu
Gorbatsjovs eða slökkva ljós lýðræð-
islegrar hugsjónar og nýrra viðhorfa
í þessu víðfeðma og mikla veldi.
Kommúnisminn hefur reynst eins
og hvert annað miðaldamyrkur og
hafa gamlir marxistar ekki síst við-
urkennt þá staðreynd og haft uppi
tilburði til þess að sannfæra menn
um að þróun í átt til lýðræðis og
ftjáls markaðar sé á stefnuskrá
þeirra, ekki síður en annarra og þá
að sjálfsögðu einnig tilhneiging til
slökunar og afvopnunar sem leitt
gæti til betra og friðsamlegra
ástands í heiminum en var fyrir
valdatíð Gorbatsjovs. Þó væri ekki
út í hött að ímynda sér að hefðbund-
ið ofbeldi Rauða hersins bitnaði á
Eystrasaltsþjóðunum eins og varð
þegar þessi sami her kæfði frelsisþrá
manna í Ungveijalandi og Tékkó-
slóvakíu enda eru teikn þess þegar
á lofti.
Þess má þá einnig minnast að
mikið ávannst eftir byltinguna í
Búdapest og þá ekki síður eftir fall
Dubceks í Tékkóslóvakíu og raunar
meira en mönnum var þá ljóst. Þessi
staðreynd blasir nú við hveijum þeim
sem kemur til að mynda til Búda-
pest og sér að frelsisþróun var lengra
á veg komin þar eystra en almennt
var álitið. Þannig mundi væntanlega
einnig verða um þali lönd sem nú
horfast í augu við stálgráa bryn-
dreka gömlu hershöfðingjanna í
Kreml, Walesa og Havel gátu ekki
um langt skeið um fijálst höfuð
strokið og hinn síðarnefndi sat árum
saman í fangelsi áður en hann tók
við forsetaembætti í Tékkóslóvakíu.
Forystumenn Eystrasaltsríkjanna
eiga að sjálfsögðu erfiða daga fyrir
höndum en þróun sögunnar stefnir
í átt til frelsis og sjálfstæðis eins
og við sjáum af fyrmefndum dæm-
um frá Ungveijalandi, Póllandi og
Tékkóslóvakíu og víðar austan
Berlínarmúrs og hrunins járntjalds.
Sú hefðbundna aðferð sem Kreml-
arklíkan virðist nú ætla að nota
minnir jafnframt á að valdaránið í
Moskvu hefur síst af öllu orðið með
hefðbundnum hætti heldur hefur það
sýnt önnur einkenni en við erum vön
þegar slíkir atburðir hafa gerst þar
eystra, svo sem þegar Khrústsjov-
klíkan komst til valda og Bería var
fórnað eða þegar Brezhnev braut
valdakerfíð undir sig og handlangara
sína en þá voru einungis gefnar út
tilkynningar um afstaðna atburði
sem engin óvissa var í kringum og
engum datt í hug að hnekkt yrði en
nú bíða menn aftur á móti í ofvæni
eftir því hvað verða vill, með hvaða
hætti sögulegt hlutverk Jeltsíns
verður fullkomnað og hvernig andóf-
inu yrði háttað ef hann hyrfí af sjón-
arsviðinu eins og ráða mátti af at-
burðarásinni upp úr miðnætti.
Þótt atburðirnir í Sovétríkjunum
séu ekki með þeim hætti að um bein
átök sé að ræða milli austurs og
vesturs er grundvallaratriði að Vest-
urlönd haldi vöku sinni, slái ekki af
öryggis- og varnarkröfum Atlants-
hafsbandalagsins og reyni að hafa
þau áhrif til góðs sem sveigt gætu
Kremlveija til áframhaldandi bata í
alþjóðaviðskiptum og þá væntanlega
einnig heima fyrir, þar sem brauð-
laust ríkið stendur á brauðfótum og
vöruskorti er mætt með sýndar-
mennsku. Umbun hersins fyrir þátt-
töku í valdaráninu verður að sjálf-
sögðu aukin útgjöld til hermála og
þá auðvitað á kostnað fátæks fólks
í Sovétríkjunum og annarra þeirra
sem þurfa fremur á nauðsynjum að
halda en hergögnum.
Augljóst er að valdaklíkan hefur
ekki alla þræði atburðarásarinnar í
hendi sér því að hún þurfti á að
halda blaðamannafundi í fyrradag
til að skýra viðhorf sín og draga upp
jákvæða mynd af sjálfri sér en slíkt
hefur aldrei gerst undir sömu kring-
umstæðum í Moskvu. Hitt er þá
einriig nýtt af nálinni að slíku valda-
ráni sé beint gegn löglega og lýðræð-
islega kjörnum fulltrúa rússnesku
þjóðarinnar og þjóðþinginu. Þar sem
skriðdrekum Rauða hersins og öðr-
um vígtólum hans var áður beint
gegn erlendum þjóðum þá ógna þau
nú rússnesku þjóðinni sjáifri og aug-
ljóst að vopnunum, sem áður heftu
frelsisþrá nærliggjandi þjóða, er
ætlað sama hlutverk nú gegn lands-
mönnum valdaklíkunnar. Mótmæl-
endurnir eru ekki nú á götum Búda-
pest eða Prag, fólkið sem nú mót-
mælir þyrpist tugþúsundum saman
út á göturnar í Moskvu og Leníngrad
og verkföllin í Síberíu sýna að
harðlínumenn hafa ekki fullkomið
vald á atburðarásinni og þróunin
hefur ekki orðið með þeim hætti sem
þeir hefðu helst kosið. Það hefði ein-
hvern tíma þótt saga til næsta bæj-
ar að lýðræðislega kjörinn forseti
Rússlands stjórnaði andófi gegn
Kremlveijum og rússneskum hers-
höfðingjum og héldist það uppi í
víggirtu þinghúsi lýðveldisins í miðri
Moskvu þótt Rauði herinn hafí nú
látið til skarar skríða.
Þá hefði það ekki síður einhvern
tíma þótt saga til næsta bæjar að
tugþúsundir manna mótmæltu fyrir-
mælum stjómenda Sovétríkjanna,
þyrptust út á götur og létu í ljós
vanþóknun sína á valdaráni og hern-
aðarbrölti Rauða hersins og allra
síst hefðu menn átt von á því þegar
miðstjórnarvald Sovétríkjanna var
hvað mest að yfirmenn í jaðarríkjum
neituðu að láta nota sig til óheilla-
verka en það virðist nú hafa orðið
í Eistlandi, þar sem yfirmenn rússn-
eska hersins telja sér ekki skylt að
hlýða skipunum um árásir á óbreytta
borgara eða aðra þá sem nú eru
úthrópaðir óvinir heimsveldisins.
Loks er augljóst að hermennimir í
Moskvu hafa rætt við fólkið þar í
borg eins og samlanda en ekki
h'fshættulega óvini, réttdræpa.
Jeltsín krafðist þess að fá að tala
við Gorbatsjov, sú krafa var eðlileg,
hann krafðist þess áð herinn yrði
látinn hverfa á brott og það var
ekki síður eðlilegt.
Við eigum kannski eftir að upplifa
önnur tákn víðar í þessu mikla ríki
og þá hvarflar hugurinn ekki síst til
Moldovu, Armeníu og Georgíu. Þó
veit að sjálfsögðu enginn hvað þar
muni gerast, ekki frekar en annars
staðar í ríkinu. Og menn skyldu
hafa hugfast að Rauði herinn var
kallaður frá Búdapest og allir héldu
að linnt yrði látum en þá var honum
sigað allt í einu á þessa fallegu borg
á sléttunum, forsætisráðherrann
Nagy og yfirhershöfðingi ungverska
hersins, Maleter, vora ginntir, svikn-
ir og drepnir. I Prag var einnig
svikaglenna áður en Rauði herinn
hófst handa og menn vora jaínvel
farnir að ímynda sér að Dubcek
kæmist upp með stefnu sína, sumir
héldu jafnvel í bamaskap sínum að
til væri eitthvað sem hann og aðrir
kölluðu sósíalisma með mannlegri
ásjón, en við fengum að upplifa það
með áþreifanlegum hætti að slík
stefna er ekki til. Og Tékkar urðu
að bíða nokkur ár eftir sínum Havel
— og nú má einnig minnast þess að
útskúfaður Dubcek komstrí forseta-
stól þingsins án þess nokkur fengi
þar rönd við reist. Hann var marx-
isti eins og Gorbatsjov og Jeltsín
upphaflega og því ekki út í bláinn
að líkja ferli hans nú við stjómmála-
baráttu Gorbatsjovs og þróunina
síðustu misseri hvað sem verður.
Atburðirnir í Sovétríkjunum era í
senn ógnvekjandi og einkennandi
fyrir kerfíð. Og þótt ástæða sé til
að hafa af þeim miklar áhyggjur er
ekki fráleitt að ætla að hér sé um
að ræða óheillav.ænleg óttaviðbrögð
ráðalausra manna sem einnig era
tákngervingar sögulegrar þróunar —
og þá einkum úrelts harðstjórnar-
kerfis sem á ekkert erindi við sam-
tímann en er einungis eftirstöðvar
af kenningum sem aldrei hafa virkað
í neinu þjóðfélagi. Það mætti því
með fullum rétti ætla að við séum
nú að upplifa fjörbrot þessarar for-
tíðar. Og nátttröllin kunna ekki einu
sinni að gera byltingu eins og gömlu
harðjaxlamir.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. AGUST 1991
VALDARÁIMIÐ í KREML - Fortfð Rauða hersins
Innrásin í Ungverjaland 1956:
Þúsundir óbreyttra borg-
ara voru brytjaðar niður
„UNGVERSKA þjóðin hefur sýnt heiminum að hún vill leggja allt í
sölurnar til að losna undan rússnesku oki, losna undan ógnarsljórn
og einræði kommúnismans. Hún hefur fórnað miklu því hún metur
frelsi framar öllu. Þeir einir sem hafa þolað áþján og kúgun vita
hvers virði frelsi og lýðræði er.“ Þessi orð flutti kunnur fyrirlesari
í breska útvarpinu daginn eftir innrásina í Ungverjaland. Ungverjar
höfðu reynt að bijótast úr viðjum Sovétmanna en þeim var mætt af
herveldi Sovétmanna af mikilli grimmd sem af mörgum er varla tal-
in eiga sér hliðstæðu nema í hryðjuverkum nasista og villimennsku
miðalda.
Aðdragandinn var býsna langur.
Eftir heimsstyijöldina hafði rússn-
eski herinn áfram aðsetur í landinu
en áhrifin voru lítil til að byija
með. í fijálsum kosningum náðu
kommúnistar meirihluta 1947 eftir
látlausan undirróður stalínista. Upp
úr því var stjórnarandstaðan þurrk-
uð út og flýðu margir forystumenn
land. Einræðisherra kommúnista-
stjórnarinnar varð Matyas Rakosi.
Teknir voru upp hættir sem sjálf-
sagðir þóttu í Sovétríkjunum og
menn grunaðir um ótryggð voru
teknir, pyndaðir og oftast drepnir.
Árið 1948 varð Imre Nagy forsætis-
ráðherra og reyndi að gera nokkrar
tilslakanir en féll í ónáð og varð
að láta af embætti. Kröfur fólksins
voru eftir sem áður háværar og
1956 var Nagy tekinn í sátt af
ungverskum kommúnistum. Um
líkt leyti fór sendinefnd í heimsókn
til Júgóslavíu og var þá stalínistum
nóg boðið. Þeir ákváðu að grípa til
sinna ráða og settu Nagy af.
Uppreisnin hófst 24. október
1956 að loknum götufundi stúdenta
sem kröfðust þess að Nagy kæmi
aftur til valda. Sama kvöld um-
kringdi sovéski herinn Búdapest.
Af hálfu stjórnvalda var sagt að
beðið hefði verið um aðstoð við að
bæla niður byltingu niðurrifsafla
en í ljós kom að herliðið hafði lagt
af stað áður. Herlög voru sett og
fólki bannað að hópast saman.
Menn virtu bannið að vettugi og í
fyrstu varð 'uppreisnarmönnum
nokkuð ágengt enda barðist hluti
ungverska hersins með fólkinu.
Hataður kommúnistaleiðtogi, Eron
Gerö, var rekinn úr embætti en í
hans stað kom Janos Kadar sem
ýmsir bundu vonir við. Frægt var
þegar Stalínslíkneski sem stóð í
miðri Búdapest var brotið niður.
Rauðar stjörnur vora fjarlægðar og
fólk gekk fagnandi um götur og
hrópaði sigurorð. Mannfall var þó
mikið og sjónarvottar sögðu að
hundruð eða þúsundir óvopnaðra
manna hefðu verið brytjuð niður.
Fámennar frelsissveitir börðust
af mikilli hugprýði og tókst öðra
hveiju að hrekja þær sovésku á
brott. En Sovétmenn sendu liðsafla
í skyndi á vettvang og átökin fóru
Þúsundir voru brytjaðar niður.
harðnandi. Að sumra mati dró Nagy
um of taum Sovétmanna. Margir
voru á báðum áttum þegar hann
lýsti yfir að ný stjórn hefði verið
mynduð og ætlaði hún að halda
fijálsar kosningar jafnskjótt og
friður yrði. Leiðtogar frelsissveit-
anna sögðu að kommúnistar væra
að slá-ryki í augu fólks og settu á
stofn ráð. Það bar fram kröfur þar
sem krafist var að sovéski herinn
færi skilyrðislaust úr landinu og
Ungveijar segðu sig úr Varsjár-
bandalaginu. Nagy tók undir kröf-
urnar og gékk á fund sovéska sendi-
herrans, Júríjs Andropovs, sem
seinna varð flokksleiðtogi Sovétríkj-
anna, að greina honum frá þessari
niðurstöðu.
Sovétmenn kváðust nú ætla að
fara úr borginni en fyrir utan hana
beið herlið átekta. Fyrir atbeina
Sovétmanna var stjórn Kadars sett
á laggirnar. Hinn 4. nóvember
gengu ungverskir hershöfðingjar á
fund sovéskra kollega í Búdapest
til að komast að samkomulagi um
frið. Ungveijarnir, þar á meðal
Nagy, sneru ekki aftur. Seinna kom
á daginn að þeir voru handteknir
og síðar drepnir. Morguninn eftir
gerði sovéski herinn úrslitaáhlaup-
ið. Stanslaus skothríð var hafin á
vopnlausa og varnarlausa og stóð
klukkutímum saman. Lengi vel
hafði ungverska stjórnin útvarps-
stöðina á valdi sínu og útvarpaði
síðustu dagana hjálparbeiðnum með
stuttu millibili. Við þeim var dauf-
heyrst. Rétt fyrir klukkan 20 heyrð-
ist síðasta útsendingin: „Við eigum
ekki langan tíma eftir. Hjálpið Ung-
veijum. Hjálp — hjálp — hjálp.“ Þá
var ungverski þjóðsöngurinn leik-
inn. Síðan þagnaði útvarpsstöðin í
Búdapest.
Sovétmenn um innrásina í Tékkóslóvakíu 1968:
„Aðgerðir í þágu friðar“
INNRÁSIN í Tékkóslóvakíu aðfaranótt 21.ágúst 1968 var framin í
skjóli næturmyrkurs. Hersveitir frá Póllandi, Austur-Þýskalandi,
Ungveijalandi og Búlgaríu héldu inn yfir landamærin en fyrir fóru
sovéskar hersveitir. Talið er að hátt í hálf milljón hermenna hafi
tekið þátt í aðgerðunum. Sovétmenn staðhæfðu að ónafngreindir,
tékkneskir valdamenn hefðu óskað eftir að hersveitir yrðu sendar inn
í landið til að bijóta á bak aftur „niðurrifsöfl sem væru alls ráðandi
í landinu“. Þeir kunngerðu að innrásin væri „aðgerðir í þágu frið-
ar“, til að koma i veg fyrir að borgarastríð brytist út.
MIUVIKUIIABUK II. AQÍMT IW«
Innrás í Tékkóslóvakíu
Hersveitir kommúnista-
Hkjonna föru inn yfir
landamærin I nótt
Herinn ekki kraddu Hl vnrnnr
• I »411 Unul M*r >1 dlvnryU 1 k.fU Af rt j
M kH, U iMnvHlir fr* S.vítrfVJu«u«, Au.lur-Hik.-
Uadk rdlUadl, UacwrJ*Uadl * Uúl»mrfu k.fSu UrlB
laa jrllr Uad.mari T*kk4.Uv.Wlu U þa d |m
aUkar M L uuUa alr. Sk.r.61 ólv.rplS * ItfU Ua4>- ’
»ýa« .IIIHa«u ar v.fl« kvmt
Forsíða Morgunblaðsins 21. ágúst 1968. Morgunblaðið var eitt Ör-
fárra blaða í Evrópu sem tókst að birta fréttina af innrásinni á mið-
vikudagsmorgun.
Skömmu áður hafði heræfingum
lokið í Tékkóslóvakíu á vegum Var-
sjárbandalagsins og vörpuðu marg-
ir Tékkar öndinni léttar enda hafði
spennan í samskiptum Sovétríkj-
anna og Tékkóslóvakíu magnast
stig af stigi mánuðina á undan.
Síðari hluta vetrar 1967 hafði
Alexander Dubcek, 46 ára gamall
Slóvaki, tekið við starfi aðalritara
kommúnistaflokksins af stalínistan-
um Antonin Novotny. Hann hófst
handa um að gera verulegar breyt-
ingar í landinu og að honum söfnuð-
ust margir hæfileikaríkir menn,
ungir stjórnmálamenn með nýjar
hugmyndir, rithöfundar, hagfræð-
ingar og ýmsir andófsmenn sem
hafði ekki verið leyft að starfa á
Novotny-valdatímanum. Einna
þekktastur á þeim tíma var Josef
Smrkovsky sem var kjörinn forseti
þingsins. Dubcek var sannfærður
sósíalisti en honum hugnaðist ekki
það stjórnarfar sem hafði ríkt frá
valdatöku kommúnista 1948.
Dubcek stefndi að því að koma
á „sósíalisma með mannlegu yfir-
bragði“. í stefnu hans fólst að lina
á níðingslegum hömlum á ritfrelsi
og prentfrelsi í landinu. Hann og
samstarfsmenn hans höfðu og á
stefnuskrá umfangsmiklar hug-
myndir í efnahagsmálum og næstu
mánuði blómstraði athafnafrelsi í
landinu og mánuðirnir jafnan kall-
aðir „vorið í Prag“ 1968. Aðgerðir
Dubceks og samstarfsmanna hans
mæltust afleitlega fyrir hjá Leóníd
Brezhnev Sovétleiðtoga og öðrum
Kremlarbændum.
Dubcek lét sig ekki. Hann naut
almenns stuðnings hjá öllum þorra
manna sem fögnuðu ákaft ný-
fengnu frelsi til orða og athafna
sem hafði verið óþekkt í tvo ára-
tugi. Dubcek fór aldrei dult með
það að hann hefði ekki í hyggju
að ijúfa tengsl við Sovétríkin, fyrir
honum vekti að breyta kerfi sem
var harðneskjulegt og svipti fólk
grundvallarmannréttindum.
Að kvöldi 20. ágúst 1968 var
miðstjórn tékkneska kommúnista-
flokksins kölluð saman á skyndi-
fund. Brezhnev, sem verið hafði í
heimsókn, var þá nýfarinn aftur til
Sovétríkjanna og er talið að hann
hafí þá hótað Dubcek og samstarfs-
mönnum hans öllu illu. Fundurinn
stóð enn þegar fyrstu fréttir bárust
af því að hersveitir Varsjárbanda-
lagsins undir foiystu Sovétríkjanna
geystust yfir tékkneskt land. Mið-
stjórnin skoraði samstundis á þegna
landsins að sýna stillingu og veita
ekki mótspyrnu en þess krafist að
innrásarliðið yrði dregið til baka.
Það var að engu haft og sólarhring
síðar var öll Tékkóslóvakía á valdi
innrásarliðsins.
Innrásin vakti andstyggð víða um
heim en allt kom fyrir ekki. Alþjóð-
legur þrýstingur hrein ekki á for-
ystu Sovétríkjanna. Dubcek og
nokkrir nánustu samstarfsmenn
hans vora fluttir í böndum til
Moskvu. Þar voru þeir nauðugir
látnir undirrita samning þar sem
kveðið var á um að tekin yrði upp
fyrri stjórnarstefna uns ástandið
væri komið í „eðlilegt horf“ að nýju.
Dubcek var settur til valda á ný
en hann og aðrir tékkneskir leiðtog-
ar voru aðeins leikbrúður í höndum
Sovétmanna. Nokkrum mánuðum
síðar lést Josef Smrkovsky úr
krabbameini. Alexander Dubcek
vék úr starfí 1969 og gegndi um
tíma stöðu sendiherra í Tyrklandi.
Hann var fljótlega kallaður heim
og næst fréttist af honum sem skóg-
arverði í Slóvakíu.
Þó svo hvatt hefði verið til still-
ingar tii að koma í veg fyrir blóðsút-
hellingar eftir innrásina varð mann-
fall þó töluvert, ekki síst í Prag.
Tékkar stóðu saman gegn her-
námsliðinu en fengu lítið að gert.
Það vakti heimsathygli og hrylling
þegar ungur maður, Jan Palach,
brenndi sig til bana á Vaclavs-torgi
í janúar 1969 í örvæntingu yfir því
hvernig fyrir landi hans var koniið.
Fleiri ungmenni gripu til þessa
óyndisúrræðis á næstu mánuðum.
Tékkar voru að vísu komnir aftur
undir járnhælinn en frelsis- og
umbótaanda „vorsins í Prag“ 1968
tókst Sovétmönnum og úrgum vald-
höfum ekki að bijóta niður með
þjóðinni.
Reuter
Skriðdrekar sovéska hersins taka sér stöðu í grennd við Kremlarmúra á mánudag eftir valdaránið. Til
hægri sjást turnar dómkirkju heilags Basils.
Jeltsín býður nýju valdhöfunum birginn:
„Lýðræðið mun sigra en
ekki þessi ólöglega nefnd“
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti rússneska
lýðveldisins, hét því í gær að
halda uppi andspyrnu í ótak-
markaðan tima gégn hinni nýju
neyðarnefnd harðlinumanna,
sem hefur hrifsað völdin í Sov-
étríkjunum. „Krefjist þess að
þeir segi af sér þegar í stíið og
verði leiddir fyrir lög og dóm,“
sagði Jeltsín þegar liann ávarp-
aði þúsundir stuðningsmanna,
sem söfnuðust saman við bygg-
ingu rússneska þingsins í Moskvu
þrátt fyrir bann við stjórnmála-
fundum. „“Lýðræðið mun sigra,
en ekki þessi ólöglega nefnd,“
sagði hann.
Áður hafði Jeltsín hvatt til þjóð-
arandstöðu gegn neyðarnefndinni,
sem vék Míkhaíl Gorbatsjov forseta
frá völdum á mánudag. Um leið
hvatti hann til allsheijarverkfalls
til þess að mótmæla valdatöku
neyðarnefndarinnar, _ sem nýtur
stuðnings hersins. í dag voru
götuvígi umhverfis rússneska þing-
húsið efld og námumenn lögðu nið-
ur vinnu í samræmi við áskorun
Jeltsíns og í trássi við bann nýju
valdhafanna. Vinnu var hætt í
helmingi náma á Kuzbass-svæðinu
í Síberíu og verkfallsmenn lýstu
yfir stuðningi við Jeltsín.
Jeltsín hefur forðast að biðja um
hjálp frá vestrænum ríkisstjórn-
unm, en utanríkisráðherra hans,
Andrej Kozyrev, kom í dag til París-
ar til að leita eftir vestrænum stuðn-
ingi við rússneska lýðveldið. Koz-
yrev á að mynda útlagastjórn, ef
mótmælahreyfing Jeltsíns forseta
verður brotin á bak aftur.
Jeltsín hefur skorað á hermenn
að styðja ekki hina nýju stjórn
harðh'numanna. „Hermenn, liðsfor-
ingjar og hershöfðingjar," sagði
hann í yfirlýsingu.„Ský ógnar-
stjórnar og einræðis hrannast upp
yfir öllu landinu. Við megum ekki
láta viðgangast að þeim fylgi eilíft
myrkur.“
„Hermenn, ég trúi því að þið
getið valið rétt á þessari sorgar-
stund. Heiður og frægð rússneskra
hermanna má ekki ata blóði þjóðar-
innar. Á þessari sorgarstund í sögu
Rússlands skora ég á ykkur: Flæk-
ist ekki i net lyga og loforða og
skrumkenndra hvatninga um „her-
mannaskyldu". Hugsið um ástvini
ykkar, vini ykkar, þjóð ykkar,“
sagði Jeltsín.
Jeltsín er fyrsti sovéski stjórn-
málamaðurinn, sem hefur boðið
kommúnistaflokknum birginn og
farið með sigur af hólmi. Þijósku-
JELTSÍN
1931
Fæddur 1. febrúar í borginni Sverdlovsk í
ÚraHjöllum
1955-68
Starjaði að byggingarstörfum fyrir ýmis
fyrirtæki og stofnanir á heimaslóðum
1961
Gengur í Kommúnistaflokkinn
1968-
Ýmis störf á vegum flokksins
1976-
Aðalritari miðstjórnar Sverdlovsk-deildar
Kommúnistaftokksins
1985-86
Fulltrúi i æðstaráði Sovétrikjanna.
Ritari í miðnefnd Kommúnistaflokksins
Nóvember 1987
Aðalritari Moskvudeildar
Kommúnistaflokksins
1989
Kjörinn fulltrúi á Fulltrúaþing Sovétrikjanna
1990
Kjörinn forseti Rússlands af
æðstaráði Rússlands
1991
Kjörinn með yfirburðum sem forseti
Rússlands í lýðræðislegum kosningum
Ágúst 1991
Leiðir andóf gegn valdaráni harðlínumanna
full andstaða hans gegn flokknum
náði hámarki í síðasta mánuði, þeg-
ar hann tók formlega við embætti
fyrsta forseta rússneska lýðveldis-
ins, sem hefur verið kosinn beinni
kosningu.
Jeltsín hefur verið átrúnaðargoð
kjósenda, sem hafa fengið sig
fullsadda á margra áratuga valda-
einokun kommúnista, og er líklega
vinsælasti stjórnmálamaður Sov-
étríkjanna. Velgengni hans hefur
gert hann heimsfrægan og Gorb-
atsjov er eini sovéski stjórnmála-
maðurinn, sem er kunnari en hann
á Vesturlöndum. Þótt þeir hafi deilt^
hart á undanförnum áram voru
þeir upphaflega nánir samheijar,
en Jeltsín kaus að fara eigin leiðir.
í byijun var Jeltsín pólitískur
skjólstæðingur Gorbatsjovs, en
síðan varó hann helsti keppinautur
hans. Klögumálin gengu á víxl.
Gorbatsjov hefur sakað Jeltsín um
„skefjalausa metnaðargirnd" og
Jeltsín hefur kallað Gorbatsjov
„ævarandi óvin, sem hefur dálæti
á hálfkáki", en ber þó greinilega
talsverða virðingu fyrir honum
vegna umbótastarfs hans.
í febrúar í fyrra hvatti Jeltsín til
þess að Gorbatsjov segði af sér. En
í apríl í vor urðu þeir ásáttir um
að stuðla að því í sameiningu a^
komið yrði á fót nýju, lýðræðislegu
þjóðfélagi í Sovétríkjunum, sem
mótast mundi af markaðshyggju.
Opinberum illdeilum var hætt.
Jeltsin veitti mikilsverða aðstoð
þegar Gorbatsjov reyndi að móta
nýjan sáttmála sambandsstjórnar-
innar og sovétlýðveldanna og
tryggja stuðning við efnahagsum-
bætur frá Vesturlöndum. í staðinn
samþykkti Gorbatsjov að fullveldi
sovétlýðveldanna yrði aukið.
Jeltsín, sem er sextugur að aldri
og fyrrverandi byggingaverkfræð-
ingur, hefur staðið uppi í hárinu á
yfirvöldum allt frá því hann var
ungur flokksstarfsrriaður í
Sverdlovsk í Vestur-Síberíu. Fljót-
lega eftir að Gorbatsjov gerði hann
að yfirmanni flokksdeildarinnar í
Moskvu 1985 fékk hann sæti í
stjórnmálaráðinu. Stöðugar kröfur
hans um að umbótum yrði hraðað
urðu til þess að hann féll í ónáð
og hann var sviptur starfi sínu í
Moskvu í nóvember 1987.
Gagnrýni flokksblaða og emb-
ættismanna urðu hins vegar til þess
að vinsældir hans meðal almennings
jukust jafnt og þétt. í mars 1989
var hann kosinn á þing'í Moskvu
og hlaut 89% atkvæða í fyrstu kosn-
ingum, sem haldnar höfðu verið um
fleiri en einn frambjóðanda.
í júlí í fyrra sagði Jeltsín sig úr
kommúnistaflokknum og vinsældir
hans jukust enn. í júní síðastliðnum
hlaut hann 57% atkvæða í forseta-
kosningum í Rússneska sambands-
lýðveldinu og varð fyrsti forseti
þess sem hefur haft framkvæmda-
vald.