Morgunblaðið - 02.11.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
250. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkin:
Krabbameini eytt
með erfðasljórn
Króatar standa í biðröð eftir vatni í borginni Dubrovnik sem júgóslavneski sambandsherinn situr um.
Myndin var trekin í gær. Um 50.000 manns búa við einangrun í borginni. Yfirmenn hersins hótuðu í gær
nýjum árásum á Dubrovnik.
Sjá „Boða nýjar árásir á Dubrovnik” á bls. 21.
Nokkur ár þar til hægt verður að beita
aðferðinni við krabbameinslækningar
Reuter
Washington. Reuter.
BANDARISKUM vísindamönnum hefur tekist með svokallaðri erfða-
stjórn að eyða krabbameinsæxlum í músum. Gátu þeir örvað ónæmis-
kerfi þeirra, svonefndar T-frumur, þannig, að þær útrýmdu krabba-
meinsfrumunum án þess að skaða heilbrigðar frumur.
Er frá þessu skýrt í tímaritinu
Science en jafnframt tekið fram,
að enn sé mikið tilraunastarf óunn-
ið. Höfundur greinarinnar, Paul
Golumbek, vonast þó til, að brátt
verði unnt að reyna þessa aðferð
á mönnum.
Við rannsóknirnir, sem fóru
fram við John Hopkins-læknahá-
skólann, voru teknar krabbameins-
frumur úr mús og erfðaeiginleikum
þeirra breytt þannig, að þær fram-
leiddu mikið af Interleukin-4 eða
IL-4.
Er um að ræða náttúrulegt efni,
sem örvar T-frumumar, en fram-
leiðsla þess í líkamanum vex ekki
þótt hann sé sjúkur af krabba-
meini. Þegar krabbameinsfrumun-
um var komið aftur fyrir í músinni
réðust T-frumurnar á þær og
eyddu.
Michael Blaise, sérfræðingur í
erfðastjórn við bandarísku krabba-
meinsstofnunina, segir, að þessar
tilraunir séu afar merkilegar en
sjálfur gekkst hann fyrir annarri
tímamótatilraun fyrir þremur vik-
um. Fólst hún í því, að reynt var
að bólusetja 46 ára gamlan
krabbameinssjúkling fyrir eigin
krabbameinsfrumum. Var spraut-
að í hann krabbameinsfrumum,
sem hafði verið breytt þannig að
þær framleiddu mikið af TNF
(tumour necrosis factor) en það er
náttúrulegt eggjahvítuefni, sem
drepur krabbameinsfrumur.
Við rannsóknir á músum hefur
komið í ljós, að krabbameinsæxli
vaxa fyrst eftir TNF-meðferðina
en skyndilega stöðvast vöxturinn
og æxlin hverfa. Er vonast til, að
sú verði einnig raunin með mann-
inn.
Sigurður Björnsson læknir sagði
í samtali við Morgunblaðið að mikl-
ar vonir væru bundnar við rann-
sóknir af þessu tagi þó þær væru
enn sem komið væri á tilrauna-
stigi. Hugsanlega væri þarna á
ferðinni gott vopn í baráttunni
gegn krabbameini en nokkur ár
myndu þó eflaust líða þar til hægt
yrði að beita því við almennar
krabbameinslækningar.
Miðausturlandaráðstefnan í Madríd:
Lsraelar og Palestínumenn
hefja viðræður á morgun
Madríd, Tel Avív. Reuter. Frá Ragnari Bragasyni
FRIÐARVIÐRÆÐUR hefjast á
morgun í Madríd milli fulltrúa
Israela og Palestínumanna, að
því er Yitzhak Shamír, forsætis-
ráðherra Israela, og Hanan
Ahrawi, talsmaður Palestínu-
manna, skýrðu frá í gær.
Skömmu eftir yfirlýsingu
Ahrawi sagði Farouq al-Shara,
fréttaritara Morgunblaðsins.
utanríkisráðherra Sýrlands, að
engar ákvarðanir hefðu verið
teknar um tvíhliða viðræður milli
ísraela annars vegar og fulitrúa
arabískra nágranna þeirra á Mið-
austurlandaráðstefnunni í
Madríd hins vegar. Setningar-
fundi ráðstefnunnar lauk í gær
með hatrömmum deilum ísraela
og araba og um tíma varð að
fresta fundum til þess að finna
lausn á deilu um hvar næstu lot-
ur ráðstefnunnar færu fram.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, talaði tæpitungu-
laust til fulltrúa á Miðausturlanda-
ráðstefnunni í gær þegar honum
og Borís Pankín, sovéskum starfs-
Rússland:
Þingið samþykkir um-
bótatillögur Jeltsíns
Moskvu. Rcutcr.
RÚSSNESKA þingfið samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta
tillögur Borisar Jeltsíns forseta sem meðal annars kveða á um að
markaðsbúskapur verði innleiddur í lýðveldinu. Einnig veitti þing-
ið honum aukin völd til að tryggja að breytingarnar nái fram að
ganga.
Fulltrúaþingið, sem er æðsta
löggjafarsamkoma Rússlands,
samþykkti hina róttæku áætlun
Jeltsins með 876 atkvæðum á
móti 16. Samkvæmt tillögunum
verður verðlag gefið frjálst fyrir
árslok, víðtækri einkavæðingu
komið á og peningamagn í umferð
takmarkað. Þingið samþykkti
einnig að fá Jeltsín í hendur vald
til að þagga niður í íhaldssömum
stjórnum sjálfsstjórnarhéraða sem
reyna að hindra að umbæturnar
nái fram að ganga.
Ákvörðun þingsins, sem á sér
ekkert fordæmi, mun leiða til þess,
að Rússland, sem er voldugast
Sovétlýðveldanna, verði driffjöður
efnahagsumbótanna í Sovétríkjun-
um.
Jeltsín er sagður hafa horfið frá
tillögugerð sinni um stofnun sjálf-
stæðs seðlabanka fyrir Rússland.
Ivan Silayev, sem gegnir embætti
forsætisráðherra Sovétríkjanna til
bráðbirgða, sagði Tass-fréttastof-
unni, að hann og Jeltsín hefðu
komið sér saman um, að sovéska
þingið mundi endurskoða beiðni
ríkisstjórnarinnar í Kreml um 30
milljarða rúblna lán frá ríkisseðla-
bankanum. Sú beiðni var ástæða
þess að Jeltsín lagði til, að stofnað-
ur yrði sérstakur seðlabanki fyrir
Rússland.
Harðir andstæðingar umbóta-
áætlunarinnar segja að ráðstafan-
irnar sem grípa eigi til muni leiða
Borís Jeltsín
til fjöldaatvinnuleysis og mikilla
þrenginga almennings, sem þegar
eigi við að stríða alvarlegan skort
á nauðsynjavörum.
Jeltsín sagði á fimmtudag, að
ríkið mundi ákveða verð á helstu
matvörum, olíu, kolum og gasi,
eftir að verðlag á öðrum vörum
hefði verið gefið fijálst.
bróður hans, hafði tekist að setja
niður deilur um fundarstað áfram-
haldandi viðræðna. „Gagnvart þjóð-
um ykkar hvílir sú ábyrgð á ykkur
að semja um frið. Sömu skyldur
hafið þið gagnvart heimsbyggðinni.
Ef þið grípið ekki þetta sögulega
tækifæri verður ekki við neinn að
sakast utan ykkar heimshluta,”
sagði Baker.
Shamir sagði við komuna til Ben
Gurion-flugvallarins í Tel Avív að
það væri ekki vilji Israela að halda
samningaviðræðum áfram í Madríd,
en þeir vildu í gær að næstu við-
ræðulotur færu fram í löndum
deiluaðila en ekki í Madríd. Með
því móti myndu þeir öðlast tákn-
ræna viðurkenningu fjandmanna
sinna. Gegn þessu lögðust hinar
sendinefndirnar á ráðstefnunni og
er Baker sagður hafa beygt ísraela
til að halda fundum áfram í Madríd.
Hanan Ahrawi sagði á blaða-
mannafundi að tvíhliða viðræður
Palestínumanna við ísraela á morg-
un, sunnudag, myndu snúast um
tíma, stað, dagskrá og fyrirkomulag
frekari samningaviðræðna.
Rétt eftir að fundum lauk í
Madríd í gær gerðu ísraelskar orr-
ustuþotur árás á skæruliðastöðvar
í suðurhluta Líbanons í hefndar-
skyni fyrir aðgerðir skæruliða sem
felldu þrjá ísraelska hermenn og
særðu sex sl. þriðjudag.
Sjá „Arabar fordæma ásakanir
Shamirs um gyðingahatur” á
bls. 20-21.
í biðröð eftir vatni