Morgunblaðið - 21.08.1991, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
«8
ÍÞRÓmR
-FÓLX
■ HAFÞÓR Sveinjónsson fékk
ekki samning hjá dönsku bikar-
meisturunum OB. Hafþór var í
reynslu hjá félaginu um viku tíma.
MZORAN Coguric hjá Stjörn-
unni lék tímamótaleik í gærkvöldi
- hans sjöundi leikur í 1. deild og
það leikur sem hann fékk ekki að
sjá gula spjaldið. Coguric, sem kom
inná sem varamaður á 60. mín.,
hafði áður leik sex leiki og fengið
sjá gula spjaldið í þeim öllum.
■ GUÐMUNDUR Steinsson,
miðheiji Víkings, tók niður
grímuna góður í leikhléi í gær-
kvöldi og náði hann að skora mark
með grímu og án grímu. „Ég þoldi
hreinlega ekki lengur að leika með
grímuna," sagði Guðmundur.
I JANNI Zilnik tók stöðu Helga
Björginssonar sem aftasta mann
í vörn Víkings gegn Stjörnunni
og skilaði hlutverki sínu vel.
■ STEFÁN Arnaldsson og
Rögnvald Erlingsson, handknatt-
leiksdómarar, dæma á heimsmeist-
aramóti kvenna, 21 árs og yngri,
.Kgri hefst í Frakklandi á föstudag-
inn. Þeir reikna með að dæma 4-5
leiki.
■ FALCAO var rekinn sem þjálf-
ari Brasilíu í knattspyrnu í gær-
kvöldi, aðeins ári eftir að hann tók
við starfinu. Falcao átti í deilum
við brasilíska knattspyrnusam-
bandið.
SUND / EVROPUMEISTARAMOTIÐ
,Magnús Már setti
íslandsmet í Aþenu
Magnús Már
Ólafsson synti
tvisvar undir
gamla metinu
sínu í 200 m
skriðsundi og
keppti í B-
úrslitum á EM
í Aþenu.
synti 200 m skriðsund á 1:51,90 mín. Roz-
sa setti heimsmet í 100 m bringusundi
MAGNÚS Már Ólafsson bætti
íslansmetið í 200 m skriðsundi
á Evrópumeistaramótinu í
sundi sem hófst í Aþenu í
gær. Ungverjinn Noebert Roz-
sa, setti heimsmet (1:01,29
mín.) í undanrásum í 100 metra
bringusundi, tryggði sér síðan
gullverðlaunin í úrslitasundinu.
Magnús Már bætti íslansmetið
í undanrásunum um rúmlega
sekúndu, synti á 1:51.90 mín. sem
nægði honum til að keppa í B-úrslit-
um. Þar synti hann á 1:52.07 mín.
sem einnig er undir gamla metinu
og hafnaði í 14. sæti af 35 keppend-
um. Þetta var í fyrsta sinn sem
Magnús Már nær því að komast í
B-úrsiit á stórmóti.
Arnþór Ragnarsson varð fyrstur
í mark í fyrsta riðli í undanráðsum
á 1:06,15 mín., en hann varð í 23.
sæti af 32 keppendum. Arnþór var
nokkuð frá íslandsmeti sínu.
Helga Sigurðardóttir varð í öðru
sæti í fyrsta riðli í undanrásum í
100 m skriðsundi á 59,99 sek., en
hún varð í 25. sæti af 32 keppend-
um.
Heimsmet hjá Rozsa
Annars var það Ungveijinn Roz-
sa sem stal senunni í 200 m skrið-
sundininu. Hann sat eftir í startinu
í úrslitasundinu og náði því ekki
að bæta metið aftur frá því undanr-
ásunum eins og flestir höfðu vonast
eftir. Hann synti á 1:01,49 mín., en
í öðru sæti var Adrian Moorhouse
Olympíumeistari frá Bretlandi á
1:01,88 mín. Moorhouse átti heims-
metið í greininni þar til Rozsa bætti
það 7. janúar í ár, 1:01,45 sek.
Gianni Minervini frá Ítalíu varð
þriðji á 1:02,41 mín.
„Ég átti slæmt start. Ég hélt að
einhver hefði þjófstartað," sagði
Roza, sem er 19 ára, eftir úrslita-
sundið. „Ég hef trú á því að ég
hefði náð að synda undir 1:01 mín.
ef startið hefði ekki mistekist. Ég
hef oft náð þessum tíma á æfing-
um.“
Catherine Plewinski frá Frakk-
landi vann gullverðlaunin í 100 m
skriðsundinu á 56,20 sek. Karin
Brienesse frá Hollandi varð önnur
(56,44) og Simone Osygus frá
Þýskalandi varð þriðjaá 56,47 sek.
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna:
Fjögur lið eiga
möguleika
á títlinum
ÚRSLITIN úr viðureign KRog
Vals í gærkvöldi galopnuðu
deildina og fjögur lið eiga
möguieika á íslandsmeistara-
’TPtilinum þegar aðeins tvær
umferðir eru eftir. Arney
Magnúsdóttir gerði sigurmark
Vals á 46. mínútu. Þrátt fyrir
tapið heldur KR efsta sætinu
þar sem liðið hef ur tapað fæst-
um stigum eða 8. Valur hefur
tapað 9 stigum og ÍA og UBK
hafa hvort um sig tapað 10
stigum.
Leikur KR og Vals einkenndist
af mikilli baráttu beggja liða,
enda mikið í húfi. „Við komum til
leiks með því hugarfari að beijast
til sigurs, enda hefði
Hanna Katrín KR komist með aðra
Fríðriksen hönd á bikarinn með
skritar sigri. Það var því um
líf og dauða að tefla
fyrir okkur,“ sagði Sigurbergur
Sigsteinsson, þjálfari Vals, eftir
leikinn.
„Þetta var mjög jafn leikur og
sigurinn hefði getað endað hvoru
megin sem var,“ sagði Arna Steins-
en, þjáifari KR. „Það gerði hins
vegar útslagið að þær nýttu eitt
af sínum færum. Við eigum enn
möguleika á að klára dæmið og það
ætlum við okkur að gera. Ég neita
því þó ekki að reynsluleysi KR
gæti komið sér illa í iokaslagnum,
en stelpurnar eru ekki vanar því
að leika undir álíka pressu og er á
liðinu nú og verður í næstu leikj-
um.“
Þrír Evrópuleikir
í röð í Laugardal
Það verður nóg að gera hjá
knattspyrnuáhugamönnum
um miðjan september því þá leika
Valur, Fram og KR heimaleiki
sína í evrópukeppninni. Þrír leikir
á jafn mörgum dögum og viku
síðar landsleikur vid Frakka.
Það verða Valsmenn sem ríða
á vaðið og leijca við svissnesku
bikarmeistarana Sion á Laugar-
dalsvelli þriðjudaginn 17. sept-
ember. Daginn eftir, miðvikudag-
inn 18. september, leika Framarar
^ við grísku meistarana Panathinai-
kos og fimmtudaginn 19. sept-
ember leika KR-ingar við ítalska
liðið Tórínó. Allir þessir leikir hefj-
ast kl. 17.30.
Knattspyrnuveislan verður
síðan fullkomnuð miðvikudaginn
25. september með leik íslands
og Frakklands á Laugardalsvelli.
Ekki er ólíklegt að Laugardal-
svöllurinn verði illa farinn eftir
allt þetta spark en hann hefur lítið
verið notaður í sumar þannig að
það gæti bjargað einhveiju.
Morgunblaðið/KGA
Arney Magnúsdóttir, sem skoraði sigurmarkið fyrir Val, er hér til vinstri.
Helena Ólafsdóttir, KR-ingur, hefur hér betur en Valur nældi í öll þijú stigin.
Arsenal fékk skell
á Goodison Park
MEISTARAR Arsenal, sem töp-
uðu aðeins einum leik sl.
keppnistímabil, máttu þola
skell á Goodison Park í gær-
kvöldi, þar sem Everton lagði
þá, 3:1. Þetta var mesta tap
Arsenal í deildinni síðan í okt-
óber 1989, en þá máttu meist-
ararnir þola tap, 0:3, fyrir Ever-
ton.
Mark Ward, sem Everton
keypti frá Manchester City,
lék sinn fyrsta heimaleik, skoraði
fyrsta markið á lokasek. fyrri hálf-
leiksins. Þar mpð var mótspyrna
Arsenal brotin á bak aftur og bættu
leikmenn Eveiton tveimur mörkum
við á tólf mín. kafla í seinni hálf-
leik. Tony Cottee skoraði, 2:0, á
59. mín. og Ward bætti sínu öðru
marki, 3:0, við á 71. mín. Nigel
Winterburn svaraði fyrir Arsenal
þremur mín. fyrir leikshlé.
Leeds lagði Nottingharri Forest
að velli á Elland Road, 1:0. Skoski
miðvallarspilarinn Gary McAllister
skoraði markið á 13. mín.
John Aldridge, fyrrum leikmaður
Liverpool, var á skotskónum og
skoraði þijú mörk fyrir Tranmere,
sem vann Halifax, 4:3, í ensku
deildarbikarkeppninni. Aldridge
hefur skorað fimm mörk í tveimur
leikjum.
ÚRSLIT
SR-stigamótið
Haldið á Akranesi.
Þórður E. Ólafsson, GL..............150
Tryggvi Traustason, GK..............155
Guðmundur Sveinbjörnsson, GK........156
Sturla Ómarsson. GR.................156
Ragnar Ólafsson, GR.................156
Gunnar P. Halldórsson, GK...........157
SR-mógið með forgjöf:
Þórður E. Ólafsson, GL...............71
Tryggvi Traustason, GK...............74
Peter Salmon, GR.....................76
Guðmundur Sveinbjörnsson, GK.........76
Konur:
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR........88
Þórdís Arthúrsdóttir, GL............103
ValgerðurKristjánsdóttir, GL........104
Suðurlandsmótið
18 holur leiknar að Flúðum.
Karlar:
Magnús Kristleifsson, GV.............75
Stefán Gunnarsson, GOS...............77
Kjartan Gunnarsson, FOS..............79
Með forgjöf:
Magnús Kristleifsson, GV.............67
Stefán Gunnarsson, GOS...............67
Halldór Guðnason, GF.................67
Konur með og án forgjafar:
Jakobína Guðlaugsdóttir, GV.......73/86
Halldóra Halldórsdóttir, GF......79/107
Guðfmna Ólafsdóttir, GOS.........80/108
GOS sigraði í sveitakeppninni á 402
höggum. GV varð í örðu sæti á 421 höggi,
GHR i þriðja á 464 og GF í fjóðra á 471.
Ljónsbikarmótið
36 holur leiknar á ísafirði.
Án forgjafar:
Sverrir Þorvaldsson, GA.............149
Ragnar Þ. Ragnarsson, GÍ............163
Ómar Dagbjartsson, GB...............165
Með forgjöf:
Gylfi Sigurðsson, GÍ................134
SverrirÞorvaldsson, GA..............137
Ómar Dagbjartsson, GB...............137
Coca-Cola á Ólafsfirði
36 holur leiknar 17. og 18. ágúst.
Karlar:
Sigurbjöm Jakobsson, GÓ.............152
Matthías E. Sigvaldason, GÓ.........155
Brynjar Sæmundsson, GÓ..............161
Með forgjöf:
Sigurbjörn Jakobsson, GÓ............122
Baldur L. Jónsson, GÓ...............126
Gísli Friðfinnsson, GÓ..............129
Öldungar:
Steinar Skarphéðinsson, GSS.........167
Birgir Marinóson, GA................171
Árni B. Árnason, GA.................175
Með forgjöf:
Ámi B. Árnason, GA..................131
Anton Sigurðsson, GÓ................140
SteinarSkarphéðinsson, GSS..........141
Unglinhaflokkur án og með forgj.:
Guðm. R. Jónsson, GÓ............186/130
Gísli M. Gelgason, GÓ...........188/142
Trausti Gylfason, GÓ............223/151