Morgunblaðið - 27.08.1991, Blaðsíða 17
ÁRNAÐ HEILLA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
17
HJÓNABAND. Þessi brúðhjón, Móna He-
lena Jóhannesson og Styrmir Elvar Jóhann-
esson, voru gefin saman í Elverhej-kirkju,
Tromoso, Noregi. Heimili þeirra er í For-
hápningen 18, 9000 Tromso. Sr. Sverre
Nordhus gaf brúðhjónin saman.
, (Ljósmst. Nærmynd)
HJÓNABAND. Brúðhjónin Unnur Astrid
Wilhelmsson og Kolbeinn Jón Ketilsson
voru gefin saman í hjónaband 27. júlf sl.
í Dómkirkjunni af séra Guðmundi Óskari
Ólafssyni. Heimili þeirra er í Vín, Aust-
urríki.
%J*a|É
(Mynd. Hafnarfírði)
HJÓNABAND. Þann 10. ágúst voru Janus
J. Ólafsson og Guðbjörg Markúsdóttir gef-
in saman af séra Heimi Steinssyni, Þing-
völlum. Þau eru til heimilis að Engihjalla
17 Kópavogi.
, (Mynd. Hafnarfirði)
HJÓNABAND. Þann 10. ágúst voru Gísli
Sigurbergsson og Hafdís Sigursteinsdóttir
gefin saman af séra Einari Eyjólfssyni í
Víðistaðakirkju . Þau eru til heimilis að
Laufvangi 10 Hafnarfirði.
^ (Mynd. Hafnarfírði)
HJÓNABAND. Þann 10. ágúst
voru Andrés Jóhannesson og María
Kjartansdóttir gefin saman í Víði-
staðakirkju af Séra Einari Eyjólfs-
syni. Þau eru til heimilis að Suður-
vangi 6.
(Mynd. Hafnarfirði)
HJÓNABAND. Þann 27. júlí voru
Ragnheiður Benjamínsdóttir og Ól-
afur Ingólfsson gefin saman af
Séra Þorbergi Kristjánssyni í Kópa-
vogskirkju. Þau eru til heimilis að
Engihjalla 9.
BYLTEVGI mi.IOSKlllA
Þriggja lita Ijósrit í einni umferð með nýju Minolta EP4230
Ijósritunarvélinni.
Meðtilkomu Ijósritunarvéla varð því sem næst bylting í upplýsinga-
öflun. Nú endurtekur sagan sig með Minolta EP4230 Ijósritunarvélinni.
Minolta EP4230 Ijósritunarvélin með Simul-Color III skilar Ijósritum í
svörtu og tveimur aukalitum í einni umferð. Allt sem þarf að gera er að
skipta blaðinu niður í svæði með littökkum, velja aðgerð svart/litur og
styðja síðan á prenttakkann. Útkoman: Fullkomið afrit í þremur litum.
Hægt er að velja um rauðan, bláan, dökkbrúnan eða grænan lit. Á sama
hátt má afmá hluta af frumriti.
Minolta EP4230 Ijósritunarvélin er mjög fullkomin -og það sem meira
er ótrúlega fyrirferðarlítil. Hún er einföld í notkun, afkastar 23 eintökum á
mínútu, hefur þrefaldan pappírshaldara, stækkarog minnkarfjórfalt,
ákveður stærð pappírs sjálfvirkt, Ijósritar báðar síður bókar í einu á sitt
hvort blaðið, stillir spássíur, afmáir dökka ramma, hefur teygjanlega
stækkun eða minnkun í eina átt, getur Ijósritað báðum megin á blað í einu
og hefur minni fyrir þrjár skipanaraðir.
Hafið samband ogfáið frekari upplýsingar um
Minolta EP4230 Ijósritunarvélina hjá sölumönnum okkar.
Minolta: Einföld og háþróuð Ijósritunartækni.
Ekjaran
* SlÐUMÚLA 14 • SlMI (91) 83022 •