Morgunblaðið - 27.08.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
t
Móðir okkar,
EBBA JÓNSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, sunnudaginn 25. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd systra okkar og annarra vandamanna,
Örn Engilbertsson,
Dagbjört E. Imsland.
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
FANNEY JÓNASDÓTTIR,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. ágúst
kl. 13.30. _
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Jónas Jónasson og dætur.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
INGÓLFS JÓNSSONAR
frá Ásmúla,
Goðheimum 7,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 29. ágúst kl. 13.30.
María Guðbjartsdóttir,
Þráinn Ingólfsson, Guðríður Hermannsdóttir,
Ólafur Jón Ingólfsson, Margrét Á. Hallsdóttir,
Evert Ingólfsson, Elín Njálsdóttir,
og barnabörn.
+ Systir okkar.
SALBJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR
frá Dröngum, Hverfisgötu 6b,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 27. ágúst,
kl. 15.00. Systkinin.
t
Elskuleg eiginkona mín,
MARGRÉT KARLSDÓTTIR
frá Bjargi,
Miðfirði,
andaðist sunnudaginn 25. ágúst á vistheimilinu Seljahíið.
Jarðarförin auglýst siðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arninbjörn Árnason.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR SANDHOLT,
verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 28. ágúst
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á minningarkort
Ljósheimaspítala. Þau fást á spítalanum og pósthúsinu í Hvera-
gerði.
Þormóður Torfason,
Ásgeir Þormóðsson, Claudía
og börnin.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VIGGÓ B. BERGSVEINSSON
vélstjóri frá isafirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. ágúst
kl. 15.00.
Ingveldur Þ. Viggósdóttir, Gísli Ólafsson,
Þráinn E. Viggósson, Margrét Björgvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ERFIDRYKKJUR
Tökum að okkur erfidrykkjurfyrir allt að 250 manns.
Verðfrá kr. 830.-
Upplýsingar í síma 11440 eða á staðnum.
Hótel Borg
Elísabet Guðmunds-
dóttir — Minning
Fædd 11. júlí 1892
Dáin 19. ágúst 1991
Hvenær sem barn þitt fer úr föðurgarði
fylgir því alltaf móðurhugur þinn,
hann var sú bjarta brynja sem mig varði,
minn besti skjöldur, vemdarengill minn,
hann flýgur víða, vakir, er þú sefur,
hann veit, hvar mig á ferðum mínum tefur,
við syðsta haf og ysta ál
hann skiptir aldrei skapi, fyrirgefur,
og skilur hjartans þagnarmál.
(Til móður minnar. Davíð Stefánsson.)
í dag kveðjum við fósturmóður
mfna. Hún var fædd á miklu rausn-
ar- og menningarheimili í Hnífsdal.
Ung að árum fór hún í Kvennaskól-
ann í Reykjavík og síðan á Hús-
mæðraskóla í Danmörku. Móðir mín
var sérstök kona, hún var mér stoð
og stytta og saman upplifðum við
gleði og sorg. Hún hafði þá eigin-
leika að koma öllum í gott skap.
Eftir erfiðan dag var gott að setj-
ast niður með mömmu og ræða við
hana um lífið og tilveruna, þegar
ég lít til baka eru þær stundir þær
dýrmætustu í minningunni. Við
veltum fyrir okkur tilganginum með
lífinu og til hvers væri ætlast af
okkur hér á jörðu. Við mamma
fengum sömu svörin.
Mamma hafði gott auga fyrir því
sem fallegt var enda fyrirmyndar
húsmóðir og móðir, og bar heimili
hennar vott um það, hún lét sig
ekki muna um að hjálpa okkur fóst-
urbörnunum þegar þess þurfti. Þeg-
ar ég lít yfir farinn veg og sit hér
og skrifa þessar línur man ég alltaf
góðu stundirnar okkar saman. Hver
og einn velur sér vini. Móðir mín
var á sínu heimili á Akranesi þar
til faðir minn dó og var það oft
erfitt hjá henni þar sem faðir minn
var orðinn svo mikill sjúklingur, og
hún var ekki heil heilsu sjálf. Þá
flutti hún til Reykjavíkur til að vera
nærri okkur fósturbörnunum og bjó
hún þangað til heilsan fór að verða
það slæm að hún varð að fá hjálp,
orðin 96 ára gömul. Þá fór hún á
Elliheimilið Grund þar sem hún
andaðist 19. ágúst. Ég vil þakka
starfsfólki á sjúkradeild Grundar
góða umönnun þar sem hún naut
skilnings á sínum veikindum síðustu
árin. Eg vil líka trúa því að við
veljum okkur foreldra hér á jörðu.
Ég fékk hana þar sem ég missti
mína móðir þegar ég var 1 árs. Ég
kveð nú og engin önnur hefði orðið
mér betri móðir. Þó mamma sé
horfin héðan yfir móðuna miklu,
veit ég að hún verður alltaf hjá
okkur og við munum hittast aftur.
Að endingu vil ég þakka minni
elskulegri fósturmóður fyrir allt
sem hún hefur gert fyrir okkur
hjónin, börnin og barnabörnin.
Anna Lilja og Olafur Randver
Þegar mamma hringdi í mig á
hádegi mánudaginn 19. ágúst og
sagði mér að amma væri dáin varð
ég orðlaus og bara grét. Amma
okkar var stórbrotin persóna, þar
sem samspil góðrar fórnar, dugnað-
ar og góðmennsku frá henni var
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN KRISTJANA ELÍASDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 29. ágúst kl. 15.00.
Ruth Jóhannsdóttir, Lárus Ingólfsson,
Sveinn Frímann Jóhannsson, Jóhanna Pétursdóttir,
Kristján Pálmar Jóhannsson, Valgerður Sigurðardóttir,
Guðrún Lárusdóttir, Kristín Lárusdóttir,
Heiðar Sveinsson, Elsa Guðrún Sveinsdóttir,
Jóhann Kristjánsson, Birna Kristjánsdóttir,
barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLVARÐUR VALGEIRSSON,
Hrauntungu 85,
Kópavogi,
lést laugardaginn 24. ágúst.
Ásta Baldvinsdóttir,
Valgeir Hallvarðsson, Aðalbjörg Kristinsdóttir,
Eva Hallvarðsdóttir, Ásgeir Valdimarsson,
Herdfs Hallvarðsdóttir, Gísli Helgason,
Rannveig Hallvarðsdóttir,
Tryggvi Hallvarðsson, Guðný Arndal
og barnabörn.
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEiNSMIÐJA
SKEMMUVEGf 48. SIMI76677
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
alveg einstakt. Hún var ákaflega
félagslynd kona og naut hún þeirrar
stunda er hún var í góðra vina hópi.
Fjölskyldu sinni sýndi hún mikinn
kærleik bæði í orði og verki. Marg-
ar voru þær ánægjustundir er ég
sat hjá ömmu minni í stofunni eða
í eldhúsinu og ræddi heimsmál, og
alltaf var það efst í huga hennar
hvernig okkur liði og hvernig heils-
an væri hjá okkur, alltaf mætti
maður miklum skilningi hjá henni.
Amma lét fátt fram hjá sér fara
þrátt fyrir háan aldur, 99 ára.
Fylgdist hún með öllu fram á það
síðasta og las það sem hún náði í
fram á það síðasta.
Amma mín var komin á Elliheim-
ilið Grund. Þangað fór hún 1988.
Þar vinnur móðir mín og veit ég
að hún gerði allt sem hún gat til
að henni liði sem best, alltaf var
mamma boðin og búin að fara með
ömmu út hvort sem það var í búðir
á meðan hún hafði sjálf heimili eða
í heimsóknir til ættingja og voru
það miklar ánægjustundir fyrir
ömmu. Á seinni árum var mamma
mikið með ömmu minni, þær voru
ófáar stundirnar sem þær voru sam-
an. Þegar amma veiktist stóð ekki
á mömmu að sitja hjá henni og
veit ég að það hefur verið oft erfítt
hjá henni, ég veit að mamma á
eftir að sakna hennar mikið eins
og við öll, en minningin lifir. um
góða konu sem öllum vildi vel og
að láta gott af sér leiða. Ég kveð
ömmu mína með söknuði en veit
að nú líður henni vel, hún er komin
til afa.
Hafi hún þökk fyrir allt og allt.
Nú legg ég augun aftur,
ó, guð þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig áð þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engil svo ég sofi rótt.
(Þýð. S.E.)
Þóra Beta
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
BLÓM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.