Morgunblaðið - 10.10.1991, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1991
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Stærri sveitarfélög,
betri samgöngur,
blómlegri byggð
Með málefnasamningnum frá
14. júlí er því slegið föstu,
að komið skuli á skipulögðum
áætlunarbúskap á íslandi.” Þann
veg mælti þáverandi forsætis-
ráðherra í stefnuræðu á Alþingi
fyrir 20 árum, haustið 1971. „í
þessu skyni verður komið á fót
Framkvæmdastofnun ríkisins,
sem hafa skal á hendi heildar-
stjóm fjárfestingarmála og
framkvæmdir í atvinnumálum”.
Undirstöðuatvinnuvegir skyldu
efldír „á grundvelli áætlunar-
gerðar undir forystu ríkisvalds-
ins”.
Lögin um Framkvæmdastofn-
un ríkisins 1971 kváðu m.a. á
um Byggðasjóð, sem fjármagna
skyldi með „framlögum úr ríkis-
sjóði, þannig að árlegt ráðstöf-
unarfé sjóðsins verði eigi lægra
en sem svarar 2% af útgjöldum
fjárlaga”. Miðað við fjárlög 1991
var árlegt ráðstöfunarfé sjóðsins
á núvirði um 2.000 m.kr.
Framsóknarflokkurinn hefur
átt aðild að öllum ríkisstjórnum
á síðustu tveimur áratugum,
1971-1991, ogþar með að fram-
kvæmd laganna um Fram-
kvæmdastofnun ríkisins og
Byggðasjóð. En hvemig hefur
til tekizt? Á þessu tuttugu ára
tímabili hefur íslendingum fjölg-
að um liðlega fimmtíu þúsund,
þar af um rúmlega 41 þúsund á
Reykjavíkur/ Reykjanes-svæð-
inu. Þar bjuggu um 63% þjóðar-
innar á sl. ári.
í ársskýrslu Byggðastofnunar
1990 segir m.a.: „Ekkert lát var
á þeirri búsetubreytingu innan-
lands, sem staðið hefur nær
óslitið í meira en áratug og ein-
kennst hefur af verulegum flutn-
ingi fólks frá landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins ... í all-
mörgum þéttbýlisstöðum lands-
byggðarinnar búa nú færri en
fyrir tíu árum. I sveitum fækkar
íbúum jafnt og þétt.”
Landbúnaður og sjávarútveg-
ur vega mun þyngra í atvinnu
og afkomu landbyggðar en höf-
uðborgarsvæðis. Aflatakmark-
anir í sjávarútvegi og fram-
leiðslutakmarkanir á búvöru
hafa því bitnað mjög illa á stijál-
býlinu. Ör tækniþróun veldur því
og að hægt að framleiða meira
og meira með færri og færri
starfsmönnum. Störfum hefur
fækkað verulega í frumfram-
leiðslu á sama tíma og þjónustu-
störf hvers konar margfaldast á
höfuðborgarsvæðinu. Þessir
gjörbreyttu atvinnuhættir, sem
eru ekki séríslenzkt fyrirbæri,
eru meginorsök búseturöskunar
í landinu, þótt fleira komi til.
Byggðastefnan hefur ekki
staðið undir væntingum. Það
hefði þjónað landsbyggðinni bet-
ur að búa atvinnuvegunum, al-
mennt, viðunandi rekstrar-
grundvöll og samkeppnisstöðu
við umheiminn en að ausa fjár-
munum í fyrirtæki, sem höfðu
ekki rekstrargrundvöll. Tap-
rekstur styrkir enga byggð og
bætir ekki lífskjör, heldur rýrir.
Þá hefði þurft að leggja meiri
áherzlu á fækkun og stækkun
sveitarfélaga og betri samgöng-
ur innan þróunarsvæða. Minna
má á nýlega áfangaskýrslu
nefndar á vegum félagsmála-
ráðuneytisins, þar sem fjallað er
um kosti þess að fækka sveitar-
félögum, utan höfuðborgar-
svæðisins, í 25. Ennfremur á
grein Kristófers Oliverssonar,
skipulagsfræðings hjá Byggða-
stofnun, en hann segir í Fjármál-
atíðindum:
„Aukið sjálfsforræði og efling
sveitarfélganna eru mjög mikil-
væg byggðamál. Stækkun sveit-
arfélaganna og efling stjórn-
sýslukerfisins á landsbyggðinni
eru ein mikilvægasta og raun-
hæfasta aðgerðin sem hægt er
að grípa til í byggðamálum um
þessar mundir ... Sveitarfélaga-
mörkin hafa ekki aðeins verið
Þrándur í Götu í stjórnsýslunni,
heldur eru þau einnig hindrun
fyrir því að rætt sé um samein-
ingu fyrirtækja milli sveitarfé-
laga.”
Valdimar Kristinsson, ritstjóri
Fjármálatíðinda, segir og í grein
um samgöngur:
„Margir telja þjóðarnauðsyn,
að hagrætt verði í sjávarútvegi
og fískvinnslu. Það gerist ekki
nema með því móti, að fækkað
verði uppskipunarstöðum
stærstu fiskiskipanna og minni
fiskvinnslustöðvar geti sérhæft
rekstur sinn. Jarðgöng milli
byggðarlaga eru forsendur þess,
að þetta megi takast á Vestfjörð-
um og Austljörðum og að nokkru
leyti á Norðurlandi.”
Það þarf breyttar áherzlur í
málefnum landsbyggðarinnar.
Þar sem og á höfuðborgarsvæð-
inu skiptir stöðugleiki í atvinnu-
og efnahaglífí meginmáli;
rekstrarskilyrði og samkeppnis-
staða atvinnuveganna. Fækkun
og stækkun sveitarfélaga, góðar
samgöngur innan byggðasvæða
og aðlögun að breyttum atvinnu-
háttum eru og forsendur þess
að sveitarfélög í stijálbýli geti
boðið þau búsetuskilyrði, sem
mestu ráða um það, hvar ungt
fólk velur sér samastað til fram-
búðar.
HEIMSMEISTARAMOTIÐ I BRIDS
Betri sagntækni byggði upp
30 stiga forystu á Pólverja
Yokohama, Japan. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
Örn Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson að hefja fyrsta spilið í
úrslitaleiknum gegn Pólverjum. ísland græddi 8 stig á þessu spili.
ISLAND hafði forystu í úrslita-
leiknum um heimsmeistaratitilinn.
í brids, þegar 64 spilum af 160
var lokið á miðvikudagskvöld. ís-
land hafði þá skorað 182 stig gegn
152 stigum Pólverja og leiddi leik-
inn þegar frá fyrsta spili. Leikur-
inn var mjög skemmtilegur á að
horfa og mikið um sviptingar á
báða bóga, en íslensku spilararnir
sýndu á tíðum yfirburða sagn-
tækni sem fyrst og fremst færði
þeim þetta forskot.
Björn Eysteinsson fyrirliði ís-
lenska liðsins stillti Aðalsteini Jörg-
ensen, Jóni Baldurssyni, Guðlaugi
R. Jóhannssyni og Erni Arnþórssyni
upp í fyrstu 16 spila lotunni. íslend-
ingarnir byijuðu vel og skoruðu 23
stig án þess að Pólveijarnir næðu
að svara fyrir sig. En þá græddu
Pólveijarnir 29 stig á tveimur spil-
um, þar af öðru þar sem ísland fór
niður á 6 hjörtum meðan Pólland
vann 6 lauf.
A/Allir
Norður
♦ ÁD5
VG654
♦ K5
♦ K1064
Vestur Austur
♦ K98763 4 01042
V 2 ¥ KD7
♦ 1098 ♦ D62
♦ D98 +732
Suður
♦ Á10983
4ÁG743
♦ ÁG5
♦
Vestur Norður Austur Suður
Lasocki Jón Gawrys Adalst
pass 1 hjarta
1 spaði 2 spaðar pass 3 spaðar
pass 4 lauf pass 4 tíglar
pass 4 spaðar pass 4 grönd
pass 6 hjörtu
Vestur Norður Austur Suður
Örn Balicki Guðl. Zmudz.
pass pass
pass 1 lauf pass 1 spaði
pass 1 grand pass 3 spaðar
pass 4 lauf pass 4 spaðar
pass 6 lauf
6 hjörtu er mjög góður samning-
ur, sem vinnst í flestum tilfellum ef
hægt er að komast hjá að gefa nema
einn slag á hjartað. Ef hjartaliturinn
er skoðaður einn og sér, er besta
úrspilsleiðin er að tvísvína gegnum
austur, en það gengur ef austur á
K,D eða KD.
En Lasocki spilaði út tígli gegn
slemmunni sem Aðalsteinn hleypti
heim á ás, þegar austur stakk upp
Málning hf.
styrkir
landsliðið
MÁLNING HF. hefir ákveðið að
styrkja landsliðið í brids um
a.m.k. 30 þúsund krónur, hvort
sem sigur vinnst á Pólveijum I
úrslitaleiknum eða ekki. Vinnist
leikurinn með yfir 60 impa mun
greiðir Málning hf. 500 krónur á
hvern impa, til viðbótar við 30
þúsundin. Þetta gæti þýtt að ef
landsliðið vinnur með 100 impum
fengi það 50 þúsund krónur.
Að sögn Stefáns Guðjohnsens
framkvæmdastjóra Málningar er
þessi ákvörðun tekin með það í huga
að sýna strákunum þakklætisvott
fyrir góða frammistöðu og gæti ver-
ið öðrum stærri fyrirtækjum landsins
til eftirbreytni.
Stefán gat þess í lokin að þótt
landsliðið tapaði leiknum myndi
styrkur Málningar hf. aldrei verða
lægri en 30 þúsund krónur.
drottningu. Nú gat verið hættulegt
að spila á tígli á kóng til að svína
hjarta, ef vörnin var að reyna að búa
til tígultrompun. Aðalsteinn lagði því
niður hjartaás í öðrum slag; sú spila-
mennska er ekki mikið lakari en
tvísvíningin en í þetta sinn lenti
Aðalsteinn í einu legunni þegar þetta
gekk ekki upp því nú fékk austur
tvo slagi á tromp.
Við hitt borðið „opnaði” suður á
sterku passi og gervisagnir fylgdu í
kjölfarið. En einhvers staðar rugl-
uðust Pólveijarnir í ríminu«því norð-
ur hélt að suður ætti skiptinguna
0-5-3-5, og sagði því 6 lauf, sem er
vægast sagt ekki góð slemma. En
með þessar upplýsignar spilaði Guð-
laugur út tígli og tígulgosinn hélt
fyrsta slag. Fyrst austur var nú
merktur með tíguldrottningu var
ekki ólíklegt að laufadrottningin
væri á hinni hendinni, svo Balicki
tók laufkóng og svínaði laufi gegnum
Örn. Þegar það gekk allt, spilaði
hann hjarta á áttuna heima og gat
þá lagt upp. Pólland græddi 16 stig
á spilinu.
Island kærði spilið á þeim forsend-
um að austur hefði ekki spilað út
tígli, hefði hann fengið réttar upplýs-
ingar um sagnir. Keppnisstjóri lét
úrslit spilsins standa, en sektaði
Pólveijana um 3 stig, fyrir að kunna
ekki kerfið sitt. Þessum dómi var
áfrýjað til dómnefndar sem úrskurð-
ar væntanlega í málinu í dag.
íslenska liðið lét þetta ekkert á
sig fá og náði forystunni aftur. Stað-
an eftir fyrstu lotu var 40-25 fyrir
ísland. Guðmundur Páll Arnarson
og Þorlákur Jónsson skiptu við Jón
og Aðalstein í annarri lotunni, og
íslendingarnir héldu áfram að spila
eins og þeir væru þegar orðnir
heimsmeistarar.
Norður ♦ ÁG92 ♦ KD7 ♦ 864 ♦ Á75
Vestur Austur
♦ D107 ♦ 8654
VÁ82 V 10965
♦ K975 ♦ DG103
♦ DG8 Suður ♦ K3 ♦ 10
¥G43 ♦ Á2
♦ K96432
Vestur Norður Austur Suður
Szyman. Þorl. Martens Guðm. 1 lauf
pass 1 spaði pass 2 lauf
pass 2 tíglar pass 3 lauf
pass pass 3 hjörtu 5 lauf pass 3 spaðar
Vestur Norður Austur Suður
Örn Gawrys Guðl. Lasocki 2 lauf
pass 2 tíglar pass 2 grönd
pass 3 grönd pass
Guðmundur og Þorlákur sýndu
áhorfendum hvernig ætti að með-
höndla svona spil, með því að segja
5 lauf frekar en 3 grönd þegar sagn-
ir leiddu í ljós veikleika í tígli. Lauf-
ið lá ekki vel, en það gerði spaðinn
hins vegar og spilið vannst slétt, 600
til íslands.
Við hitt borðið fóru Pólveijarnir 3
grönd þegar suður neitaði 4-Iit í
hálit með 2 gröndum. Örn fann tíg-
ulútspilið og þar með náði vörnin að
bijóta sér 3 tígulslagi, til viðbótar
við hjartaásinn og laufslag. Spilið fór
því einn niður og ísland græddi 12
stig.
S/Allir
Norður
♦ D32
41085
♦ 10654
♦ ÁD3
Vestur Austur
♦ G108 ♦ ÁK974
♦ K972 ¥ DG43
♦ G873 ♦ ÁD2
♦ 87 ♦ 5
Suður
♦ 65
4Á6
♦ K9
♦ KG109642
Vestur Norður Austur Suður
Zsyman. Þorl. Martens Guðm.
1 lauf
pass 1 grand 2 tíglar 3 lauf
3 tíglar pass 3 hjörtu 3 grönd
pass pass dobl 4 lauf
Vestur Norður Austur Suður
Örn Lasocki Guðl. Gawrys
1 2 lauf
pass 3 lauf dobl 3 grönd
pass pass dobl 4 lauf
4 hjörtu pass pass pass
Martens sýndi hálitina með 3 tígl-
um og Pólveijarnir fundu samleguna
í hjarta. En Guðmundi tókst að
þagga niður í þeim og fékk á endan-
um að spila 4 lauf sem fóru 1 nið-
ur. Við hitt borðið reyndi Gawrys
að leika sama leikinn, en Örn sagði
hjartageimið sitt hvergi smeykur.
Norður spilaði út laufdrottningunni
og skipti í tigul, drottning og kóng-
ur. Suður spilaði meiri tígli á ásinn,
en Örn braut út hjartaásinn og svín-
aði Ioks fyrir spaðadrottninguna í
norðri. 10 slagir og 620 til Islands.
ísland vann aðra lotuna 54-35 og
hafði þá 33 stiga forystu. Sömu spil-
arar spiluðu fyrir ísland í þriðju lot-
unni, og fljótlega lentu Pólveijarnir
í 5 laufum fyrir misskilning sem
Guðlaugur og Örn dobluðu, uppskáru
1.100 og 14 stig. En Pólveijarnir
náðu stigunum til baka, þegar þeir
hnekktu slemmu, sem Þorlákur og
Guðmundur fóru í, með góðu út-
spili: Stigin héldu áfram að velta
fram og til baka, og lotan endaði
51-44 fyrir Island, sem hafði þá 40
stiga forystu.
Aðalsteinn og Jón komu inn fyrir
Guðlaug og Örn í síðustu lotu gær-
dagsins. Og snemma kom upp sögu-
legasta spilið það sem af er leiknum
og sem á örugglega eftir að fara
víða, hvernig sem þessi leikur endar.
Norður
♦ D108752
4Á82
♦ 3
♦ G43
Austur
♦ G9
4 KD73
♦ KDG8765
♦ -
Suður
♦ ÁK4
4 96
♦ 942
♦ KD1098
Vestur Norður Austur Suður
Lasocki Þorl. Gawrys Guðm.
2 tíglar 3 tíglar 3 hjörtu
3 grönd pass 5 tíglar dobl
Vestur Norður Austur Suður
Aðalst. Balicki Jón Zmud.
1 tígull 2 hjörtu! pass
4 hjörtu 4 spaðarHpass pass
dobl pass pass pass
Opnun Þorláks sagði frá veikum
spilum með 6-lit í öðrum hvorum
hálit, sem skýrir 3 hjarta sögn
Guðmundar. Austur reyndi geimið í
tígli en Guðmundur doblaði og tók
slagina sína þijá. 100 til íslands.
Við hitt borðið byijaði norður á 1
tígli, sem sýndi 0-7 punkta. Jón og
■ ÍSLENSKA
liðið ákvað fyrir
úrslitaleikinn að
njóta þess að spila
hann, brosa við
vondu spilunum,
og setja Pólveijana
þannig ef til vill
útaf laginu. Liðið
Jón Baldursson hefur beitt „bros-
bragðinu” óspart.
Jón Baldursson læddi sér inn á
sagnir Pólveijanna snemma í leikn-
um, fékk dobl í hausinn og fór 800
niður. Hvað, fór ég ekki meira nið-
ur en þetta? sagði hann og brosti
sínu breiðasta.
■ NÚ er Ijóst að þijár Evrópu-
sveitir verða á verðlaunapallinum
eftir heimsmeistaramótið í brids, en
það hefu aldrei gerst áður í sögu
heimsmeistaramóta. Svíar voru að
vonum ánægðir með 3. sætið, eftir
vonbrigðin með ósigurinn gegn Is-
landi í undanúrslitunum.
■ PÓLVERJARNIR ganga enn
um og segja öllum sem heyra vilja,
að Brasilíumennirnir svindli. Þeir
segja, að aldrei í sögu brids í Pól-
N/NS
Vestur
♦ 63
4G1054
♦ Á10
♦ Á7652
Aðalsteinn undirbjuggu sig á þriðju-
dagskvöldið undir að spila gegn pas-
skerfi Pólveijanna, og datt þá í hug
að nota sögnina 2 hjörtu til að sýna
nákvæmlega 4-lit í hjarta og 6-lit í
tígli og opnunarstyrk. Þótt þeir hafi
varla búist við að þetta ætti eftir
að koma fyrir, fékk Jón þegar tæki-
færið til að nota sögnina og Aðal-
steinn stökk beint í eina geimið sem
AV geta unnið.
En Balicki var ekki hættur. Þótt
hann væri á hættu gegn utan kom
hann inn á 4 spöðum og fékk bestu
spil sem mögulegt var upp í blindum.
Áhorfendur sáu, að hægt var að
bana 4 spöðum, ef austur spilaði út
tígli, á ás vesturs, og fengi síðan að
trompa lauf. En Jón spilaði þess í
stað út hjarta, og þar með bókuðu
allir 11 stiga gróða til Póllands.
Norður þurfti aðeins að taka á ás,
taka tvisvar spaða og bijóta út lauf-
ásinn.
En Balicki sá, að hægt var að fá
10 slagi þótt spilið lægi ekki 2-2,
með því að trompa eitt hjarta í blind-
um. Til að halda valdi á spilinu gaf
hann Aðalsteini fyrsta slaginn á
hjartatíuna! Aðalsteinn var fljótur
að nota sér það. Hann tók á laufás,
gaf Jóni laufstungu, komst inn á tíg-
ulás, og gaf Jóni aðra laufstungu.
Spilið var því 2 niður, 500 til íslands
og 12 impar, og Balicki hefur sjálf-
sagt dreymt illa í nótt.
Á þessu stigi var ísland komið
með 66 stiga forystu, en nú fannst
Pólveijunum nóg komið. í síðustu
11 spilunum skoruðu þeir 38 stig
gegn 5. Jón og Aðalsteinn reyndu
slemmu, sem fór niður, og Guðmund-
ur Páll sagði nokkrum sinnum heldur
of mikið á spilin sín í lokin. Lotan
fór því 38-28 fyrir Pólveija.
Meðan á þessu stóð unnu Svíar
Brasilíumenn örugglega, í leiknum
um 3. sætið á mótinu, 151-122. í
kvennaflokki leiddi B-sveit Banda-
ríkjanna í úrslitaleiknum gegn
Austurríki, 203-136. Og Kína vann
A-sveit Bandaríkjanna í leiknum um
3. sætið, 134,5-132 og það er í fyrsta
sinn sem Kínverjar vinna til verð-
launa á heimsmeistaramóti í brids.
Úrslitaleikirnir halda áfram í dag,
og þá verða spiluð 64 spil, þá lýkur
úrslitaleiknum í kvennaflokki en 32
spil til viðbótar verða spiluð í opna
flokknum á föstudag.
Æ BK
♦i n
■ ♦♦
^8 BT
landi, hafi pólskt lið tapað 16 spila
lotu með 70 impa mun, eins og
gerðist í undanúrslitaleiknum gegn
Brasilíu, og þvi hljóti Brassarnir að
hafa notað einhver ólögleg meðul.
Þetta mál, og fleiri, hafa ekki aflað
Pólveijunum vina og áhrifa hér í
Yokohama.
■ HEILLAÓSKA- og hvatning-
arskeytum hefur rignt yfir íslenska
bridslandsliðið síðustu dagana, frá
bridsspilurum, fyrirtækjum og öðr-
um aðilum. Sem dæmi má nefna
að allir spilararnir í Bridsfélagi
Reyðarfjarðar og Eskiijarðar skrif-
uðu undir kveðju, og sendu með
símbréfi til Yokohama.
■ ÁHUGI íslendinga á heims-
meistaramótinu vekur bæði furðu
og öfund meðal bridsmanna í Yoko-
hama. Árangurinn fer heldur ekki
framhjá neinum hér, þar sem sím-
arnir í fréttamannastöðinni hringja
stanslaust frá íslandi, og sagnir og
úrslit í öllum spilunum í úrslitaleikn-
um voru send til Bridssambands
íslands með símbréfum jafnóðum
og þau fengust.
ívantsjúk komst ekkert áleiðis með Jóhann Hjartarson,
Heimsbikarmótið í skák:
Rólegasta umferðin til þessa
___________Skák
Margeir Pétursson
Þrettánda umferðin á Heims-
bikarmóti Flugleiða í gærkvöldi
einkenndist töluvert af stutt.um
jafnteflisskákum. Einungis Eist-
lendingnum Jan Ehlvest tókst að
sigra Alexander Beljavskí. Jó-
hann Hjartarson komst vel frá
skák sinni við Vasílí ívantsjúk,
stigahæsta þátttakandann. Jó-
hann jafnaði taflið eftir byrjun-
ina og sá Ivantsjúk sér þann kost
vænstan að bjóða Jóhanni jafn-
tefli eftir 22 leiki sem var þegið.
ívantsjúk missti þó ekki foryst-
una við þetta, því Karpov gerði
jafntefli við Timman, einnig í 22
leikjum. Þeir Ivantsjúk og
Karpov deila því enn efsta sætinu
með 9 vinninga, en næstu menn
hafa 7‘A.
Viðureign Nikolic og Khalifman
lauk fyrst, en þeir þræddu troðnar
slóðir og þurftu aðeins 25 leiki til
að skipta mestöllu liðinu upp. Þeir
Speelman og Portisch sömdu um
jafntefli eftir 22 leiki og góðvinirn-
ir Andersson og Ljubojevic gerðu
jafntefli í 25 leikjum. Eftir skákina
mátti sjá þá frammi á gangi í hróka-
samræðum á spænsku, en þeir hafa
báðir dvalið langdvölum í spænsku-
mælandi löndum.
Bandaríkjamennirnir Seirawan
og Gúlko gerðu jafntefli í 33 leikj-
um. Hinn fyrrnefndi virtist lengst
af standa nokkru betur, en þótt
Gúlko sé fjaiTÍ sínu besta tókst
honum að halda frumkvæði and-
stæðingsins í skefjum.
Það gengur fátt upp hjá Salov,
hann fékk eilítið betri stöðu með
svörtu gegn Murray Chandler, en
það var ekki útlit fyrir að hann
kæmist lengra áleiðis. Sú skák var
sú eina sem varð lengri en fjórir
klukkutímar.
í fjórtándu og næstsíðustu um-
ferðinni í dag tefla saman: Jóhann-
Portisch, Karpov-Ehlvest, ívantsj-
úk-Andersson, Salov-Speelman,
Beljavskí-Chandler, Khalifman-
Timman, Gúlko-Nikolic og Ljub-
ojevic-Seirawan.
Staðan eftir þrettán
umferðir:
1.-2. Karpov og ívantsjúk 9 v.
3.-6. Ljubojevic, Seirawan, Ehlvest
og Nikolic 7 'h v.
7. Khalifman 7 v.
8. -Speelman 6 'h v.
9. Portisch 6 v.
10. -11. Jóhann og Beljavskí 5 'h v.
12.-13. Chandler og Salov 5 v. og
einni skák ólokið.
14.-15. Timman og Andersson 5 v.
16. Gúlko 4'Á v.
Það var Eistlendingurinn Jan
Ehlvest sem bjargaði annars daufri
umferð í gærkvöldi. Hann tefldi
skoska leikinn gegn Beljavskí og
fórnaði snemma peði fyrir frum-
kvæði. í miðtaflinu kom hann
Beljavskí í mikla klemmu sem Rúss-
inn losaði sig út úr með því að fóma
skiptamun. Sem bætur hafði hann
tvö peð, en staða hans var þrengri.
Ehlvest var hins vegar tímanaumur
og Beljavskí hugðist hagnýta sér
það með því að snúa á hann. En
hann féll á eigin bragði og skákin
endaði með því að mát blasti við.
Hvítt: Jan Ehlvest
Svart: Alexander Beljavskí
Skoski leikurinn
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 -
exd4 4. Rxd4 - Bc5 5. Be3 - Df6
6. c3 - Rge7 7. Bc4 - Re5
Þetta er mun betra en 7. - Dg6?
sem Gúlko lék gegn ívantsjúk fyrr
á mótinu. Eftir 8. Rxc6! - Dxc6
9. Bxf7+ - Kxf7 10. Dh5+ var
svarta staðan þegar orðin mjög
slæm.
8. Be2 - Dg6 9. 0-0 - d5 10.
Bh5! - Dxe4 11. Rd2 - Dd3 12.
R4f3 - Bd6 13. Rxe5 - Bxe5 14.
Bc5! - g6 15. Be2 - Df5 16. Rf3
- Bf6 17. Hel - 0-0 18. Bd3 -
Dd7 19. Re5 - Dd8 20. Df3 -
Kg7 21. h4!
(Sjá stöðumynd efst í næsta dálki.)
Hótun hvíts er sérlega glæsileg,
22. Dxf6+!! - Kxf6 23. Bd4 með
tveimur máthótunum, 24. Rg4 og
24. Rd7
21. - Bxh4 22. Df4 - Bf6 23. Rf3!
Aftur hótar hvítur drottningar-
fórn: 24. Dxf6+! - Kxf6 25. Bd4
mát. Beljavskí sér sig knúinn til að
láta skiptamun af hendi.
23. - Rg8 24. Bxf8+ - Kxf8 25.
Hadl - Kg7 26. c4 - c6 27. cxd5
- cxd5 28. Bc4! - Re7 29. Bb3 -
a5 30. Rg5 - Ha6 31. Re4 - a4
32. Bc4 - He6 33. Dd2 - Dc7
34. Rxf6 - Hxf6 35. Bxd5
Svartur hefur nú ekki nema eitt
peð upp í skiptamuninn og reynir
nú að rugla Ehlvest í ríminu, því
Eistlendingurinn átti ekki nema
rúmlega mínútu eftir á næstu fimm
leiki.
35. - Bg4 36. f3
36. - Rxd5?! 37. fxg4!
En alls ekki 37. Dxd5 - Bxf3!
38, gxf3 - Dg3+
37. - Dg3 38. g5! - Hf4 39. Hfl!
- a3?
Beljavskí er nú sjálfur kominn í
tímahrak og leikur illa af sér, en
staðan er sennilega töpuð.
40. Hxf4 - Rxf4 41. Dd4+ og
svartur gafst upp, því hann er óverj-
andi mát.
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. Vinn.
1. Salov, Sovétr. 2665 X 1 0 h 0 'h 0 1 0 'h 0 'h 1 5+1
2. Seljavskij, Sovétr. 2650 0 X 'h 0 1 'h 'h 'h 0 'h 1 0 'h 'h 5'/2
3. Karpov,Sovétr. 2730 1 'h X 1 1 0 h 1 'h 'h 'h 1 'h 1 9
4. Khalifman, Sovétr. 2630 'Á 1 0 X 'h 1 0 'h 1 'h 'h 'h 'h 'h 7
5. Gulko, Bandarík. 2566 1 0 0 'h. X 'h 0 'h 7i 'h 0 'h 0 'h 4 'h
6. Ljubojevic, Júgósl. 2600 'Á 'h 1 0 'h X Á 'h 1 'h 'h 'h 1 'h 7
7. ívantsjúk, Sovétr. 2735 1 'h 'h 1 1 'h X 'h 'h 'h 1 'h 1 'h 9
8. Andersson, Svíþjóð 2625 0 'h 0 'h 'h 'h X y2 'h h 'h 0 'h y2 5
9. Seirawan, Bandarík. 2615 1 1 'h 0 'h 'h X 'h 1 'h 'h y2 'h 'h l'h
10. Nikolic, Júgóslavíu 2625 'h 'h 'h 'h 'h 'h 'h X 'h 1 1 'h 'h 'h n
11. Timman, Hollandi 2630 1 0 'h 0 'h 'h 0 'h X y2 'h 0 'h 'h 5
12. Ehlvest, Eistlandi 2605 'h 1 'h 'h 'h 'h 'h 0 'h X 1 0 1 1 Th
13. Chandler, Englandi 2605 'h 1 'h 0 1 'h 0 'h 0 X 'h 0 'h 5+1
14. Speelman, Englandi 2630 0 'h 'h 'h 'h 'h % y2 1 1 14 X y2 0 6%
15. Portisch, Ungverjal. 2570 'h 'k 'h 1 0 0 'h 'h 'h y2 0 1 'h X 6
16. Jóhann Hjartarson 2550 0 'h 0 'h 'h 'h 'h 'h 'h 0 'h 1 X 5’/2